Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 734. mál

Svæðisbundin flutningsjöfnun

Niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja að þjónusta með olíuvörur haldi áfram í viðkvæmum byggðum, a.m.k. á meðan orkuskiptin fara fram.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 50 atkvæði með og 0 á móti, 5 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
27. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
9
Umræða í þingsal
15 ræður · 1 klst. 4 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 3. júl. 2020

Markmiðið

Að tryggja að þjónusta með olíuvörur haldi áfram í viðkvæmum byggðum, a.m.k. á meðan orkuskiptin fara fram.

Hvað breytist

Lagt er til að lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara verði felld úr gildi. Með því móti er það stjórnskipulag, sem byggt hefur verið upp í kringum flutningsjöfnunarsjóð olíuvara, afnumið og hætt verður að leggja sérstakt flutningsjöfnunargjald á allar olíuvörur, sem fluttar eru til landsins og ætlaðar eru til nota innanlands. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun. Lagt er til að veitt verði lagastoð fyrir því fyrirkomulagi að Byggðastofnun annist úthlutun styrkja vegna flutningskostnaðar olíuvara. Einnig er lagt til að styrkir verði veittir til söluaðila sem starfrækja sölustaði á svæðum, sem standa höllum fæti í byggðalegu tilliti og búa við skerta samkeppni af landfræðilegum og lýðfræðilegum ástæðum. Að auki er gert ráð fyrir að Byggðastofnun annist úthlutun styrkja og að þeir verði ákvarðaðir í samræmi við þá heildarfjárhæð sem fyrirhugað er að veita til jöfnunar á flutningskostnaði olíuvara í fjárlögum ár hvert, selt magn olíuvara á viðkomandi sölustað og staðsetningu sölustaðar í byggðalegu tilliti með sérstökum byggðastuðli fyrir hvert svæði eða byggðalag fyrir sig, sem ákvarðaður skal í reglugerð.

Lög sem breytast

Lög um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011. Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt50 með · 0 á móti · 5 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Svæðisbundin flutningsjöfnun“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M6–0
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 5 hjá
  • V3–0
  • Flf2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
12 aðilar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Samkeppniseftirlitið, Capacent ehf, Samband sveitarfélaga á Austurlandi, Fljótsdalshérað o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 4 mín · 15 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 50 með, 0 á móti, 5 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með5 tóku til máls

45 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

4 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-73/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. mar. 2020 – 20. mar. 2020· 9 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara).

Frumvarpið kveður á um brottfall laga um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994, með síðari breytingum, og breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-73/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. mars 2020)

Sjá niðurstöðu samráðs í meðfylgjandi skjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Markaðsstofa Norðurlands
    Markaðsstofa Norðurlands (MN) gerir alvarlega athugasemd við að í þessu frumvarpi sé hvergi minnst á flutningsjöfnun á flugvélaeldsneyti. Um langt árabil hefur MN, Flugklasinn Air 66N, Isavia, Íslandsstofa, sveitarfélög, samtök sveitarfélaga, atvinnuþróunarfélög og fyrirtæki á Norðurlandi ásamt fleiri aðilum unnið að því að markaðssetja áfangastaðinn Norðurland og Akureyrarflugvöll sem aðra gátt inn í landið. Það er jafnframt yfirlýst stefna stjórnvalda að vinna að því markmiði og hefur Akureyrarflugvöllur verið settur þar í forgrunn. Flugþróunarsjóður var stofnaður til þess að skapa hvat… Lesa alla

