Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 211. mál

Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum

Lokauppgjör

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 16. des. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að gera kleift að ljúka bótauppgjöri vegna fatlaðs fólks sem var vistað á barnsaldri á opinberum stofnunum öðrum en Kópavogshæli.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 16. des. 2020 greiddu 59 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
16. október 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
21 ræða · 53 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. des. 2020

Markmiðið

Að gera kleift að ljúka bótauppgjöri vegna fatlaðs fólks sem var vistað á barnsaldri á opinberum stofnunum öðrum en Kópavogshæli.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar sem gera kleift að taka á málum fatlaðra barna sem vistuð voru á öðrum stofnunum en Kópavogshæli sem ekki hafa þegar sætt könnun samkvæmt lögum nr. 26/2007. Þá er lagt til að lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007, verði felld brott þar sem ekki er talin þörf á frekari könnunum nefndar samkvæmt lögunum.

Lög sem breytast

Lög um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007, nr. 47/2010. Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði 411–466 milljónir kr. árið 2021, 2 milljónir kr. árið 2022 og 1 milljón kr. árið 2023.

Meira úr samantektinni

Skýrsla nefndar samkvæmt lögum nr. 26/2007. Könnun á vistun barna á Kópavogshæli 1952–1993. Vistheimilanefnd, 29. desember 2016.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
16. des. 2020
Samþykkt59 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 238–0
  • M9–0
  • F8–0
  • Sf8–0
  • 436–0
  • V4–0
  • Flf1–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 5. nóv. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Landssamtökin Þroskahjálp, Viðar Eggertsson, Umboðsmaður barna, Barnaverndarstofa · allar umsagnir
Umræða í þingsal
53 mín · 21 ræða
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði 411–466 milljónir kr. árið 2021, 2 milljónir kr. árið 2022 og 1 milljón kr. árið 2023.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 16. desember 2020: 59 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með7 tóku til máls

Sýna 1 í viðbót

52 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-321/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. jan. 2020 – 27. jan. 2020· 4 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-321/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. september 2020)

Fjórar umsagnir bárust, frá Félagi fósturbarna, Landssamtökunum Þroskahjálp og Barnaverndarstofu og ein umsögn barst frá einstaklingi. Þrjár umsagnanna varða málefni fósturbarna og vistun þeirra. Fyrirhugað frumvarp afmarkast við vistun fatlaðra barna á stofnunum á vegum hins opinbera á árum áður og verða þær umsagnir því ekki raktar nánar. Í umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áformin kemur fram að samtökin styðja heilshugar þær breytingar sem lagðar eru til í áformaskjalinu en leggja mikla áherslu á að afgreiðslu þessara mála verði flýtt eins og kostur er. Sjá mál 54/2020 (frumvarp).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Margrét Esther Erludóttir
    Kveikur Þetta er bara stórt sár Margrét Esther Erludóttir er ein þeirra sem sætti ótrúlegri vanrækslu og illri meðferð á ýmsum fósturheimilum og stofnunum í æsku, en á ekki rétt á sanngirnisbótum, því hún fellur utan ramma laganna. Play Video Lára Ómarsdóttir lara.omarsdottir@ruv.is Stefán Aðalsteinn Drengsson stefan.adalsteinn.drengsson@ruv.is Árið 2007 var sett á laggirnar vistheimilanefnd til að skoða aðbúnað og umönnun barna sem vistuð voru á heimilum og stofnunum á vegum ríkisins. Lög um sanngirnisbætur voru sett og ellefu heimili skoðuð. Margrét Esther Erludó… Lesa alla

