Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 710. mál

Almenn hegningarlög

Barnaníðsefni, hatursorðræða, mismunun o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að bregðast við breyttum samfélagslegum viðhorfum til þeirra brota og þeirrar háttsemi sem frumvarpið fjallar um, þ.á.m. varðandi barnaníð og hatursorðræðu.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
3 ræður · 22 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. mar. 2022

Markmiðið

Að bregðast við breyttum samfélagslegum viðhorfum til þeirra brota og þeirrar háttsemi sem frumvarpið fjallar um, þ.á.m. varðandi barnaníð og hatursorðræðu.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á nokkrum ákvæðum almennra hegningarlaga er snerta barnaníð, mismunun og hatursorðræðu. Lagt er til að við ákvörðun hegningar beri að taka til greina hvort brot teljist vera hatursglæpur. Einnig er lagt til að rýmka hatursorðræðuákvæði 233. gr. a þannig að þjóðlegur uppruni falli ótvírætt þar undir sem og að ákvæðið veiti fólki með fötlun og fólki með ódæmigerð kyneinkenni refsivernd til samræmis við aðra hópa sem eru taldir þurfa á sérstakri vernd að halda. Að auki er lagt til að sömu hópum verði veitt vernd gegn mismunum við afhendingu á vöru eða þjónustu til jafns við aðra. Þá eru lagðar til breytingar á barnaníðsákvæði laganna, s.s. hækkun hámarksrefsingar.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Skýrsla nefndar Sameinuðu þjóðanna um afnám kynþáttamisréttis. Lokaathugasemdir við sameinaðar 21.-23. reglulega skýrslu Íslands frá 18. september 2019.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af straffeloven (straffeloven) LBK nr 1851 af 20/09/2021.

Sjá einkum 6. tölul. 81. gr., 235. gr. og 266. gr. b.

Finnland

Strafflag 19.12.1889/39.

Sjá einkum 4. tölul. 5. gr. 6. kafla, 10. gr. og 10. gr. a í 11. kafla og 18.-19. gr. 17. kafla.

Noregur

Lov om straff (straffeloven) LOV-2005-05-20-28.

Sjá einkum i-lið 77. gr., 185. gr. og 311. gr.

Svíþjóð

Brottsbalk (1962:700).

Sjá einkum 8. gr., 10. gr. a og 10. gr. b í 16. kafla og 7. tölul. 2. gr. 29. kafla.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Páll Magnússon

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Barnaheill, Umboðsmaður barna, Félagsráðgjafafélag Íslands, Ríkissaksóknari, Öryrkjabandalag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
22 mín · 3 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-70/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2021 – 12. mar. 2021· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/9140, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðæða, mismunun sökum fötlunar).

Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðæða, mismunun sökum fötlunar).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-70/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. nóvember 2021)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 7. apríl 2021 en var ekki afgreitt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Margrét Steinarsdóttir

    Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um drög að frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum

