Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 612. mál

Íslensk landshöfuðlén

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 5. mar. 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að stuðla að öruggum, hagkvæmum og skilvirkum aðgangi að íslenskum landshöfuðlénum og styrkja tengsl þeirra við Ísland, með því að kveða á um örugga, gagnsæja og skilvirka umsýslu þeirra.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
2. mars 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
6 ræður · 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. okt. 2020

Markmiðið

Að stuðla að öruggum, hagkvæmum og skilvirkum aðgangi að íslenskum landshöfuðlénum og styrkja tengsl þeirra við Ísland, með því að kveða á um örugga, gagnsæja og skilvirka umsýslu þeirra.

Hvað breytist

Verði frumvarpið að lögum taka gildi allvíðtæk lög um íslensk landshöfuðlén. Ekki hafa verið í gildi sérstök lög um landshöfuðlén til þessa þótt þau hafi verið í notkun um langt árabil. Lagt er til að settar verði skýrar lágmarksreglur um skráningu léna undir landshöfuðsléninu .is og skráningarstofu þess.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

ISNIC – lénaskrá Íslands.

DK Hostmaster – lénaskrá Danmerkur.

FICIX – lénaskrá Finnlands.

NORID – lénaskrá Noregs.

Internetstiftelsen – lénaskrá Svíþjóðar.

NOMINET – lénaskrá Bretlands.

DENIC – lénaskrá Þýskalands.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Lov om internetdomæner (Domæneloven) LBK nr 164 af 26/02/2014.

Finnland

Lag om tjänster inom elektronisk kommunikation 7.11.2014/917.

Noregur

Forskrift om domenenavn under norske landkodetoppdomener (domeneforskriften) FOR-2003-08-01-990.

Svíþjóð

Lag om nationella toppdomäner för Sverige på internet (2006:24).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 24. mar. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Magnús Soffaníusson og Sigríður Finsen, Persónuvernd, Internet á Íslandi hf - ISNIC, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, Póst- og fjarskiptastofnun · allar umsagnir
Umræða í þingsal
31 mín · 6 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-156/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 20. júl. 2019· 6 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að semja nýtt frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-156/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. júlí 2019)

Niðurstaða málsins er í stuttu máli að fimm umsagnir bárust. Frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is mun verða sett í opið samráð í september nk. með öllum almennum fyrirvörum. Sjá skýrslu um samráð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Gestur Andrés Grjetarsson
    Það hefur alltaf verið örugsnúið og óréttlátt hvernig högun skráninga í .is , frá upphafi hafa viðgengist ýmsar hindranir, sem staðið hafa í veginum fyrir almennum skráningum, byggðar á tortryggni, fordómum og sérhagsmunum. Reglur hafa jafnvel verið settar sem misnotuðu opinber skráningarkerfi, eins og td. þegar krafist var að lén .is væri tengt nafni sem visaði í heiti skráningaraðila, þannig að skráð voru mýmörg áhugamannafélög fyrir kennitölurnar til að skrá lénin. Margt annað mjög einkennilegt hefur verið krafist tengt skráningum sem hefur bara verið til að hamla fyrir uppbyggingu og þek… Lesa alla