    Kveikur Þetta er bara stórt sár Margrét Esther Erludóttir er ein þeirra sem sætti ótrúlegri vanrækslu og illri meðferð á ýmsum fósturheimilum og stofnunum í æsku, en á ekki rétt á sanngirnisbótum, því hún fellur utan ramma laganna. Play Video Lára Ómarsdóttir lara.omarsdottir@ruv.is Stefán Aðalsteinn Drengsson stefan.adalsteinn.drengsson@ruv.is Árið 2007 var sett á laggirnar vistheimilanefnd til að skoða aðbúnað og umönnun barna sem vistuð voru á heimilum og stofnunum á vegum ríkisins. Lög um sanngirnisbætur voru sett og ellefu heimili skoðuð. Margrét Esther Erludóttir á göngu (Mynd: Freyr Arnarson) Mjög fljótlega eftir að þessi mál komu upp var farið að ræða bótaskyldu ríkisins. Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta, segir það þó háð skilyrðum: „Það er heimilt að greiða bætur ef einstaklingur hefur dvalið sem barn á stofnun á vegum hins opinbera, orðið fyrir varanlegu tjóni og vistheimilanefnd hafði kannað þetta heimili og skilað skýrslu um starfsemina,“ segir Halldór. Í árslok 2016 lauk vistheimilanefnd störfum. Alls voru hátt í þrír milljarðar greiddir út í bætur til 1200 einstaklinga. Fjöldi fólks fékk hins vegar ekki neitt. Fólk sem féll utan skilgreininga laganna. Fólk sem hafði verið vistað á öðrum heimilum en þeim sem nefndin tók til skoðunar. Fullorðið fólk með fötlun. Fólk eins og Ólafur Hafsteinn Einarsson sem hafði verið vistaður á Bitru. Börn sem barnaverndarnefndir höfðu sent á fósturheimili. Börn eins og Margrét Esther Erludóttir, sem gekk varla í skóla, var hent á milli fósturheimila og stofnana og var vanrækt alla sína æsku. Býr hjá drykkfelldum föður Margrét Esther Erludóttir fæddist í Reykjavík og hét móðir hennar Margrét Erla Kristjánsdóttir og faðir hennar Guðbrandur Ingólfsson. Bjuggu þau í Torfufelli 27. Margrét Esther, eða Esther eins og hún er jafnan kölluð, fæddist árið 1971. Hún missti móður sína skömmu fyrir fimm ára afmælið, 1976 og þá hófust afskipti barnaverndar af henni. „Esther leitar til mín fyrir nokkrum árum,“ segir Gísli Tryggvason, lögmaður Estherar. Hann segir að Esther hafi sagt sér að hún hefði ekki fengið neinar sanngirnisbætur þrátt fyrir að hafa reynt það árum saman, hún lendi alltaf á vegg; „og alveg sama hvað hún reynir og síðan hvað við reynum þegar ég er farinn að aðstoða hana að þá fellur hún alltaf á milli skips og bryggju,“ segir Gísli. Margrét Esther í æsku (Mynd úr einkasafni) Esther segir að faðir hennar hafi aldrei átt að vera með börn. Hann hafi verið alkóhólisti og lagt hendur á móður hennar og síðar hana og eldri bróður hennar, sem bjó á sama heimili þegar móðir þeirra lést. Esther var til skoðunar á Landspítala, þegar hún var fimm eða sex ára, að því er gögnin sem Kveikur hefur undir höndum sýna. Í skjölum frá spítalanum segir að Esther sé „rótlaus, vanrækt eða organísk.“ Yfirmaður barnageðdeildar telur hana þó ekki þroskaskerta en lagt er til að hún fái dagvist á vistunarheimilinu að Dalbraut og verði undir eftirliti. Nokkur tími líður áður en af því verður, aðallega vegna þess að afar erfiðlega gengur að ná í föður hennar og gera áætlanir um framhaldið. Þegar Esther byrjaði í Fellaskóla hafði skólasálfræðingur afskipti af henni. Hún þótti óvirk og löt og átti erfitt með að mynda tengsl að því er fram kemur í gögnum skólans. „Nógur flækingur verið á stelpunni“ Esther segir að fljótlega eftir að hún hóf skólagöngu hafi barnavernd verið ljóst að eitthvað mikið væri athugavert við heimili hennar. Barnaverndarnefnd réð ráðskonu til að sinna börnunum en þær áttu að lokum eftir að skipta tugum, konurnar sem ýmist störfuðu á heimili Estherar eða voru í sambúð með föður hennar. „Það voru 35 konur, í heildina og þær voru bara á vegum barnaverndarnefndar Reykjavíkur,“ segir Esther. „Það er það sem að særði mig eiginlega mest að þær vildu aldrei tengjast við mig. Það var ekkert svona ást og umhyggja eða neitt þannig,“ bætir hún við. Þótt ekki sé nákvæmlega haldið utan um fjölda þeirra kvenna sem sinntu Esther í æsku þá er ýmislegt sem styður frásögn hennar. Þar segir til dæmis: „Ráðskona yfirgefur heimilið og börnin lenda á flækingi“ „Sambýliskona yfirgefur heimilið og börnin lenda í reiðileysi“ „Umsjón hennar hefur meðal annars verið í höndum hinna ýmsu ráðskvenna og sambýliskvenna.“ „Eins og sjá má eru heimilisaðstæður hjá Ester ekki upp á marga fiska og nógur flækingur verið á stelpunni.“ Í eitt sinn, þegar faðir hennar vann við Kröflu, gætti nágrannakona hennar á daginn og frænka hennar á kvöldin og næturnar. Bjó á minnst fimm heimilum á fjögurra ára tímabili Átta ára, eða 1979 byrjar Esther í viðtalsmeðferð á Dalbraut og var hún þar í dagvist. Í september sama ár eru Esther og eldri bróðir hennar send í fóstur í fyrsta sinn, á bæ í Önundarfirði, þar til faðir þeirra sótti þau. Esther á heimili sínu (Mynd: Ingvar Haukur Guðmundsson) „Þar var ég sett sem sagt á Flateyri í skóla og það gekk bara rosa rosa vel, ég vildi aldrei fara heim sko, en hann ákvað að stela okkur án þess að láta vita,“ segir Esther Eftir jólafríið voru þau ekki send aftur vestur heldur var Esther sett aftur inn á Dalbraut. Esther telur að þetta hafi faðir þeirra gert svo hann myndi ekki tapa þeim bótum sem hann fékk með börnunum. Á þessum árum, frá því Ester er átta ára og þar til hún er 12 ára einkennist líf hennar af miklum þvælingi. · Hún er í dagvist á Dalbraut 1979. · Hún fer í fóstur í Önundarfjörð um haustið. · Hún býr hjá föður sínum 1980. · Hún fer aftur í dagvist á Dalbraut sumarið 1981. · Hún fer á sveitaheimili á Snæfellsnesi sumarið 1981. · Hún er svo send á meðferðarheimilið á Kleifarvegi 15 um haustið. · Þar er hún fram á vor 1982. · Um sumarið fer hún aftur í vist á Snæfellsnes. · Haustið 1982 er hún vistuð á meðferðarheimilinu á Kleifarvegi og er þar fram á vor. · Sumarið 1983 er Esther vistuð í sveit í Köldukinn í Holtum. Á þessu fjögurra ára tímabili býr Esther sem sagt á minnst fimm heimilum eða stofnunum og á sum þeirra er hún send oftar en einu sinni. „Þetta var bara ógeðslegt, við vorum bara eins og rúllandi bolti,“ segir hún. Á róluvelli (Mynd: Freyr Arnarson) Hún á þó nokkrar hlýjar minningar úr æsku, sérstaklega frá því hún var í sveit á Snæfellsnesi. „Það var æðislegt og fólkið var rosalega gott,“ segir hún. „Ég hef aldrei fundið fyrir neinni ást eins og þar.“ Þegar Esther nálgast unglingsárin verður barnaverndaryfirvöldum ljóst að finna þurfi varanlegt heimili fyrir hana. Í skýrslu forstöðumanns meðferðarheimilisins að Kleifarvegi 15, hvar Esther hafði verið vistuð tvo vetur segir; „Allt líf Estherar hefur verið í allt of lausum skorðum, samhengislaust - (fyrir utan 2ja ára dvöl á meðferðarheimilinu) - og öll skipulagning til bráðabirgða.