Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun (gagnsæi í rekstri stærri óskráðra félaga o.fl.)
Markmið frumvarpsins er að auka traust á og tryggja gagnsæi í upplýsingagjöf fyrirtækja sem almennt má telja að séu þjóðhagslega mikilvæg og varða hagsmuni almennings.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-47/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júlí 2020)
Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 24. febrúar – 9. mars 2020. Alls bárust 10 umsagnir um frumvarpsdrögin. Í umsögnum var almennt lýst ánægju með markmið frumvarpsins en umsagnirnar kölluðu þó á breytingar á frumvarpsdrögunum, sbr. umfjöllun í samráðskafla frumvarpsins á vef Alþingis. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. apríl 2020 og var samþykkt sem lög þann 29. júní 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Félag um innri endurskoðun
Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Félags um innri endurskoðun um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun
- #2Elín Hanna Pétursdóttir
Sjá meðfylgjandi umsögn. Umsögnin hefur sem jafnhliða hefur verið birt á heimasíðu ráðsins, www.reikningsskilarad.is Fyrir hönd reikningsskilaráðs, Aðalsteinn Hákonarson Elín Hanna Pétursdóttir Signý Magnúsdóttir Sigurjón G. Geirsson Unnar Friðrik Pálsson
- #3Orkusalan ehf.
Orkusalan hefur tekið saman umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun sem birtist inn á samráðsgáttinni þann 24. febrúar sl. Sjá viðhengi.
- #4Alda-félag um sjálfbærni og lýðræði
Sjá umsögn Öldu í viðhengjum.
- #5Viðskiptaráð Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun, mál nr. 47/2020.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.