Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 640. mál

Vörumerki

EES-reglur

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 12. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að innleiða Evróputilskipun um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki en markmið hennar er að samræma evrópskar vörumerkjareglur, gera þær notendavænni og skilvirkari, aðgengilegri almenningi og í samræmi við nýjustu tækni.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 12. jún. 2020 greiddu 39 atkvæði með og 5 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. mars 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
11
Umræða í þingsal
14 ræður · 52 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 15. jún. 2020

Markmiðið

Að innleiða Evróputilskipun um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki en markmið hennar er að samræma evrópskar vörumerkjareglur, gera þær notendavænni og skilvirkari, aðgengilegri almenningi og í samræmi við nýjustu tækni.

Hvað breytist

Með frumvarpinu er lagt til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015 um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki (vörumerkjatilskipunin). Í tilskipuninni felast fjölmörg nýmæli, bæði til samræmingar á nálgun aðildarríkja Evrópusambandsins og EES/EFTA-ríkjanna við skráningu, notkun og verndartíma vörumerkja en einnig ítarlegri ákvæði en áður um tengd réttindi, þ.e. félaga- og ábyrgðar- og gæðamerki, ákvæði um afurðarheiti og plöntuheiti svo dæmi séu tekin. Lagt er til að horfið verði frá þeirri kröfu að vörumerki þurfi að vera „sýnileg tákn“. Þess í stað er gert ráð fyrir að vörumerki geti verið hvers konar tákn sem annars vegar geti greint vöru og þjónustu eins aðila frá eins eða sambærilegum vörum og þjónustu annarra og að unnt sé að tilgreina þau í vörumerkjaskrá á þann hátt að greina megi með skýrum og nákvæmum hætti til hvers einkarétturinn nær. Með þessu er m.a. opnað fyrir skráningu á óhefðbundnum merkjum eins og litum og hljóði, hreyfimyndum og fleira. Einnig er lagt til að breyta skráningarskilyrðum merkja. Helstu viðbætur við almenn skráningarskilyrði merkja er höfnun á grundvelli þess að tákn sýni lögun eða aðra eiginleika sem auka verðmæti vöru svo um munar og ef merki samanstanda af eða sýna í veigamiklum þáttum eldra skráð plöntuyrkisheiti. Þá er því enn fremur bætt við með skýrari hætti en áður að hafna megi skráningu merkis ef umsókn er lögð fram í vondri trú. Þá er gert ráð fyrir að skráningaryfirvöld geti synjað um skráningu merkis að hluta. Að auki er lagt til að kveðið verði skýrar á um inntak einkaréttar til merkis en nú er, þ.e. möguleika í tengslum við beitingu réttarins, sem og takmarkanir á honum og skerpt er á rétti til að leggja bann við notkun merkis sem viðskipta- eða fyrirtækjaheiti og notkun merkis í samanburðarauglýsingum. Lagt er til að innleiða heimild þriðja aðila til að leggja fram ábendingu gegn skráningu vörumerkis. Þannig mun hvaða aðili sem er, jafnt einstaklingur sem lögaðili, geta lagt fram ábendingu vegna tiltekinnar umsóknar eftir að hún er lögð inn og áður en ákvörðun um skráningu er tekin og þarf hann ekki að hafa af því lögmæta hagsmuni. Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að flytja ákvæði laga um félagamerki, nr. 155/2002, yfir í lög um vörumerki, nr. 45/1997, og fella þau fyrrnefndu síðan úr gildi.

Lög sem breytast

Lög um vörumerki, nr. 45/1997. Við gildistöku laganna falla brott lög um félagamerki, nr. 155/2002.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2436 frá 16. desember 2015 um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki (vörumerkjatilskipunin).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af varemærkeloven LBK nr. 88 af 29/01/2019.

Finnland

Varumärkeslag 26.4.2019/544.

Noregur

Lov om beskyttelse av varemerker (varemerkeloven) LOV-2010-03-26-8.

Svíþjóð

Varumärkeslag (2010:1877).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
12. jún. 2020
Samþykkt39 með · 5 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Vörumerki“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S7–0
  • 238–0
  • M7–0
  • F7–0
  • Sf5–0
  • 430–4
  • V4–0
  • Flf1–0
  • U0–1
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 20. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Árnason Faktor ehf., Sigurjónsson og Thor · allar umsagnir
Umræða í þingsal
52 mín · 14 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 12. júní 2020: 39 með, 5 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

37 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti1 tók til máls

4 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-27/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. feb. 2020 – 21. feb. 2020· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum (EES-reglur, málsmeðferð, o.fl.).