“ „Allt þetta óöryggi hefur sett djúp spor og persónuleikabresti í lítinn bóg.“ „Eina raunhæfa lausnin sem við sjáum fyrir stúlkuna er að útvega henni varanlegt fósturheimili, allar aðrar ráðstafanir virðast vera bráðabirgða.“ Á þetta féllst faðir Estherar og afsalaði sér forræði yfr stelpunni til barnaverndarnefndar sem átti að finna henni varanlegt heimili. Það er þá sem versta dvöl Estherar hefst, á sveitabæ norður í landi. Og það er meðal annars vegna þeirrar dvalar sem Esther telur sig eiga rétt á sanngirnisbótum. „Og þar nauðgaði hann mér“ „Ég var lamin og barin með naglaspýtum, hestasvipum og ég var hengd upp á sperru og þegar var komið inn í mat þá var hann með svipuna bara við hliðiná,“ rifjar Esther upp. „Þau áttu þrjú börn sem voru þarna fyrir, við vorum sjö krakkarnir og ég þurfti alltaf að sjá á eftir skólabílnum. Ég fékk aldrei að fara í skóla. Ég átti bara að fá heimakennslu sem var mjög lítil, þannig að ég var bara þarna alltaf heima, eða þarna á staðnum.“ Heimilislífið einkenndist af daglegri drykkju og einhverju sinni var hún hengd með viskastykki þar til hún missti meðvitund. Bóndinn nauðgaði henni líka. „Þetta var um kvöld og þau voru búin að vera að drekka og þau voru þarna með partý inni í stofunni,“ segir Esther. Hún fór fram á gang til að fá sér ískalt vatn að drekka; „Þá kemur Ásbjörn gamli alveg brjálaður og hérna þá fór hann með mig inn á kontór sem hann kallaði kontór og þar nauðgaði hann mér.“ Bóndinn á næsta bæ, sem var gestkomandi á bænum, kom Esther til bjargar. „Þá var hann bara að klára að nauðga mér,“ heldur Esther áfram. „En hann [bóndinn á næsta bæ - innsk. blaðamanns], hann tók bara í hann og hann var brjálaður og henti honum fram á gang og hann bara þú veist, þú gerir þetta aldrei við börn.“ Þá var Esther 13 ára. Ekki var hringt á lögreglu eða annað aðhafst. „ Ég bara lokaði. Ég var bara lokuð,“ segir hún. Kveikur hafði samband við bóndann sem kom Esther til bjargar sem staðfesti frásögn hennar í meginatriðum. Esther blaðar í pappírum (Mynd: Freyr Arnarson) Í gögnum Estherar segir að hún hafi talað við sjálfa sig á þessum tíma, matast með höndunum, ekki horft fram fyrir sig og gengið á veggi svo dæmi sé tekið. „Hvaða barn myndi virkilega geta gengið á veggi nema það að barnið er búið að ganga í gegnum alveg heilmikið?“ spyr Esther. „Ég meina, vera þarna og hugsa út í það að þetta fólk mátti gera þetta, ég meina það voru fleiri börn þarna. Við vorum sjö. Og einn besti vinur minn, sem að var þarna, hann var tekinn og allsnakinn og í svona stálbala og í kalt vatn og svo var hann bundinn og hérna og hann var þar í tæpan sólarhring úti og þetta var bara þetta var ógeðslegt.“ Esther var í tvö ár í vist á þessum bæ. „Það eina sem þau vildu það var að fá eins mikið út úr þessu og hægt var,“ segir Esther. „Þau fengu sjöfalt meðlag með mér, sem er dálítið mikið og ásamt aukastyrkjum.“ Esther segir að aldrei hafi verið rannsakað hvað hafi átt sér stað þarna. Fékk litla sem enga menntun Þegar Esther kom heim til föður síns vorið 1986 til að fermast, merkti hann breytingu á henni og neitaði að senda hana aftur norður. Í einni skýrslunni segir: „Að sögn hans var þessi dvöl óheppileg fyrir Ester, hann telur fólkið á heimilinu hafi verið vont við hana og einnig hafi verið þar mikil drykkja. Segir faðir, að Ester hafi heldur breyst í framkomu til hins verra eftir sveitadvölina.“ Esther fór aftur á meðferðarheimilið við Kleifarveg en var síðan send í vistun að Víðihlíð 9 og 11 sem Styrktarfélag vangefinna rak. Hún gekk í Öskjuhlíðarskóla enda var Esther á þessum tíma talin þroskaskert og tornæm. Síðar var sótt um vist fyrir hana á sambýlinu við Njörvasund en þangað flutti Esther 1989, þá 18 ára gömul. „Þegar að ég var í Njörvasundi,“ segir Esther „það var ekki bara farið illa með mig“. Esther segir að forstöðumaðurinn á heimilinu hafi beitt hana miklu ofbeldi. Fram kemur í gögnum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar að í eitt skiptið hafi „séð töluvert á henni eftir hann.“ „Hann tók mig og sparkaði mér niður 15 tröppur,“ segir hún. Í greinargerð sem forstöðumaðurinn sendi félagsmálayfirvöldum vegna málsins vísaði hann ásökunum Estherar á bug. Esther bjó í Njörvasundi þar til hún varð tvítug. Þar með lauk afskiptum barnaverndar af henni. Esther á göngu (Mynd: Freyr Arnarson) Þá stóð Esther uppi alein og óstudd. Hún hafði verið vanrækt allt frá frumbernsku og fram á fullorðinsár. Alla æskuna hafði hún verið á flækingi milli misgóðra fósturheimila og náði aldrei að mynda tengsl við neinn. Og þegar hún gekk tvítug út af sambýlinu í Njörvasundi, árið 1991, hafði hún litla sem enga grunnmenntun fengið. „Ég held ég hafi bara verið í fjögur skipti í fyrsta bekk, ég hef verið tvisvar í öðrum bekk og svo þarna í Laugarnesskólanum. Ég held ég hafi verið í tvö ár eða eitthvað svo var ég látin þarna niður í það sem heitir Klettaskóli í dag að faðir minn lét mig þangað í eitt ár,“ segir Esther. „Þá var ég orðin 17.“ Gísli segir að öll uppvaxtarár Estherar beri hún líka þess merki merki að fá að hafa ekki fengið menntun og tannhirðu og ýmislegt sem að skorti á á öllum þessum stöðum. „Fólkið sem að sinnti henni því miður, var ýmist ekki hæft til þess eða sinnti ekki skyldum sínum nægilega vel teljum við.“ Segir Gísli að öll æska Estherar og langt fram á fullorðinsár sé mörkuð af þessu að hún sé látin fara á milli stofnana og heimila og fær aldrei fastan samastað. „Verstu tilvikin eru nú sennilega í Njörvasundi annars vegar þegar hún er að nálgast tvítugt og á Auðkúlu l þar sem hún verður fyrir alvarlegu ofbeldi bæði andlegu, líkamlegu og kynferðislegu,“ segir hann og heldur áfram: „þar erum við hreinlega bæði með skýrslur nokkrum árum seinna og vitnisburð manns sem man mjög vel eftir þessu tilviki.“ Kemur alls staðar að lokuðum dyrum Árum saman hefur Esther reynt að leita réttar síns. Hún hefur nokkrum sinnum sótt um sanngirnisbætur, hún hefur nokkrum sinnum reynt að fá gjafsókn, svo hún geti stefnt ríki og borg og hún hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis. Hún hefur alls staðar komið að lokuðum dyrum, hún fellur bara ekki innan ramma laganna. „Ég vildi óska þess að stjórnvöld myndu taka þetta á sína ábyrgð,“ segir Esther og bætir við: „Ég er bara á sparkvelli fullorðinna öll mín ár.