Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 775. mál

Fjarskipti

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 12. maí 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja aðgengileg, greið, hagkvæm, skilvirk og örugg fjarskipti hér á landi. Að auka vernd og valmöguleika neytenda og stuðla að virkri samkeppni, hagkvæmum fjárfestingum og nýsköpun á fjarskiptamarkaði. Að stuðla að því, eftir því sem unnt er, að öllum landsmönnum og fyrirtækjum bjóðist aðgangur að fjarskiptaþjónustu og háhraðanetum, þ.m.t. föstum netum, farnetum og þráðlausum netum.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. maí 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
10 ræður · 42 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að tryggja aðgengileg, greið, hagkvæm, skilvirk og örugg fjarskipti hér á landi. Að auka vernd og valmöguleika neytenda og stuðla að virkri samkeppni, hagkvæmum fjárfestingum og nýsköpun á fjarskiptamarkaði. Að stuðla að því, eftir því sem unnt er, að öllum landsmönnum og fyrirtækjum bjóðist aðgangur að fjarskiptaþjónustu og háhraðanetum, þ.m.t. föstum netum, farnetum og þráðlausum netum.

Hvað breytist

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun gildandi regluverks á sviði fjarskipta með innleiðingu nýrra EES-gerða í landsrétt, þ.e. Fjarskiptatilskipunarinnar og BEREC-reglugerðinnar. Fjarskiptatilskipunin (Kóðinn), sem er ný grunngerð, leysir af hólmi fjórar eldri Evróputilskipanir sem gildandi íslensk fjarskiptalög byggja einkum á. BEREC-reglugerðin snýst um evrópskan hóp eftirlitsaðila á sviði fjarskipta og skrifstofu honum til stuðnings. Hópurinn er ráðgefandi og stefnumótandi samstarfsvettvangur sem ætlað er að stuðla að samræmdri innleiðingu og framkvæmd samevrópsks regluverks á fjarskiptamarkaði, s.s. með útgáfu leiðbeininga og með ráðgjöf. Nýmæli er að hvatt er til samstarfs markaðsaðila og til sameiginlegra fjárfestinga við uppbyggingu innviða. Þeim sem byggja upp innviði er heitið tilteknum ívilnunum. Fyrirtækjum sem eingöngu selja aðgang að innviðum í heildsölu og starfa ekki á smásölustigi má segja að sé ívilnað á þann hátt að á slík fyrirtæki er ekki unnt að leggja eins íþyngjandi kvaðir og á lóðrétt samþætt fjarskiptafyrirtæki. Efnisákvæði er varða álagningu kvaða eru meiri að umfangi en í gildandi fjarskiptalögum en mörg þeirra fela þó í sér einföldun og er ætlað að draga úr fjölda álagðra kvaða og flækjustigi við málsmeðferð. Ný kvöð bætist við sem felst í því að Póst- og fjarskiptastofnun getur, ef aðrar kvaðir hafa ekki reynst fullnægjandi, kveðið á um aðskilnað rekstrareininga lóðrétt starfandi fyrirtækis sem hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Þá skal fjarskiptafyrirtækjum með umtalsverðan markaðsstyrk gefast kostur á að leggja fram tilboð um skuldbindingar varðandi sameiginlegar fjárfestingar, aðskilnað starfsemi og almennar kvaðir og geta slík tilboð leitt til þess að kvöðum verði létt af fyrirtækjunum að einhverju leyti.

Kóðinn gerir ráð fyrir að heildsöluverð fyrir lúkningu símtala og SMS verði ákveðin fyrir allt Evrópska efnahagssvæðið (EES) og því verður óþarft fyrir Póst- og fjarskiptastofnun að framkvæma greiningu á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu og taka ákvörðun um verð. BEREC-reglugerðin kveður á um hámarkssmásöluverð á millilandasímtölum og SMS innan EES sem er viðbót við gildandi ákvæði um hámarksverð fyrir reiki á EES. Gert er ráð fyrir fyrirsjáanleika til 20 ára varðandi gildistíma tíðniréttinda eða að lágmarki til 15 ára. Þá er lagt til að opnað verði á framsal og leigu tíðniheimilda milli markaðsaðila. Aukin áhersla verður lögð á aðgengi neytenda að upplýsingum og samanburð á verði og gæðum fjarskiptaþjónustu svo og stöðlun viðskiptaskilmála. Lagt er til að hámarksbinditími samninga um fjarskiptaþjónustu við neytendur verði lengdur úr sex mánuðum í 12 mánuði og að réttarvernd neytenda verði m.a. aukin með lögfestingu sérákvæðis um pakkatilboð. Að auki er gert ráð fyrir að þjónustutegundum innan alþjónustu fækki frá því sem gildandi lög gera ráð fyrir og að neytendum skuli á viðráðanlegu verði tryggður aðgangur að gagnaflutningsþjónustu, sem tryggir nothæfa netþjónustu og símaþjónustu með tilgreindum gæðum. Þá er eitt af markmiðum frumvarpsins að stuðla að hagkvæmri uppbyggingu 5G-kerfa í Evrópu.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um fjarskipti, nr. 81/2003. Jafnframt verða breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs fyrir árin 2021–2025 verði um 738 milljónir kr. Á móti er gert ráð fyrir tekjum að fjárhæð rúmlega 600 milljónum kr. vegna árgjalda af tíðnum. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að ófjármagnaður viðbótarkostnaður vegna aukins umfangs hjá Póst- og fjarskiptastofnun verði tekinn til skoðunar við endurskoðun fjármálaáætlunar.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 frá 11. desember 2018 um setningu evrópskra reglna um rafræn fjarskipti („Fjarskiptatilskipunin“ eða „Kóðinn“).

