Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 390. mál

Lyfjalög

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi og með sem hagkvæmastri dreifingu lyfja á grundvelli eðlilegrar samkeppni og í samræmi við þær reglur sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu eða samkvæmt stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu. Að tryggja eftir föngum gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu, auka fræðslu um lyfjanotkun, sporna við óhóflegri notkun og halda lyfjakostnaði í lágmarki.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 30 atkvæði með og 0 á móti, 24 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
21. nóvember 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
22
Umræða í þingsal
40 ræður · 2 klst. 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 1. júl. 2020

Markmiðið

Að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með öryggi sjúklinga að leiðarljósi og með sem hagkvæmastri dreifingu lyfja á grundvelli eðlilegrar samkeppni og í samræmi við þær reglur sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu eða samkvæmt stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu. Að tryggja eftir föngum gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu, auka fræðslu um lyfjanotkun, sporna við óhóflegri notkun og halda lyfjakostnaði í lágmarki.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á regluverki lyfjamála, m.a. vegna breytinga sem orðið hafa á íslensku heilbrigðiskerfi síðan núgildandi lög tóku gildi sem og vegna aðildar Íslands að EES-samningnum. Lagt er til að 27 ESB-gerðir (tilskipanir og reglugerðir) verði innleiddar í íslenskan rétt. Gert er ráð fyrir að lyfjagreiðslunefnd verði lögð niður og verkefni hennar flutt til Lyfjastofnunar og Landspítala. Þá er gert ráð fyrir að ábyrgð lækna, tannlækna og dýralækna vegna undanþágulyfja verði skýrð. Lagt er til að heimildir lyfjabúða til að veita afslátt af greiðsluþátttökuverði verði skýrðar. Einnig eru lagðar til breytingar á umboði og verkefnum lyfjanefndar Landspítala, m.a. til að færa betur saman faglega og fjárhagslega ábyrgð vegna innleiðingar og notkunar nýrra lyfja í heilbrigðisþjónustunni. Þá er gert ráð fyrir að stofnuð verði lyfjanefnd hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sem vinni að öruggri og skynsamlegri notkun lyfja á öllum heilsugæslustöðvum og dvalar- og hjúkrunarheimilum. Lagt er til að gagnagrunnur á sviði lyfjamála verði færður til betri vegar og „stoðskrá lyfja“ skilgreind. Einnig er lagt til að heilbrigðisstarfsmenn verði skyldaðir til að tilkynna aukaverkanir lyfja. Gert er ráð fyrir að dýralæknar þurfi að sækja um sérstakt leyfi til að selja lyf sem ætlunin er að nota handa dýrum. Þá er lagt til að lyfjaauglýsingar verði almennt heimilar með undantekningum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lyfjalög, nr. 93/1994, og lyfsölulög, nr. 30/1963. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sóttvarnalögum, nr. 19/1997, og lögum um Umhverfisstofnun, nr. 90/2002.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði um 44 milljónir kr.

Meira úr samantektinni

Lög á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om lægemidler LBK nr 99 af 16/01/2018.

Finnland

Läkemedelslag 10.4.1987/395.

Noregur

Lov om legemidler m.v. (legemiddelloven) LOV-1992-12-04-132.

Svíþjóð

Läkemedelslag (2015:315).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ólafur Þór Gunnarsson

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt30 með · 0 á móti · 24 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Lyfjalög“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 238–0
  • M0–0 · 6 hjá
  • F7–0
  • Sf0–0 · 7 hjá
  • 430–0 · 5 hjá
  • V0–0 · 3 hjá
  • Flf0–0 · 2 hjá
  • U0–0 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 13. jan. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
26 aðilar
Heilbrigðisráðuneytið, Pharmarctica ehf., Læknafélag Íslands, Persónuvernd, Lyfjastofnun o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 31 mín · 40 ræður
10 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði um 44 milljónir kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 30 með, 0 á móti, 24 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

28 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá5 tóku til máls

19 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna3 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-52/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2019 – 3. mar. 2019· 112 umsagnir

Drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um lyf. Umsagnarfrestur er til og með 3. mars næstkomandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-52/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 112 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. maí 2019)

Ný drög að frumvarpi til lyfjalaga hafa verið birt til samráðs á ný - sjá https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1386

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (112)
  • #1Guðmundur Guðmundsson
    Varðandi eftirfarandi ákvæði í frumvarpinu: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækna á mínu svæði, Rangárþingi, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gætti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalaust kallað í þann… Lesa alla