  • #2Landssamtökin Þroskahjálp
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðræða, mismunun sökum fötlunar). Landssamtökin Þroskahjálp fagna þeim breytingum sem eru í frumvarpinu á almennum hegningarlögum sem hafa m.a. það mikilvæga markmið að veita fötluðu fólki sömu refsivernd og öðrum hópum sem vitað er og viðurkennt og sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að eru sérstaklega berksjaldaðir gagnvart hatursorðræðu og hatursglæpum. Samtökin hvetja þó dómsmálaráðuneytið til… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðræða, mismunun sökum fötlunar). Landssamtökin Þroskahjálp fagna þeim breytingum sem eru í frumvarpinu á almennum hegningarlögum sem hafa m.a. það mikilvæga markmið að veita fötluðu fólki sömu refsivernd og öðrum hópum sem vitað er og viðurkennt og sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að eru sérstaklega berksjaldaðir gagnvart hatursorðræðu og hatursglæpum. Samtökin hvetja þó dómsmálaráðuneytið til að að taka eftirfarandi sérstaklega til skoðunar. 2. gr. frumvarpsins hljóðar svo: „Við 1. mgr. 180. gr. laganna, bætist: Sama á við ef neitun byggist á fötlun manns án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi er réttlæta hana.“ (Undirstr. Þroskahj.) Sá fyrirvari sem er í 2. gr. frumvarpsins og er undirstrikaður hér að ofan á ekki við aðra hópa sem njóta verndar 180. gr. almennra hegningarlaga (þjóðerni, litarháttur, kynþáttur, trúarbrögð, kynhneigð eða kynvitund). Hér er því um mismunun á grundvelli fötlunar að ræða. Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að tryggja fötluðu fólki þau réttindi og þá vernd sem samningurinn kveður á um. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir um það: „Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður innleiddur.“ Við mat á því hvort ofannefnd mismunun í 2. gr. frumvarpsins stenst kröfur sem leiða af samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks þarf, að mati samtakanna, m.a. að líta til eftirfarandi greina og ákvæða í samningnum. Vernd fatlaðs fólk gegn mismunun af öllu tagi er meginþáttur í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, eins og er sérstaklega áréttað í 5. gr. samningsins. 5. gr. Jafnrétti og bann við mismunun. 1. Aðildarríkin viðurkenna að allir menn eru jafnir fyrir og samkvæmt lögum og eiga rétt á jafnri vernd og jöfnum hag lögum samkvæmt án nokkurrar mismununar. 2. Aðildarríkin skulu banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og tryggja fötluðu fólki jafna og skilvirka réttarvernd gegn mismunun af hvaða ástæðu sem er. 3. Aðildarríkin skulu, í því skyni að stuðla að jöfnuði og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. 4. Eigi ber að líta á sértækar ráðstafanir, sem eru nauðsynlegar til þess að flýta fyrir eða ná fram jafnrétti til handa fötluðu fólki í reynd, sem mismunun samkvæmt skilmálum samnings þessa. 4. gr. Almennar skuldbindingar. 1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og mannfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar. Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til: a) að samþykkja öll viðeigandi lagaákvæði og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til þess að þau réttindi sem eru viðurkennd með samningi þessum verði að veruleika, b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar með talið á sviði lagasetningar, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin, ... 16. gr. Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum. 1. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan, fyrir hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum, einnig með hliðsjón af kynbundnum þáttum slíkra athafna. 2. Aðildarríkin skulu einnig gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er, einnig með því að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess, ásamt þeim sem annast það, viðeigandi aðstoð og stuðning, sem tekur mið af kyni og aldri, meðal annars með því að veita upplýsingar og fræðslu um hvernig beri að forðast, átta sig á og tilkynna um misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar. Aðildarríkin skulu tryggja að sú þjónusta sem veitir vernd taki mið af kyni, aldri og fötlun. 3. Í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er skulu aðildarríkin tryggja að óháð yfirvöld hafi virkt eftirlit með allri aðstöðu og áætlunum sem er ætlað að þjóna fötluðu fólki. 4. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að stuðla að líkamlegum, vitsmunalegum og sálrænum bata, endurhæfingu og félagslegri enduraðlögun fatlaðs fólks, sem verður þolendur misnotkunar í gróðaskyni, ofbeldis eða misþyrminga í ein¬hverri mynd, meðal annars með því að bjóða fram þjónustu sem veitir vernd. Slíkur bati og enduraðlögun skulu fara fram í umhverfi sem stuðlar að bættri heilsu, velferð, sjálfsvirðingu, reisn og sjálfræði viðkomandi einstaklings, þar sem tillit er tekið til sérþarfa hans miðað við kyn og aldur. 5. Aðildarríkin skulu taka upp skilvirka löggjöf og stefnu, einnig löggjöf og stefnu þar sem sérstakt tillit er tekið til kvenna og barna, til þess að tryggt sé að unnt sé að staðreyna og rannsaka misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar sem beinast gegn fötluðu fólki og ákæra vegna slíkrar háttsemi ef það á við. 13. gr. Aðgangur að réttarvörslukerfinu. 1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki virkan aðgang að réttarvörslukerfinu til jafns við aðra, meðal annars með því að laga málsmeðferð alla að þörfum þess og taka tilhlýðilegt tillit til aldurs viðkomandi, í því skyni að gera því kleift að gegna hlutverki sínu með virkum hætti sem beinir og óbeinir þátttakendur, þar með talið sem vitni, í öllum mála-rekstri, einnig á rannsóknarstigi og öðrum undirbúningsstigum. 2. Í því skyni að stuðla að því að tryggja megi fötluðu fólki virkan aðgang að réttarvörslu¬kerfinu skulu aðildarríkin stuðla að viðeigandi fræðslu og þjálfun fyrir það fólk sem starfar á sviði réttarvörslu, einnig fyrir lögreglumenn og starfsfólk fangelsa. Landssamtökin Þroskahjálp telja mjög mikilvægt, eins og að framan segir, að vandlega verði skoðað hvort sú mismunun sem felst í fyrrnefndum fyrirvara í 2. gr. frumvarpsins samræmist skyldum sem á íslenska ríkinu hvíla samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks og lýsa áhuga og vilja til samráðs við dómsmálaráðuneytið um það. Í því sambandi vísa samtökin til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ sem hljóðar svo: „Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.“ Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma fleiri ábendingum á framfæri varðandi frumvarpið á síðari stigum, þ.m.t. þegar Alþingi hefur frumvarpið til meðferðar. Virðingarfyllst. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.

