Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 697. mál

Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld

Nýsköpun, arður, yfirskattanefnd o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 13. jún. 2021

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að efla skattalegt umhverfi nýsköpunarfyrirtækja, einstaklinga og lögaðila og að gera nauðsynlegar leiðréttingar og breytingar á skattalöggjöf.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 13. jún. 2021 greiddu 53 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
8 ræður · 52 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að efla skattalegt umhverfi nýsköpunarfyrirtækja, einstaklinga og lögaðila og að gera nauðsynlegar leiðréttingar og breytingar á skattalöggjöf.

Hvað breytist

Lagt er til að stjórnarmenn nýsköpunarfyrirtækja sem kaupa hlutabréf samkvæmt kauprétti í fyrirtækinu geti frestað skattalegri meðferð kauprétta þar til bréfin eru seld. Lagt er til að skattlagning á hagnaði lögaðila vegna breytanlegra skuldabréfa verði frestað um tvenn áramót (vegna viðskipta með breytanleg skuldabréf við lögaðila sem fellur undir lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki og uppfyllir skilgreiningu laganna um að starfa að rannsóknar- og/eða þróunarverkefnum, óháð því hvort öll slík verkefni hafi hlotið staðfestingu Rannís). Einnig er lagt til að söluhagnaður einstaklings utan atvinnurekstrar, sem myndast þegar hlutabréfum er skipt fyrir hlutabréf í öðru hlutafélagi, einkahlutafélagi eða samlagshlutafélagi samkvæmt lögum um tekjuskatt, teljist ekki til skattskyldra fjármagnstekna fyrr en viðtökuhlutabréfin eru seld. Lagt er til að fjöldi nefndarmanna í yfirskattanefnd taki breytingum, að starfsreglur nefndarinnar um ákvörðun málskostnaðar úr ríkissjóði verði lögfestar og að lögin einskorðist ekki við ákvarðanir ríkisskattstjóra heldur taki einnig til annarra stjórnvalda. Lagt er til að kaupfélög og önnur samvinnufélög verði undanþegin staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts til jafns við hlutafélög vegna fjárhæðar arðs sem þau hafa fengið úthlutaða eða greidda. Enn fremur er lagt til að tekið verði gjald fyrir útgáfu könnunarvottorðs er snýr að viðurkenningu á hjónavígslu sem framkvæmd er erlendis og vafi leikur á hvort uppfyllt eru skilyrði fyrir skráningu hjónavígslunnar.

Lög sem breytast

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um yfirskattanefnd, nr. 30/1992. Lög um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996. Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991. Almenn hegningarlög, nr. 19/1940. Lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013. Lög um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir því að fjárhagsleg áhrif tillagna um breytta skattlagningu kaupréttar, skipta á hlutabréfum og breytanlegra skuldabréfa verði innan tekjuramma fjárlaga til framtíðar séð þótt einhver tilfærsla kunni að eiga sér stað í tekjuskattsgreiðslum milli ára. Ekki er talið að tillaga frumvarpsins um að kaupfélög og önnur samvinnufélög verði undanþegin staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts til jafns við hlutafélög og einkahlutafélög sem falla undir 1. tölul. 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, vegna fjárhæðar arðs sem þau hafa fengið úthlutaða eða greidda, hafi bein áhrif á tekjur ríkissjóðs en hún mun hins vegar væntanlega hafa einhver áhrif á sjóðsstreymi. Gert er ráð fyrir að aðrar breytingartillögur muni samanlagt ekki hafa teljandi áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Nýsköpunarstefna stjórnvalda til ársins 2030. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, október 2019.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
13. jún. 2021
Samþykkt53 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S11–0
  • 239–0
  • M8–0
  • F7–0
  • Sf6–0
  • 437–0
  • V3–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 28. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Skatturinn, KPMG ehf., Jóhann Óli Eiðsson · allar umsagnir
Umræða í þingsal
52 mín · 8 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir því að fjárhagsleg áhrif tillagna um breytta skattlagningu kaupréttar, skipta á hlutabréfum og breytanlegra skuldabréfa verði innan tekjuramma fjárlaga til framtíðar séð þótt einhver tilfærsla kunni að eiga sér stað í tekjuskattsgreiðslum milli ára. Ekki er talið að tillaga frumvarpsins um að kaupfélög og önnur samvinnufélög verði undanþegin staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts til jafns við hlutafélög og einkahlutafélög sem falla undir 1. tölul. 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, vegna fjárhæðar arðs sem þau hafa fengið úthlutaða eða greidda, hafi bein áhrif á tekjur ríkissjóðs en hún mun hins vegar væntanlega hafa einhver áhrif á sjóðsstreymi. Gert er ráð fyrir að aðrar breytingartillögur muni samanlagt ekki hafa teljandi áhrif á afkomu ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. júní 2021: 53 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með4 tóku til máls

49 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-69/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2021 – 10. mar. 2021· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (arður, yfirskattanefnd o.fl.).

Áformaðar eru breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld sem snúa m.a. að staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts af arði milli félaga, refsiramma almennra hegningarlaga, aukatekjum ríkissjóðs og yfirskattanefnd.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-69/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. mars 2021)

Engar umsagnir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-80/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. mar. 2021 – 23. mar. 2021· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (nýsköpun, arður, yfirskattanefnd o.fl.).

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld m.a. með það að leiðarljósi að styrkja og efla skattalegt umhverfi nýsköpunarfyrirtækja, einstaklinga og annarra lögaðila auk nauðsynlegra breytinga á lögum á sviði skattamála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-80/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. apríl 2021)

Í umsögn Viðskiptaráðs Íslands eru ekki gerðar athugasemdir við frumvarpsdrögin og er hvatt til framgöngu þeirra. Í umsögn KPMG eru gerðar athugasemdir sem komið hefur verið til móts við að einhverju leyti og frumvarpsdrögin tekið breytingum í samræmi við það.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 11 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 28. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Umræða
    2. umræða
    5 ræður · 37 mín
  10. Atkvæðagreiðsla
    Kallað aftur
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal
  17. Umræða
    3. umræða
    2 ræður · 3 mín
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  20. Þingskjal

Þingskjöl

7 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1176Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Bjarni BenediktssonLesaPDF
1565Nefndarálit31. maí 2021Bryndís Haraldsdóttir, Óli Björn Kárason +5LesaPDF
1566Breytingartillaga1. jún. 2021Bryndís Haraldsdóttir, Óli Björn Kárason +5LesaPDF
1570Breytingartillaga1. jún. 2021Andrés Ingi JónssonLesaPDF
1647Frumvarp eftir 2. umræðu8. jún. 2021—LesaPDF
1747Nál. með brtt.12. jún. 2021Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +6LesaPDF
1822Lög í heild13. jún. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd13. apríl 2021 kl. 15:53
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 15:53
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Kallað aftur8. júní 2021 kl. 14:16
    Breytingartillaga
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt8. júní 2021 kl. 14:16
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld“.
    1--6 (nýtt ákv. til brb.)
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt8. júní 2021 kl. 14:17
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld“.
    1.--13. gr. (verða 1.--16. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur8. júní 2021 kl. 14:17
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd8. júní 2021 kl. 14:17
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. júní 2021 kl. 00:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld“.
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. júní 2021 kl. 00:18
    Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

8 ræður · 52 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 11 mín
  • 2. umræða: 5 ræður · 4 ræðumenn · 37 mín
  • 3. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 3 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka313 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur114 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur111 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn17 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn15 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur12 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 28. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
KPMG ehf.umsögnOpna PDF
Jóhann Óli EiðssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.