    Það hefur alltaf verið örugsnúið og óréttlátt hvernig högun skráninga í .is , frá upphafi hafa viðgengist ýmsar hindranir, sem staðið hafa í veginum fyrir almennum skráningum, byggðar á tortryggni, fordómum og sérhagsmunum. Reglur hafa jafnvel verið settar sem misnotuðu opinber skráningarkerfi, eins og td. þegar krafist var að lén .is væri tengt nafni sem visaði í heiti skráningaraðila, þannig að skráð voru mýmörg áhugamannafélög fyrir kennitölurnar til að skrá lénin. Margt annað mjög einkennilegt hefur verið krafist tengt skráningum sem hefur bara verið til að hamla fyrir uppbyggingu og þekkingarsköpun. Þetta hefur alltaf verið okur hvernig .is lén eru skráð og háð duttlungum sérhagsmunaafla. Þetta á alls ekki að vera í einkafyrirtæki sem heldur utanum skraningar á .IS , heldur opinber stofnun sem gerir það á kostnaðarverði. Að skrá íslenskt lén á ekkert að vera í umsjá einkaaðila og stýrt af hagnaðarsjónarmiðum, þetta á að vera á kostnaðarverði og engin hindrun í framkvæmd, gera sem flestum að skrá sem mest af lénum í .is , hafa þetta algerlega sjálfvirkt, engar hindranir, ekkert háð duttlungum sérvirtringa og afturhaldsseggja, eða hvað þá háð einhverju boðvaldi misvitra einstaklinga á personulegum grunni. Eina gilda reglan um skráningu .is léna á að vera fyrstur kemur fyrstur fær, með fyrirvara um hugsanlega hugverkarétt eða einkarétt osfrv. Að einhverjir sjalfumglaðir montnir misvitrir kverúlantar geti makað krókinn... með einkaleyfi, gert boð og bönn á persónulegum grunni, geta brotið reglur sem eru í gildi osfrv. er óþolandi með svona opinbera eign sem .is rótarlénið er. Kostnaðarverð á að viðhafa undantekningarlaust , setja lög um þaö, hindra algerlega að þetta sé hagnaðardrifið, og tryggja öllum rétt aðgengi að því að skrá sér lén. Það á að gera sem flestum kleift að skrá sér .is lén, hafa þetta á kostnaðar verði og tryggja að ekki bara þeir sem eru í góðum álnum eða góðum vinasamböndum geti skráð sér lén eins og viðgengst í dag. Það er bara bull að hindra aðgang. Ef þú kynnir þér sögu skráninga léna í .IS frá upphafi, myndirðu sjá hvurslags þröngsýni og afturhaldssemi hefur stjórnað þessu hér gegnum tíðina, sérstaklega í upphafi. Skráningarreglur búnar til og háðar duttlungum misvitra manna sem þykjast hafa meira vit á þessu en aðrir. Það eru ótrúlega heimskar reglur sem hafa oft gilt um skráningar á íslenskum lénum í gegnum tíðina, þetta hefur lagast en það er langt í land með að þetta sé almennt i lagi. Eitt sinn sagði mjög sjálfumglaður og þröngsýnn maður sem kom að stjórnun ISNET á sínum tíma, við mig þegar ég stofnaði Islandia Internet árið 1994 að almenningur ætti ekkert erindi á netið og það væri ekki áhugi á að opna á það. Sami maður sagði "ég er internetið.." Svona er óviðeigandi , svona á ekki að geta viðgengist. Netið á bara alls ekki að vera rekið á persónulegum eiginhagsmunna grunni. Almenningur á allan rétt á að nýta ser netið og án tafar á að eyða á út öllum hindrunum, gera þetta eins ódýrt og kostur er, með alsjalfvirkum portal sem sér um skráningar og afskráningar. Við eigum án tafar að opna þetta og selja á kostnaðarverði, alls ekki hagnaðardrifið og taka þetta án tafar af einkaaðilanum. Ef vilji er til að ræða þessi mál frekar, er velkomið að hafa samband við mig. virðingarfyllst Gestur A. Grjetarsson, sími 8565130 tölvuumsjón Borgarbyggðar

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um áform um frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is.

  • #3Jens Pétur Jensen
    ISNIC telur að ekki hafi verið sýnt fram á þörf fyrir setningu sérstakrar löggjafar um landshöfuðlénið .is. Í áformaskjali ráðuneytisins kemur fram að hvergi sé minnst á lén í íslenskri löggjöf. ISNIC bendir á að á því varð breyting með gildistöku laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, sem samþykkt voru á Alþingi 11. júní sl. Þá liggur fyrir ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um nið… Lesa alla