“ „Það er svo ósanngjarnt að einn einstaklingur lendi svona á milli stafs og bryggju og fái ekki bætur þó að augljóst sé af gögnum og vitnisburði sem liggur fyrir að hún hefur orðið fyrir miklu óréttlæti,“ segir Gísli. Hann segir einnig að það sé sambærilegt við þau tilvik sem að vistheimilanefndin hefur fjallað um. Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta, segir að það sé auðvitað alltaf dálítið flókið þegar um er að ræða heimili. „Vegna þess að það til dæmis kom fram í áliti Umboðsmanns Alþingis að það sé í rauninni ekki hægt að líta á þetta sem stofnun í þeim skilningi sem reynir á í lögunum.“ Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta (Mynd: Stefán Aðalsteinn Drengsson) Hann segir að heimilin hafi verið ótrúlega mörg og sum þeirra hafi ekki starfað á vegum hins opinbera; „heldur var oft um að ræða einhvers konar úrræði þar sem var fósturvistun,“ segir Halldór. Aðspurður hvort það sé ekki svolítið ósanngjarnt að einstaklingar sem voru vistaðir einhvers staðar annars staðar en á þessum stofnunum sem Vistheimilanefnd skoðaði, fái enga réttarbót eða enga viðurkenningu á því að það hafi verið farið illa með það, svarar hann: „Jú, að sjálfsögðu er það mjög ósanngjarnt.“ Hann segir að þegar ráðist sé í svona framkvæmd eins og að greiða sanngirnisbætur sé það gríðarlega stórt verkefni, tímafrekt og kosti mikla vinnu. „En þá er auðvitað alltaf hætta á að einhverjir falli á milli,“ segir hann. Halldór segir að lögin hafi ekki heldur tekið til heimila eins og þess í Njörvasundi, það er heimila sem vistuðu fullorðið fólk með fötlun. „Það ræðst af því í rauninni að lög um vistheimilanefnd og síðan lög um sanngirnisbætur eru í rauninni njörvuð niður við einstaklinga sem dvöldu í æsku, það er að segja á barnsaldri, á heimilum og stofnunum,“ segir Halldór Þormar. „Þess vegna var aldrei hægt að kanna þessa starfsemi og það verður ekki gert nema ráðast í einhverja heildstæða könnun á högum fullorðinna fatlaðra.“ „Hún fellur á milli kerfa, má segja“ Esther sótti um sanngirnisbætur fyrir hvert og eitt heimili sem hún var vistuð á. Halldór þekkir mál hennar vel. Úr skjölum Estherar (Mynd: Stefán Aðalsteinn Drengsson) „Ég kannaði mál Estherar mjög ítarlega, einfaldlega vegna þess að það er dálítið sérstakt,“ segir Halldór. Í sjálfu hafi aldrei verið hægt að taka efnislega aðstöðu til málsns, sökum þess að Esther uppfylli ekki formskilyrðin, þar sem að heimilin sem hún dvaldi á hafi ekki verið könnuð. „Lýsing hennar á því sem hún varð fyrir er í rauninni mjög áþekk því sem margir urðu fyrir og engin ástæða annað en að taka það trúanlegt,“ segir hann og bætir við: „Hún fellur á milli kerfa má segja, það er hægt að lýsa því þannig.“ Gísli segist vona að nýr dómsmálaráðherra taki þetta upp og líti á skýrslu sem gerð var um aðstæður Estherar á Auðkúlu l sem ígildi skýrslu Vistheimilanefndar. „Þá byggjum við það á lagaákvæði sem var sett inn í lögin 2010 út frá Landakotsmálinu um að heimilt sé að líta á aðrar skýrslur heldur en skýrslur Vistheimilanefndar sem grundvöll sanngirnisbóta,“ segir Gísli. „Stjórnvöld láti hana njóta vafans“ Í umræddri skýrslu er aðstæðum Estherar og því ofbeldi sem hún varð fyrir lýst nokkuð nákvæmlega. Skýrsluhöfundur hefur meðal annars samband við vitni sem segist hafa vitað hversu slæmt ástandið var á bænum en „ekki gert neitt í því.“ Skýrslan var send til vistunarsviðs og óskaði skýrsluhöfundur eftir því að „málsatvik verði könnuð til hins ítrasta.“ Ekki eru til gögn sem sýna að það hafi verið gert. „Við vonum enn að stjórnvöld láti hana njóta vafans,“ segir Gísli. „Ef það gengur ekki þá verður við því miður að láta reyna á rétt okkar fyrir dómstólum.“ Gísli Tryggvason, lögmaður Estherar (Mynd: Stefán Aðalsteinn Drengsson) Gísli segir að ef þau neyðist til að stefna málinu fyrir dóm þá verði ríki og Reykjavíkurborg stefnt fyrir að vanrækja skyldur sínar, byggt á mannréttindasáttmála Evrópu og þágildandi barnaverndarlögum. Telur Gísli að megin sökin sé hjá ríki og borg fyrir að hafa ekki fundið henni varanlegt heimili. „Við teljum að bæði umsögn föðurins og umsögn sálfræðingsins, hafi átt að verða til þess að henni yrði fundið varanlegt heimili,“ segir hann og bætir við: „Það var ekki gert. Það var kannski stærsta vanrækslusyndin af mörgum sem að stjórnvöld hafa gerst sek um í máli Estherar.“ Þegar Halldór Þormar er spurður að því hvað einstaklingar, eins og Esther og fleiri sem voru í hennar stöðu sem börn, geti gert og hvert þeir geti leitað, svarar hann: „Það er auðvitað mjög flókið og það er í raun pólitísk ákvörðun ríkisvaldsins, hvað það gerir í málinu og endaleg ákvörðun alltaf hjá Alþingi. Það er ekki hægt í rauninni að greiða þeim bætur á grundvelli núgildandi laga“ og bætir við: „Það verður að setja nýja löggjöf.“ „Þetta er bara stórt sár“ Allt líf Estherar er markað af æsku hennar og því ofbeldi og rótleysi sem hún bjó við. Hún hefur glímt við hamlandi kvíða og brotna sjálfsmynd sem sálfræðingur, sem gerði sálfræðimat á Esther árið 2016, rekur til langvarandi vanrækslu og ofbeldis. Í niðurstöðu sálfræðimatsins segir: „Ljóst þykir að erfið lífsreynsla Margrétar hefur haft mikil og víðtæk áhrif á hana, getu hennar til að eiga í samskiptum við annað fólk og takast á við daglegt líf. Hún er einangruð, á erfitt með að treysta fólki og lifir í stöðugri hræðslu.“ „Það liggja þó einhver gögn um að hún hafi orðið fyrir áfallastreituröskun og ýmsu og aldrei beðið þess bætur að hafa svona þurft að hendast á milli staða,“ segir Gísli. „Aldrei fengið þetta öryggi sem að maður fær svona almennt á heimili.“ Hann segir að það séu til fjölmörg gögn um vanræksluna sem Esther varð fyrir. „Ég vona að stjórnvöld fallist á að greiða henni sanngirnisbætur þannig að það þurfi ekki að takast á um þetta mál fyrir dómstólum,“ segir Gísli. Esther lifir ágætislífi í dag. Hún á þrjú börn og eitt barnabarn og býr með eiginmanni sínum í Kópavogi. Hún er öryrki en vinnur sjálboðastarf hjá Hjálpræðishernum þrjá daga í viku, þar sem hún nýtur sín vel. Þá stundar hún línudans af miklu kappi. En brotin æska hennar hefur haldið aftur henni alla tíð. Esther lítil (Mynd úr einkasafni) „Þetta er bara reiði þetta er bara sársauki,“ segir Esther. „Sársaukinn er allra mestur, þú veist, andlega, líkamlega, sálarlega.“ Aðspurð hvað þurfi til að ná sátt við fortíðina svarar hún: „Ég vil fá uppreisn æru. Og börnin sem komu á eftir mér, ég vil að þau fái líka uppreisn æru, meina þetta er bara stórt sár.“ Vertu með Fáðu regluleg skilaboð frá okkur um þau mál sem við höfum fjallað um. netfang@vefur.is Senda Kveikur © 2020 Efstaleiti 1, 150 Reykjavík 515-3020 kveikur@ruv.is