    Varðandi eftirfarandi ákvæði í frumvarpinu: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækna á mínu svæði, Rangárþingi, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gætti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalaust kallað í þann lækni sem næstur er á svæðinu. 2. Dýralæknar halda lyfjakostnaði í lágmarki sem er hagur bændanna, dýranna og á endanum neytenda 3. Að afnema lyfsöluleyfi dýralækna þýðir algjöran tvíverknað í útvegun lyfja og algjört óöryggi fyrir bændur sem verða að treysta á að dýralæknar séu alltaf með bestu lyfin sem þeir velja sjálfir og selja. 4. Ef bændur verða sjálfir að sækja lyfin til lyfsala þá er dýravelferð stefnt í stórkostlega hættu. Að lokum: Það vantar öll rök fyrir því að færa lyfsöluleyfi frá sérhæfðum læknum dýra til lyfsala sem hafa aldrei nokkurn tíman höndlað með dýralyf og bændur hafa enga tryggingu fyrir að þeir hafi þekkingu til þess.

  • #2Maríanna Eva Ragnarsdóttir
    Sem bóndi verð ég að gera athugasemdir við eftirfarandi tillögur: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Hingað til hafa dýralæknar haldið álagningu dýralyfja í lágmarki, sem skiptir miklu máli fyrir okkur bændur, dýrin og á endanum neytendur líka. Að geta fengið lyf hjá dýralækni skapar visst öryggi, það getur verið um langan veg að fara að komast í næsta apótek til að leysa út lyf og í bráðatilfellum skiptir tími sköpum. Hér hlýtur að skipta mestu máli að lina þjáningar skep… Lesa alla

    Sem bóndi verð ég að gera athugasemdir við eftirfarandi tillögur: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Hingað til hafa dýralæknar haldið álagningu dýralyfja í lágmarki, sem skiptir miklu máli fyrir okkur bændur, dýrin og á endanum neytendur líka. Að geta fengið lyf hjá dýralækni skapar visst öryggi, það getur verið um langan veg að fara að komast í næsta apótek til að leysa út lyf og í bráðatilfellum skiptir tími sköpum. Hér hlýtur að skipta mestu máli að lina þjáningar skepnunnar eins fljótt og unnt er. Einnig hef ég áhyggjur af vöntun lyfs hjá lyfsala, ég treysti best dýralæknum til að velja og eiga þau bestu/gagnlegustu lyf sem dýrið þarf að fá.

  • #3Ólafur Atli Sindrason
    Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækna á mínu svæði, Skagafirði, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gæti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalaust kallað í þann lækni sem næstur er á svæðinu og fengið lyf til meðhöndlunar samdægurs. 2. Dýralæknar halda lyfjakostnaði í lágmarki sem er hagur bændanna, dýranna og á endanum neytenda 3. Að afnema lyfsöluleyfi dýr… Lesa alla

    Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækna á mínu svæði, Skagafirði, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gæti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalaust kallað í þann lækni sem næstur er á svæðinu og fengið lyf til meðhöndlunar samdægurs. 2. Dýralæknar halda lyfjakostnaði í lágmarki sem er hagur bændanna, dýranna og á endanum neytenda 3. Að afnema lyfsöluleyfi dýralækna þýðir algjöran tvíverknað í útvegun lyfja og algjört óöryggi fyrir bændur sem verða að treysta á að dýralæknar séu alltaf með bestu lyfin sem þeir velja sjálfir og selja. 4. Ef bændur verða sjálfir að sækja lyfin til lyfsala þá er dýravelferð stefnt í stórkostlega hættu. Að lokum: Það vantar öll rök fyrir því að færa lyfsöluleyfi frá sérhæfðum læknum dýra til lyfsala, sem bændur hafa ekki nokkra tryggingu fyrir að hafi þekkingu og færni til þess.

  • #4Gróa Jóhannsdóttir
    Varðandi eftirfarandi ákvæði í frumvarpinu: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækni á mínu svæði, Suðurfjörðum Austfjarða, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gæti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalau… Lesa alla

