Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 646. mál

Hjúskaparlög

Aldur hjónaefna, könnunarmenn o.fl.

LagafrumvarpDagaði uppiFélagsmálLöggæsla og eftirlit

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að samræma hjúskaparlögin alþjóðlegum tilmælum og viðhorfum varðandi lágmarksaldur til þess að ganga í hjúskap. Að bæta gæði könnunar á hjónavígsluskilyrðum og samræma framkvæmdina. Að bregðast við gagnrýni á gildandi löggjöf um lögsögu í skilnaðarmálum og að samræma lögin þeim reglum sem um þetta gilda annars staðar á Norðurlöndunum.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
25. mars 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
9 ræður · 17 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að samræma hjúskaparlögin alþjóðlegum tilmælum og viðhorfum varðandi lágmarksaldur til þess að ganga í hjúskap. Að bæta gæði könnunar á hjónavígsluskilyrðum og samræma framkvæmdina. Að bregðast við gagnrýni á gildandi löggjöf um lögsögu í skilnaðarmálum og að samræma lögin þeim reglum sem um þetta gilda annars staðar á Norðurlöndunum.

Hvað breytist

Lagt er til að afnumin verði undanþáguheimild frá því að einstaklingur yngri en 18 ára megi ganga í hjúskap. Einnig er lagt til að lögfesta meginreglu um viðurkenningu hjónavígslu sem stofnað er til erlendis. Lagt er til að hjónavígslur einstaklinga yngri en 18 ára sem fara fram erlendis verði ekki viðurkenndar hér á landi nema samkvæmt ströngum undanþágum. Þá er gert ráð fyrir að könnun hjónavígsluskilyrða fari einungis fram hjá sýslumönnum, hvort sem hjónaefni eigi lögheimili hér á landi eða ekki. Enn fremur eru lagðar til breytingar varðandi lögsögu íslenskra stjórnvalda og dómstóla til þess að veita lögskilnað hér á landi í tilteknum tilvikum ef hvorugur aðili býr hér á landi og viðkomandi eru ekki íslenskir ríkisborgarar. Þá er lagt til að færa verkefni frá ráðuneytinu til sýslumanna.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Lög á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om ægteskabs indgåelse og opløsning (Ægteskabsloven) LBK nr 771 af 07/08/2019.

Bekendtgørelse af lov om rettens pleje (Retsplejeloven) LBK nr 1445 af 29/09/2020.

Sjá einkum gr. 448 f.

Finnland

Aktenskapslag 13.6.1929/234.

Noregur

Lov om ekteskap (ekteskapsloven) LOV-1991-07-04-47.

Svíþjóð

Aktenskapsbalk (1987:230).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Birgir Ármannsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Siðmennt, félag siðrænna húmanista, Umboðsmaður barna, Barnaheill, Kvenréttindafélag Íslands, Þjóðskrá Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
17 mín · 9 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-48/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á hjúskaparlögum nr. 31/1993

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum nr. 31/1993 (aldur hjónaefna, könnunarmenn og lögsaga í málum til hjónaskilnaðar).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-48/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. nóvember 2021)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 25. mars 2021 en náði þá ekki fram að ganga. Frumvarpið verður lagt fram að nýju á 152. löggjafarþingi 2021-2022. Drög að frumvarpinu voru birt til umsagnar frá 17. febrúar til 1. mars 2021. Alls bárust fjórar umsagnir. Gerðar voru breytingar á frumvarpinu til þess að skýra efni frumvarpsins betur í nokkrum tilvikum þar sem talin var þörf á því með tilliti til tiltekinna athugasemda sem bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Siðmennt,félag siðrænna húmanista á Íslandi

    Hjálögð er umsögn Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi, um drög að frumvarpi til laga um breytingu á hjúskaparlögum. Fyrir hönd Siðmenntar, Inga Auðbjörg K. Straumland

  • #2Sýslumaðurinn á Vestfjörðum

    Umsögn Sýslumannafélags Íslands, dags. 26. febrúar 2021, um mál nr. 48/2021.

  • #3Inga Hrund Gunnarsdóttir
    Sjálfvirk rafræn hjúskaparvottorð. Í frumvarpinu kemur fram kostnaður sem verður til vegna starfsmanns sem þarf að sjá um könnun hjónavígsluskilyrða. Betra væri að leggja í fjárfestingu í forriti t.d. á island.is, sem myndi sjá sjálfkrafa um rafrænt vottorð fyrir fólk sem er með íslenskan ríkisborgararétt á leið í hjúskap með Íslendingi. Í langflestum tilfellum er hægt að sækja þessar upplýsingar (um hjúskap og þjóðerni) úr kerfum Þjóðskrár án þess að mannshöndin komi nálægt og færa svo upplýsingarnar í gátt sem sýslumenn og forstöðumenn trú- og lífsskoðunarfélaga fá svo aðgang að. Ég skil a… Lesa alla

    Sjálfvirk rafræn hjúskaparvottorð. Í frumvarpinu kemur fram kostnaður sem verður til vegna starfsmanns sem þarf að sjá um könnun hjónavígsluskilyrða. Betra væri að leggja í fjárfestingu í forriti t.d. á island.is, sem myndi sjá sjálfkrafa um rafrænt vottorð fyrir fólk sem er með íslenskan ríkisborgararétt á leið í hjúskap með Íslendingi. Í langflestum tilfellum er hægt að sækja þessar upplýsingar (um hjúskap og þjóðerni) úr kerfum Þjóðskrár án þess að mannshöndin komi nálægt og færa svo upplýsingarnar í gátt sem sýslumenn og forstöðumenn trú- og lífsskoðunarfélaga fá svo aðgang að. Ég skil að það gæti þurft að kanna málin betur af annar eða báðir aðilar eru útlenskir, að þá þurfi starfsmaður að kanna málið. Þetta myndi t.d. leysa mál ef fólk vill ganga hratt í hjúskap t.d. ef annað þeirra er dauðvona og eftir að stofnkostnaður hefur verið greiddur ætti verð vottorðanna að lækka fyrir hinn almenna borgara.

  • #4Þjóðskrá Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands við mál nr. 48/2021

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    9 ræður · 17 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1113Stjórnarfrumvarp25. mar. 2021Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 14:51
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd13. apríl 2021 kl. 14:51
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

9 ræður · 17 mín
  • 1. umræða: 9 ræður · 3 ræðumenn · 17 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Siðmennt, félag siðrænna húmanistaumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
ÞjóðkirkjanumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.