Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 159. mál

Stéttarfélög og vinnudeilur

Félagsdómur

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. okt. 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja enn frekar sjálfstæði og óhlutdrægni Félagsdóms.

Lagt fram af Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
9. október 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 3 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að tryggja enn frekar sjálfstæði og óhlutdrægni Félagsdóms.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á tilhögun við skipun dómara í Félagsdóm. Lagt er til að ráðherra skipi fimm dómara í Félagsdóm og að Hæstiréttur tilnefni þrjá dómara, þar af forseta og varaforseta dómsins, og þeir skuli allir skipaðir ótímabundið. Þá tilnefni Hæstiréttur jafnframt tvo dómara til vara sem báðir skuli skipaðir ótímabundið. Einnig er lagt til að tveir dómarar og jafnmargir til vara skuli tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins annars vegar og Alþýðusambandi Íslands hins vegar og skuli þeir skipaðir til þriggja ára í senn. Þá er lagt til að gerð verði frekari hæfisskilyrði til dómara við Félagsdóm.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Matsskýrsla ríkjahóps Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO) um Ísland (28. mars 2013).

Félagsdómur.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Lilja Rafney Magnúsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 2. nóv. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Lögmannafélag Íslands, Alþýðusamband Íslands, JS lögmannsstofa · allar umsagnir
Umræða í þingsal
3 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-76/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. mar. 2020 – 31. mar. 2020· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (Félagsdómur).

Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á IV. kafla laganna, sem fjallar um Félagsdóm.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-76/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. október 2020)

Tvær umsagnir bárust í samráðsgáttina þar sem komið var á framfæri athugasemdum við frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 9. október 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Jón Sigurðsson

    Sjá viðhengi.

  • #2Lögmannafélag Íslands
    Efni: Mál nr. 76/2020: frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint frumvarp: Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að Hæstiréttur Íslands tilnefni dómara í Félagsdóm. Þá er gert ráð fyrir því að bæði forseti- og varaforseti Félagsdóms séu tilnefndir af Hæstarétti og tveir varadómarar séu einnig tilnefndir af Hæstarétti. Þá séu þeir dómarar sem Hæstaréttur tilnefnir skipaðir ótímabundið af ráðherra, ólíkt öðrum dómurum Félagsdóms. Í fyrsta lagi, athugas… Lesa alla

    Efni: Mál nr. 76/2020: frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint frumvarp: Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að Hæstiréttur Íslands tilnefni dómara í Félagsdóm. Þá er gert ráð fyrir því að bæði forseti- og varaforseti Félagsdóms séu tilnefndir af Hæstarétti og tveir varadómarar séu einnig tilnefndir af Hæstarétti. Þá séu þeir dómarar sem Hæstaréttur tilnefnir skipaðir ótímabundið af ráðherra, ólíkt öðrum dómurum Félagsdóms. Í fyrsta lagi, athugast að tilteknir dómar, kærur og ákvarðanir Félagsdóms sæta kæru til Hæstaréttar skv. 67. gr. l. nr. 80/1938. Öll afskipti Hæstaréttar, bein eða óbein, af skipan dómara við Félagsdóm, virðast þannig til þess fallin að draga úr ásýnd um sjálfstæði Félagsdóms gagnvart Hæstarétti. Þá virðist breytingin ekki vera til þess fallin að skapa þá ásýnd að Hæstiréttur sjálfur sé sjálfstæður og óvilhallur við úrlausn kærumála frá Félagsdómi. Fyrirkomulagið við skipan dómara við Félagsdóm virðist þannig vera andstætt markmiði frumvarpsins um að tryggja sjálfstæði dómstólsins. Í öðru lagi, er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að þeir dómarar sem skipaðir eru við Félagsdóm samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar, séu embættisdómarar við Hæstarétt, Landsrétt eða héraðsdómstóla. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarpsins segir að sú breyting sé lögð til „til að tryggja að meirihluti dómara við Félagsdóm í hverju máli uppfylli sömu hæfisskilyrði og gerð eru til dómara við almenna dómstóla hér á landi“. Þannig er m.a. gert ráð fyrir því að embættisdómarar við Hæstarétt Íslands, geti verið skipaðir í Félagsdóm, þrátt fyrir fyrrnefnda kærumöguleika til Hæstaréttar. Það fyrirkomulag að sömu dómarar geti starfað við báða dómstóla er af augljósum ástæðum einnig til þess fallið að draga úr ásýnd um sjálfstæði þeirra. Þá mætti ætla að það væri einfalt að tryggja að dómarar við Félagsdóm uppfylltu sömu hæfisskilyrði og embættisdómarar, án þess að gera það að beinu skilyrði hinir fyrrnefndu þurfi að koma úr röðum hinnar síðarnefndu. Um þetta vísast t.d. til orðalags 6. gr. laga um samningsbundna gerðardóma nr. 53/1989. Í þriðja lagi, virðist óheppilegt að þeir dómarar sem tilnefndir eru af Hæstarétti Íslands séu skipaðir ótímabundið í Félagsdóm, en aðrir dómarar séu einungis skipaðir til þriggja ára í senn. Augljós hætta virðist á því að vægi sjónarmiða hinna síðarnefndu verði minna en hinna fyrrnefndu í úrlausnum dómstólsins. Ætla má að æskilegt sé að gæta samræmis í reglum um skipunartíma dómara. Í fjórða lagi, hefur Félagsdómur m.a. það verkefni með höndum að skera úr um ágreiningsmál um vinnudeilur ríkisstarfsmanna. Óheppilegt kann að vera, út frá ásýnd dómstólsins, að binda í lög að 3 af 5 skipuðum dómurum við Félagsdóm séu ávallt starfsmenn ríkisins og komi úr röðum embættisdómara. Í fimmta lagi, er með ofangreindu skipunarfyrirkomulagi verið að takmarka möguleika annarra lögfræðinga en embættisdómara, t.d. lögmanna, prófessora eða fræðimanna, á því að taka sæti í Félagsdómi. Um getur verið að ræða lögfræðinga sem búa yfir sérmenntun á sviði vinnuréttar, hafa áratuga reynslu á sviðinu og uppfylla jafnframt hæfisskilyrði embættisdómara. Draga má í efa að embættisdómarar hafi slíka sérþekkingu á sviðinu umfram aðra sérfræðinga, að réttlætanlegt sé að þeir séu ávallt í meirihluta skipaðra dómara. Á það sérstaklega við þegar einfalt virðist að orða lagaákvæðið þannig að dómarar við Félagsdóm skuli uppfylla sömu hæfisskilyrði og embættisdómarar, sbr. 6. gr. l. nr. 53/1989. Laganefnd leggur skv. þessu til að frumvarpið verði skoðað betur. Virðingarfyllst, f.h. laganefndar LMFÍ Geir Gestsson, lögmaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 3 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. nóvember 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
160Stjórnarfrumvarp9. okt. 2020Ásmundur Einar DaðasonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. október 2020 kl. 19:36
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd13. október 2020 kl. 19:36
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 3 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 3 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 19. okt. 2020, frestur 2. nóv. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Lögmannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
JS lögmannsstofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.