Tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda
Samsköttun og erlent vinnuafl
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að heimila dótturfélögum félaga í aðildarríkjum EES og EFTA eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Að festa í sessi undanþágu fyrir innlend samstæðufélög frá takmörkunum á reglum um vaxtafrádrátt. Að útvíkka ábyrgð og skyldu innlendra aðila í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð á skilum á staðgreiðslu, þ.e. þegar um er að ræða vinnu starfsmanna erlendra aðila fyrir innlenda aðila hér á landi, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 1. október 2020
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 7 ræður · 22 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að heimila dótturfélögum félaga í aðildarríkjum EES og EFTA eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Að festa í sessi undanþágu fyrir innlend samstæðufélög frá takmörkunum á reglum um vaxtafrádrátt. Að útvíkka ábyrgð og skyldu innlendra aðila í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð á skilum á staðgreiðslu, þ.e. þegar um er að ræða vinnu starfsmanna erlendra aðila fyrir innlenda aðila hér á landi, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Hvað breytist
Lagt er til að dótturfélögum félaga í aðildarríkjum EES og EFTA eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Þá er lagt til að hérlendu móðurfélagi verði heimilt að óska eftir takmarkaðri samsköttun með dótturfélögum sínum skráðum innan eins aðildarríkis EES, EFTA eða í Færeyjum að því gefnu að öll almenn skilyrði samsköttunar séu uppfyllt að öðru leyti. Einnig er lagt til að festa í sessi undanþágu fyrir innlend samstæðufélög frá takmörkunum á reglum um vaxtafrádrátt. Loks eru lagðar til breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, um skattlagningu starfsmanna sem koma hingað til lands á grundvelli samninga um útleigu vinnuafls eða annars konar vinnuframlag í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð.
Lög sem breytast
Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
Kostnaður fyrir ríkið
Á þessu stigi er ekki hægt að meta hvaða áhrif ákvæði frumvarpsins um samsköttun muni hafa en þau munu koma fram sem lækkun á tekjuskatti lögaðila vegna samnýtingar og nýtingar á rekstrartapi innan samstæðu. Hvað varðar ákvæði frumvarpsins um útsenda starfsmenn þá er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs vegna aukins tekjuskatts einstaklinga og tryggingagjalds muni aukast um allt að 300 milljónir kr. á ári.
Meira úr samantektinni
Áminningarbréf Eftirlitsstofnunar EFTA til Íslands um samsköttun og nýtingu eftirstöðva rekstrartapa félaga (27. mars 2018).
Sameiginleg aðgerðaáætlun OECD og G20-ríkjanna gegn alþjóðlegri skattasniðgöngu (Base Erosion and Profit Shifting, BEPS) (2015).
Tilskipun ráðsins (ESB) 2016/1164 frá 12. júlí 2016 um setningu reglna gegn skattasniðgöngu sem hefur bein áhrif á virkni innri markaðarins.
Afstaða þingflokkanna
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkurfjármála- og efnahagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 30. okt. 2020
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 4 aðilar
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið, KPMG ehf., Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins, Deloitte ehf. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 22 mín · 7 ræður
- 3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Á þessu stigi er ekki hægt að meta hvaða áhrif ákvæði frumvarpsins um samsköttun muni hafa en þau munu koma fram sem lækkun á tekjuskatti lögaðila vegna samnýtingar og nýtingar á rekstrartapi innan samstæðu. Hvað varðar ákvæði frumvarpsins um útsenda starfsmenn þá er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs vegna aukins tekjuskatts einstaklinga og tryggingagjalds muni aukast um allt að 300 milljónir kr. á ári.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn1 ræða · 2 andsvör · 10 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur1 ræða · 2 andsvör · 9 mín
Smári McCarthyÞingflokkur 431 ræða · 3 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða7 ræður · 22 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 30. október 20201 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur8. október 2020 kl. 11:44Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd8. október 2020 kl. 11:45Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 7 ræður · 3 ræðumenn · 22 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Miðflokkurinn | 3 | 10 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 3 | 9 mín | |
| Utan þingflokka | 1 | 3 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 14. okt. 2020, frestur 30. okt. 2020.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Fjármála- og efnahagsráðuneytið | minnisblað | Opna PDF | |
| KPMG ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| Deloitte ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| KPMG ehf. | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)