Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 666. mál

Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að styrkja framfærslu aldraðra einstaklinga sem búsettir eru hér á landi og eiga engin eða takmörkuð lífeyrisréttindi í almannatryggingum.

Lagt fram af Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 55 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
13. mars 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
18 ræður · 44 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 2. júl. 2020

Markmiðið

Að styrkja framfærslu aldraðra einstaklinga sem búsettir eru hér á landi og eiga engin eða takmörkuð lífeyrisréttindi í almannatryggingum.

Hvað breytist

Lagt er til að einstaklingar, sem búsettir eru hér á landi og hafa annaðhvort alls engin eða takmörkuð lífeyrisréttindi í almannatryggingum, öðlist rétt til félagslegs viðbótarstuðnings sem getur að hámarki numið 90% fulls ellilífeyris almannatrygginga. Breytingin tekur til einstaklinga sem hafa náð 67 ára aldri, hafa fasta búsetu og lögheimili á Íslandi og dvelja hér varanlega. Ef um erlendan ríkisborgara er að ræða skal hann hafa ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Kostnaðarmat fylgdi ekki frumvarpinu en velferðarnefnd barst það siðar frá félagsmálaráðuneytinu. Miðað er við að árlegur kostnaður vegna frumvarpsins geti orðið allt að 530 milljónir kr. Þar sem gert er ráð fyrir því að lögin taki gildi 1. júlí 2020 gerir ráðuneytið ráð fyrir því að kostnaður yfirstandandi árs verði um 280 milljónir kr. auk um 30 milljóna kr. innleiðingarkostnaðar.

Meira úr samantektinni

Skýrsla starfshóps um kjör aldraðra.

Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt55 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M6–0
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 435–0
  • V3–0
  • Flf2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
17 aðilar
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Útlendingastofnun, Mosfellsbær, Félagsmálaráðuneytið, Öryrkjabandalag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
44 mín · 18 ræður
9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kostnaðarmat fylgdi ekki frumvarpinu en velferðarnefnd barst það siðar frá félagsmálaráðuneytinu. Miðað er við að árlegur kostnaður vegna frumvarpsins geti orðið allt að 530 milljónir kr. Þar sem gert er ráð fyrir því að lögin taki gildi 1. júlí 2020 gerir ráðuneytið ráð fyrir því að kostnaður yfirstandandi árs verði um 280 milljónir kr. auk um 30 milljóna kr. innleiðingarkostnaðar.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 55 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með7 tóku til máls

Sýna 1 í viðbót

48 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-263/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 4. nóv. 2019· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða

Drög að frumvarpi um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Kveðið er á um greiðslu viðbótarstuðnings til aldraðra einstaklinga eldri en 67 ára sem búa og dvelja varanlega á Íslandi en sem hafa áunnið sér lítil sem engin lífeyrisréttindi og hafa heildartekjur undir tilteknu viðmiði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-263/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. október 2021)

Alls bárust fimm umsagnir; frá Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, velferðarsviði Reykjavíkurborgar og tveimur einstaklingum. Flestir umsagnaraðilar töldu að hér væri um jákvætt skref að ræða þar sem frumvarpið væri til þess fallið að styrkja framfærslu viðkvæms hóps sem er í hvað mestri áhættu á að búa við fátækt. Athugasemdir voru aðallega gerðar við afmörkun persónulegs gildissviðs, sbr. 2. gr., og fjárhæð hins félagslega viðbótarstuðnings, sbr. 3. gr., en þær leiddu ekki til efnislegra breytinga á frumvarpinu.Frumvarpið varð að lögum eftir meðferð Alþingis nr. 74/2020

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Eggert Sigurbergsson
    Réttindi kosta peninga, mikla peninga. Í þessu frumvarpi eru réttindi gefin í raun hverjum utanaðkomandi sem vill í ómældu magni enda engin tilraun gerð til að magnsetja nýja væntanlega bótaþega sem lítil eða engin áunnin réttindi eiga heima hjá sér.  Þetta frumvarp opnar sjálfkrafa upp á gátt íslenska velferðarkerfið fyrir um 500.000.000 manns á EES svæðinu en á því svæði eru eftirlaunaréttindi mjög mismunandi, með þessu frumvarpi þá geta allir á þessum 500.000.000 manna svæði sem lítil eða engin réttindi eiga sótt réttindin til Íslands þegar þeir verða 67 ára eða eldri. Það er ekki bara efti… Lesa alla

