Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 715. mál

Eignarráð og nýting fasteigna

Aðilar utan EES, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að styrkja löggjöf um jarðir, land og aðrar fasteignir með breytingum á lagaákvæðum um eignarráð og nýtingu fasteigna, þ.m.t. jarða, og um opinbera skráningu á atriðum viðkomandi landi og fasteignum.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 32 atkvæði með og 0 á móti, 23 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
2. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
26 ræður · 2 klst. 27 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 2. júl. 2020

Markmiðið

Að styrkja löggjöf um jarðir, land og aðrar fasteignir með breytingum á lagaákvæðum um eignarráð og nýtingu fasteigna, þ.m.t. jarða, og um opinbera skráningu á atriðum viðkomandi landi og fasteignum.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á heimild ráðherra í lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna til að veita aðilum frá ríkjum utan EES leyfi til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteign ef þeir uppfylla ekki skilyrði laganna um íslenskan ríkisborgararétt eða skilyrði um lögheimili hér á landi. Verði frumvarpið óbreytt að lögum getur ráðherra heimilað einstaklingi eða lögaðila utan EES að öðlast eignar- eða afnotarétt yfir fasteign til beinna nota í atvinnustarfsemi og einnig heimilað einstaklingi, sem hefur sterk tengsl við Ísland, s.s. vegna hjúskapar við íslenskan ríkisborgara, að eignast hér fasteign. Lögð er til breyting á þinglýsingalögum þess efnis að upplýsingar um kaupverð eignar verði meðal skilyrða fyrir þinglýsingu afsals nema skýrt komi fram að ekkert endurgjald komi fyrir hina seldu eign. Þá er lagt til að í lög um skráningu og mat fasteigna komi ákvæði um landeignaskrá, sem er hluti fasteignaskrár og inniheldur m.a. upplýsingar um eignarmörk lands í samræmdum kortagrunni. Ákvæðinu er ætlað að ryðja úr vegi hindrunum fyrir frekari uppbyggingu landeignaskrár Þjóðskrár Íslands. Lagðar eru til ýmsar breytingar á jarðalögum, þ.á.m. að markmiðsákvæði laganna verði fyllra og ítarlegra en nú og innihaldi markmið um landnýtingu í samræmi við skilgreind markmið, þ.á.m. um að land sem vel er fallið til búvöruframleiðslu verði nýtt í því skyni. Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um lögbýli þannig að þau verði einungis stofnuð til starfsemi á sviði landbúnaðar eins og hann er skilgreindur í lögunum. Lagt er til ákvæði um skyldu til að afla samþykkis ráðherra fyrir ráðstöfun beins eignarréttar eða afnotaréttar til lengri tíma en fimm ára yfir fasteign sem fellur undir gildissvið jarðalaga ef: a) ráðstöfunin tekur til lögbýlis og viðtakandi réttar og tengdir aðilar eiga fyrir fimm eða fleiri fasteignir, sem skráðar eru í lögbýlaskrá, og samanlögð stærð þeirra er yfir 50 hekturum; b) viðtakandi réttar og tengdir aðilar eiga fyrir fasteign eða fasteignir, sem falla undir gildissvið jarðalaga, og eru samtals 1.500 hektarar eða meira að stærð. Lagt er til að lögaðilum sem eiga bein eignarréttindi yfir fasteign eða fasteignarréttindi, sem falla undir gildissvið jarðalaga, verði skylt að veita stjórnvöldum upplýsingar um eignarhald sitt. Upplýsingaskylda samkvæmt ákvæðinu mun taka til erlendra lögaðila annars vegar og hins vegar íslenskra lögaðila sem eru að 1/3 hluta eða meira í beinni eða óbeinni eigu erlends lögaðila, fjárvörslusjóðs eða sambærilegs aðila eða undir yfirráðum slíkra aðila. Lagt er til að beiðnum um landskipti fylgi ávallt staðfesting á því að breytingin samrýmist gildandi skipulagsáætlun. Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um niðurfellingu lögbýlisréttar þess efnis að ráðherra verði ekki lengur skylt að fella lögbýlisrétt niður að ósk eiganda og að lögbýlisréttur skuli ekki felldur niður gegn rökstuddum andmælum sveitarstjórnar. Lagt er til að rétthöfum verði gert skylt að láta þinglýsa skjölum um tiltekin eignarréttindi yfir fasteignum sem falla undir gildissvið jarðalaga, þ.á.m. afsölum. Lagt er til að viðurlagaákvæði jarðalaga verði styrkt og ráðherra veitt heimild til að bregðast við brotum á ákvæðum laganna, m.a. með því að krefjast nauðungarsölu eða virkja innlausnarrétt ríkissjóðs.