  • #2Hlynur Már Vilhjálmsson
    Félag fósturbarna óskar eftir því að bætt verði við vinnslu þessa frumvarps, um breytingu á lögum um skilyrði sanngirnisbóta, málefni fósturbarna almennt, en þau mál standa í óásættanlegri stöðu að mati okkar. Félag fósturbarna krefst fyrir hönd félaga sinna að víkkaður verði skilningurinn á skilyrðum sanngirnisbóta fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum. Dæmi eru um það að börn sem hafa verið á fósturheimilum hafi t.d. ekki rétt á sanngirnisbótum ef Barnaverndir sveitarfélaga ákveði að segja upp fósturforeldrum og taka fósturbörnin af þeim til þess að gera rekstrarlegar breytingar á fó… Lesa alla

    Félag fósturbarna óskar eftir því að bætt verði við vinnslu þessa frumvarps, um breytingu á lögum um skilyrði sanngirnisbóta, málefni fósturbarna almennt, en þau mál standa í óásættanlegri stöðu að mati okkar. Félag fósturbarna krefst fyrir hönd félaga sinna að víkkaður verði skilningurinn á skilyrðum sanngirnisbóta fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum. Dæmi eru um það að börn sem hafa verið á fósturheimilum hafi t.d. ekki rétt á sanngirnisbótum ef Barnaverndir sveitarfélaga ákveði að segja upp fósturforeldrum og taka fósturbörnin af þeim til þess að gera rekstrarlegar breytingar á fósturheimilum. Slíkt skaðar hagsmuni fósturbarna til langtíma og er mikilvægt að slík vinnubrögð séu leiðrétt aftur í tímann. Fleiri dæmi snúa svo m.a. að því að uppkomin fósturbörn falli ekki innan ramma laganna um sanngirnisbætur þrátt fyrir sönnunargögn um langtímaskaða sem þau hafa orðið fyrir. Fjöldi fósturbarna fellur á milli kerfa þegar kemur að þessu og er réttlaust í lögunum. Við viljum að lögin standi einnig með þeim uppkomnu og núverandi fósturbörnum sem séu eða voru vistuð á heimilum sem teljast ekki sem stofnanir í lagalegum skilningi og eru eða voru ekki rekin á vegum hins opinbera (t.d. fósturvistun). Formskilyrðin vegna sanngirnisbóta mega ekki undanskilja fósturbörn sem eru eða voru á heimilum sem hafa ekki verið könnuð og mætti þá kanna þau sem fyrst ef það hjálpar en réttindi einstaklinganna verða án undantekninga að vera varin ólíkt núverandi stöðu og líka aftur í tímann. Uppkomin fósturbörn sem hafa orðið fyrir slæmri reynslu í fóstri og leitast eftir sanngirnisbótum eru fyrst og fremst að leitast eftir staðfestingu yfirvalda á ábyrgð sinni gagnvart fósturbörnum. Ábyrgðin og sársaukinn getur hreinlega ekki legið alfarið hjá einstaklingum sem hafa þolað erfiða reynslu á fósturheimilum sem börn. Opna þarf dyrnar fyrir þessum hópi fólks en oft kemur það að dyrunum lokuðum í kerfinu. Það er óásættanlegt. Yfirvaldið hefur lagalegar og mannréttindalegar skyldur til þess að verja fósturbörn, uppkomin og núverandi. Við óskum eftir samtali og samvinnu við ríkið í tengslum við þessi lög. Fyrir hönd Félags fósturbarna, Hlynur Már Vilhjálmsson.