  • #3Barnaheill - Save the Children á Íslandi
    Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðræða, mismunun sökum fötlunar). Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Barnaheill hafa frá árinu 2001 rekið Ábendingalínu (https://www.barnaheill.is/is/abendingalina) um ólöglegt og óviðeigandi efni á neti sem varðar börn og eru þátttakendur i regnhlífasamtökum ábendingalína um heim allan, INHOPE, sem allar vinna… Lesa alla

    Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðræða, mismunun sökum fötlunar). Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Barnaheill hafa frá árinu 2001 rekið Ábendingalínu (https://www.barnaheill.is/is/abendingalina) um ólöglegt og óviðeigandi efni á neti sem varðar börn og eru þátttakendur i regnhlífasamtökum ábendingalína um heim allan, INHOPE, sem allar vinna gegn útbreiðslu kynferðisofbeldis gegn börnum á neti. Málefni þessa frumvarps stendur samtökunum því afar nærri og styðja Barnaheill heils hugar við tillögurnar um að hækka refsiramma vegna brota 210. gr. a almennra hegningarlaga, til samræmis við alvarleika þeirra brota sem þar um ræðir, barnaníð eða kynferðisofbeldi gegn börnum sem sett er á netið. Samtökin eru ásátt við að kveðið verði á um að brot gegn ákvæðinu varði allt að 6 ára fangelsi, ef brot telst stórfellt, en vilja þó benda á að fram hafa komið brot sem geta varðað við 202. gr. eða 194. gr. hgl., þ.e. sbr. 22. gr. sömu laga. Þannig eru til mál þar sem einstaklingar panta kynferðisofbeldi gegn barni á neti í beinu streymi, gegn greiðslu. Því er réttast að miða við að ef að slík mál koma inn á borð lögreglu hér á landi að þá verði ákært fyrir þau á grundvelli fyrrgreindra ákvæða, þ.e. sem hlutdeild í nauðgun á barni. Barnaheill telja eftirspurn eftir barnaníðsefni stuðla að því að börn séu beitt kynferðisofbeldi. Því er ábyrgð þess sem sækist eftir að fá sent barnaníðsefni til sín eða leitar að því á netinu, mikil og alvarleg og í raun hlutdeild í því að brotið er kynferðislega gegn barni, þó barnið kunni að vera í fjarlægu landi. Sá sem tekur þátt í og viðheldur dreifingu á barnaníðsefni á netinu er í raun að kalla eftir því að nýtt barn verði beitt kynferðisofbeldi og ber því ríka ábyrgð gagnvart því barni. Sá eða sú sem greiðir fyrir aðgang að slíku efni fremur enn alvarlegra brot eins og áður var nefnt, og sýnir slíkan ásetning að meta ætti slíkt til enn þyngri refsingar. Framleiðsla á barnaníðsefni er oft skipulögð brotastarfsemi og rekin í hagnaðarskyni. Oft eru börn tekin mansali og gerð út sem kynlífsþrælar og nýtt í ágóðaskyni með því að myndefni af þeim er dreift á netið. Þannig geta þau þurft að upplifa síendurtekið brot við það að brotin gegn þeim lifa áfram á netinu. Vinna þarf skipulega gegn því að brot sem þessi séu umborin á Íslandi, þ.e. að frá Íslandi sé eftirspurn eftir barnaníðsefni, og gera þarf lögreglu og ákæruvaldi kleift að rannsaka hugsanleg brot í fyrirbyggjandi tilgangi, þ.e. með forvirkum aðgerðum og koma í veg fyrir frekari dreifingu myndefnis sem sýnir kynferðisbrot gegn börnum. Samtökin telja aðrar tillögur til breytinga á ákvæðinu til bóta og vilja sérstaklega minnast á þá breytingu að börnum á aldrinum 15-17 ára verði ekki gerð refsing fyrir að senda kynferðislega mynd af sér til annars þar sem samþykki beggja liggur fyrir. Barnaheill árétta þó að þegar mynd er deilt áfram til þriðja aðila þá er að öllum líkindum um brot gegn ákvæðinu að ræða því tæpast myndi liggja samþykki fyrir því. Barnaheill hafa undanfarið vakið athygli samfélagsins á alvarleika þess að deila ekki áfram myndum sem börn og fullorðnir fá sendar og sýna börn á kynferðislegan hátt því slíkt sé brot gegn barninu, heldur tilkynna um það til Ábendingalínu Barnaheilla. Það hefur skelfilegar afleiðingar fyrir öll börn að vera beitt kynferðislegu ofbeldi og hvert einasta barn skiptir máli og hefur rétt til verndar gegn slíku og öðru ofbeldi. Barnaheill fagna því að fram er komin tillaga að því að leiðrétta refsiramma þann sem nú er tilgreindur í 210. gr. a. hgl. Samtökin fagna því jafnframt að nú loks er að breiðast út samfélagsleg meðvitund um alvarleika og tilveru þeirra brota sem hér um ræðir og hvetja til þess að frumvarpið verði að lögum. Að öðru leyti eru samtökin sammála þeim lagabreytingatillögum sem í frumvarpsdrögunum koma fram og styðja þær heils hugar. Barnaheill hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi og leggja sérstaka áherslu á vernd barna gegn ofbeldi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    3 ræður · 22 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1189Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 15:14
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd13. apríl 2021 kl. 15:14
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 22 mín
  • 1. umræða: 3 ræður · 2 ræðumenn · 22 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
BarnaheillviðbótarumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkissaksóknariumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Björn JónssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.