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum. Frumvarpinu er m.a. ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2436/ESB um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-27/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Þrjár umsagnir bárust við frumvarpsdrög í samráðsgátt sem hafðar voru til hliðsjónar við ritun og endanlegan frágang frumvarpsins. Stjórnarfrumvarp var lagt fram á Alþingi þann 5. mars 2020, sbr. þskj. 1084 á 150. löggjafarþingi 2019-2020 (640 mál). Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi þann 12. júní 2020, sbr. lög nr. 71/20202 um breytingu á lögum um vörumerki, nr. 45/1997, með síðari breytingum (EES-reglur).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Ásdís Magnúsdóttir
    Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum 150. löggjafarþing 2019-2020 Ábendingar og athugasemdir frá Árnason Faktor Sent í gegnum Samráðsgátt þann 21. febrúar 2020 Við höfum nú farið yfir þau drög að frumvarpi sem liggja fyrir til breytinga á lögum um vörumerki og viljum taka það fram að í þeim drögum er margt sem ber að fagna. Að því sögðu eru nokkur atriði sem við teljum mikilvægt að bætt verði inn – okkar röksemdir fyrir breytingartillögunum koma í kjölfar upptalningarinnar: 1. Bætt verði inn nýrri málsgrein í 3. gr. (á… Lesa alla

    Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum 150. löggjafarþing 2019-2020 Ábendingar og athugasemdir frá Árnason Faktor Sent í gegnum Samráðsgátt þann 21. febrúar 2020 Við höfum nú farið yfir þau drög að frumvarpi sem liggja fyrir til breytinga á lögum um vörumerki og viljum taka það fram að í þeim drögum er margt sem ber að fagna. Að því sögðu eru nokkur atriði sem við teljum mikilvægt að bætt verði inn – okkar röksemdir fyrir breytingartillögunum koma í kjölfar upptalningarinnar: 1. Bætt verði inn nýrri málsgrein í 3. gr. (á eftir 1. mgr.) sem væri efnislega svohljóðandi: Vörumerkjaréttur getur einnig stofnast, þegar litið verður svo á að vörumerki verði talið alþekkt hér á landi í skilningi 6. gr. bis Parísarsamþykktarinnar. 2. Bæta við tölulið í 1. mgr. 14. gr. sem kæmi beint á eftir 2. tl. sem væri efnislega svohljóðandi: ef villast má á því og vörumerki sem telst vel þekkt hér á landi og notkun yngra merkisins hefur án réttmætrar ástæðu í för með sér misnotkun eða rýrir aðgreiningareiginleika eða orðspor hins vel þekkta merkis. 3. Bætt verði inn nýrri málsgrein í 28. gr. b., beint á eftir 1. mgr., sem væri efnislega svohljóðandi: Hver sem er getur farið fram á niðurfellingu skráningar. 4. Bætt verði við málslið í lok 4. mgr. 33. gr. sem væri efnislega svohljóðandi: Þetta á þó ekki við kröfu laganna sem var í gildi fyrir þessar breytingar sem fól í sér skilyrði um að lögmætir hagsmunir væru til staðar til að geta fengið merki fellt niður eða takmarkað. Þá eru nokkur atriði sem snúa að orðalagi sem við leggjum til breytingar á og teljum að yrðu til mikilla bóta: 5. Notast verði við hugtakið alþjóðlega þekkt í frumvarpinu í stað hugtaksins alþekkt þegar fjallað er um merki í skilningi 6. gr. bis Parísarsamþykktarinnar. 6. Notast verði við orðasambandið ef hætt er við ruglingi á í stað ef villast má á eins og það er notað í frumvarpinu og í lögunum sem gildi eru í dag. 7. Skoða hvort notkun orðins merki eitt og sér nái ávallt yfir allar þær þrjár tegundir merkja sem falla undir lögin; vörumerki, félagamerki og ábyrgðar- og gæðamerki. Að öðrum kosti getur orðnotkunin að okkar mati valdið vafa að því leyti við hvers konar merki er átt. Okkar röksemdir fyrir breytingartillögunum í sömu röð og tilgreint er hér að framan: 1. Ísland hefur um árabil verið aðili að Parísarsamþykktinni um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar. Á grundvelli þeirrar samþykktar ber okkur að vernda sérstaklega hér á landi merki sem teljast alþekkt eða alþjóðlega þekkt í skilningi 6. gr. bis samþykktarinnar. Vernd alþekktra merkja í skilningi 6. gr. bis Parísarsamþykktarinnar byggist á öðru en því að réttur hafi stofnast með notkun hér á landi eða skráningu. Verndin byggist á því að um sé að ræða merki sem séu það alþjóðlega þekkt að það geti leitt til vörumerkjaréttinda yfir landamæri (þ.m.t. mögulega á Íslandi) óháð því hvort merkið hefur verið notað í viðkomandi landi eða skráð þar. Vernd alþekktra merkja verður því að vera viðurkennd sérstaklega í lögunum að okkar mati til að klárt sé að slíkur réttur getur stofnast og haft áhrif bæði á síðari umsóknir og notkun. Eina ákvæðið í drögunum eins og þau eru núna, um alþekkt vörumerki í skilningi 6. gr. bis Parísarsamþykktarinnar, er að finna í 10 gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að sérstakt ákvæði verði að finna í 2. tl., 1. mgr. 14. gr. þess efnis að ekki megi skrá vörumerki ef villast má á því og alþekktu merki. Hvergi er aftur á móti skýrt tekið fram að ekki megi nota vörumerki sem villast má á og alþekktu merki og lýtur tillaga okkar að því að bæta hér úr. Tillagan er að danskri fyrirmynd (sjá 2. mgr. 3. gr. dönsku laganna um vörumerki, LBK nr. 88 af 29.01.2019). 2. Hér á landi hefur einnig verið viðurkennd aukin vernd fyrir merki sem talist geta vel þekkt. Krafan hér snýr ekki að því hvort merki er vel þekkt alþjóðlega, heldur hvort merkið sé vel þekkt hér á landi. Verði slíkt talið sannað verður litið sem svo á að einkarétturinn sem fylgir slíku vörumerki annað hvort á grundvelli notkunar eða skráningar verði í raun víðtækari en mögulega skráningar merkisins eða notkun nær yfir (þ.e. nær líka yfir ólíkar vörur og / eða þjónustu). Þessi víðtækari vernd kemur fram í 4. gr. núverandi laga og í því frumvarpi sem liggur fyrir. Í 4. gr. er nánar tiltekið fjallað um hvað eigandi merkis megi banna öðrum að nota í atvinnustarfssemi. Öfugt við alþekktu merkin vantar inn í frumvarpsdrögin sambærilegt ákvæði sem bannar það að skrá vörumerki brjóti það á eldra vel þekktu merki og lýtur tillaga okkar að því að bæta hér úr. Tillagan er að danskri fyrirmynd (sjá 3. mgr. 15. gr., 1) dönsku laganna um vörumerki, LBK nr. 88 af 29.01.2019). Ákvæði sem þetta mun helst koma til notkunar í andmælamálum, þ.e. þegar þriðji aðili sem mögulega er eigandi vel þekkts merkis andmælir skráningu vörumerkis og byggir á því að merki sitt njóti víðtækari verndar en skráning þess eða notkun gefur tilefni til að ætla. Það sem er svo mikilvægt að hafa í huga í tengslum við bæði alþekkt og vel þekkt vörumerki er að velflest ef ekki öll alþekkt merki verða líka talin vel þekkt hér á landi og njóta þar með líka verndar hugsanlega fyrir ólíkar vörur og / eða þjónustu sbr. ákvæði laganna hvað það varðar. Merki sem eru aftur á móti vel þekkt hér á landi þurfa alls ekki að vera þekkt í öðrum löndum eða alþekkt / alþjóðlega þekkt. Hugtökin vel þekkt og alþekkt eru því að vissu leyti nátengd. 3. Í drögunum sem nú liggja fyrir er lagt til að afnema skilyrðið um að aðili hafi lögmætra hagsmuna að gæta til að fara fram á ógildingu skráningar (28. gr.). Er sú breyting mjög til bóta og til samræmis við það sem viðhaft hefur verið í löndunum í kringum okkur. Ekki er aftur á móti lögð til sama breyting hvað varðar kröfu um niðurfellingu skráningar (28. gr. b). Að okkar mati hlýtur að vera um mistök að ræða enda óeðlilegt að gera ríkari kröfur hvað það varðar að fara fram á niðurfellingu en ógildingu. Við leggjum því til að þessu verði bætt inn í frumvarpið til að taka af allan vafa um að aðili sem krefst niðurfellingar geti gert það óháð því hvort hann hafi lögmæta hagsmuni af slíkri kröfu eða ekki. 4. Þessi málsgrein, 4. mgr. 33. gr. í drögunum er í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2436/ESB eins og kemur fram í athugasemdum frumvarpsins. Að einu leyti eru þó að eiga sér stað breytingar á kaflanum um afmáningu skráningu hér á landi sem ekki voru í tilskipun ESB, hvorki fyrir eða eftir breytingar. Það er krafan um lögmæta hagsmuni. Að okkar mati er því mikilvægt að það komi sérstaklega fram í gildistökuákvæðinu að verið sé að afnema þá kröfu, einnig gagnvart merkjum sem skráð voru fyrir þær breytingar sem eru fyrirhugaðar á lögunum. Að öðrum kosti mun þessi krafa um lögmæta hagsmuni hanga inni um alla framtíð fyrir skráningar sem samþykktar voru fyrir gildistöku nýrra laga. Væri slíkt ófremdarástand að okkar mati þar sem það takmarkar mjög möguleikana á mögulegri ógildingu og / eða niðurfellingu þó að önnur skilyrði laganna væru uppfyllt. 5. Notkun hugtaksins alþekkt í íslensku lögunum er að okkar mati ekki heppileg og erfitt í framkvæmd. Það að eitthvað verði talið alþekkt gerir að okkar mati kröfur umfram það sem ætlunin er. Betra hugtak væri alþjóðlega þekkt. Hugtakið á að ná til þeirra merkja sem þekkt eru yfir landamæri og er vísun til þess því mjög til skýringa að okkar mati. Hugtakið alþjóðlega þekkt myndi líka aðgreina hugtakið skilmerkilega frá hugtakinu vel þekkt vörumerki. 6. Að endingu leggjum við til breytingu á notkun orðasambandsins ef villast má á (notað í 7. gr. og 14. gr.) og leggjum til að notast verði frekar við ef hætt er við ruglingi á. Þegar metið er hvort villast megi á tveimur merkjum eins og hefur verið í lögunum og er í drögunum núna er verið að leggja til grundvallar mat á einkaréttinum eins og hann er skilgreindur í 4. gr. núgildandi laga. Í þeirri skilgreiningu er talað um að hætta sé á ruglingi eða ruglingshætta eins og það er kallað í fræðunum. Það er alls ekki til einföldunar né hægðarauka að nota ólík hugtök yfir sömu hluti í sömu lögum. Leggjum við því til að þetta verði samræmt sem hluti af þeim breytingum sem gerðar verði á lögunum að þessu sinni. Með von um að ábendingar og athugasemdir þessar verði teknar til greina. Sé frekari upplýsinga óskað eða vakni frekari spurningar um framangreindar tillögur, þá erum við boðin og búin að vera til svara. Með vinsemd og virðingu, f.h. Árnason Faktor, Ásdís Magnúsdóttir, lögfr.