  • #3Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna þroskahjálpar um áform að breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp hafa síðastliðin 12 ár barist fyrir því að skoðað verði hvort ekki væri ástæða til að greiða öllum börnum sem dvöldust á stofunum fyrir fatlað fólk sanngirnisbætur vegna mögulegra skaðlegra afleiðinga fyrir þau af dvöl þeirra þar. Samtökin styðja því heilshugar þær breytingar sem hér eru lagðar til, þ.e.a.s. að ákvörðun sanngirnisbóta til þeirra sem voru vistaðir sem börn á heimilum fyrir fa… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna þroskahjálpar um áform að breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp hafa síðastliðin 12 ár barist fyrir því að skoðað verði hvort ekki væri ástæða til að greiða öllum börnum sem dvöldust á stofunum fyrir fatlað fólk sanngirnisbætur vegna mögulegra skaðlegra afleiðinga fyrir þau af dvöl þeirra þar. Samtökin styðja því heilshugar þær breytingar sem hér eru lagðar til, þ.e.a.s. að ákvörðun sanngirnisbóta til þeirra sem voru vistaðir sem börn á heimilum fyrir fatlað fólk verði ekki grundvölluð á sérstökum úttektum á hverjum og einum stað, heldur verð byggt á niðurstöðu nefndar sem kannaði vistun barna á Kópavogshæli og lagði til að fatlaðir einstaklingar sem dvöldust sem börn á öðrum stofnunum fengju sambærilegan rétt hvað varðar sanngirnisbætur og þeir sem dvöldust sem börn á Kópavogshæli. Eðlilegt sýnist vera að við ákvörðun bótafjárhæðar verði litið til hversu langan tíma viðkomandi dvaldist á stofnuninni sem barn. Samtökin telja að með því að fella brott lög nr. 26/2007, um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist-og meðferðaheimila fyrir börn, verði tryggt að þeir fötluðu einstaklingar sem dvöldust sem börn á stofnunum sem enn eru í rekstri fái sambærilegan rétt til sanngirnisbóta og þeir sem dvöldust sem börn á stöðum sem ekki eru lengur í rekstri, enda er augljóst að önnur niðurstaða stenst alls ekki m.t.t. jafnræðisreglna laga og sjónarmiða um sanngirni. Landsamtöki Þroskahjálp leggja mikla áherslu á að afgreiðslu þessara verði flýtt eins og nokkur kostur er og að sanngirnisbætur verði að fullu greiddar til þeirra sem eiga rétt til þeirra í einu lagi á árinu 2021 en greiðslur dreifist ekki yfir lengri tími. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma frekari athugasemdum á framfæri á síðari stigum við gerð frumvarpsins og við þinglega meðferð þess. Einnig áskilja samtökin sér rétt að gera frekari kröfur fyrir hönd fatlaðra einstaklinga sem fyrirhugað frumvarp nær ekki til.

