Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 607. mál

Fasteignalán til neytenda

Viðskipti lánamiðlara yfir landamæri

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 9. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að ljúka við innleiðingu fasteignalánatilskipunar ESB. Að gera neytendum kleift að taka annars vegar fasteignalán til kaupa á fasteign hér á landi og hins vegar neytendalán þó svo að tekjur þeirra séu í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 9. jún. 2020 greiddu 56 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
28. febrúar 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
3 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 10. jún. 2020

Markmiðið

Að ljúka við innleiðingu fasteignalánatilskipunar ESB. Að gera neytendum kleift að taka annars vegar fasteignalán til kaupa á fasteign hér á landi og hins vegar neytendalán þó svo að tekjur þeirra séu í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu.

Hvað breytist

Breytingar sem lagðar eru til á bæði fasteignalánalögum og neytendalánalögum: Lagt er til að réttur neytanda til að breyta eftirstöðvum láns, sem tengist erlendum gjaldmiðlum, í lán, sem tengist ekki erlendum gjaldmiðlum, eigi ekki við þegar lánsfjárhæð og veð, sem sett er til tryggingar láninu, t.d. í íbúðarhúsnæði, eru bæði í sama gjaldmiðli, s.s. íslenskum krónum. Lagt er til að lánveitanda verði heimilt í samningi að takmarka breytirétt neytanda við einn eða fleiri gjaldmiðla í þeim tilvikum sem fleiri en einn kemur til greina m.t.t. aðstæðna neytanda við lántöku.

Breytingar sem lagðar eru til á fasteignalánalögum: Lagt er til að lánveitanda verði aðeins skylt að veita neytanda einu sinni á ári, í stað tvisvar líkt og nú er, upplýsingar um gengisbreytingar fasteignaláns, sem tengist erlendum gjaldmiðlum. Lagt er til að skerpt verði á kröfu um aðvörunarskyldu lánveitanda þegar eftirstöðvar láns eða reglulegar endurgreiðslur breytast um meira en 20% miðað við gengi á þeim tíma sem samningur um fasteignalán var gerður. Þar að auki er gert ráð fyrir að veita skuli upplýsingar um breytingu á heildarfjárhæð, sem neytandi skal greiða, og áætlaða fjárhæð næstu reglulegu endurgreiðslu í stað þess að veita upplýsingar um breytingu heildarfjárhæðar, sem neytandi skal greiða, og reglulegra endurgreiðslna, sem getur verið erfitt í framkvæmd. Lagt er til að Neytendastofu, að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið, verði heimilt að setja frekari reglur um upplýsinga- og aðvörunarskyldu lánveitanda vegna gengisbreytinga.

Breytingar sem lagðar eru til á neytendalánalögum: Lagt er til að almennar viðmiðunarfjárhæðir greiðslumats, tvær milljónir fyrir einstaklinga og fjórar milljónir fyrir hjón og sambúðarfólk, eigi einnig við um lán, sem tengjast erlendum gjaldmiðlum, í stað þess að í öllum tilvikum verði að framkvæma greiðslumat vegna slíkra lána. Lagt er til að heimilt verði að veita lán tengt erlendum gjaldmiðlum þrátt fyrir neikvæða niðurstöðu greiðslumats að uppfylltum þeim skilyrðum sem eiga almennt við um lánveitingar þrátt fyrir neikvætt greiðslumat, þ.e. að frekari upplýsingar frá neytanda sýni fram á að líklegt sé að neytandi geti staðið í skilum með lánið.

Lög sem breytast

Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017. Lög um neytendalán, nr. 33/2013.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/17/ESB frá 4. febrúar 2014 um lánssamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði og um breytingu á tilskipun 2008/48/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
9. jún. 2020
Samþykkt56 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Fasteignalán til neytenda“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 2310–0
  • M8–0
  • F5–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 22. mar. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Neytendastofa · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 3 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 9. júní 2020: 56 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

54 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-33/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. júní 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög nr. 62/2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Neytendastofa

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu um frumvarpið.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Hagsmunasamtök heimilanna leggjast ekki gegn markmiðum frumvarps þessa, en taka þó undir athugasemdir í umsögn Neytendastofu um lagfæringar á tæknilegri útfærslu lagatexta. Vegna þess stutta tíma sem veittur var til umsagna gafst samtökunum ekki svigrúm til að vinna efnislega umsögn um málið en þess er vænst að hægt verði að koma nánari athugasemdum á framfæri á síðari stigum. Athugasemdir í umsögn samtakanna um fyrra mál þessu tengt nr. S-103/2018 eru jafnframt ítrekaðar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 13 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 22. mars 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 2 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal
  16. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  17. Þingskjal
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1022Stjórnarfrumvarp28. feb. 2020Bjarni BenediktssonLesaPDF
1564Nál. með brtt.29. maí 2020Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +5LesaPDF
1612Frumvarp eftir 2. umræðu8. jún. 2020—LesaPDF
1640Breytingartillaga8. jún. 2020Óli Björn KárasonLesaPDF
1654Lög í heild9. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

10 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur3. mars 2020 kl. 18:06
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd3. mars 2020 kl. 18:06
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt3. júní 2020 kl. 16:21
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt3. júní 2020 kl. 16:21
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    2.--4. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt3. júní 2020 kl. 16:21
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt3. júní 2020 kl. 16:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    5. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt3. júní 2020 kl. 16:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    6.--16. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:4 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur3. júní 2020 kl. 16:22
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 14:10
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Fasteignalán til neytenda“.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt9. júní 2020 kl. 14:10
    Að samþykkja frumvarpið „Fasteignalán til neytenda“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 15 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 13 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 2 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur113 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur11 mín

Umsagnir og erindi

2 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. mar. 2020, frestur 22. mar. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
NeytendastofaminnisblaðOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.