    ISNIC telur að ekki hafi verið sýnt fram á þörf fyrir setningu sérstakrar löggjafar um landshöfuðlénið .is. Í áformaskjali ráðuneytisins kemur fram að hvergi sé minnst á lén í íslenskri löggjöf. ISNIC bendir á að á því varð breyting með gildistöku laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, sem samþykkt voru á Alþingi 11. júní sl. Þá liggur fyrir ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004 í EES-samninginn. Gerðin hefur m.a. að geyma ákvæði um lén og lénaskráningarfyrirtæki. Því er ljóst að með innleiðingu hennar í íslenskan rétt bætist enn við umfjöllun um lén í íslenskri löggjöf. Þá bendir ISNIC á að fjölmörg ákvæði íslenskra laga, svo sem laga um eftirlit með viðskiptaháttum um markaðssetningu, nr. 57/2005, varða lén og lénaskráningu með beinum eða óbeinum hætti þótt hugtakið lén sé ekki sérstaklega tilgreint. ISNIC telur að markmið áformaðrar lagasetningar séu óljós og að þeim markmiðum, sem tilgreind eru með áformunum, hafi ýmist þegar verið náð, sbr. umfjöllun að framan, eða þeim megi ná með einfaldari og minna íþyngjandi hætti en með lagasetningu. ISNIC bendir góðfúslega á að fullyrðingar um að sambærilega löggjöf um landshöfuðlén sé víðast hvar að finna eru rangar. Rétt er að lög um landshöfuðlén hafa verið sett í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Engin slík lög er að finna um landshöfuðlén annars staðar á Norðurlöndum, né heldur um langstærstu landshöfuðlén Evrópu, .de í Þýskalandi og .uk í Bretlandi, svo dæmi séu tekin. Samtals stýra lénaskráningarfyrirtæki þeirra léna (DENIC e.G. og Nominet Ltd.) yfir 25.000.000 léna, eða yfir 70% af öllum lénum skráðum undir landshöfuðlénum í Evrópu. Verði niðurstaða stjórnvalda eigi að síður sú að samið verði frumvarp til nýrra heildarlaga um .is, eins og áformin gefa til kynna, leggur ISNIC áherslu á að frumvarpið innihaldi ekki íþyngjandi ákvæði og minnir á stefnu stjórnvalda um einföldun regluverks, sbr. umfjöllun í umsögn Samtaka atvinnulífsins um áformin, dags. 11. júlí sl. ISNIC varar við því að íþyngjandi kvaðir myndu hefta þróun starfseminnar og draga úr samkeppnishæfni .is-höfuðlénsins. ISNIC bendir á að markaðshlutdeild .is á Íslandi er nú komin undir 50% skv. tölum frá Center.org (samtök lénaskráningarfyrirtækja í Evrópu) og hefur hún dregist saman á undanförnum árum eftir því sem mjög stórum aðilum á borð við Facebook, Google og Verisign (skráningaraðili .com) hefur vaxið fiskur um hrygg. Að lokum bendir ISNIC á að internetið, þ. á m. lénaheitakerfið, er í sífelldri þróun sem ómögulegt er að sjá fyrir. Afar mikilvægt er að lög og reglur á sviði internetsins standi eðlilegri þróun þjónustunnar ekki í vegi. Því er lykilatriði, verði áformin að veruleika, að lög um landshöfuðlénið .is, verði almenns eðlis, en innihaldi ekki sértækar kvaðir sem takmarka myndu nauðsynlegt svigrúm ISNIC svo landshöfuðlénið .is geti þróast og tekið breytingum með eðlilegum hætti í síaukinni samkeppni um notendur internetsins. Stjórn Internets á Íslandi hf. ISNIC Katrínartúni 2, 18. hæð 105 Reykjavík.

  • #4Ólafur Jón Jónsson
    Mikilvægt er að samkeppni komist á hvað varðar sölu á .is lénum. Í dag er einn aðili sem einkarétt á þessari sölu sem hefur tryggðar árstekjur af því upp á 350-400 milljónir króna. Þetta er afar óeðlilegt fyrirkomulag sem vinda þarf ofan af. Ríkið á að sjá um heildsölu og taka fyrir það sanngjarnt gjald, en smásalar sjá um að endurselja til endanlegra kaupenda. Ríkið rekur þá innviði sem nauðsynlegir eru til að tryggja hnökralausan rekstur .is lénsins og viðheldur því öryggisstigi sem kröfur eru gerðar um. Ef ágreiningur er um eignarhald .is höfuðlénsins þarf að gera út um hann. Þetta lén á… Lesa alla

    Mikilvægt er að samkeppni komist á hvað varðar sölu á .is lénum. Í dag er einn aðili sem einkarétt á þessari sölu sem hefur tryggðar árstekjur af því upp á 350-400 milljónir króna. Þetta er afar óeðlilegt fyrirkomulag sem vinda þarf ofan af. Ríkið á að sjá um heildsölu og taka fyrir það sanngjarnt gjald, en smásalar sjá um að endurselja til endanlegra kaupenda. Ríkið rekur þá innviði sem nauðsynlegir eru til að tryggja hnökralausan rekstur .is lénsins og viðheldur því öryggisstigi sem kröfur eru gerðar um. Ef ágreiningur er um eignarhald .is höfuðlénsins þarf að gera út um hann. Þetta lén á ófrávíkjanlega að vera í eigu íslenska ríkisins, ekki einkaaðila.