  • #2Magnús Hrafn Magnússon

    Meðfylgjandi sem fylgiskjal er umsögn Magnúsar Hrafns Magnússonar hrl og Valborgar Kjartansdóttur hdl. f.h. Sigurjónsson og Thor ehf.

  • #3Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarpið. f.h. Samtaka atvinnulífsins Heiðrún Björk Gísladóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 3 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. apríl 2020
    2 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Umræða
    2. umræða
    12 ræður · 47 mín
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 16 með, 39 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 4 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  20. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  21. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 5 á móti
  23. Þingskjal
  24. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1084Stjórnarfrumvarp5. mar. 2020Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
1646Nefndarálit8. jún. 2020Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir +5LesaPDF
1647Breytingartillaga8. jún. 2020Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir +6LesaPDF
1651Breytingartillaga8. jún. 2020Jón Þór ÓlafssonLesaPDF
1669Frumvarp eftir 2. umræðu22. jún. 2020—LesaPDF
1700Lög (samhlj.)12. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

14 alls · 11 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. mars 2020 kl. 17:11
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd12. mars 2020 kl. 17:11
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:57
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:57
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    2. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Fellt9. júní 2020 kl. 19:58
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Vörumerki“.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 10 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 8 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 6 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:59
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    3.--6. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 4 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:59
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Vörumerki“.
    1--11
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 20:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    7.--8. gr. (verða 7.--11. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:1 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 20:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    9. gr. (verður 12. gr.), svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 20:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    10.--12. gr. (verða 13.--15. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 20:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    13. gr. (verður 16. gr.)
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 20:01
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Vörumerki“.
    14.--34. gr. (verða 17.--39. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. júní 2020 kl. 20:01
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2020 kl. 18:35
    Að samþykkja frumvarpið „Vörumerki“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:7 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 4 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 1 á móti

Hverjir tóku til máls

14 ræður · 52 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 3 mín
  • 2. umræða: 12 ræður · 4 ræðumenn · 47 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 21. mar. 2020, frestur 20. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Árnason Faktor ehf.umsögnOpna PDF
Sigurjónsson og ThorumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.