Drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu (lög á sviði sjávarútvegs, fiskeldis og lax- og silungs.)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði ráðherra vegna einföldunar regluverks.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-40/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 28. febrúar 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. september 2021)
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi og varð þar, með minniháttar breytingum, að lögum nr. 88, 9. júlí 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Landssamband veiðifélaga
Með frumvarpinu er lagt til að reglum um sótthreinsun veiðitækja verði breytt. Í stað þess að veiðitæki þurfi að sótthreinsa áður en þau koma inn í landið er lagt til að nægilegt verði að þau verði sótthreinsuð áður en þau verði notuð til veiða í íslenskum ám og vötnum eða við sjóstangveiði í fjörum, á grunnsævi eða í landhelginni, enda liggi ekki fyrir fullgilt vottorð að mati Matvælastofnunar um að búnaðurinn hafi verið sótthreinsaður erlendis. Þá er jafnframt lagt til að Matvælastofnun geti falið umráðamönnum veiðistaða framkvæmd aðgerða samkvæmt þessari grein í samræmi við reglur sem stofn… Lesa alla
Með frumvarpinu er lagt til að reglum um sótthreinsun veiðitækja verði breytt. Í stað þess að veiðitæki þurfi að sótthreinsa áður en þau koma inn í landið er lagt til að nægilegt verði að þau verði sótthreinsuð áður en þau verði notuð til veiða í íslenskum ám og vötnum eða við sjóstangveiði í fjörum, á grunnsævi eða í landhelginni, enda liggi ekki fyrir fullgilt vottorð að mati Matvælastofnunar um að búnaðurinn hafi verið sótthreinsaður erlendis. Þá er jafnframt lagt til að Matvælastofnun geti falið umráðamönnum veiðistaða framkvæmd aðgerða samkvæmt þessari grein í samræmi við reglur sem stofnunin setur. Landssamband veiðifélaga leggst gegn tillögunni og telur mikilvægt að sjúkdómavarnir verði áfram á ábyrgð Matvælastofnunar eða annarra þar til bærra stjórnvalda. Landssambandið telur ekki eðlilegt að ábyrgð á sjúkdómavörnum verði færð í hendur veiðirétthafa. Veiðirétthafar hafa vissulega mikla hagsmuni af því að sjúkdómavarnir verði tryggðar eins og kostur er hverju sinni en hafa oft ekki aðstöðu eða forsendur til þess að tryggja að sótthreinsun fari fram. Í mjög mörgum tilvikum koma veiðimenn erlendis frá til þess að veiða í ám eða vötnum þar sem er ekki veiðihús eða staðarhald. Þá eru veiðifélög yfirleitt ekki í neinu beinu sambandi við veiðimenn sem koma erlendis frá. Í mörgum tilvikum er líka um erlendar ferðaskrifstofur að ræða en það getur reynst erfitt að koma þessari ábyrgð yfir á þær. Landssamband veiðifélaga leggur til að sjúkdómavarnir þessar verði áfram á ábyrgð Matvælastofnunar og að sótthreinsun veiðitækja fari fram á flugvöllum og höfnum en að öðrum kosti er hætt við því að brotalöm verði í þessum mikilvægu vörnum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.