Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (stofn fjármagnstekjuskatts).
Með frumvarpinu er ráðgert að endurskoða stofn fjármagnstekjuskatts sem m.a. felur í sér möguleika á að færast nær því að skattleggja raunávöxtun og hvetja til aukins sparnaðar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-177/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. júlí 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. maí 2020)
Áformum um framlagningu frumvarpsins hefur verið frestað þar sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem falið hefur verið það verkefni að móta tillögur um endurskoðun skattstofns fjármagnstekjuskatts í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar. Í sáttmálanum kemur fram að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður í 22% í upphafi kjörtímabils í því markmiði að gera skattkerfið réttlátara óháð uppruna tekna. Samhliða verði skattstofn fjármagnstekjuskatts tekinn til endurskoðunar. Gert er ráð fyrir því að tillögur starfshópsins muni liggja fyrir um mitt árið 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um málið. Virðingarfyllst, Stefanía K. Ásbjörnsdóttir
- #2Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.