    Markaðsstofa Norðurlands (MN) gerir alvarlega athugasemd við að í þessu frumvarpi sé hvergi minnst á flutningsjöfnun á flugvélaeldsneyti. Um langt árabil hefur MN, Flugklasinn Air 66N, Isavia, Íslandsstofa, sveitarfélög, samtök sveitarfélaga, atvinnuþróunarfélög og fyrirtæki á Norðurlandi ásamt fleiri aðilum unnið að því að markaðssetja áfangastaðinn Norðurland og Akureyrarflugvöll sem aðra gátt inn í landið. Það er jafnframt yfirlýst stefna stjórnvalda að vinna að því markmiði og hefur Akureyrarflugvöllur verið settur þar í forgrunn. Flugþróunarsjóður var stofnaður til þess að skapa hvata fyrir flugrekendur til að fljúga beint til Akureyrar eða Egilsstaða og Isavia hefur sett upp afsláttarkerfi af sínum gjöldum fyrir beint millilandaflug inn á þessa flugvelli. Staðan er samt sem áður sú, að samkeppnishæfi þessara flugvalla er mjög skekkt borið saman við Keflavíkurflugvöll – ekki hvað síst er varðar eldsneytisverð. Öllu flugvélaeldsneyti fyrir millilandaflug er landað á sama stað, í Helguvík, og dreift þaðan. Það þýðir að án flutningsjöfnunar, verður eldsneytið mun dýrara á Akureyri og Egilsstöðum en í Keflavík. Þetta þýðir jafnframt að hvatinn sem búinn var til með styrkjum Flugþróunarsjóðs (leiðaþróunardeild sjóðsins, þar sem í boði er ákveðin fjárhæð fyrir hvern farþega sem lendir á viðkomandi flugvöllum) hverfur í það að greiða niður hærra eldsneytisverð á þessum flugvöllum – og dugir ekki alltaf til. Það hlýtur að vera markmið stjórnvalda að leiðrétta þennan mun, fella þotueldsneyti undir lög um flutningsjöfnun og virkja þannig hvatann sem Flugþróunarsjóði var ætlað að skapa. MN skorar á stjórnvöld að leiðrétta aðstöðumun á alþjóðaflugvöllum landsins með því að fella flugvélaeldsneyti undir lög um flutningsjöfnun með einum eða öðrum hætti.

  • #2Fljótsdalshérað
    Umsögn Fljótsdalshéraðs við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara Vísað er til tilkynningar í samráðsgátt dags. 17. mars sl. þar sem óskað er eftir umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara. Til að byrja með er vakin athygli á þeim skamma fresti sem veittur var til umsagnar um þetta frumvarp. Ljóst er á tímum þegar öll áhersla er á viðbrögð almannavarna þá getur reynst erfitt að fylgja eftir áherslumálum með umsagnarfre… Lesa alla

    Umsögn Fljótsdalshéraðs við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara Vísað er til tilkynningar í samráðsgátt dags. 17. mars sl. þar sem óskað er eftir umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara. Til að byrja með er vakin athygli á þeim skamma fresti sem veittur var til umsagnar um þetta frumvarp. Ljóst er á tímum þegar öll áhersla er á viðbrögð almannavarna þá getur reynst erfitt að fylgja eftir áherslumálum með umsagnarfrest sem telur þrjá daga. Fljótsdalshérað hefur nokkrum sinnum og í langan tíma ályktað um mikilvægi jöfnunar á verði flugvélaeldsneytis og hversu samkeppnishamlandi núverandi fyrirkomulag er fyrir uppbyggingu millilandaflugs um Egilsstaðaflugvöll. Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs 3. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað þegar sveitarfélögum var gefið tækifæri til að koma fram sjónarmiðum og athugasemdum við Frummatsskýrslu vegna markaðsrannsókna á eldsneytismarkaðnum frá Samkeppnisstofnun: „Bæjarstjórn leggur sérstaka áherslu á að Samkeppniseftirlitið skoði í markaðsrannsókn sinni þau samkeppnishindrandi áhrif sem hærra eldsneytisverð á Egilsstaðaflugvelli hefur á millilandaflug um völlinn, ef miðað er við eldsneytisverð á öðrum millilandaflugvöllum hérlendis. Nefndin leggur jafnframt til að útfærðar verði leiðir til að jafna verð á flugvélaeldsneyti sem selt er á flugvöllum landsins þannig að eldsneytisverð og eldsneytisbúnaður sé ekki þáttur sem hafi neikvæð áhrif á þróun millilandaflugs um aðra flugvelli en Keflavíkurflugvöll.“ Samband sveitarfélaga á Austurlandi hefur ítrekað ályktað um jöfnun aðstöðumunar á kaupum á flugvélaeldsneyti á Egilsstaðaflugvelli samanborið við Keflavíkurflugvöll og nú síðast á haustþingi SSA þann 11. og 12. október 2019. Egilsstaðaflugvöllur – önnur fluggátt inn í landið Haustþing SSA, haldið á Borgarfirði eystri 11. og 12. október 2019, hvetur hið opinbera að tryggja nægt fjármagn til flugþróunarsjóðs sem ætlað er að styðja flugrekstraraðila sem hyggja á flug til áfangastaða utan höfuðborgarsvæðisins. Aðeins þannig sýnir hið opinbera í verki vilja sinn til að opnaðar verði aðrar fluggáttir inn í landið. Þingið krefst þess að Isavia verði sett eigendastefna sem felur í sér að félagið taki yfir rekstur allra millilandaflugvalla landsins þ.m.t. Egilsstaðaflugvallar. Reynslan af millilandaflugi sýnir að Egilsstaðaflugvöllur stendur fyllilega undir slíkri starfsemi. Áfram verði unnið af fullum þunga að markaðssetningu Egilsstaðaflugvallar af hálfu hagsmunaaðila, s.s. Isavia, ríkis, fyrirtækja í ferðaþjónustu og sveitarfélaga á Austurlandi. Jafna verður aðstöðu flugrekstraraðila til kaupa á eldsneyti, hvar sem er á landinu. Öllu flugvélaeldsneyti er landað í Helguvík og dreift þaðan með bílum. Án flutningsjöfnunar verður eldsneytið umtalsvert dýrara á Egilsstöðum og Akureyri en í Keflavík. Fljótsdalshérað og önnur sveitarfélög á Austurlandi hafa um árabil unnið að markaðssetningu flugvallarins á Egilsstöðum fyrir millilandaflug og hefur skert samkeppnisstaða vallarins m.t.t. eldsneytisverðs verið hindrun sem vonað var að rutt yrði úr vegi með breytingum á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara. Í ofangreindu frumvarpi er hvergi minnst á flutningsjöfnun sem styður við markmið um opnun annarra alþjóðlegra fluggátta til landsins. Gengur það beint gegn stefnu stjórnvalda um aukna dreifingu ferðamanna um landið sem talin er mikilvæg bæði með hliðsjón af náttúruvernd sem og byggðasjónarmiðum skv. stjórnarsáttmálanum. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hvetur samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið til að gera breytingar á frumvarpinu svo þessari hindrun, sem hærra eldsneytisverð er á uppbyggingu millilandaflugs á Egilsstaði og Akureyri, verði rutt úr vegi.

