Drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða
Drög að frumvarpi um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Kveðið er á um greiðslu viðbótarstuðnings til aldraðra einstaklinga eldri en 67 ára sem búa og dvelja varanlega á Íslandi en sem hafa áunnið sér lítil sem engin lífeyrisréttindi og hafa heildartekjur undir tilteknu viðmiði.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-263/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. nóvember 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. október 2021)
Alls bárust fimm umsagnir; frá Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, velferðarsviði Reykjavíkurborgar og tveimur einstaklingum. Flestir umsagnaraðilar töldu að hér væri um jákvætt skref að ræða þar sem frumvarpið væri til þess fallið að styrkja framfærslu viðkvæms hóps sem er í hvað mestri áhættu á að búa við fátækt. Athugasemdir voru aðallega gerðar við afmörkun persónulegs gildissviðs, sbr. 2. gr., og fjárhæð hins félagslega viðbótarstuðnings, sbr. 3. gr., en þær leiddu ekki til efnislegra breytinga á frumvarpinu.Frumvarpið varð að lögum eftir meðferð Alþingis nr. 74/2020
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Eggert Sigurbergsson
Réttindi kosta peninga, mikla peninga. Í þessu frumvarpi eru réttindi gefin í raun hverjum utanaðkomandi sem vill í ómældu magni enda engin tilraun gerð til að magnsetja nýja væntanlega bótaþega sem lítil eða engin áunnin réttindi eiga heima hjá sér. Þetta frumvarp opnar sjálfkrafa upp á gátt íslenska velferðarkerfið fyrir um 500.000.000 manns á EES svæðinu en á því svæði eru eftirlaunaréttindi mjög mismunandi, með þessu frumvarpi þá geta allir á þessum 500.000.000 manna svæði sem lítil eða engin réttindi eiga sótt réttindin til Íslands þegar þeir verða 67 ára eða eldri. Það er ekki bara efti… Lesa alla
Réttindi kosta peninga, mikla peninga. Í þessu frumvarpi eru réttindi gefin í raun hverjum utanaðkomandi sem vill í ómældu magni enda engin tilraun gerð til að magnsetja nýja væntanlega bótaþega sem lítil eða engin áunnin réttindi eiga heima hjá sér. Þetta frumvarp opnar sjálfkrafa upp á gátt íslenska velferðarkerfið fyrir um 500.000.000 manns á EES svæðinu en á því svæði eru eftirlaunaréttindi mjög mismunandi, með þessu frumvarpi þá geta allir á þessum 500.000.000 manna svæði sem lítil eða engin réttindi eiga sótt réttindin til Íslands þegar þeir verða 67 ára eða eldri. Það er ekki bara eftirlauna/framfærslu réttindi sem um er að ræða heldur fylgir þessum hóp, 67 ára og eldri, mun hærri heilbrigðiskostnaður sem er í flestum tilfellum dýrari á Íslandi en heima hjá nýju bótaþegunum, að því er ég best veit þá greiða sjúkratryggingar viðkomandi heimalands bara það sem sama þjónusta kostar heima hjá viðkomandi sem er það sama og íslenska heilbrigðiskerfið gerir. Þetta frumvarp gerir Ísland mjög vænlegt fyrir alla sem eru ekki á EES svæðinu og engin réttindi eiga og mun það virka sem öflugur segull. Með sí aukinni ásókn í frítt velferðar og heilbrigðiskerfi á Íslandi þá þarf aukið eftirlit sem hefur sýnt sig hingað til vera vita gagnslaust t.d. gagnvart öðrum bótaflokkum sem ásókn er í. Þetta frumvarp er vísasta leiðin til að eyðileggja velferðarkerfi sem hefur tekið mannsaldra að byggja upp og jafnframt verður greiðsluvilja skattgreiðenda eytt sem munu kjósa með fótunum í sí auknu mæli. Frumvarpið í heild sinni er ekki íslenskum skattgreiðendum bjóðandi.
- #2Ísleifur Gíslason
Fjöldi aldraðra kvenna býr við bág kjör vegna lágra eftirlauna frá lífeyrissjóði enda hafa störf þeirra að mestu snúist um uppeldi barna sinna og almennt heimilishald og þær því ekki haft tök á að greiða í lífeyrissjóð. Þessi mikilvægu störf á að meta að fullu og því þarf að bæta fjárhagslegt tap þeirra með hærri eftirlaunum og skiptir engu hvort þær eru í hjónabandi eða ekki þegar kemur að töku eftirlauna.
- #3Samband íslenskra sveitarfélaga
Vinsamlegast sjá meðfylgjandi umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler
- #4Reykjavíkurborg
Umsögn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.
- #5Alþýðusamband Íslands
Umsögn ASÍ er meðfylgjandi í viðhengi. Virðingarfyllst, Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.