Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 639. mál

Óundirbúinn fyrirspurnatími

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að efla lagalegt umhverfi starfandi sjóðs í eigu ríkisins þannig að Orkusjóður sé betur í stakk búinn að uppfylla fyrirliggjandi og ný viðfangsefni, sem stjórnvöld kunna að fela sjóðnum, án þess að það leiði til aukins kostnaðar við rekstur sjóðsins.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2020

Markmiðið

Að efla lagalegt umhverfi starfandi sjóðs í eigu ríkisins þannig að Orkusjóður sé betur í stakk búinn að uppfylla fyrirliggjandi og ný viðfangsefni, sem stjórnvöld kunna að fela sjóðnum, án þess að það leiði til aukins kostnaðar við rekstur sjóðsins.

Hvað breytist

Lagt er til að hlutverk Orkustjóðs verði skilgreint ítarlegar og víðar en nú er gert og að kveðið verði skýrar á um fyrirkomulag, fjármögnun og stjórnsýslu sjóðsins. Frumvarpið er liður í eflingu Orkusjóðs í samræmi við aukin verkefni hans, sem tengjast aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftlagsmálum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki hafa áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Njáll Trausti Friðbertsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ríkisendurskoðun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samtök iðnaðarins, Landsvirkjun o.fl. · allar umsagnir
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki hafa áhrif á fjárhag ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-15/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jan. 2020 – 10. feb. 2020· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um Orkusjóð

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Orkusjóð. Orkusjóði er með því ætlað aukið svigrúm til að styrkja orkutengd verkefni sem eru á hverjum tíma í samræmi við almenna stefnumótun stjórnvalda jafnt á sviði orkumála, nýsköpunar, byggðamála og loftlagsmála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-15/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. desember 2021)

Frumvarp lagt fram á Alþingi 2020 og afgreitt sem lög.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Valdimar Össurarson
    Valorka hefur á undanförnum árum ítrekað bent á nauðsyn þess að breytt verði starfsháttum Orkusjóðs í þá átt að hann verði virkt úrræði til stuðnings við þróun orkutækni og orkunotkunar líkt og honum er ætlað. Starfsemi Orkusjóðs hefur á undanförnum árum illa þjónað því hlutverki, og hefur sífellt hallað á verri veginn. Tvær meginástæður eru fyrir því, eins og bent hefur verið á: Annars vegar hefur Orkusjóður markvisst og meðvitað verið fjársveltur af stjórnvöldum. Valorka naut lítilsháttar styrkja Orkusjóðs við upphaf verkefnisins fyrir nær 10 árum, en m.a. vegna fjárveltis hefur sjóður… Lesa alla

