Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 639. mál

Orkusjóður

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 26. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að efla lagalegt umhverfi starfandi sjóðs í eigu ríkisins þannig að Orkusjóður sé betur í stakk búinn að uppfylla fyrirliggjandi og ný viðfangsefni, sem stjórnvöld kunna að fela sjóðnum, án þess að það leiði til aukins kostnaðar við rekstur sjóðsins.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 26. jún. 2020 greiddu 49 atkvæði með og 0 á móti, 6 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. mars 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
10
Umræða í þingsal
195 ræður · 7 klst. 33 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2020

Markmiðið

Að efla lagalegt umhverfi starfandi sjóðs í eigu ríkisins þannig að Orkusjóður sé betur í stakk búinn að uppfylla fyrirliggjandi og ný viðfangsefni, sem stjórnvöld kunna að fela sjóðnum, án þess að það leiði til aukins kostnaðar við rekstur sjóðsins.

Hvað breytist

Lagt er til að hlutverk Orkustjóðs verði skilgreint ítarlegar og víðar en nú er gert og að kveðið verði skýrar á um fyrirkomulag, fjármögnun og stjórnsýslu sjóðsins. Frumvarpið er liður í eflingu Orkusjóðs í samræmi við aukin verkefni hans, sem tengjast aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftlagsmálum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki hafa áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Njáll Trausti Friðbertsson

Lokaatkvæðagreiðsla
26. jún. 2020
Samþykkt49 með · 0 á móti · 6 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Orkusjóður“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 239–0
  • M8–0
  • F7–0
  • Sf6–0
  • 430–0 · 6 hjá
  • V3–0
  • Flf1–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. apr. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Ríkisendurskoðun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samtök iðnaðarins, Landsvirkjun o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 klst. 33 mín · 195 ræður
20 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki hafa áhrif á fjárhag ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 26. júní 2020: 49 með, 0 á móti, 6 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með9 tóku til máls

Sýna 3 í viðbót

40 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá5 tóku til máls

1 annar sat hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-15/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jan. 2020 – 10. feb. 2020· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um Orkusjóð

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um Orkusjóð. Orkusjóði er með því ætlað aukið svigrúm til að styrkja orkutengd verkefni sem eru á hverjum tíma í samræmi við almenna stefnumótun stjórnvalda jafnt á sviði orkumála, nýsköpunar, byggðamála og loftlagsmála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-15/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. desember 2021)

Frumvarp lagt fram á Alþingi 2020 og afgreitt sem lög.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Valdimar Össurarson
    Valorka hefur á undanförnum árum ítrekað bent á nauðsyn þess að breytt verði starfsháttum Orkusjóðs í þá átt að hann verði virkt úrræði til stuðnings við þróun orkutækni og orkunotkunar líkt og honum er ætlað. Starfsemi Orkusjóðs hefur á undanförnum árum illa þjónað því hlutverki, og hefur sífellt hallað á verri veginn. Tvær meginástæður eru fyrir því, eins og bent hefur verið á: Annars vegar hefur Orkusjóður markvisst og meðvitað verið fjársveltur af stjórnvöldum. Valorka naut lítilsháttar styrkja Orkusjóðs við upphaf verkefnisins fyrir nær 10 árum, en m.a. vegna fjárveltis hefur sjóður… Lesa alla

