Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 726. mál

Breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru

Frekari aðgerðir

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. maí 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. maí 2020 greiddu 51 atkvæði með og 0 á móti, 4 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
21. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
102 ræður · 6 klst. 56 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 14. maí 2020

Markmiðið

Að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.

Hvað breytist

Lagt er til að lögaðilum með takmarkaða ábyrgð verði gefinn kostur á að fresta skattgreiðslu vegna 2019 og jafna á móti tapi ársins 2020 þegar það raungerist. Aðgerðin leiðir til þess að fyrirtæki, sem sjá fram á tap á yfirstandandi ári, geta sótt um frekari frestun á greiðslu tekjuskatts þar til álagning næsta árs liggur fyrir og lækkað skattkröfuna, sem nemur reiknaðri skatteign af tapi ársins, að uppfylltum skilyrðum laganna. Hámark þess skatts sem heimilt verður að fresta greiðslu á er 20 milljónir kr. Úrræðinu er fyrst og fremst beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þá eru lagðar til reglur, sem taki gildi vegna áranna 2020, 2021 og 2022, í tengslum við niðurfærslu skulda lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri vegna greiðsluerfiðleika. Lögð er til breyting til bráðabirgða á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, sem lýtur að frádráttarhlutfalli frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja árin 2021 og 2022, vegna útlagðs kostnaðar þeirra á rannsóknar- og þróunarverkefnum, sem þau eru eigendur að, og hlotið hafa staðfestingu Rannsóknamiðstöðvar Íslands. Gert er ráð fyrir að frádráttarhlutfallið hækki úr 20% í 25%. Einnig eru lagðar til breytingar til bráðabirgða, sem lúta að því að hækkaðar verði núgildandi viðmiðunarfjárhæðir skattfrádráttar frá álögðum tekjuskatti árin 2021 og 2022, vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar nýsköpunarfyrirtækja. Að auki er lagt til að sveitarfélög eða stofnanir og félög, sem eru alfarið í eigu þeirra, öðlist tímabundinn rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað vegna byggingar, viðhalds eða endurbóta á öðru húsnæði en íbúðar- og frístundahúsnæði, sem alfarið er í eigu þeirra, til þess að liðka fyrir markmiði sveitarfélaga um flýtiframkvæmdir. Þá er lagt til að rýmkuð verði heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu, sem er liður í að bæta fjárfestingarumhverfi nýsköpunar hér á landi, t.d. með því að auðvelda stofnun nýsköpunarsjóða. Lagt er til að heimild lífeyrissjóða til fjárfestinga í hlutdeildarskírteinum eða hlutum í hverjum sjóði um sameiginlega fjárfestingu verði hækkuð tímabundið í 35%. Með breytingunni þyrftu þrír lífeyrissjóðir að hafa aðkomu að sjóði í stað fimm í dag, sem myndi auðvelda fjármögnun slíkra sjóða og styðja við áætlun stjórnvalda um að bæta fjárfestingarumhverfi nýsköpunar hér á landi. Lagt er til að fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði heimilt að veita framlög til sveitarfélaga vegna framkvæmda, sem hafa þann tilgang að bæta aðgengismál fatlaðra í byggingum og útisvæðum á vegum sveitarfélaga. Einnig er lagt til að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði veitt heimild til að nýta fjármuni sjóðsins til að greiða almenn framlög, grunnskólaframlög og framlög vegna málefna fatlaðs fólks á árinu 2020. Að auki er lagt til að tímabilið, sem lög um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020, taka til, verði framlengt þannig að þau taki til þeirra tilvika þegar framangreindir einstaklingar sæta sóttkví á tímabilinu 1. febrúar 2020 til og með 30. september 2020. Lagt er til að mennta- og menningarmálaráðherra verði á þessu ári heimilt með reglugerð að útfæra fyrirkomulag á greiðslu sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla vegna þess víðtæka rekstrarvanda sem steðjar nú að einkareknum fjölmiðlum vegna faraldursins.