  • #3N1 ehf.
    Samgöngu og sveitastjórnarráðuneytið Reykjavík, 20. mars 2020 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara). Vísað er til draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara) (hér frumvarpið) sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda hinn 17. mars 2020. N1 ehf. (hér N1 eða félagið) telur rétt að koma á framfæri sjónarmiðum sínu… Lesa alla

    Samgöngu og sveitastjórnarráðuneytið Reykjavík, 20. mars 2020 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara). Vísað er til draga að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara) (hér frumvarpið) sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda hinn 17. mars 2020. N1 ehf. (hér N1 eða félagið) telur rétt að koma á framfæri sjónarmiðum sínum varðandi lagafrumvarpið og fylgja þær hér á eftir. Áður en fjallað er efnislega um frumvarpið telur félagið rétt að taka það fram að meðferð málsins hefur fram að þessu verið undarleg þar sem mjög takmarkað samráð virðist hafa verið haft við helstu hagsmunaaðila við mótun frumvarpsins. Hefur N1 þannig ekki haft sérstakt tækifæri fram til þessa til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um efnisatriði þessa frumvarps og hefur N1 í reynd ekki haft pata af vinnu við frumvarpið síðan snemma árs 2019. Voru þá nokkuð ólíkar hugmyndir að breytingum á flutningsjöfnun til umræðu. Þá dregur N1 í efa að haft hafi verið samráð við þau sveitarfélög sem eiga hagsmuna að gæta varðandi flutningsjöfnun á olíuvörum. Er ekki fjallað um slíkt samráð í þeim drögum sem fyrir liggja. Verður að ætla að frumvarpið skipti verulegu máli fyrir hagsmuni þeirra byggðalaga sem nú njóta og/eða myndu njóta flutningsjöfnunar samkvæmt frumvarpinu. Í ljósi þeirra fordæmalausu aðstæðna sem nú eru uppi hér á landi og erlendis fær N1 ennfremur ekki séð hvaða röksemdir búa að baki því að veita aðeins þriggja daga umsagnarfrest í samráðsgátt stjórnvalda. Eru athugasemdir N1 öllu takmarkaðri en ella vegna hins skamma frests. Þá mættu einnig skýrslur og önnur gögn sem vísað er til í frumvarpinu liggja fyrir svo umsagnaraðilum sé hægara um vik að móta sér afstöðu til frumvarpsins. N1 er ósammála efni frumvarpsins í grundvallaratriðum. Í greinargerð með frumvarpinu er vísað sérstaklega til minnisblaðs frá Flutningsjöfnunarsjóði dags. 4. nóvember 2019. Hefur N1 ekki séð þetta minnisblað en fékk hins vegar bréf frá sjóðnum töluvert áður. Að sama skapi hefur N1 ekki séð þá samantekt Capacent sem skilað var 3. janúar 2020 og innihélt frekari greiningu á markaðnum. Ekki er útilokað að N1 myndi taka undir eftirfarandi niðurstöðu skýrslunnar sem birtist í frumvarpinu: „að [aflagning flutningsjöfnunar] gæti haft þau áhrif að viðkomandi félag þyrfti að hækka verð hjá sér umfram önnur félög en líklegra væri að staðir legðust af sem hefðu minnst umfang og hæstan flutningskostnað.“ Einnig sagði í skýrslunni: „Vegna þess að sölustaðir olíufélaganna eru misjafnt dreifðir um landið gætu afleiðingarnar orðið að sölustöðum mundi fækka og aðgengi að eldsneyti þar með versna. Til að koma í veg fyrir það gætu stjórnvöld gripið til sams konar aðgerða og gagnvart dagvöruverslun í mesta strjálbýlinu og beint stuðningi sem ekki væri háður seldu magni eldsneytis til aðila sem væru tilbúnir að veita þjónustu þar sem hana yrði ekki að finna að öðrum kosti. Þennan stuðning mætti fjármagna óbeint með gjaldi á jarðefnaeldsneyti.