    Varðandi eftirfarandi ákvæði í frumvarpinu: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Sem bóndi í mjög góðu og árangursríku samstarfi við starfandi dýralækni á mínu svæði, Suðurfjörðum Austfjarða, mótmæli ég harðlega þessum ákvæðum með eftirfarandi rökstuðningi: 1. Lyfjakostnaður er núna sambærilegur milli dýralæknaþjónusta þannig að bóndi þarf ekki að velja í hvaða lækni hann kallar m.t.t. þess að mismunar gæti í lyfjaverði. Það tryggir hámarks dýravelferð að geta umsvifalaust kallað í þann lækni sem næstur er á svæðinu og fengið lyf til meðhöndlunar samdægurs. 2. Dýralæknar halda lyfjakostnaði í lágmarki sem er hagur bændanna, dýranna og á endanum neytenda 3. Að afnema lyfsöluleyfi dýralækna þýðir algjöran tvíverknað í útvegun lyfja og algjört óöryggi fyrir bændur sem verða að treysta á að dýralæknar séu alltaf með bestu lyfin sem þeir velja sjálfir og selja. Að þurfa að sækja lyf í apótek skapar mikil óþægindi og lengir mjög tíman þangað til dýr fær viðeignadi lyfjagöf. Apótek eru oft á tíðum í mikilli fjarlægð frá býlum og lítli apótek á landsbyggðinni ekki með stóran lyfjalager og oft er löng bið eftir lyfjum. 4. Ef bændur verða sjálfir að sækja lyfin til lyfsala þá er dýravelferð stefnt í stórkostlega hættu. Að lokum: Það vantar öll rök fyrir því að færa lyfsöluleyfi frá sérhæfðum læknum dýra til lyfsala, sem bændur hafa ekki nokkra tryggingu fyrir að hafi þekkingu og færni til þess.

  • #5Margrét Katrín Guðnadóttir
    Sem dýralæknir mótmæli ég harðlega eftirfarandi breytingartillögum: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Nokkrar röksemdafærslur fara hér á eftir: 1) Dýralæknar á Íslandi hafa staðið sig afar vel í að stuðla að ábyrgðarfullri notkun bænda á sýklalyfjum, sem að sýnir sig í þeirri staðreynd að á Íslandi er minnsta notkun sýklalyfja húsdýrum í Evrópu. Þessi staðreynd sýnir það að dýralæknar á Íslandi hafi staðið sig afar vel í þessum efnum og ekki verið að selja sýkalyf með óábyr… Lesa alla

    Sem dýralæknir mótmæli ég harðlega eftirfarandi breytingartillögum: - Lagt er til að verðlagning dýralyfja og lausasölulyfja verði gefin frjáls. - Lagt er til að heimildir dýrlækna til reksturs lyfjasölu verði afnumdar. Nokkrar röksemdafærslur fara hér á eftir: 1) Dýralæknar á Íslandi hafa staðið sig afar vel í að stuðla að ábyrgðarfullri notkun bænda á sýklalyfjum, sem að sýnir sig í þeirri staðreynd að á Íslandi er minnsta notkun sýklalyfja húsdýrum í Evrópu. Þessi staðreynd sýnir það að dýralæknar á Íslandi hafi staðið sig afar vel í þessum efnum og ekki verið að selja sýkalyf með óábyrgum hætti og því engin ástæða til að færa sölu þeirra lyfja úr höndum dýralækna. 2) Dýralæknar hafa sérþekkingu á dýralyfjum, virkni þeirra og útskolun. Lyfjafræðingar eru með sérþekkingu á mannalyfjum. Dýralyf og mannalyf eru ekki sami hluturinn. 3) Dýralæknar í dreifðari byggðum treysta á lyfjasölu til þess að halda launum uppi, því að ekki eru næg verkefni til að greiða laun dýralækna á vitjunum einum saman. Ef að lyfjasalan er ekki fyrir hendi eru þónokkrar líkur á að ekki fáist dýralæknar til starfa í dreifðari byggðum landsins og stafar það dýravelferð í hættu. Einnig má benda á að ef að lyfsala verður tekin af dýralæknum neyðumst við til þess að hækka gjaldskrá hressilega og það mun bitna beint á skepnum sem að ekki fá þá meðhöndlum og er frekar fargað. 4) Um langan veg er oft að fara á landsbyggðinni og langt er fyrir marga bændur að komast í lyfsölu í þéttbýli. Oft eru vegir illfærir/ófærir og nóg að dýralæknirinn brjótist fram og til baka í ófærð og vondu veðri án þess að bóndi verði að fara á eftir að sækja lyf. Ekki eru apótek á landsbyggðinni opin um kvöld og helgar og hætt er við að kostnaður bænda aukist ef að kalla þarf út mannskap til að selja þeim lyf. 5) Mikilvæg samskipti eiga sér stað á milli bónda og dýralæknis þegar að lyf eru pöntuð og afhent, varðandi heilbrigði og meðhöndlanir, t.d. í tengslum við bólusetningu, ekki er víst að sama þjónusta fáist í apótekum landsins. 6) Eðlilegra væri að dýralæknar fengju sér reglugerð hvað varðar lyfsölu okkar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-127/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 3. jún. 2019· 29 umsagnir