    Valorka hefur á undanförnum árum ítrekað bent á nauðsyn þess að breytt verði starfsháttum Orkusjóðs í þá átt að hann verði virkt úrræði til stuðnings við þróun orkutækni og orkunotkunar líkt og honum er ætlað. Starfsemi Orkusjóðs hefur á undanförnum árum illa þjónað því hlutverki, og hefur sífellt hallað á verri veginn. Tvær meginástæður eru fyrir því, eins og bent hefur verið á: Annars vegar hefur Orkusjóður markvisst og meðvitað verið fjársveltur af stjórnvöldum. Valorka naut lítilsháttar styrkja Orkusjóðs við upphaf verkefnisins fyrir nær 10 árum, en m.a. vegna fjárveltis hefur sjóðurinn ekki styrkt þessa einu íslensku tækniþróun á sviði endurnýjanlegrar sjávarorku. Engin merki sjást um að bæta eigi fjárhag sjóðsins. Hinsvegar voru gerð stórfelld mistök við breytingu á lögum nr 87/2003 um Orkustofnun árið 2014, þegar felldur var út 2.tölul. 2.mgr. 8.gr laganna. Þessi töluliður kvað á um heimildir Orkusjóðs til „að veita styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar til rannsóknar og nýtingar orkulinda“. Ætlunin var að fella úr orðið „áhættulán“, þar sem þau voru ekki veitt, eins og sjá má í greinargerð lagabreytinganna. En fyrir flumbrugang atvinnuvegaráðuneytisins var allur töluliðurinn felldur út. Alþingismenn virtust ekkert taka eftir þessum mistökum, heldur samþykktu hina gölluðu lagabreytingu án nokkurrar umræðu eða athugasemda. Skaðsemi þessara mistaka atvinnuvegaráðuneytisins og Alþingis bitnaði samstundis á verkefnum Valorku og öðrum tækniþróunarverkefnum á sviði orkutækni; þeim verkefnum hefur síðan verið synjað um allan stuðning úr Orkusjóði. Öllum geta orðið á mistök, en hér brá svo við að Alþingi daufheyrðist við öllum ábendingum og beiðnum um leiðréttingu. Á sama tíma undirrituðu ráðamenn með hinni höndinni alþjóðslegar skuldbindingar, s.s. Parísarsáttmálann, sem kveða á um að íslensk stjórnvöld styðji þróun orkutækni sem stuðlar að alþjóðlegum markmiðum um orkuskipti á heimsvísu. Þeim skuldbindingum hafa íslensk stjórnvöld brugðist, sem sést best á því að þessu leiðandi verkefni á sviði sjávarorku hefur verið synjað um allan opinberan stuðning. Spilling í íslensku stjórnkerfi hefur að öllum líkindum einnig átt þátt í þessum synjunum. Valorka benti á það árið 2015 að þáverandi formaður ráðgjafarnefndar Orkusjóðs braut vanhæfisreglur við úthlutun styrkja og staðfesti umboðsmaður Alþingis það. Í kjölfarið hrökklaðist sá formaður úr því starfi, en hann hefur lengi verið einn af framámönnum stærsta stjórnmálaflokks landsins; þess flokks sem farið hefur með ráðuneyti nýsköpunar um langa hríð. Framkvæmdastjóri Valorku er einnig formaður Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna; einu hagsmunasamtaka hugvitsfólks í landinu, sem atvinnuvegaráðuneytið reynir nú af alefli að koma fyrir kattarnef og hefur svipt öllum stuðningi. Allt bendir þetta til spillingar í stjórnkerfinu; óeðlilegra stjórnarhátta sem bitna mjög á nýsköpun og framförum. Nauðsynlegt er að við alla lagasetningu í nýsköpunarumhverfinu sé fremur reynt að vinna gegn spillingu en búa til jarðveg fyrir hana. Það sem jákvætt má segja um þessi frumvarpsdrög að lögum um Orkusjóð er að um hann eru nú sett sérlög, en áður var Orkusjóður hluti af lögum um Orkustofnun. Með því virðist það gefið í skyn að sjóðurinn eigi að fá meira vægi og verða sjálfstæðari í störfum sínum en áður var. Í stað ráðgjafarnefndar kemur þriggja manna stjórn. En þetta er líka allt og sumt, og fremur villandi. Samkvæmt heimildum Valorku stendur ekki til að breyta neinu í framkvæmd eða hlutverki sjóðsins og enn er hann í slíku fjársvelti á þessu ári að ekkert verður gert utan þeirra gæluverkefna stjórnvalda sem hann hefur haft á hendi síðustu misseri; einkum á sviði rafbílavæðingar og kyndingar á köldum svæðum. Sjóðnum eru engar fjárveitingar ætlaðar til stuðnings við nýsköpun og tækniþróun á sviði orkumála. Hlutverk Orkusjóðs er algerlega óbreytt í hinum nýju lögum. Orðalag um hlutverk er að mestu tekið hrátt úr gömlu lögunum. Þó er bætt inn setningu um „samkeppnishæfni á sviði orkumála“. Það gæti vakið einhverjar vonir fyrir verkefni á borð við verkefni Valorku; sem einkum miða að tækniþróun og íslenska framleiðslu fyrir heimsmarkað; og að Íslendingar öðlist forystu á vissu sviði orkuframleiðslu. Í ljósi þess hvernig stjórnvöld hafa markvisst þjarmað að því verkefni, og í ljósi þess að engar fjárveitingar fylgja þessum fyrirheitum, má ætla að hér sé um innantóm orð að ræða. Orkusjóður mun að óbreyttu ekki sinna þessu hlutverki fremur en undanfarin ár; hvað sem líður orðalagi laganna. Frumvarpstillagan gerir ráð fyrir að stjórn Orkusjóðs verði pólitískt skipuð, en ekki valin útfrá hæfnissjónarmiðum. Slíkt sleifarlag hefur oftast verið viðhaft við skipan í stjórnir nýsköpunarsjóða, og er hluti þeirrar flokkspólitísku íhlutunar sem mjög háir allri nýsköpun í landinu. Ekki er í þessum lögum gerð minnsta tilraun til að tryggja fagmennsku í stjórn sjóðsins; heldur skal hinn pólitíski ráðherra vera alvaldur og einráður um stjórnarskipanina og þar með um starfsemi sjóðsins. Gera má því ráð fyrir að þar verði einvalalið flokkssystkina ráðherra. Ekki er því mikil von til þess að sjóðurinn starfi á óvilhallan hátt. Umsögn Valorku er því í stuttu máli sú að hér sé, að óbreyttu, illilega misnotað það tækifæri sem býðst með nýjum lögum til að undirbyggja heilbrigðan og nauðsynlegan stuðning við þróun orkutækni og orkunotkunar í landinu. Miklar byltingar eru framundan á heimsvísu með þeim orkuskiptum sem heimsríki hafa þegar komið sér saman um að nauðsynleg séu. Ný orkutækni er í hraðri þróun og nýir markaðir eru að opnast um allan heim fyrir hana; knúnir áfram af þessum orkuskiptum. Íslensk stjórnvöld eru enn algerlega steinsofandi og ómeðvituð um þau tækifæri sem þessar breytingar gætu fært íslenskri þjóð. Andstaðan við verkefni Valorku eru skýrt dæmi um það, en einnig sú lagasetning sem hér er á ferð. Valorka skorar því á Alþingi að samþykkja ekki þetta ófullburða frumvarp sem lög; heldur beita sér fyrir því að efla og styrkja grundvöll Orkusjóðs með framsæknum og raunhæfum lögum sem þjóna viðkomandi geirum fremur en pólitískum flokkahagsmunum. Ekki mun standa á Valorku eða öðrum frumkvöðlum að leggja ráð og reynslu að þeirri lagasmíð. 08.02.2020 Valdimar Össurarson frkvstj Valorku

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpsdrögin. F.h. sambandsins Guðjón Bragason

  • #3Erla Björgvinsdóttir

    Meðfylgjand er umsögn Landsvirkjunar.

  • #4Samtök iðnaðarins

    Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um frumvarpsdrögin.

  • #5Orkuveita Reykjavíkur

    Góðan daginn Hjálagt fylgir umsögn Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga um frumvarp til laga um Orkusjóð. Bkv. Íris Lind

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. apríl 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 21. mar. 2020, frestur 20. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
RíkisendurskoðunminnisblaðOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Valorka ehfumsögnOpna PDF
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.