Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 585. mál

Breyting á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018

Mennta- og menningarmál

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. jún. 2021

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að skýra lagagrundvöll fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem fer nú þegar fram innan stofnana sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. jún. 2021 greiddu 59 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
9. mars 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
2 ræður · 11 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að skýra lagagrundvöll fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem fer nú þegar fram innan stofnana sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Hvað breytist

Lagt er til að lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga í ýmsum lögum sem lúta að starfsemi sem heyrir undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytisins verði styrktur.

Lög sem breytast

Lög um leikskóla, nr. 90/2008. Lög um grunnskóla, nr. 91/2008. Lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Lög um Menntamálastofnun, nr. 91/2015. Íþróttalög, nr. 64/1998. Bókasafnalög, nr. 150/2012. Lög um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990. Lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011. Lög um háskóla, nr. 63/2006.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Silja Dögg Gunnarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
11. jún. 2021
Samþykkt59 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 239–0
  • M9–0
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 437–0
  • V4–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 30. mar. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Menntamálastofnun, Blaðamannafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Félag grunnskólakennara o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
11 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. júní 2021: 59 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með1 tók til máls

58 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-2/2020· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. jan. 2020 – 20. jan. 2020· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Áformaðar eru breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis í kjölfar gildistöku laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-2/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júní 2020)

Samráði lokið. Engar umsagnir bárust um áformin. Frumvarpið er til vinnslu í ráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-233/2020· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. nóv. 2020 – 16. nóv. 2020· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018

Frumvarpinu er ætlað að gera nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga sem heyra undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga skv. lögunum samræmist persónuverndarlögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-233/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Niðurstöður samráðs um drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (mennta- og menningarmál).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Kolfinna Njálsdóttir
    Varðandi breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum. 47.gr a Í 5.línu stendur í lok setningar.... og vegna nemenda með sérþarfir. Ég vil gera athugasemd við orðalagið. Þessir nemendur eins og allir aðrir nemendur falla undir fyrri hluta setningar og þarf ekki að nefna sérstaklega. Fyrri hluti setningarinnar inniheldur alla nemendur grunnskólans og getur staðið ein og sér án þessarar endingar þ.e. Heimil er vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga, þar með talið um heilsufar nemenda vegna skimana, greininga, vottorða, námsmats og í tengslum við framkvæmd samræmdra kö… Lesa alla

    Varðandi breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum. 47.gr a Í 5.línu stendur í lok setningar.... og vegna nemenda með sérþarfir. Ég vil gera athugasemd við orðalagið. Þessir nemendur eins og allir aðrir nemendur falla undir fyrri hluta setningar og þarf ekki að nefna sérstaklega. Fyrri hluti setningarinnar inniheldur alla nemendur grunnskólans og getur staðið ein og sér án þessarar endingar þ.e. Heimil er vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga, þar með talið um heilsufar nemenda vegna skimana, greininga, vottorða, námsmats og í tengslum við framkvæmd samræmdra könnunarprófa. Ef það er mat ykkar að setningin eigi að vera inni, ætti hún þá ekki líka að vera í leikskólalögunum?

  • #2Reykjavíkurborg
    Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur tekið til umsagnar frumvarp mennta- og menningarmálaráðuneytisins um breytingu á ýmsum lögum sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Skóla- og frístundasvið vill koma á framfæri eftirfarandi umsögn: Í frumvarpi ráðuneytisins má finna nauðsynlegar breytingar á lagaumhverfi skóla- og frístundastarfs sveitarfélaga í ljósi nýrra persónuverndarlaga. Í frumvarpinu er að finna heimildir til vinnslu persónuupplýsinga í þágu lögskyldra verkefna sveitarfélaga á þessu sviði… Lesa alla

    Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur tekið til umsagnar frumvarp mennta- og menningarmálaráðuneytisins um breytingu á ýmsum lögum sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Skóla- og frístundasvið vill koma á framfæri eftirfarandi umsögn: Í frumvarpi ráðuneytisins má finna nauðsynlegar breytingar á lagaumhverfi skóla- og frístundastarfs sveitarfélaga í ljósi nýrra persónuverndarlaga. Í frumvarpinu er að finna heimildir til vinnslu persónuupplýsinga í þágu lögskyldra verkefna sveitarfélaga á þessu sviði. Í frumvarpinu má finna upptalningu á ýmsum starfsstöðum sem þurfa að vinna með persónuupplýsingar í þessum tilgangi og mun sú vinnsla verða nánar útfærð í reglugerð ráðherra samkvæmt texta frumvarpsins. Um miðlun leikskóla til grunnskóla og frístundaheimila Í 1. gr. frumvarpsins eru taldar upp þær starfsstöðvar sem heimilt er að vinna með persónuupplýsingar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008 verði frumvarpið lögfest. Tekur upptalningin til leikskóla, skólaþjónustu og þeirra aðila er lögbundið hlutverk hafa samkvæmt leikskólalögum. Skóla- og frístundasvið vill vekja athygli á því að þegar barn færist úr leikskóla í grunnskóla og hefur dvöl í frístundaheimili getur verið þörf á miðlun persónuupplýsinga til að tryggja samfellu í þjónustu innan skólakerfisins. Það er því mat skóla- og frístundasviðs að bæta þurfi við grunnskólum og frístundaheimilinum í upptalningu 1. gr. frumvarpsins. Skóla- og frístundasvið leggur því til að bætt sé við 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins og að ákvæðið verði svohljóðandi: Leikskólum, skólaþjónustu og þeim aðilum er lögbundið hlutverk hafa samkvæmt lögum þessum er heimilt að afla og miðla persónuupplýsingum frá og til stofnana og fagaðila sem veita börnum lögbundna þjónustu, þar með talið Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, félagsþjónustu sveitarfélaga, skólaþjónustu sveitarfélaga, grunnskólum, frístundaheimilum, stofnunum og fagaðilum sem tilgreindir eru í reglugerð sem ráðherra setur, enda sé miðlunin liður í því að tryggja barni markvissa og lögbundna þjónustu. Um skólahljómsveitir Í 3. gr. frumvarpsins má finna upptalningu á þeim starfsstöðvum sem heimilt er að vinna með persónuupplýsingar samkvæmt grunnskólalögum verði frumvarpið lögfest. Tekur upptalningin til grunnskóla, skólaþjónustu og þeirra aðila er lögbundið hlutverk hafa samkvæmt lögunum. Frumvarpsdrögin gera einnig ráð fyrir því að veita félagsmiðstöðum og frístundastarfi vægi með þeim hætti að þær falli undir framangreinda upptalningu, sbr. 4. gr. frumvarpsins. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vill vekja athygli á því að einn þátt félagsstarfs barna á vegum sveitarfélaga vantar í framangreinda upptalningu og það eru skólahljómsveitir og í mörgum sveitarfélögum tónlistarskólar. Skólahljómsveitir og tónlistarskólar sveitarfélaga þurfa að kalla eftir og vinna með persónuupplýsingar barna sem skráð eru í hljómsveitirnar. Haldið er utan um persónuupplýsingar eins og nöfn, heimilisföng og símanúmer barna og foreldra, samskipti við foreldra, mætingar, námsframvindu og upplýsingar um veikindi, bráðaofnæmi o.fl. í samræmi við eðli og tilgang hljómsveitanna. Þar getur því verið um að ræða sömu vinnslu persónuupplýsinga og finna má á þeim starfsstöðum sem taldar eru upp í 4. gr. frumvarpsins. Skóla- og frístundasvið leggur því til að bætt sé við 4. gr. frumvarpsins sem yrði þá svohljóðandi: Við 2. málsl. 1. mgr. 33. gr. bætist: til dæmis í félagsmiðstöð, í frístundastarfi, skólahljómsveit eða tónlistarskóla á vegum sveitarfélags. Með þessum hætti er skólahljómsveitum og tónlistarskólum á vegum sveitarfélagsins gefið vægi innan grunnskólalaga þannig að ekki fari á milli mála að starfsemi þeirra falli undir grunnskólalög og skólahljómsveitirnar falli þar með undir upptalningu 3. gr. frumvarpsins. Eru það eindregin tilmæli að réttarstaðan verði skýrð hvað varðar framangreint álitaefni. Þá er farið fram á að skoðað verði hvort tilefni er til í 36. og 37. gr. laga um grunnskóla nr. 91/20008 að bæta við tilvísun til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Jafnframt hvort víkja þurfi sérstaklega að vinnslu persónuupplýsinga sveitarfélaga þegar kemur að persónuupplýsingum sjálfstætt rekinna leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Þá er vakin athygli á því að orðið frístund er í hugum flestra starfsemi frístundaheimila en lögð hefur verið áhersla á orðanotkunina frístundaheimili og félagsmiðstöð til sundurgreiningar. Frístundastarf telst því vera yfirheiti sem túlka má víðtækt. Að lokum er vísað til bréfs skóla- og frístundasviðs, dags. 9. janúar 2020 auk fylgiskjals, með ábendingum um þau atriði sem taka þurfi til skoðunar í tengslum við útfærslu breytinga vegna nýrrar persónuverndarlöggjafar. Til samræmis við það sem fram kemur í drögum að frumvarpi er gert ráð fyrir að settar verði reglugerðir með nánari útfærslu og því ekki tilefni til frekari athugasemda að svo stöddu.

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan daginn Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga Virðingarfyllst, Bryndís Gunnlaugsdóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 6 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 30. mars 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 5 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
993Stjórnarfrumvarp9. mar. 2021Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF
1609Nál. með brtt.4. jún. 2021Páll Magnússon, Silja Dögg Gunnarsdóttir +5LesaPDF
1664Frumvarp eftir 2. umræðu1. júl. 2021—LesaPDF
1722Lög (samhlj.)11. jún. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 11 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 6 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 5 mín

Umsagnir og erindi

9 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 16. mar. 2021, frestur 30. mar. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
MenntamálastofnunumsögnOpna PDF
Blaðamannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Félag grunnskólakennaraumsögnOpna PDF
Félag heyrnarlausraumsögnOpna PDF
UMFÍumsögnOpna PDF
Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklingaumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.