“ Benda þessi ummæli eindregið til þess að rétt sé það sem N1 hefur bent á að tillögur að breyttu kerfi muni hafa neikvæð áhrif á verslun með eldsneyti í ákveðnum sveitarfélögum. Ekki kemur fram í tilvitnuðum texta hvað átt er við með aðgerðum stjórnvalda til þess að styrkja dagvöruverslun en N1 er ekki kunnugt um almennar niðurgreiðslur íslenska ríkisins til slíkra verslana. Liggur ekkert fyrir um hvers konar stuðning þar yrði um að ræða en að mati N1 hefur gildandi kerfi flutningsjöfnunar reynst vel til þess að styrkja mesta strjálbýlið. N1 telur sennilegt að rétt sé að aðgengi að eldsneyti myndi víða versna verði frumvarpið samþykkt. Á það sérstaklega við á stöðum þar sem flutningskostnaður vegur mjög þungt í endanlegu söluverði. Þar sem saman fer mikill flutningskostnaður og lítil velta getur stuðningur flutningsjöfnunarsjóðs skipt sköpum um að mögulegt sé að bjóða þjónustu á eðlilegum verðum. Að mati N1 er núverandi kerfi með þeim hætti að tekið er eðlilegt tillit til kostnaðar við flutning olíuvara sem undir kerfið falla. Hefur félagið þó bent á að gildandi reikningsformúlu mætti uppfæra með tilliti til aðstæðna dagsins í dag. Rétt er að taka það fram að dýrt er að dreifa olíu með olíuflutningabílum. Getur það því verið kostnaðarsamt að dreifa olíu, jafnvel til svæða sem eru tiltölulega þéttbýl, ef þau eru langt frá olíubirgðastöðvum. Getur kostnaður reyndar orðið til þess að gera hátt hlutfall útsöluverðs þó að flutt sé um skamma vegalengd. Í frumvarpinu er ekki tekið tillit til þess hvernig kostnaður eldsneytissala kunni að vera vegna þjónustu við einstök byggðalög. Er aðeins gert ráð fyrir því að styrkur skiptist á milli styrkþægra staða með tilliti til veltu staðanna. Að mati N1 getur slík úthlutunarregla falið í sér að markmiði flutningsjöfnunar verði ekki náð. Flutningsjöfnun er ætlað að styðja við útsölustaði þar sem rekstrargrundvöllur er veikur. Sé miðað við veltu útsölustaða er hætt við því að þorri styrksins renni til staða þar sem rekstrargrundvöllur er sterkur og velta því hærri. Myndi frumvarpið óbreytt því hafa í för með sér hættu á að hærra hlutfall flutningsjöfnunarstyrks færi til staða sem ekki þyrftu sérstaklega á styrk að halda. Þar sem til stendur að breyta flutningsjöfnun með þeim hætti að heildarfjárhæð til flutningsjöfnunar verði háð vilja Alþingis er auk þess óvíst hvernig fara muni um flutningsjöfnun til frambúðar. Má ætla að það dragi úr fyrirsjáanleika séu söluaðilar háðir vilja fjárlagavaldsins ár hvert en gjöld og greiðslur úr flutningsjöfnunarsjóð hafa alla tíð verið til þess að gera svipuð frá ári til árs. Skapar þetta sérstök vandkvæði í sölu til útgerða þar sem gjarnan er samið um eldsneytiskaup til lengri tíma en eins árs í senn. Ekki kemur fram á hvaða forsendum flutningsjöfnun er takmörkuð við sölu til innlendra aðila. Virðist það vera í andstöðu við þá viðbót sem lögð er til við markmiðsákvæði laganna í frumvarpinu. Segir í 1. gr. frumvarpsins að ætlunin sé að veita styrk til svæða sem búa við skerta samkeppnisstöðu vegna landfræðilegra aðstæðna. Virðist sem hér sé ekki fullt samræmi á milli enda má ætla að aukin heildarvelta almennt vera til þess fallin að styrkja samkeppnisstöðu vegna landfræðilegra aðstæðna. Þá má einnig velta því upp hvort takmörkun af þessum toga myndi ganga gegn banni samningsins um evrópska efnahagssvæðið við mismun. Hefur N1 ekki talið ástæðu til þess að gera breytingar á flutningsjöfnun olíu þar sem núverandi fyrirkomulagi hefur í meginatriðum tryggt það að markmið flutningsjöfnunar náist og að ekki sé ýtt undir byggðaröskun. N1 hefur hins vegar stutt það að grunnur úthlutunar sé uppfærður þannig að stuðst sé við ný gögn við úthlutun. Vegna hins skamma tíma sem gefst til þess að leggja mat á frumvarpið í samráðsgáttinni er vandasamt að leggja mat á það hvort frumvarpið sé líklegt til þess að ná markmiðum sínum. Telur N1 eðlilegt að nánari skoðun fari fram á því hvernig best sé að haga flutningsjöfnun til frambúðar og að öll gögn sem aflað hefur verið um málið verði lögð fram til upplýsingar fyrir haghafa.

