Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 716. mál

Utanríkisþjónusta Íslands

Skipun embættismanna o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 24. jún. 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. Beið 2. umræðu“

Í stuttu máli

Að samræma að nokkru leyti reglur um starfsmenn utanríkisþjónustunnar þeim reglum sem almennt gilda um ríkisstarfsmenn.

Lagt fram af Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
11. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
14 ræður · 46 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að samræma að nokkru leyti reglur um starfsmenn utanríkisþjónustunnar þeim reglum sem almennt gilda um ríkisstarfsmenn.

Hvað breytist

Lagt er til að auglýst skuli í laus embætti ráðuneytisstjóra og sendiherra og þannig yrði framvegis miðað við að enginn taki við starfi sem embættismaður í utanríkisþjónustunni án auglýsingar og hæfnismats. Að auki er lagt til að kveðið verði á um fjölda þeirra sem gegna embættum á þessum grunni og settar verði reglur um almenn hæfisskilyrði þeirra þar sem krafist er háskólamenntunar og reynslu í alþjóða- og utanríkismálum. Einnig er lagt til að ráðherra verði heimilað að skipa einstakling tímabundið í embætti sendiherra til að veita sendiskrifstofu forstöðu eða gegna hlutverki sérstaks erindreka án þess að starfið yrði auglýst. Gert er ráð fyrir að sendifulltrúum verði gert kleift að gegna embætti sendiherra tímabundið meðan þeir veita sendiskrifstofu forstöðu án þess að auglýsa þurfi embættið laust til umsóknar. Þá er lagt til að settar verði skorður við fjölda þeirra sem gegna tímabundnu sendiherraembætti. Enn fremur er lagt til að settar verði reglur sem miða að því að skýra uppbyggingu utanríkisþjónustunnar í ráðuneyti og sendiskrifstofur. Lagt er til að kveðið verði á um réttarstöðu þeirra sem voru skipaðir eða settir í embætti fyrir gildistöku laganna þannig að réttlætis og sanngirni sé gætt og tillit tekið til sjónarmiða um að forðast beri afturvirk áhrif lagabreytinga.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að áhrif á útgjöld ríkissjóð verði óveruleg.

Meira úr samantektinni

Utanríkisþjónusta til framtíðar: Hagsmunagæsla í síbreytilegum heimi. Utanríkisráðuneytið, 1. september 2017.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Utanríkismálanefnd
sendi 4 umsagnabeiðnir · frestur 28. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Gunnar Snorri Gunnarsson, Stefán Skjaldarson, sendiherra, Þórður Æ. Óskarsson, sendiherra, Árni Þór Sigurðsson, sendiherra, Ingibjörg Davíðsdóttir o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
46 mín · 14 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að áhrif á útgjöld ríkissjóð verði óveruleg.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-59/2020· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2020 – 16. mar. 2020· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um utanríkisþjónustu Íslands, nr. 39/1971, með síðari breytingum (skipun embættismanna o.fl.)

Afmörkun fjölda sendiherraembætta og heimildir til skipunar í tímabundin verkefni, afnám undanþágu frá auglýsingaskyldu og víkkun heimilda til setningar sendifulltrúa í stjórnunarstöður og forstöðu sendiskrifstofa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-59/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. janúar 2022)

Frumvarpið var unnið af utanríkisráðuneyti, en samráð haft við forsætisráðuneytið og kjara- og mannauðssýslu ríkisins innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Frumvarpið var birt í Samráðsgáttinni til almennrar kynningar og umsagnar áður en það var lagt fram á Alþingi. Tvær athugasemdir bárust í samráðsgáttina. Í samráðskafla greinargerðar frumvarpsins er að finna efnisleg viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust í samráðinu. Frumvarpið var samþykkt með áorðnum breytingum sem lög frá Alþingi, nr. 161/2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  3. Umræða
    1. umræða
    14 ræður · 46 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 28. maí 2020
    4 beiðnir um umsögn
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1227Stjórnarfrumvarp11. apr. 2020Guðlaugur Þór ÞórðarsonLesaPDF
1802Nál. með brtt.24. jún. 2020Sigríður Á. Andersen, Ari Trausti Guðmundsson +3LesaPDF
1866Nál. með frávt.25. jún. 2020Smári McCarthy, Logi EinarssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

3 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta6. maí 2020 kl. 16:27
    Afbrigði
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur6. maí 2020 kl. 22:30
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ utanríkismálanefnd6. maí 2020 kl. 22:30
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

14 ræður · 46 mín
  • 1. umræða: 14 ræður · 3 ræðumenn · 46 mín

Umsagnir og erindi

9 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Utanríkismálanefnd sendi 4 umsagnabeiðnir 14. maí 2020, frestur 28. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Gunnar Snorri GunnarssonumsögnOpna PDF
Stefán Skjaldarson, sendiherraumsögnOpna PDF
Þórður Æ. Óskarsson, sendiherraumsögnOpna PDF
Árni Þór Sigurðsson, sendiherraumsögnOpna PDF
Ingibjörg DavíðsdóttirumsögnOpna PDF
Hagsmunaráð starfsfólks utanríkisþjónustunnarumsögnOpna PDF
Félag háskólamenntaðra starfsmanna StjórnarráðsinsumsögnOpna PDF
Gunnar Pálsson sendiherraumsögnOpna PDF
Gagnsæi, samtök gegn spillinguumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.