Lög sem breytast

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009. Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995. Lög um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020. Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011.

Kostnaður fyrir ríkið

Lagabreytingar þær sem lagðar eru til í frumvarpinu munu hafa neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs til skemmri tíma litið verði frumvarpið óbreytt að lögum. Gróflega má áætla að tillaga frumvarpsins er lýtur að nýtingu rekstrartaps með afturvirkum hætti geti lækkað tekjur ríkissjóðs um allt að 13 milljarða kr. á þessu ári. Til lengri tíma litið jafnast það út og hefur takmörkuð fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð þar sem gert er ráð fyrir að fyrirtæki muni eiga minna yfirfæranlegt tap á móti hagnaði næstu ára og greiða þar af leiðandi fyrr tekjuskatt á ný en ella. Umfang fjárhagslegrar endurskipulagningar lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri næstu ár er erfitt að meta að svo stöddu og þar með hvaða áhrif frestun og möguleg eftirgjöf skattlagningar vegna niðurfærslu skulda kunni að hafa á ríkissjóð. Hækkun á frádráttarhlutfalli frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja vegna útlagðs kostnaðar þeirra af rannsóknar- og þróunarverkefnum leiðir til þess að stuðningur við fyrirtækin í formi skuldajöfnunar á tekjuskatti og beinna endurgreiðslna eykst árin 2021 og 2022 vegna rekstraráranna 2020 og 2021. Hækkun á hámarksfjárhæðum frádráttarbærs kostnaðar hefur viðbótaráhrif til hækkunar á stuðningnum. Samanlagt má áætla að stuðningurinn aukist um 3 milljarða kr. Sé tekið mið af fyrirliggjandi áætlunum sveitarfélaga um framkvæmdir á árinu 2020 og sé enn fremur litið til endurgreiðslna samkvæmt hliðstæðri heimild sem var í gildi á árunum 2009–2014 má áætla að endurgreiðslur til sveitarfélaga skv. 3. gr. frumvarpsins gætu orðið um 1 milljarður kr. sem dreifast muni á árin 2020 og 2021. Ekki eru forsendur til að leggja mat á á hugsanlegan fjölda þeirra sem sæta gætu sóttkví fram til 30. september 2020 og þar með átt rétt á greiðslum í samræmi við frumvarpið. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla verði allt að 350 milljónir kr.

Meira úr samantektinni

Samþykkt ríkisstjórnarinnar 10. mars 2020 um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum af völdum kórónufaraldursins.

Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum - Framhaldsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldrus kórónuveiru (21. apríl 2020).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
11. maí 2020
Samþykkt51 með · 0 á móti · 4 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • 2310–0
  • M4–0
  • F8–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 4 hjá
  • V4–0
  • Flf1–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
26 aðilar
Fagfélög tónlistar- og sviðslistafólks, Öryrkjabandalag Íslands, Marel, Origo, Össur og CCP, Ríkisskattstjóri, Bandalag háskólamanna o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 klst. 56 mín · 102 ræður
20 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Lagabreytingar þær sem lagðar eru til í frumvarpinu munu hafa neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs til skemmri tíma litið verði frumvarpið óbreytt að lögum. Gróflega má áætla að tillaga frumvarpsins er lýtur að nýtingu rekstrartaps með afturvirkum hætti geti lækkað tekjur ríkissjóðs um allt að 13 milljarða kr. á þessu ári. Til lengri tíma litið jafnast það út og hefur takmörkuð fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð þar sem gert er ráð fyrir að fyrirtæki muni eiga minna yfirfæranlegt tap á móti hagnaði næstu ára og greiða þar af leiðandi fyrr tekjuskatt á ný en ella. Umfang fjárhagslegrar endurskipulagningar lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri næstu ár er erfitt að meta að svo stöddu og þar með hvaða áhrif frestun og möguleg eftirgjöf skattlagningar vegna niðurfærslu skulda kunni að hafa á ríkissjóð. Hækkun á frádráttarhlutfalli frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja vegna útlagðs kostnaðar þeirra af rannsóknar- og þróunarverkefnum leiðir til þess að stuðningur við fyrirtækin í formi skuldajöfnunar á tekjuskatti og beinna endurgreiðslna eykst árin 2021 og 2022 vegna rekstraráranna 2020 og 2021. Hækkun á hámarksfjárhæðum frádráttarbærs kostnaðar hefur viðbótaráhrif til hækkunar á stuðningnum. Samanlagt má áætla að stuðningurinn aukist um 3 milljarða kr. Sé tekið mið af fyrirliggjandi áætlunum sveitarfélaga um framkvæmdir á árinu 2020 og sé enn fremur litið til endurgreiðslna samkvæmt hliðstæðri heimild sem var í gildi á árunum 2009–2014 má áætla að endurgreiðslur til sveitarfélaga skv. 3. gr. frumvarpsins gætu orðið um 1 milljarður kr. sem dreifast muni á árin 2020 og 2021. Ekki eru forsendur til að leggja mat á á hugsanlegan fjölda þeirra sem sæta gætu sóttkví fram til 30. september 2020 og þar með átt rétt á greiðslum í samræmi við frumvarpið. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla verði allt að 350 milljónir kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. maí 2020: 51 með, 0 á móti, 4 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með20 tóku til máls