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1971 frá 11. desember 2018 um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila á sviði fjarskipta (BEREC) og stofnun til að styðja við BEREC-hópinn (BEREC-skrifstofu), um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/2120 og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1211/2009.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 5. jún. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
13 aðilar
ADVEL lögmenn, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Samkeppniseftirlitið, Neytendastofa, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
42 mín · 10 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs fyrir árin 2021–2025 verði um 738 milljónir kr. Á móti er gert ráð fyrir tekjum að fjárhæð rúmlega 600 milljónum kr. vegna árgjalda af tíðnum. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að ófjármagnaður viðbótarkostnaður vegna aukins umfangs hjá Póst- og fjarskiptastofnun verði tekinn til skoðunar við endurskoðun fjármálaáætlunar.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-304/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2019 – 9. jan. 2020· 14 umsagnir

Drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti og um breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, til innleiðingar á nýjum fjarskiptapakka ESB (BEREC-reglugerð ESB nr. 2018/1971 og EECC-tilskipun ESB nr. 2018/1972.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-304/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. maí 2020)

Niðurstaða máls er í stuttu máli að fjórtán umsagnir bárust og við lokafrágang frumvarpsins var meðal annars tekið mið af þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1Neytendastofa

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu um frumvarpsdrögin

  • #2Snorri Ingimarsson

    Hjálögð er mín umsögn um frumvarpsdrögin

  • #3Jón Guðmundur Guðmundsson
    Umsögn um 'drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti' Ég vil koma með ábendingu varðandi kröfur til fjarskiptabúnaðar. Þegar kemur að búnaði til fjarskipta á millibylgju (það sem eru svokallaðar 'Gufunestalstöðvar') þá er um ansi fá tæki að ræða sem eru með innflutningsleyfi ti Evrópu (CE merki) Það þyrfti að vera möguleiki á að nota fleiri slík tæki hérlendi, en auðvitað yrðu þau að standast ákveðnar kröfur. Ástralir og Bandaríkjamenn m.m. eru með sérstaka gerðaviðurkenningar fyrir svoleiðis tæki, og það væri hentugt fyrir öryggisfjarskipti á Íslandi ef hægt væri að nota slík tæki… Lesa alla

    Umsögn um 'drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti' Ég vil koma með ábendingu varðandi kröfur til fjarskiptabúnaðar. Þegar kemur að búnaði til fjarskipta á millibylgju (það sem eru svokallaðar 'Gufunestalstöðvar') þá er um ansi fá tæki að ræða sem eru með innflutningsleyfi ti Evrópu (CE merki) Það þyrfti að vera möguleiki á að nota fleiri slík tæki hérlendi, en auðvitað yrðu þau að standast ákveðnar kröfur. Ástralir og Bandaríkjamenn m.m. eru með sérstaka gerðaviðurkenningar fyrir svoleiðis tæki, og það væri hentugt fyrir öryggisfjarskipti á Íslandi ef hægt væri að nota slík tæki hérlendis svo lengi sem tækin standist áströlsk, eða bandarísk viðmið. Jafnvel mætti fara út í prófanir á tækjunum með tilliti til að athuga hvort þau trufli utan við áætlaða tíðni tækjanna, (yfir og undirsveiflur) enda tiltölulega auðvelt að prófa slíkt. Jón G. Guðmundsson Radíóðamatör og fyrrv. björgunarsveitarmaður

