Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 713. mál

Rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur

Nikótínvörur

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 12. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum og fella það undir sömu reglur og gilda samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
5 ræður · 10 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum og fella það undir sömu reglur og gilda samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

Hvað breytist

Lagt er til að settar verði heildstæðar reglur um heimildir til innflutnings, sölu og markaðssetningar á nikótínvörum, auk reglna um eftirlit með slíkum vörum til að tryggja viðhlítandi öryggi. Lagðar eru til breytingar varðandi rafrettur í þeim tilgangi að skýra frekar eftirlit með auglýsingabanni því sem kveðið er á um í lögunum. Jafnframt er gert ráð fyrir að sá hluti laganna er lýtur að almennum eftirlits- og valdheimildum verði endurskoðaður. Þá eru lögð til ný­mæli til að koma á sambærilegri umgjörð um innflutning, sölu og eftirlit með nikótínvörum, m.a. nikótín­púðum, á Íslandi með hliðsjón af þeim reglum er gilda í Evrópu, sér í lagi á Norðurlöndunum.

Lög sem breytast

Lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018. Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011. Efnalög, nr. 61/2013.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir verulegum útgjöldum fyrir ríkissjóð. Mat á fjárhagslegum áhrifum verður endurskoðað nánar við gerð fjárlaga 2022 þegar ítarlegri gögn liggja fyrir.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ólafur Þór Gunnarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
British American Tobacco, Neytendastofa, Félag atvinnurekenda, Æskan - barnahreyfing IOGT, Sven ehf. o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
10 mín · 5 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir verulegum útgjöldum fyrir ríkissjóð. Mat á fjárhagslegum áhrifum verður endurskoðað nánar við gerð fjárlaga 2022 þegar ítarlegri gögn liggja fyrir.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-277/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2020 – 31. jan. 2021· 25 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)

Í frumvarpi þessu sem er samið í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Með breytingunum eru tóbakslausar nikótínvörur felldar undir gildissvið laganna, þar á meðal nikótínpúðar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-277/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. janúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)

Máli þessu lauk með framlagningu frumvarps á 151. löggjafarþingi, en var ekki samþykkt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Helena Líndal Baldvinsdóttir

    F.h. Eitrunarmiðstöðvar Landspítala þá óskar miðstöðin eftir því að bætt verði við kaflann "14. gr. Tilkynning til Neytendastofu." að skyllt sé að senda Eitrunarmiðstöðinni öryggisblöð fyrir þær nikótínvörur sem óskað er eftir að selja. Öryggisblöðin verði send á netfangið: eitur@landspitali.is

  • #2Hafnarfjarðarkaupstaður

    Sjá meðfylgjandi viðhengi.

  • #3LYFIS ehf.

    Meðfylgjandi eru athugasemdir forsvarsmanna LYFIS vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)

  • #4Fjölmiðlanefnd

    Í hjálögðu viðhengi er umsögn fjölmiðlanefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018 um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur).

  • #5Ingibjörg Þ Sigurþórsdóttir
    Umsögn um: 151. löggjafarþing 2020-2021. Mál nr. 277/2020 Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Undirrituð sitja í Samráðshópi um forvarnir hjá Reykjavíkurborg og hafa kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Hópurinn, sem samanstendur af sérfræðingum stjórnsýslusviða borgarinnar sem hafa með málefni barna og unglinga að gera, telur brýna þörf á skýrri löggjöf um nikótínvörur sem takmarkar aðgengi að vörunum og fagnar því þessari lagabreyt… Lesa alla

    Umsögn um: 151. löggjafarþing 2020-2021. Mál nr. 277/2020 Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Undirrituð sitja í Samráðshópi um forvarnir hjá Reykjavíkurborg og hafa kynnt sér frumvarp til laga um breytingar á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur). Hópurinn, sem samanstendur af sérfræðingum stjórnsýslusviða borgarinnar sem hafa með málefni barna og unglinga að gera, telur brýna þörf á skýrri löggjöf um nikótínvörur sem takmarkar aðgengi að vörunum og fagnar því þessari lagabreytingu. Hópurinn lýsir yfir ánægju sinni á því að aldursmörk sölu og afhendingar miðist við 18 ára aldur og að sýnileikabann verði í almennum verslunum. Jafnframt því að ekki megi auglýsa nikótínvörur, að á umbúðum verði viðvaranir og merkingar um styrkleika nikótíns. Einnig er ánægjulegt að hámarksstyrkleiki nikótíns í vörunum verði lögbundinn. Að öðru leyti eru eftirfarandi athugasemdir gerðar við frumvarpið. Notkun nikótínpúða er umtalsverð meðal unglinga. Í október síðastliðnum höfðu um 10% unglinga í 10. bekk grunnskóla notað nikótínpúða í vör einu sinni eða oftar 30 daga þar á undan. Ekki hefur verið unnt að bregðast afdráttarlaust við neyslu ungmenna vegna skorts á tilhlítandi lagasetningu. Lagt er til að notkun nikótínvara verði óheimil, sbr. 12. gr. fyrrgreindra laga ,,í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og öðrum menntastofnunum sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna,“ Því mikilvægt er að notkunin sé bönnuð bæði fyrir börnum og fullorðnum í starfsemi með börnum. Það er ekki gott ef hinar fullorðnu fyrirmyndir mega neyta nikótínvara fyrir framan börnin í starfinu. Jafnframt telur hópurinn mikilvægt að lögin taki til þess að börn og unglingar geti ekki keypt sér nikótívörur á netinu og að girt verði fyrir að unglingar geti pantað nikótínpúða á netinu og fengið afhent á bensínstöðvum. Hópurinn veltir því upp hvort ekki hefði verið heppilegt að vera með eina löggjöf sem nái til tóbaks og nikótíns, þ.e að sameina löggjöf um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), nr. 87/2018 og lög um tóbaksvarnir nr. 6/2002. Í því fælist að setja rafrettur og áfyllingar ásamt nikótínvörum undir sama hatt og tóbak. Með því féllu eftirlit og dreifing undir ÁTVR og takmarkanir yrðu hinar sömu. Reykjavík, 27. janúar 2021 Guðrún Halla Jónsdóttir, Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness Hólmfríður G Guðjónsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla Ingibjörg Sigurþórsdóttir, Miðgarði, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness Magnús Arnar Sveinbjörnsson, Umhverfis- og skipulagssviði Markús Heimir Guðmundsson, Hitt húsið, Íþrótta- og tómstundasviði Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Skóla- og frístundasviði Þóra Kemp, Velferðasviði

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 10 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1192Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Svandís SvavarsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. apríl 2021 kl. 19:33
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd12. apríl 2021 kl. 19:33
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

5 ræður · 10 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 10 mín

Umsagnir og erindi

14 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
British American TobaccoumsögnOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Æskan - barnahreyfing IOGTumsögnOpna PDF
Sven ehf.umsögnOpna PDF
DuflandumsögnOpna PDF
FRÆ - Fræðsla og forvarnirumsögnOpna PDF
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
Lyfjafræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
FjölmiðlanefndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.