Frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála
Frumvarp þetta gildir um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála, m.a. um Jafnréttisstofu og kærunefnd jafnréttismála. Lagt fram samhliða frumvarpi forsætisráðherra til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-127/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Kristín Sigrún Guðmundsdóttir
Tel það mistök að aðeins lögfræðingar gefi álit sitt á mál er koma fyrir nefndina. Mikilvægt að mannauðssérfræðingar komi einnig að málum.
- #2Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendast ábendingar Sambands íslenskra sveitarfélaga við frumvarp um stjórnsýslu jafnréttismála. F.h. sambandsins Guðjón Bragason
- #3Eirný Valsdóttir
Undirrituð telur að 6. mgr. 5. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla lög nr. 10/2008 sé barns síns tíma og hafi verið sett sett inn fyrir misskilning. Að gleymst hefði að huga að samræmi við aðrar úrskurðarnefndir. Sjá frekar í viðhengi.
- #4Margrét Steinarsdóttir
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um drög að frumvarpi um stjórnsýslu jafnréttismála.
- #5Mannauður, félag mannauðsfólks á Íslandi
Hjálagt er umsögn Mannauðs, félags mannauðsfólk á Íslandi. Virðingarfyllst, f.h. stjórnar, Ásdís Eir Símonardóttir Formaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.