Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 812. mál

Atvinnuleysistryggingar

Skilvirkari framkvæmd

LagafrumvarpSamþykktAtvinnumál

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að gera lögin skýrari og framkvæmd þeirra skilvirkari.

Lagt fram af Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 43 atkvæði með og 0 á móti, 12 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
15. maí 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
13 ræður · 25 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 1. júl. 2020

Markmiðið

Að gera lögin skýrari og framkvæmd þeirra skilvirkari.

Hvað breytist

Lagt er til að bætt verði við almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum að umsækjandi sé með skráð lögheimili á Íslandi, bæði þegar umsækjandi er launamaður og sjálfstætt starfandi einstaklingur í skilningi laganna. Þá er lagt til að dregið verði úr vægi vottorða vinnuveitenda í tilviki umsókna launamanna um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt er gert ráð fyrir skýrt verði kveðið á um í lögum um atvinnuleysistryggingar að Vinnumálastofnun sé heimilt að greiða launamanni gjaldþrota félags atvinnuleysisbætur skv. 32. og 33. gr. laganna þann tíma sem hann er án atvinnu frá uppkvaðningu úrskurðar um að bú félagsins skuli tekið til gjaldþrotaskipta á meðan hann bíður eftir endanlegu uppgjöri á launakröfum sínum samkvæmt lögum um Ábyrgðasjóð launa enda uppfylli hann skilyrði laganna. Þá er lagt til að bætt verði við ákvæði þar sem skýrt verði kveðið á um hvaða viðurlög eigi við þegar tryggður aðili, sem hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í fjórar vikur eða lengur, verður uppvís að því að starfa á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a laganna eða að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna.

Lög sem breytast

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Lög um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 í máli nr. E 2547/2015.

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála frá 22. júní 2017 í máli nr. 173/2017.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt43 með · 0 á móti · 12 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Atvinnuleysistryggingar“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M0–0 · 6 hjá
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 5 hjá
  • V3–0
  • Flf2–0
  • U0–0 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Bandalag íslenskra listamanna, Vinnumálastofnun, Alþýðusamband Íslands, Persónuvernd, BSRB o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
25 mín · 13 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 43 með, 0 á móti, 12 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

40 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

11 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-61/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2020 – 17. mar. 2020· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 með síðari breytingum (skilvirkari framkvæmd).

Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem þykja nauðsynlegar í því skyni að framkvæmd laganna verði skilvirkari.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-61/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2020)

Hinn 3. mars 2020 voru drög að frumvarpinu kynnt í opnu umsagnarferli í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is (mál nr. S-61/2020) þar sem almenningi gafst kostur á að koma á framfæri athugasemdum við drögin. Ein umsögn barst í gáttina þar sem lögð var til breyting á 36. gr. laganna. Munu þær athugasemdir sem þar koma fram koma til skoðunar við fyrirhugaða heildarendurskoðun laganna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Valdimar Össurarson
    Nauðsynlegt er, þegar nú eru gerðar breytingar á lögum nr 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, að sníða þá augljósu vankanta af lögunum sem nýlegir úrskurðir hafa leitt í ljós. Vil ég því koma eftirfarandi á framfæri við þá sem um þessa lagabreytingu fjalla: Hinn 21.febrúar sl féll úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 575/2019. Með honum er snúið við ákvörðun Vinnumálastofnunar sem byggir á óljósu ákvæði 36.gr laganna, sem lýtur að frádrætti frá atvinnuleysisbótum. Vinnumálastofnun túlkaði þetta óljósa ákvæði þannig að skerða skyldi atvinnuleysisbætur vegna makabóta sem hinn a… Lesa alla