Sýna 14 í viðbót

31 annar þingmaður greiddi atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá2 tóku til máls

2 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna5 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2020
    1 beiðni um umsögn
  3. Umræða
    1. umræða
    16 ræður · 1 klst. 28 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Þingskjal
  10. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  11. Umræða
    2. umræða
    80 ræður · 5 klst. 20 mín
  12. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 22 með, 28 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Kom ekki til atkvæðagreiðslu
  14. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 21 með, 27 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 22 með, 28 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 23 með, 28 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 45 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  20. Þingskjal
  21. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  22. Umræða
    3. umræða
    6 ræður · 8 mín
  23. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  24. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  25. Þingskjal
  26. Þingskjal

Þingskjöl

8 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1255Stjórnarfrumvarp21. apr. 2020Bjarni BenediktssonLesaPDF
1322Nefndarálit6. maí 2020Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson +7LesaPDF
1323Breytingartillaga6. maí 2020Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson +7LesaPDF
1324Breytingartillaga6. maí 2020Oddný G. HarðardóttirLesaPDF
1326Breytingartillaga6. maí 2020Jón Steindór ValdimarssonLesaPDF
1346Frumvarp eftir 2. umræðu13. maí 2020—LesaPDF
1364Breytingartillaga11. maí 2020Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór GunnarssonLesaPDF
1372Lög í heild11. maí 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

14 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

102 ræður · 6 klst. 56 mín
  • 1. umræða: 16 ræður · 7 ræðumenn · 1 klst. 28 mín
  • 2. umræða: 80 ræður · 25 ræðumenn · 5 klst. 20 mín
  • 3. umræða: 6 ræður · 4 ræðumenn · 8 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin946 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn644 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn234 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka933 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur733 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur926 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka1224 mín
Logi EinarssonSamfylkingin220 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn120 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin418 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn518 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn316 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin115 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur114 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka110 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka48 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn46 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin35 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur45 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka25 mín

Umsagnir og erindi

27 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. apr. 2020, frestur 29. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fagfélög tónlistar- og sviðslistafólksumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Marel, Origo, Össur og CCPumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriminnisblaðOpna PDF
Bandalag háskólamannaumsögnOpna PDF
KPMG ehf.umsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
Samtök líf- og heilbrigðistæknifyrirtækjaumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Samtök sprotafyrirtækjaumsögnOpna PDF
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Landssamtök lífeyrissjóðaumsögnOpna PDF
Nox MedicalumsögnOpna PDF
Tryggvi HjaltasonumsögnOpna PDF
1939 gamesumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Samtök leikjaframleiðendaumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Skólar ehf.umsögnOpna PDF
Stúdentaráð Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.