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Í viðhengi má finna umsögn Samtaka atvinnulífsins.

  • #5Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

    Hjálögð er umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    12 ræður · 35 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. maí 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 36 með, 0 á móti
  9. Umræða
    2. umræða
    3 ræður · 30 mín
  10. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 21 með, 34 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 9 með, 40 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Kom ekki til atkvæðagreiðslu
  18. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 0 á móti
  20. Þingskjal
  21. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1269Stjórnarfrumvarp27. apr. 2020Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF
1737Nál. með brtt.16. jún. 2020Bergþór Ólason, Líneik Anna Sævarsdóttir +7LesaPDF
1740Breytingartillaga18. jún. 2020Björn Leví GunnarssonLesaPDF
1939Frumvarp eftir 2. umræðu17. ágú. 2020—LesaPDF
1961Lög (samhlj.)29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

13 alls · 9 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur4. maí 2020 kl. 19:45
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd4. maí 2020 kl. 19:45
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt18. júní 2020 kl. 15:04
    Að veita afbrigði frá þingsköpum í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    • SSjálfstæðisflokkur:5 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Fellt29. júní 2020 kl. 20:43
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 16 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 9 á móti
    • MMiðflokkurinn:5 með · 1 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 7 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 1 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:44
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:44
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    1--3
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:44
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    2.--6. gr. (verða 2.--7. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:45
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    4 (ný grein, verður 8. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Fellt29. júní 2020 kl. 20:45
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 16 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 9 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 2 á móti · 4 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 7 á móti
    • SfSamfylkingin:1 með · 6 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:46
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Svæðisbundin flutningsjöfnun“.
    7. gr. (verður 9. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Kom ekki til atkvæðagreiðslu29. júní 2020 kl. 20:46
    Breytingartillaga
    3
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 20:46
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:45
    Að samþykkja frumvarpið „Svæðisbundin flutningsjöfnun“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 1 klst. 4 mín
  • 1. umræða: 12 ræður · 3 ræðumenn · 35 mín
  • 2. umræða: 3 ræður · 3 ræðumenn · 30 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur118 mín
Sigurður Ingi JóhannssonFramsóknarflokkur615 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn313 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn37 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka11 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin110 mín

Umsagnir og erindi

15 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. maí 2020, frestur 20. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
Capacent ehfskýrslaOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðskýrslaOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samband sveitarfélaga á AusturlandiumsögnOpna PDF
FljótsdalshéraðumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
N1 hf.umsögnOpna PDF
VestfjarðastofaumsögnOpna PDF
AtlantsolíaumsögnOpna PDF
NorlandairumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
FljótsdalshéraðumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.