  • #4Barnaverndarstofa
    Efni: Umsögn Barnaverndarstofu varðandi áform um breytingu á lögum um sanngirnisbætur Í upphafi telur Barnaverndarstofa rétt að taka fram að stofan fagnar þeirri stefnu stjórnvalda sem birtist í framangreindum áformum að bregðast eigi við sterkum vísbendingum um slæman aðbúnað viðkvæmra hópa barna á stofnunum sem hið opinbera bar ábyrgð á með rannsóknum og greiðslu sanngirnisbóta. Barnaverndarstofa fagnar áformum um að skoða þær stofnanir sem fjallað er um. Á hinn bóginn telur stofan nauðsynlegt með hliðsjón af jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga að vekja athy… Lesa alla

    Efni: Umsögn Barnaverndarstofu varðandi áform um breytingu á lögum um sanngirnisbætur Í upphafi telur Barnaverndarstofa rétt að taka fram að stofan fagnar þeirri stefnu stjórnvalda sem birtist í framangreindum áformum að bregðast eigi við sterkum vísbendingum um slæman aðbúnað viðkvæmra hópa barna á stofnunum sem hið opinbera bar ábyrgð á með rannsóknum og greiðslu sanngirnisbóta. Barnaverndarstofa fagnar áformum um að skoða þær stofnanir sem fjallað er um. Á hinn bóginn telur stofan nauðsynlegt með hliðsjón af jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga að vekja athygli stjórnvalda á þeim hópi fólks sem vistaður var af, hálfu stjórnvalda, þ.e.a.s. barnaverndaryfirvalda, á einkaheimilum þegar viðkomandi aðilar voru börn að aldri. Að mati stofunnar er mikilvægt að umræddur hópur fái sömu tækifæri og annað fólk sem vistað var á stofnunum, annað hvort sem börn eða vegna fötlunar sinnar, til þess að tjá sig um dvöl sína á fóstur- eða vistheimilum sem þeim var ráðstafað á. Þar sem liggur fyrir að stór fjöldi barna var ráðstafað í fóstur á einkaheimili er að mati stofunnar mikilvægt að sá hópur fái að jafnframt að gera upp vistun sína þar. Virðingarfyllst f.h. Barnaverndarstofu Guðrún Þorleifsdóttir, lögfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-54/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 11. mar. 2020· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör)

Fyrirhugað er að leggja fram meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-54/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. september 2020)

