Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 713. mál

Breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að einfalda regluverk á sviði sjávarútvegs og fiskeldis.

Lagt fram af Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 37 atkvæði með og 0 á móti, 18 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
2. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
15 ræður · 59 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 2. júl. 2020

Markmiðið

Að einfalda regluverk á sviði sjávarútvegs og fiskeldis.

Hvað breytist

Lagt er til að felld verði brott 22 lög sem eru úrelt eða óþörf. Lagt er til að leyfisskylda til dragnótaveiða verði felld niður og þess í stað verði fjallað um veiðarnar í reglugerð. Lagt er til að heimild ráðherra til að veita krókaaflamarksbátum leyfi til botndýraveiða með þeim veiðarfærum sem til slíkra veiða þarf og til hrognkelsaveiða í net falli brott en þess í stað verði fjallað um veiðarnar í reglugerð. Þá er lagt til að úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla verði lögð af. Lagt er til að úrelt bráðabirgðaákvæði verði felld niður. Einnig er lögð til einföldun á stjórnsýslu skyndilokana. Lagt er til að skylda Fiskistofu til að leggja til sérstakar afladagbækur verði afnumin. Auk þess er lagt til að dregið verði úr skýrsluskilum fiskeldisfyrirtækja, sem framleiða minna en 20 tonn árlega. Þá er lögð til einföldun á stjórnsýslumeðferð veiðitækja, sem notuð hafa verið erlendis.

Lög sem breytast

Verði frumvarpið óbreytt að lögum verða 22 lög felld brott og breytingar verða á 12 lögum.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á fjárhag ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ásmundur Friðriksson

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt37 með · 0 á móti · 18 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M6–0
  • F7–0
  • Sf0–0 · 7 hjá
  • 430–0 · 5 hjá
  • V0–0 · 3 hjá
  • Flf0–0 · 2 hjá
  • U0–0 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Landssamband smábátaeigenda, Hafrannsóknastofnun - rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, Matvælastofnun, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
59 mín · 15 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á fjárhag ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 37 með, 0 á móti, 18 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

35 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá2 tóku til máls

16 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-40/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2020 – 28. feb. 2020· 1 umsögn

Drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu (lög á sviði sjávarútvegs, fiskeldis og lax- og silungs.)

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði ráðherra vegna einföldunar regluverks.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-40/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. september 2021)

Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi og varð þar, með minniháttar breytingum, að lögum nr. 88, 9. júlí 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Landssamband veiðifélaga
    Með frumvarpinu er lagt til að reglum um sótthreinsun veiðitækja verði breytt. Í stað þess að veiðitæki þurfi að sótthreinsa áður en þau koma inn í landið er lagt til að nægilegt verði að þau verði sótthreinsuð áður en þau verði notuð til veiða í íslenskum ám og vötnum eða við sjóstangveiði í fjörum, á grunnsævi eða í landhelginni, enda liggi ekki fyrir fullgilt vottorð að mati Matvælastofnunar um að búnaðurinn hafi verið sótthreinsaður erlendis. Þá er jafnframt lagt til að Matvælastofnun geti falið umráðamönnum veiðistaða framkvæmd aðgerða samkvæmt þessari grein í samræmi við reglur sem stofn… Lesa alla

    Með frumvarpinu er lagt til að reglum um sótthreinsun veiðitækja verði breytt. Í stað þess að veiðitæki þurfi að sótthreinsa áður en þau koma inn í landið er lagt til að nægilegt verði að þau verði sótthreinsuð áður en þau verði notuð til veiða í íslenskum ám og vötnum eða við sjóstangveiði í fjörum, á grunnsævi eða í landhelginni, enda liggi ekki fyrir fullgilt vottorð að mati Matvælastofnunar um að búnaðurinn hafi verið sótthreinsaður erlendis. Þá er jafnframt lagt til að Matvælastofnun geti falið umráðamönnum veiðistaða framkvæmd aðgerða samkvæmt þessari grein í samræmi við reglur sem stofnunin setur. Landssamband veiðifélaga leggst gegn tillögunni og telur mikilvægt að sjúkdómavarnir verði áfram á ábyrgð Matvælastofnunar eða annarra þar til bærra stjórnvalda. Landssambandið telur ekki eðlilegt að ábyrgð á sjúkdómavörnum verði færð í hendur veiðirétthafa. Veiðirétthafar hafa vissulega mikla hagsmuni af því að sjúkdómavarnir verði tryggðar eins og kostur er hverju sinni en hafa oft ekki aðstöðu eða forsendur til þess að tryggja að sótthreinsun fari fram. Í mjög mörgum tilvikum koma veiðimenn erlendis frá til þess að veiða í ám eða vötnum þar sem er ekki veiðihús eða staðarhald. Þá eru veiðifélög yfirleitt ekki í neinu beinu sambandi við veiðimenn sem koma erlendis frá. Í mörgum tilvikum er líka um erlendar ferðaskrifstofur að ræða en það getur reynst erfitt að koma þessari ábyrgð yfir á þær. Landssamband veiðifélaga leggur til að sjúkdómavarnir þessar verði áfram á ábyrgð Matvælastofnunar og að sótthreinsun veiðitækja fari fram á flugvöllum og höfnum en að öðrum kosti er hætt við því að brotalöm verði í þessum mikilvægu vörnum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    12 ræður · 45 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. maí 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 13 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 36 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 37 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1221Stjórnarfrumvarp2. apr. 2020Kristján Þór JúlíussonLesaPDF
1801Nál. með brtt.24. jún. 2020Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson +5LesaPDF
1940Frumvarp eftir 2. umræðu17. ágú. 2020—LesaPDF
1962Lög (samhlj.)29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 59 mín
  • 1. umræða: 12 ræður · 4 ræðumenn · 45 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 13 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Kristján Þór JúlíussonSjálfstæðisflokkur622 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn319 mín
Ásmundur FriðrikssonSjálfstæðisflokkur110 mín
Jón Þór ÓlafssonUtan þingflokka23 mín
Albertína Friðbjörg ElíasdóttirSamfylkingin13 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka23 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. maí 2020, frestur 20. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Landssamband smábátaeigendaathugasemdOpna PDF
Hafrannsóknastofnun - rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatnaumsögnOpna PDF
MatvælastofnunumsögnOpna PDF
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Landssamband veiðifélagaumsögnOpna PDF
FiskistofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.