    Valorka hefur á undanförnum árum ítrekað bent á nauðsyn þess að breytt verði starfsháttum Orkusjóðs í þá átt að hann verði virkt úrræði til stuðnings við þróun orkutækni og orkunotkunar líkt og honum er ætlað. Starfsemi Orkusjóðs hefur á undanförnum árum illa þjónað því hlutverki, og hefur sífellt hallað á verri veginn. Tvær meginástæður eru fyrir því, eins og bent hefur verið á: Annars vegar hefur Orkusjóður markvisst og meðvitað verið fjársveltur af stjórnvöldum. Valorka naut lítilsháttar styrkja Orkusjóðs við upphaf verkefnisins fyrir nær 10 árum, en m.a. vegna fjárveltis hefur sjóðurinn ekki styrkt þessa einu íslensku tækniþróun á sviði endurnýjanlegrar sjávarorku. Engin merki sjást um að bæta eigi fjárhag sjóðsins. Hinsvegar voru gerð stórfelld mistök við breytingu á lögum nr 87/2003 um Orkustofnun árið 2014, þegar felldur var út 2.tölul. 2.mgr. 8.gr laganna. Þessi töluliður kvað á um heimildir Orkusjóðs til „að veita styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar til rannsóknar og nýtingar orkulinda“. Ætlunin var að fella úr orðið „áhættulán“, þar sem þau voru ekki veitt, eins og sjá má í greinargerð lagabreytinganna. En fyrir flumbrugang atvinnuvegaráðuneytisins var allur töluliðurinn felldur út. Alþingismenn virtust ekkert taka eftir þessum mistökum, heldur samþykktu hina gölluðu lagabreytingu án nokkurrar umræðu eða athugasemda. Skaðsemi þessara mistaka atvinnuvegaráðuneytisins og Alþingis bitnaði samstundis á verkefnum Valorku og öðrum tækniþróunarverkefnum á sviði orkutækni; þeim verkefnum hefur síðan verið synjað um allan stuðning úr Orkusjóði. Öllum geta orðið á mistök, en hér brá svo við að Alþingi daufheyrðist við öllum ábendingum og beiðnum um leiðréttingu. Á sama tíma undirrituðu ráðamenn með hinni höndinni alþjóðslegar skuldbindingar, s.s. Parísarsáttmálann, sem kveða á um að íslensk stjórnvöld styðji þróun orkutækni sem stuðlar að alþjóðlegum markmiðum um orkuskipti á heimsvísu. Þeim skuldbindingum hafa íslensk stjórnvöld brugðist, sem sést best á því að þessu leiðandi verkefni á sviði sjávarorku hefur verið synjað um allan opinberan stuðning. Spilling í íslensku stjórnkerfi hefur að öllum líkindum einnig átt þátt í þessum synjunum. Valorka benti á það árið 2015 að þáverandi formaður ráðgjafarnefndar Orkusjóðs braut vanhæfisreglur við úthlutun styrkja og staðfesti umboðsmaður Alþingis það. Í kjölfarið hrökklaðist sá formaður úr því starfi, en hann hefur lengi verið einn af framámönnum stærsta stjórnmálaflokks landsins; þess flokks sem farið hefur með ráðuneyti nýsköpunar um langa hríð. Framkvæmdastjóri Valorku er einnig formaður Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna; einu hagsmunasamtaka hugvitsfólks í landinu, sem atvinnuvegaráðuneytið reynir nú af alefli að koma fyrir kattarnef og hefur svipt öllum stuðningi. Allt bendir þetta til spillingar í stjórnkerfinu; óeðlilegra stjórnarhátta sem bitna mjög á nýsköpun og framförum. Nauðsynlegt er að við alla lagasetningu í nýsköpunarumhverfinu sé fremur reynt að vinna gegn spillingu en búa til jarðveg fyrir hana. Það sem jákvætt má segja um þessi frumvarpsdrög að lögum um Orkusjóð er að um hann eru nú sett sérlög, en áður var Orkusjóður hluti af lögum um Orkustofnun. Með því virðist það gefið í skyn að sjóðurinn eigi að fá meira vægi og verða sjálfstæðari í störfum sínum en áður var. Í stað ráðgjafarnefndar kemur þriggja manna stjórn. En þetta er líka allt og sumt, og fremur villandi. Samkvæmt heimildum Valorku stendur ekki til að breyta neinu í framkvæmd eða hlutverki sjóðsins og enn er hann í slíku fjársvelti á þessu ári að ekkert verður gert utan þeirra gæluverkefna stjórnvalda sem hann hefur haft á hendi síðustu misseri; einkum á sviði rafbílavæðingar og kyndingar á köldum svæðum. Sjóðnum eru engar fjárveitingar ætlaðar til stuðnings við nýsköpun og tækniþróun á sviði orkumála. Hlutverk Orkusjóðs er algerlega óbreytt í hinum nýju lögum. Orðalag um hlutverk er að mestu tekið hrátt úr gömlu lögunum. Þó er bætt inn setningu um „samkeppnishæfni á sviði orkumála“. Það gæti vakið einhverjar vonir fyrir verkefni á borð við verkefni Valorku; sem einkum miða að tækniþróun og íslenska framleiðslu fyrir heimsmarkað; og að Íslendingar öðlist forystu á vissu sviði orkuframleiðslu. Í ljósi þess hvernig stjórnvöld hafa markvisst þjarmað að því verkefni, og í ljósi þess að engar fjárveitingar fylgja þessum fyrirheitum, má ætla að hér sé um innantóm orð að ræða. Orkusjóður mun að óbreyttu ekki sinna þessu hlutverki fremur en undanfarin ár; hvað sem líður orðalagi laganna. Frumvarpstillagan gerir ráð fyrir að stjórn Orkusjóðs verði pólitískt skipuð, en ekki valin útfrá hæfnissjónarmiðum. Slíkt sleifarlag hefur oftast verið viðhaft við skipan í stjórnir nýsköpunarsjóða, og er hluti þeirrar flokkspólitísku íhlutunar sem mjög háir allri nýsköpun í landinu. Ekki er í þessum lögum gerð minnsta tilraun til að tryggja fagmennsku í stjórn sjóðsins; heldur skal hinn pólitíski ráðherra vera alvaldur og einráður um stjórnarskipanina og þar með um starfsemi sjóðsins. Gera má því ráð fyrir að þar verði einvalalið flokkssystkina ráðherra. Ekki er því mikil von til þess að sjóðurinn starfi á óvilhallan hátt. Umsögn Valorku er því í stuttu máli sú að hér sé, að óbreyttu, illilega misnotað það tækifæri sem býðst með nýjum lögum til að undirbyggja heilbrigðan og nauðsynlegan stuðning við þróun orkutækni og orkunotkunar í landinu. Miklar byltingar eru framundan á heimsvísu með þeim orkuskiptum sem heimsríki hafa þegar komið sér saman um að nauðsynleg séu. Ný orkutækni er í hraðri þróun og nýir markaðir eru að opnast um allan heim fyrir hana; knúnir áfram af þessum orkuskiptum. Íslensk stjórnvöld eru enn algerlega steinsofandi og ómeðvituð um þau tækifæri sem þessar breytingar gætu fært íslenskri þjóð. Andstaðan við verkefni Valorku eru skýrt dæmi um það, en einnig sú lagasetning sem hér er á ferð. Valorka skorar því á Alþingi að samþykkja ekki þetta ófullburða frumvarp sem lög; heldur beita sér fyrir því að efla og styrkja grundvöll Orkusjóðs með framsæknum og raunhæfum lögum sem þjóna viðkomandi geirum fremur en pólitískum flokkahagsmunum. Ekki mun standa á Valorku eða öðrum frumkvöðlum að leggja ráð og reynslu að þeirri lagasmíð. 08.02.2020 Valdimar Össurarson frkvstj Valorku