  • #5Fróði Steingrímsson

    Umsögn send fyrir hönd STEFs, SÍK, SFH og FRÍSK.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-214/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2019 – 16. sep. 2019· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-214/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. september 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. maí 2020)

Niðurstaðan var í stuttu máli sú að 5 umsagnir bárust - þrjár í samráðsgátt og tvær beint til ráðuneytisins. Tekið var tillit til athugasemda eins og efni gafst til. Ein umsögn barst eftir að frumvarpið var sent í lokafrágang og verður hún tekin til skoðunar við þinglega meðferð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Neytendastofa

    Meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins um drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén.

  • #3Bjarni Rúnar Einarsson
    Varðandi 11. grein, þá þarf í það minnsta að skilgreina betur hvað felst í því að lén hafi "tengsl við ólöglegt efni" eða "tengsl við skipulagða brotastarfsemi." Af greinargerð og samhengi, má ætla að átt sé við að lénið sé markvisst notað til að greiða fyrir aðgengi og útbreiðslu slíks efnis. Ef það er rétt túlkun, þá er full ástæða til að skerpa á þessu og forðast orðið "tengsl." Tengsl er, a.m.k. í daglegu tali (ég er ekki lögfræðingur), öllu víðara hugtak. Til dæmis hefur Facebook "tengsl" við allskonar glæpasamtök, og á vef þeirra er einnig að finna efni sem telst ólöglegt og hve… Lesa alla

    Varðandi 11. grein, þá þarf í það minnsta að skilgreina betur hvað felst í því að lén hafi "tengsl við ólöglegt efni" eða "tengsl við skipulagða brotastarfsemi." Af greinargerð og samhengi, má ætla að átt sé við að lénið sé markvisst notað til að greiða fyrir aðgengi og útbreiðslu slíks efnis. Ef það er rétt túlkun, þá er full ástæða til að skerpa á þessu og forðast orðið "tengsl." Tengsl er, a.m.k. í daglegu tali (ég er ekki lögfræðingur), öllu víðara hugtak. Til dæmis hefur Facebook "tengsl" við allskonar glæpasamtök, og á vef þeirra er einnig að finna efni sem telst ólöglegt og hvetur til lögbrota. Slíkt hið sama má fullyrða um marga aðra fjölmiðla, bæði innlenda og erlenda, sérstakleg þegar hugað er að því að margir miðlar birta athugasemdir lesenda (samráðsgáttin þar með talin!) og þar kemur því miður fyrir að hvatt sé til ofbeldisverka eða glæpa af ýmsum toga. Þó dettur engum í hug að þetta sé markmið og tilgangur þessara miðla og það skýtur skökku við að lögin bjóði upp á slíka valdníðslu að lénið sé tekið af þeim vegna athugasemda þriðja aðila í vefspjalli. Þegar þessi grein er skoðuð í víðara samhengi, er óhjákvæmilegt að minnast þess að tjáningarfrelsi eru mannréttindi (sjá 19. grein mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna) og fólki greinir iðulega á um hvort sum gildandi lög séu réttmæt. Að geta rætt lögin, að geta mótmælt, skipulagt og hvatt til mótmælaaðgerða - jafnvel aðgerða sem kunna að stangast á við lög hverju sinni - er mikilvægur liður í því að samfélag og lagaramminn þróist og breytist. Gleðiganga hinsegin fólks á rætur sínar að rekja til harkalegra (ólöglegra) mótmæla gegn ofríki og ofbeldis lögreglu erlendis, löng hefð er fyrir því að hvetja til ólöglegs Bingós á Föstudeginum Langa hér á landi, og í dag eru ákaflega skiptar skoðanir um hvort við séum að taka "rétt" á fíkniefnavanda, svo nokkur dæmi séu nefnd. Ef 11. grein þykir bráðnauðsynleg, þá vona ég að tekið verði tillit til þessara sjónarmiða, málfrelsið virt og heimildin þrengd eins og unnt er. Hún virðist of víð í drögunum í dag. Með kveðju, - Bjarni Rúnar Einarsson

  • #4Samgönguráðuneytið birtir umsögn Persónuverndar

    Sjá skjal

  • #5Samgönguráðuneytið birtir umsögn Hugverkastofu

    Sjá skjal

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    6 ræður · 31 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 24. mars 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1031Stjórnarfrumvarp2. mar. 2020Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur5. mars 2020 kl. 13:45
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd5. mars 2020 kl. 13:46
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

6 ræður · 31 mín
  • 1. umræða: 6 ræður · 2 ræðumenn · 31 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 10. mar. 2020, frestur 24. mar. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Magnús Soffaníusson og Sigríður FinsenumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Internet á Íslandi hf - ISNICumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Póst- og fjarskiptastofnunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.