    Réttindi kosta peninga, mikla peninga. Í þessu frumvarpi eru réttindi gefin í raun hverjum utanaðkomandi sem vill í ómældu magni enda engin tilraun gerð til að magnsetja nýja væntanlega bótaþega sem lítil eða engin áunnin réttindi eiga heima hjá sér.  Þetta frumvarp opnar sjálfkrafa upp á gátt íslenska velferðarkerfið fyrir um 500.000.000 manns á EES svæðinu en á því svæði eru eftirlaunaréttindi mjög mismunandi, með þessu frumvarpi þá geta allir á þessum 500.000.000 manna svæði sem lítil eða engin réttindi eiga sótt réttindin til Íslands þegar þeir verða 67 ára eða eldri. Það er ekki bara eftirlauna/framfærslu réttindi sem um er að ræða heldur fylgir þessum hóp, 67 ára og eldri, mun hærri heilbrigðiskostnaður sem er í flestum tilfellum dýrari á Íslandi en heima hjá nýju bótaþegunum, að því er ég best veit þá greiða sjúkratryggingar viðkomandi heimalands bara það sem sama þjónusta kostar heima hjá viðkomandi sem er það sama og íslenska heilbrigðiskerfið gerir. Þetta frumvarp gerir Ísland mjög vænlegt fyrir alla sem eru ekki á EES svæðinu og engin réttindi eiga og mun það virka sem öflugur segull. Með sí aukinni ásókn í frítt velferðar og heilbrigðiskerfi á Íslandi þá þarf aukið eftirlit sem hefur sýnt sig hingað til vera vita gagnslaust t.d. gagnvart öðrum bótaflokkum sem ásókn er í. Þetta frumvarp er vísasta leiðin til að eyðileggja velferðarkerfi sem hefur tekið mannsaldra að byggja upp og jafnframt verður greiðsluvilja skattgreiðenda eytt sem munu kjósa með fótunum í sí auknu mæli. Frumvarpið í heild sinni er ekki íslenskum skattgreiðendum bjóðandi.

  • #2Ísleifur Gíslason

    Fjöldi aldraðra kvenna býr við bág kjör vegna lágra eftirlauna frá lífeyrissjóði enda hafa störf þeirra að mestu snúist um uppeldi barna sinna og almennt heimilishald og þær því ekki haft tök á að greiða í lífeyrissjóð. Þessi mikilvægu störf á að meta að fullu og því þarf að bæta fjárhagslegt tap þeirra með hærri eftirlaunum og skiptir engu hvort þær eru í hjónabandi eða ekki þegar kemur að töku eftirlauna.

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Vinsamlegast sjá meðfylgjandi umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler

  • #4Reykjavíkurborg

    Umsögn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.

  • #5Alþýðusamband Íslands

    Umsögn ASÍ er meðfylgjandi í viðhengi. Virðingarfyllst, Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    3 ræður · 10 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. apríl 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    15 ræður · 34 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1130Stjórnarfrumvarp13. mar. 2020Ásmundur Einar DaðasonLesaPDF
1836Nál. með brtt.24. jún. 2020Helga Vala Helgadóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir +7LesaPDF
1912Frumvarp eftir 2. umræðu30. jún. 2020—LesaPDF
1930Breytingartillaga29. jún. 2020Halla Signý KristjánsdóttirLesaPDF
1950Lög í heild29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur17. mars 2020 kl. 17:13
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd17. mars 2020 kl. 17:13
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:18
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“.
    1--4
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 11:19
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“.
    2.--19. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 11:19
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:35
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:36
    Að samþykkja frumvarpið „Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

18 ræður · 44 mín
  • 1. umræða: 3 ræður · 3 ræðumenn · 10 mín
  • 2. umræða: 15 ræður · 7 ræðumenn · 34 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Anna Kolbrún ÁrnadóttirMiðflokkurinn11 mín
Ásmundur Einar DaðasonFramsóknarflokkur17 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin11 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins510 mín
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur213 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin35 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka11 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka11 mín
Steingrímur J. SigfússonUtan þingflokka37 mín

Umsagnir og erindi

17 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 21. mar. 2020, frestur 20. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök kvenna af erlendum uppruna á ÍslandiumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
MosfellsbærumsögnOpna PDF
FélagsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Háskóli ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenniumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Velferðarsvið ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF
samstarfsnefnd um málefni aldraðrabókunOpna PDF
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðrabókunOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamband eldri borgaraumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.