Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 266. mál

Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. maí 2021

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja öryggi á Íslandi og Schengen-svæðinu í heild, þ.m.t. almannaöryggi, allsherjarreglu og öryggi ríkisins.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. maí 2021 greiddu 49 atkvæði með og 0 á móti, 5 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
11. nóvember 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
3 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. maí 2021

Markmiðið

Að tryggja öryggi á Íslandi og Schengen-svæðinu í heild, þ.m.t. almannaöryggi, allsherjarreglu og öryggi ríkisins.

Hvað breytist

Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga þar sem lagt er til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar til að innleiða þrjár reglugerðir Evrópusambandsins um Schengen-upplýsingakerfið. Í frumvarpinu er með mun ítarlegri hætti kveðið á um einstaka þætti upplýsinga­kerfis­ins, notkun þess og vinnslu upplýsinga en í núgildandi lögum. Þá felur frumvarpið í sér að við bætast nýjar upplýsingar sem heimilt er að skrá í kerfið, öryggi kerfisins er almennt aukið og reglur um persónuvernd eru styrktar.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 16/2000.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er hægt að leggja nákvæmt mat á heildarkostnað við lagasetninguna vegna þeirrar óvissu sem til staðar er um fjárfestingar í Schengen-upplýsingakerfunum. Fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir að fjárfesta þurfi fyrir 2.200 milljónir kr. í nýjum upplýsingakerfum og endurnýjun á þeim eldri og þau verði að hluta til fjármögnuð með fjárveitingum á fjárlögum 2019 og 2020. Varanlegur rekstrarkostnaður er áætlaður 20–32 milljónir kr. til að mæta kostnaði upplýsingatæknideildar ríkislögreglustjóra vegna reksturs upplýsingakerfa frá og með árinu 2022.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1860 frá 28. nóvember 2018 um notkun Schengen-upplýsingakerfisins við endursendingu ríkisborgara þriðju landa sem dvelja ólöglega í aðildarríkjunum.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1861 frá 28. nóvember 2018 um stofnsetningu, rekstur og notkun Schengen-upplýsingakerfisins (SIS) á sviði landamæraeftirlits og um breytingu á samningnum um framkvæmd Schengen-samkomulagsins og um breytingu og niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1987/2006.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1862 frá 28. nóvember 2018 um stofnsetningu, rekstur og notkun Schengen-upplýsingakerfisins (SIS) á sviði lögreglusamvinnu og dómsmálasamstarfs í sakamálum, um breytingu og niðurfellingu ákvörðunar ráðsins 2007/533/DIM og um niðurfellingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1986/2006 og ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar 2010/261/ESB.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Birgir Ármannsson

Lokaatkvæðagreiðsla
11. maí 2021
Samþykkt49 með · 0 á móti · 5 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M7–0
  • F6–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 5 hjá
  • V4–0
  • Flf1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 3. des. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Lögmannafélag Íslands, Persónuvernd, Útlendingastofnun · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 3 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er hægt að leggja nákvæmt mat á heildarkostnað við lagasetninguna vegna þeirrar óvissu sem til staðar er um fjárfestingar í Schengen-upplýsingakerfunum. Fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir að fjárfesta þurfi fyrir 2.200 milljónir kr. í nýjum upplýsingakerfum og endurnýjun á þeim eldri og þau verði að hluta til fjármögnuð með fjárveitingum á fjárlögum 2019 og 2020. Varanlegur rekstrarkostnaður er áætlaður 20–32 milljónir kr. til að mæta kostnaði upplýsingatæknideildar ríkislögreglustjóra vegna reksturs upplýsingakerfa frá og með árinu 2022.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. maí 2021: 49 með, 0 á móti, 5 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með1 tók til máls

48 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

4 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-50/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2020 – 3. mar. 2020· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi til innleiðingar á þremur reglugerðum Evrópusambandsins: reglugerð (EB) nr. 2018/1860, (EB) nr. 2018/1861 og (EB) nr. 2018/1862 um Schengen-upplýsingakerfið.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-50/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. desember 2020)

Engar umsagnir bárust við frumvarpið í samráðsgátt. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi 11. nóvember 2020. Vísað er til 5. kafla greinargerðar frumvarpsins (samráðskafla).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 7 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 3. desember 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 8 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
295Stjórnarfrumvarp11. nóv. 2020Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF
1327Nefndarálit3. maí 2021Páll Magnússon, Birgir Ármannsson +6LesaPDF
1328Breytingartillaga3. maí 2021Páll Magnússon, Birgir Ármannsson +6LesaPDF
1383Frumvarp eftir 2. umræðu20. maí 2021—LesaPDF
1411Lög (samhlj.)11. maí 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur17. nóvember 2020 kl. 15:34
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd17. nóvember 2020 kl. 15:34
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt6. maí 2021 kl. 13:55
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt6. maí 2021 kl. 13:55
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi“.
    1--30
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt6. maí 2021 kl. 13:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi“.
    2.--58. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur6. maí 2021 kl. 13:56
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. maí 2021 kl. 14:40
    Að samþykkja frumvarpið „Schengen-upplýsingarkerfið á Íslandi“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 15 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 19. nóv. 2020, frestur 3. des. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Lögmannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.