Lög sem breytast

Lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Þinglýsingalög, nr. 39/1978. Lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001. Jarðalög, nr. 81/2004.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir auknum kostnaði Þjóðskrár Íslands vegna skráningar lands í landeignaskrá og viðhalds hennar sem falla mun á ríkissjóð. Er áætlaður kostnaður vegna þessa 80 milljónir kr. árið 2020, 83 milljónir kr. á ári árin 2021 til 2023 og 30 milljónir kr. á ári eftir það. Gert er ráð fyrir 17 milljóna kr. árlegum kostnaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis vegna nýrra verkefna sem leiða af frumvarpinu verði það óbreytt að lögum. Talið er að kostnaður við breytingar á tölvukerfum svo halda megi saman upplýsingum um eignarhald lögaðila undir erlendum yfirráðum muni verða um 12 milljónir kr. Gert er ráð fyrir því að einhver kostnaður falli til hjá sýslumönnum vegna upplýsingaöflunar úr gögnum í þeirra vörslu.

Meira úr samantektinni

Endurskoðun laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Skýrsla nefndar. Innanríkisráðuneytið, 30. maí 2014.

Skýrsla starfshóps um eignarhald á bújörðum. 31. ágúst 2018.

Viðmiðunarreglur við afgreiðslu umsókna útlendinga um kaup á fasteign á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt32 með · 0 á móti · 23 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Eignarráð og nýting fasteigna“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M0–0 · 6 hjá
  • F7–0
  • Sf0–0 · 7 hjá
  • 430–0 · 5 hjá
  • V0–0 · 3 hjá
  • Flf1–0 · 1 hjá
  • U0–0 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 21. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
22 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands, Arion banki o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 27 mín · 26 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir auknum kostnaði Þjóðskrár Íslands vegna skráningar lands í landeignaskrá og viðhalds hennar sem falla mun á ríkissjóð. Er áætlaður kostnaður vegna þessa 80 milljónir kr. árið 2020, 83 milljónir kr. á ári árin 2021 til 2023 og 30 milljónir kr. á ári eftir það. Gert er ráð fyrir 17 milljóna kr. árlegum kostnaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis vegna nýrra verkefna sem leiða af frumvarpinu verði það óbreytt að lögum. Talið er að kostnaður við breytingar á tölvukerfum svo halda megi saman upplýsingum um eignarhald lögaðila undir erlendum yfirráðum muni verða um 12 milljónir kr. Gert er ráð fyrir því að einhver kostnaður falli til hjá sýslumönnum vegna upplýsingaöflunar úr gögnum í þeirra vörslu.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 32 með, 0 á móti, 23 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með4 tóku til máls

28 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá6 tóku til máls

17 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  3. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 14 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 21. maí 2020
    1 beiðni um umsögn
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    24 ræður · 2 klst. 12 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 31 með, 0 á móti
  16. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 32 með, 0 á móti
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1223Stjórnarfrumvarp2. apr. 2020Katrín JakobsdóttirLesaPDF
1763Nál. með brtt.23. jún. 2020Páll Magnússon, Bjarkey Gunnarsdóttir +3LesaPDF
1933Frumvarp eftir 2. umræðu17. ágú. 2020—LesaPDF
1936Breytingartillaga29. jún. 2020Bjarkey GunnarsdóttirLesaPDF
1957Lög í heild29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

10 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta28. apríl 2020 kl. 18:12
    Afbrigði
    og 1265
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur28. apríl 2020 kl. 18:51
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd28. apríl 2020 kl. 18:51
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:28
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
    2--9
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
    2.--18. gr. (verða 2.--17. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 20:30
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:40
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:41
    Að samþykkja frumvarpið „Eignarráð og nýting fasteigna“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá

Hverjir tóku til máls

26 ræður · 2 klst. 27 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 14 mín
  • 2. umræða: 24 ræður · 10 ræðumenn · 2 klst. 12 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn114 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn110 mín
Anna Kolbrún ÁrnadóttirMiðflokkurinn13 mín
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka215 mín
Inga SælandFlokkur fólksins23 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn23 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka324 mín
Silja Dögg GunnarsdóttirFramsóknarflokkur324 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin319 mín
Haraldur BenediktssonSjálfstæðisflokkur312 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn521 mín

Umsagnir og erindi

22 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 30. apr. 2020, frestur 21. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
ForsætisráðuneytiðathugasemdOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Arion bankiumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Ögmundur JónassonumsögnOpna PDF
Eleven Experience á ÍslandiumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtök landeigenda á ÍslandiumsóknOpna PDF
Veiðiklúbburinn StrengurumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF
Sýslumannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Sveitarstjórn FljótsdalshreppsumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
LEX lögmannsstofaathugasemdOpna PDF
Kristján ÚlfssonumsögnOpna PDF
ByggðastofnunumsögnOpna PDF
Landssamband veiðifélagaumsögnOpna PDF
FljótsdalshéraðumsögnOpna PDF
HéraðssaksóknariumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.