Ein umsögn barst vegna málsins og leiddi hún ekki til breytinga á frumvarpsdrögunum. Fyrirhugað er að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi á haustþingi 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að frumvarp þetta skuli hafa verið lagt fram til kynningar og samráðs. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að fram fari nauðsynlegt og fullnægjandi uppgjör hvað varðar vistun fatlaðra barna. Inngangur. Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að tilefni og nauðsyn lagasetningar er að fram fari lokaupgjör sanngirnisbóta vegna sólahringsvistar fatlaðra barna á stofnunum sem reki… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að frumvarp þetta skuli hafa verið lagt fram til kynningar og samráðs. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að fram fari nauðsynlegt og fullnægjandi uppgjör hvað varðar vistun fatlaðra barna. Inngangur. Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að tilefni og nauðsyn lagasetningar er að fram fari lokaupgjör sanngirnisbóta vegna sólahringsvistar fatlaðra barna á stofnunum sem rekin voru á ábyrgð hins opinbera. Samkvæmt frumvarpinu eiga lögin að gilda til 31. desember 2023. Af framansögðu er ljóst að þessum lögum er einvörðungu ætlað að ná til ákveðins hóps og að bæta fyrir misgjörðir sem sá hópur varð fyrir. Í skýrslu vistheimilsnefndar um vistun barna á Kópavogshæli eru þær ályktanir dregnar að stjórnvöld hafi vanrækt að skapa skilyrði til að halda uppi lögbundnum kröfum um aðbúnað barna og af þeim sökum hafa skapast veruleg hætta á því að börn hafi þurft að þola illa meðferð, sem m.a. fólst í að börn voru vistuð með á fullorðnu fólki. Í skýrslunni kemur einnig fram að telja verði að hlutaðeigandi stjórnvöld og tilteknir yfirstjórnendur hafi vanrækt eftirlitsskyldur sínar. Vitheimilanefnd komst að eftirfarandi niðurstöðu í skýrslu sinni um aðstæður barna á öðrum vistheimilum en Kópavogshæli: Ekki er talin ástæða til að að leggja í jafnítarlegar og tímafrekar úttektir á þeim stofnunum sem út af standa og í fyrri málum. Litið er svo á að nægjanleg vitneskja sé fyrir hendi um tíðaranda, viðhorf, uppbyggingu og starfsemi stofnana og um það sem fór úrskeiðis eða betur mátti fara. Með skýrslu visheimilnefndar hafi farið fram ákveðið uppgjör við fortíðina. Sérstaða fatlaðra barna hvað varðar vistun er sú að þau börn bjuggu að jafnaði við þær aðstæður um lengri tíma og fátítt var að barn sem hafði verið vistað flyttist burt af vistheimili. Þau ólust þar upp í flestum tilvikum og héldu áfram að búa þar á fullorðinsárum þar sem tækifæri þeirra sem lögráða einstaklingar til að hefja sjálfstætt líf utan vistheimilis voru afar takmarkaðir. Þegar sanngirnisbætur voru greiddar þeim sem höfðu verið vistaðir á Kópavogshæli sem börn fór upphæð bótanna einvörðungu eftir tímalengd vistunar. Ekki var gerð nein tilraun til að sanreyna að skaði sem þeir einstaklingar höfðu orðið fyrir væri til kominn vegna illrar meðferðar eða ofbeldis. Ljóst er að miklum erfiðleikum er háð, m.a. vegna fötlunar viðkomandi einstaklinga, að sannreyna það. Markmið þessarar lagasetningar er, eins og segir í greinargerð með frumvarpinu, m.a. það að gætt verði „jafnræðis fyrir fatlað fólk sem var vistað á barnsaldri á Kópavogshæli og á öðrum sambærilegum stofnunum fyrir fötluð börn.“ Þar sem, eins og fram hefur komið, hér er verið að leggja fram lagafrumvarp sem nær til hóps sem um margt er ólíkur þeim hópi sem lög nr. 26/2007 áttu að uphaflega að ná til, er eðlilegt að í nýjum lögum verði gildissviði og skilyrðum fyrir greiðslu sanngirnisbóta breytt til samræmis við aðstæður þess hóps sem lögin eiga taka til samkvæmt frumvarpinu. Nokkrar athugasemdir varðandi einstakar greinar frumvarpsins. Með vísan til þess sem að fram er rakið er gerð athugasemd varðandi gildissvið laganna samkvæmt 1 gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að greiðsla bóta miðist við að skaði sem barn hafi orðið fyrir við vistun sé til kominn vegna illrar meðferðar eða ofbeldis. Lagt er til að í stað þess sé kveðið á um að skaðinn sé til kominn vegna vanrækslu hvað varðar aðbúnað og ófullnægjandi eftirlits þannig að ekki var tryggt að komið væri í veg fyrir illa meðferð og ofbeldi. Gerð er athugasemd við 3. gr. frumvarpsins varðandi skilyrði sanngirnisbóta og er lagt til að greinin hljóði svo: Greiða skal sanngirnisbætur úr ríkissjóði á grundvelli laga þessara miðað við lengd þess tíma sem vistmaður dvaldist þar sem aðbúnaður var ófullnægjandi og skortur var á eftirliti til að koma í veg fyrir illa meðferð og varanlegan skaða af þeim sökum. Með varanlegum skaða er átt við varanlegar, neikvæðar líkamlegar, sálrænar eða félagslegar afleiðingar. Gerð er athugasemd við 1. mgr. 4. gr. varðandi fjárhæðir sanngirnisbóta. Lagt er til að 1. tl. hljóði svo: Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal litið til tímalengdar vistunar. Lagt er til að 2. tl. 1. mgr. 4. gr. verði felldur niður. Lagt er til að 2. mgr. 9 gr. verði felld niður. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sé rétt til að koma frekari athugassmdum og ábendingum á framfæri varðandi frumvarpið á síðari stigum og þegar það verður til meðferðar á Alþingi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    11 ræður · 31 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 5. nóvember 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    8 ræður · 20 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Umræða
    3. umræða
    2 ræður · 1 mín
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  17. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
212Stjórnarfrumvarp16. okt. 2020Katrín JakobsdóttirLesaPDF
561Nál. með brtt.10. des. 2020Páll Magnússon, Bjarkey Gunnarsdóttir +7LesaPDF
607Frumvarp eftir 2. umræðu15. des. 2020—LesaPDF
641Lög (samhlj.)16. des. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur20. október 2020 kl. 17:21
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd20. október 2020 kl. 17:22
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“.
    2. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:56
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“.
    1--2
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:57
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“.
    3.--4. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. desember 2020 kl. 14:57
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“.
    5.--14. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. desember 2020 kl. 14:57
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt16. desember 2020 kl. 15:45
    Að samþykkja frumvarpið „Bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:8 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

21 ræða · 53 mín
  • 1. umræða: 11 ræður · 3 ræðumenn · 31 mín
  • 2. umræða: 8 ræður · 6 ræðumenn · 20 mín
  • 3. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 1 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. okt. 2020, frestur 5. nóv. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Viðar EggertssonumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.