    Nauðsynlegt er, þegar nú eru gerðar breytingar á lögum nr 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, að sníða þá augljósu vankanta af lögunum sem nýlegir úrskurðir hafa leitt í ljós. Vil ég því koma eftirfarandi á framfæri við þá sem um þessa lagabreytingu fjalla: Hinn 21.febrúar sl féll úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 575/2019. Með honum er snúið við ákvörðun Vinnumálastofnunar sem byggir á óljósu ákvæði 36.gr laganna, sem lýtur að frádrætti frá atvinnuleysisbótum. Vinnumálastofnun túlkaði þetta óljósa ákvæði þannig að skerða skyldi atvinnuleysisbætur vegna makabóta sem hinn atvinnulausi þiggur hjá Tryggingastofnun ríkisins vegna umönnunar langveiks maka. Í niðurstöðum úrskuraðarnefndar segir m.a: „Vinnumálastofnun var því óheimilt að skerða atvinnuleysisbætur kæranda vegna þeirra“ (þ.e. makabótanna). Túlkun Vinnumálastofnunar á lögum um atvinnuleysisbætur er einatt bótaþeganum í óhag í öllum þeim atriðum sem lögin eru óljós. Stofnunin hefur auk þess komið upp mjög flóknu og tímafreku ferli kvartana; að því er virðist til þess eins að gera bótaþegum sem erfiðast fyrir með sínar kvartanir. Því er nauðsynlegt að lögin séu nægilega skýr til að vernda þá hagsmuni bótaþegans sem lögunum er ætlað að tryggja. Í þessum efnum tala ég af reynslu. Ég hef í áratug unnið að þróun og nýsköpun sem byggir á stuðningi samkeppnissjóða. Sá stuðningur hefur reynst stopull vegna stefnuleysis stjórnvalda í nýsköpunarmálum og ónógra framlaga til nýsköpunar. Því hef ég þurft að leita til atvinnuleysistryggingasjóðs þegar umsóknum er synjað. Jafnframt sinni ég langveikum maka og spara þannig þjóðfélaginu vistun hennar á stofnun. Fyrir það þigg ég lítilsháttar makabætur TR. Þessar bætur reyndi Vinnumálastofnun að nota sem átyllu til að svipta mig atvinnuleysisbótum, sem reyndar eru langt neðan þess sem stjórnvöld hafa skilgreint sem lágmarksframfærslu. Úrskurðarnefnd sneri þessu við skv ofangreindu, og vænti ég leiðréttingar VMST. Nauðsynlegt er, um leið og fyrirhugaðar breytingar eru gerðar á þessum lögum, að breyta 36.grein þeirra með tilliti til þessa úrskurðar. Augljósasta aðferðin til þess virðist vera viðbót við 2.málsgrein 36.gr, þar sem rætt er um að undanþegið skerðingu sé; „umönnunargreiðslur vegna veikinda eða fötlunar barns; styrkja úr sjúkrasjóðum; styrkja úr sjúkrasjóðum og styrkja úr opinberum sjóðum eða sambærilegum sjóðum sem hinn tryggði fær til þróunar eigin viðskiptahugmyndar“. Þessar greiðslur skulu ekki leiða til skerðingar atvinnuleysisbóta. Við þessa upptalningu þarf að bæta „bætur sem hinn tryggði fær vegna umönnunar maka eða sambýlings“. Ég tel að það ætti að nægja. Fram hefur komið að þessar lagabreytingar eru, a.m.k. öðrum þræði, hluti af ráðstöfunum stjórnvalda vegna covid-plágunnar sem nú herjar. Stjórnvöld hyggjast auk þess,gegnum Vinnumálastofnun, gera ráðstafanir til að tryggja kjör þeirra sem þurfa að minnka vinnuhlutfall sitt. Mikilvægt er að stjórnvöld um leið tryggi jafnræði þeirra sem hafa um langan tíma verið atvinnulausir, en svo virðist að þeir eigi nú að njóta lakari kjara. Ég skora á stjórnvöld að tryggja jafnræði í þeim efnum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    9 ræður · 17 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. maí 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 8 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 45 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 7 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 45 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 43 með, 0 á móti
  13. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1426Stjórnarfrumvarp15. maí 2020Ásmundur Einar DaðasonLesaPDF
1758Nefndarálit20. jún. 2020Helga Vala Helgadóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir +6LesaPDF
1951Lög (samhlj.)29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur18. maí 2020 kl. 20:28
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd18. maí 2020 kl. 20:28
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:21
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Atvinnuleysistryggingar“.
    1. gr., a-liður,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Atvinnuleysistryggingar“.
    1. gr., b-liður,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 1 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 6 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Atvinnuleysistryggingar“.
    2.--11. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 11:23
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:36
    Að samþykkja frumvarpið „Atvinnuleysistryggingar“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 25 mín
  • 1. umræða: 9 ræður · 3 ræðumenn · 17 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 3 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. maí 2020, frestur 29. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Bandalag íslenskra listamannaumsögnOpna PDF
VinnumálastofnunumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF
Bandalag háskólamannaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.