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpsdrögin. F.h. sambandsins Guðjón Bragason

  • #3Erla Björgvinsdóttir

    Meðfylgjand er umsögn Landsvirkjunar.

  • #4Samtök iðnaðarins

    Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um frumvarpsdrögin.

  • #5Orkuveita Reykjavíkur

    Góðan daginn Hjálagt fylgir umsögn Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga um frumvarp til laga um Orkusjóð. Bkv. Íris Lind

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 11 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. apríl 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    13 ræður · 37 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 6 með, 33 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 2 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 4 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 2 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  18. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  19. Þingskjal
  20. Þingskjal
  21. Umræða
    3. umræða
    177 ræður · 6 klst. 44 mín
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  23. Þingskjal
  24. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 49 með, 0 á móti

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1083Stjórnarfrumvarp5. mar. 2020Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
1643Nál. með brtt.8. jún. 2020Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson +5LesaPDF
1644Breytingartillaga8. jún. 2020Jón Þór ÓlafssonLesaPDF
1668Frumvarp eftir 2. umræðu11. jún. 2020—LesaPDF
1800Nál. með brtt.24. jún. 2020Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson +6LesaPDF
1878Lög í heild26. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

14 alls · 10 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. mars 2020 kl. 17:07
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd12. mars 2020 kl. 17:07
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:49
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:49
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    2.--3. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Fellt9. júní 2020 kl. 19:51
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Orkusjóður“.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 9 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 3 á móti · 2 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 6 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:51
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    4.--5. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 2 á móti · 2 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:52
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Orkusjóður“.
    1--2
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:54
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    6.--7. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    8. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 4 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 19:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Orkusjóður“.
    9. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 2 á móti · 2 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. júní 2020 kl. 19:56
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd9. júní 2020 kl. 19:56
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt26. júní 2020 kl. 10:39
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Orkusjóður“.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt26. júní 2020 kl. 10:41
    Að samþykkja frumvarpið „Orkusjóður“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

195 ræður · 7 klst. 33 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 11 mín
  • 2. umræða: 13 ræður · 3 ræðumenn · 37 mín
  • 3. umræða: 177 ræður · 22 ræðumenn · 6 klst. 44 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Steingrímur J. SigfússonUtan þingflokka11 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka22 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn22 mín
Inga SælandFlokkur fólksins24 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin34 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn24 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins34 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn24 mín
Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirSjálfstæðisflokkur37 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin69 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn718 mín
Njáll Trausti FriðbertssonSjálfstæðisflokkur1121 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn1130 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka1435 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka1642 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka1946 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn1846 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka2050 mín
Albertína Friðbjörg ElíasdóttirSamfylkingin2758 mín
Jón Þór ÓlafssonUtan þingflokka221 klst. 1 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 21. mar. 2020, frestur 20. apr. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
RíkisendurskoðunminnisblaðOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Valorka ehfumsögnOpna PDF
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.