  • #4Henry Alexander Hálfdánarson
    Ég vil benda á möguleikana á milliliðalausum fjarskiptum á millibylgju og stuttbylgju í þessu samhengi. Þessi fjarskipti voru notuð í marga áratugi af viðbragðsaðilum, Lögreglu, Vegagerð, Landsímanum og bifreiðastjórum sem þurftu að ferðast við erfiðar aðstæður. Landsíminn hélt vörð vegna þessara fjarskipta á sex strandarstöðvum víðsvegar um landið en þessi fjarskipti eru ennþá megin uppistaðan í fjarskiptum flugvéla, skipa og vegna hernaðar um allan heim. Almenn notkun og notkun viðbragðsaðila ásamt þekkingu á þessum búnaði og tækni hefur með öllu lagst af á síðustu tuttugu árum, aðalleg… Lesa alla

    Ég vil benda á möguleikana á milliliðalausum fjarskiptum á millibylgju og stuttbylgju í þessu samhengi. Þessi fjarskipti voru notuð í marga áratugi af viðbragðsaðilum, Lögreglu, Vegagerð, Landsímanum og bifreiðastjórum sem þurftu að ferðast við erfiðar aðstæður. Landsíminn hélt vörð vegna þessara fjarskipta á sex strandarstöðvum víðsvegar um landið en þessi fjarskipti eru ennþá megin uppistaðan í fjarskiptum flugvéla, skipa og vegna hernaðar um allan heim. Almenn notkun og notkun viðbragðsaðila ásamt þekkingu á þessum búnaði og tækni hefur með öllu lagst af á síðustu tuttugu árum, aðallega vegna einhliða markaðssetninga fjarskiptafyrirtækja á þann veg að þetta sé úrelt tækni (sem því miður er þvættingur) og að best sé, og eina leiðin, að gerast áskrifandi að þeirra lausnum gegn „vægu gjaldi“. Reyndar hafa nokkrir radíóáhugamenn og jeppamenn viðhaldið þessarri þekkingu með frábærum árangri. Má í þessu samhengi benda á áróður fjarskiptafyrirtækjanna gegn sjónvarpsloftnetum sem „úreltri tækni“ til að koma sem flestum notendum í áskrift að sjónvarpsdagskrá þó að Ríkisútvarpið hafi fjárfest í stafrænum sjónvarpssendum til að tryggja milliliðalausa dreifingu dagskrárefnis til þessara notenda. Einnig vil ég árétta mikilvægi milliliðalausra útvarpsútsendinga sem aðeins geta farið fram á langbylgju eða millibylgju (AM) en rekstur slíkra kerfa er einfaldasta og ódýrasta lausnin til að tryggja að fréttir, upplýsingar og tilkynningar geti borist til almennings í hættuástandi. Það er því ósk mín að litið verði til eftirfarandi þátta við þessa endurskoðun: 1. Stuðlað verði að því að aðgengi almennings að fjarskiptabúnaði fyrir millibylgju verði aukið en alls ekki skert og þessi fjarskipti tekin upp aftur af viðbragðsaðilum. 2. Aðgengi almennings að viðtækjum fyrir langbylgju og millibylgju (AM) verði stóraukið en þessi tæki eru óðum að hverfa af markaði í Evrópu vegna ásókna fjarskiptafyrirtækja í aðrar og gróðavænlegri dreifilausnir fyrir fjölmiðla. Þessi þróun er ekki áberandi á öðrum markaðssvæðum, sennilega vegna skorts á öðrum fjarskiptaleiðum. 3. Að tryggðar verði áframhaldandi útvarpsútsendingar á milliliðalausum langbylgju og/eða millibylgjuútsendingum til almennings með öllum ráðum. Henry A. Hálfdansson Rafeindavirkjameistari og F.V. Björgunarsveitamaður

  • #5Persónuvernd

    Persónuvernd hyggst veita umsögn um umrætt frumvarp en vegna anna hjá stofnuninni mun það ekki nást fyrir uppgefinn tímafrest.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  3. Umræða
    1. umræða
    10 ræður · 42 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 5. júní 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1354Stjórnarfrumvarp7. maí 2020Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

3 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta12. maí 2020 kl. 13:33
    Afbrigði
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. maí 2020 kl. 20:28
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd12. maí 2020 kl. 20:28
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 42 mín
  • 1. umræða: 10 ræður · 5 ræðumenn · 42 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur415 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur210 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka24 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur17 mín
Njáll Trausti FriðbertssonSjálfstæðisflokkur16 mín

Umsagnir og erindi

13 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. maí 2020, frestur 5. jún. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
ADVEL lögmennumsögnOpna PDF
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Gagnaveita Reykjavíkur ehfumsögnOpna PDF
Míla ehf.umsögnOpna PDF
Síminn hf.umsögnOpna PDF
Póst- og fjarskiptastofnunumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Sýn hf.umsögnOpna PDF
Félag heyrnarlausraumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.