Frumvarp til nýrra lyfjalaga

Heilbrigðisráðuneytið kynnir endurskoðuð drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráði 21. febrúar sl. og bárust þá 114 umsagnir. Hefur ráðuneytið unnið úr þeim athugasemdum og óskar nú eftir umsögnum um endurskoðað frumvarp til nýrra lyfjalaga. Umsagnarferli lýkur þann 3. júní nk.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-127/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. júní 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júní 2020)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra lyfjalaga 28. nóvember 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
  • #1Þröstur Friðfinnsson
    Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps tók frumvarp til nýrra lyfjalaga til umræðu á fundi sínum í gær og bókaði eftirfarandi umsögn undir dagskrárlið nr. 3: „3. Frumvarp um lyfjalög. Sveitarstjórn tekur undir umsögn Pharmarctica um lyfjalögin. Sveitarstjórn hafnar því að sérhæfð framleiðsla forskriftarlyfja lækna undir ströngu gæðaeftirliti sé bönnuð á Íslandi en innflutningur heimilaður á sömu vöru erlendis frá. Það er aðför að lyfjaöryggi á Íslandi, atvinnusköpun og þeirri sérhæfingu sem byggð hefur verið upp.“ Þessu er hér með komið á framfæri. Bestu kveðjur, Þröstur Fr… Lesa alla

    Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps tók frumvarp til nýrra lyfjalaga til umræðu á fundi sínum í gær og bókaði eftirfarandi umsögn undir dagskrárlið nr. 3: „3. Frumvarp um lyfjalög. Sveitarstjórn tekur undir umsögn Pharmarctica um lyfjalögin. Sveitarstjórn hafnar því að sérhæfð framleiðsla forskriftarlyfja lækna undir ströngu gæðaeftirliti sé bönnuð á Íslandi en innflutningur heimilaður á sömu vöru erlendis frá. Það er aðför að lyfjaöryggi á Íslandi, atvinnusköpun og þeirri sérhæfingu sem byggð hefur verið upp.“ Þessu er hér með komið á framfæri. Bestu kveðjur, Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps

  • #2Pharmarctica ehf.

    Meðfylgjandi er umsögn Pharmarctica ehf.

  • #3Hjörleifur Þórarinsson
    Í XI.kafla, 47.gr. í fyrirliggjandi drögum að lyfjalögum er fjallað um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja. Þar segir m.a. „að í aðfangakeðju lyfja skal vera hægt að sannreyna að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar allan þann tíma sem lyfið er á markaði og þann tíma sem þarf til að skila og farga viðkomandi pakkningu eftir fyrningardag hennar“. Lyfjaauðkenni tekur heilshugar undir orðalag greinarinnar og fagnar henni. Jafnframt gerir félagið tillögu um breytingu í XX.kafla (Viðurlög), 96.gr (Stjórnvaldssektir), í þá veru að Lyfjastofnun verði heimilt að beita stjórnvaldssektum ef ein… Lesa alla

    Í XI.kafla, 47.gr. í fyrirliggjandi drögum að lyfjalögum er fjallað um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja. Þar segir m.a. „að í aðfangakeðju lyfja skal vera hægt að sannreyna að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar allan þann tíma sem lyfið er á markaði og þann tíma sem þarf til að skila og farga viðkomandi pakkningu eftir fyrningardag hennar“. Lyfjaauðkenni tekur heilshugar undir orðalag greinarinnar og fagnar henni. Jafnframt gerir félagið tillögu um breytingu í XX.kafla (Viðurlög), 96.gr (Stjórnvaldssektir), í þá veru að Lyfjastofnun verði heimilt að beita stjórnvaldssektum ef einstaklingur eða lögaðili brýtur gegn ákvæðum um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja, sbr. 47. gr. Lyfjaauðkenni bendir á að til þess að apótek, lyfjaheildsalar og heilbrigðisstofnanir geti sannreynt að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar, verður viðkomandi aðili að vera tengdur hinu Evrópska lyfjaauðkenniskerfi í gegnum gátt Lyfjaauðkennis. Ef aðili, sem hefur heimild til að afhenda almenningi lyf, er ekki tengdur lyfjaauðkenniskerfinu, er hætta á að fölsuð lyf berist til sjúklinga. Einnig verður framleiðandi lyfs að útbúa pakkningar mannalyfja með viðeigandi öryggisþáttum og skrá þær upplýsingar í Evrópska lyfjaauðkenniskerfið. Lyfjaauðkenni telur þar af leiðandi mikilvægt að Lyfjastofnun hafi heimild til að beita stjórnvaldssektum í þeim tilvikum þegar (og ef) notendur lyfjaauðkenniskerfisins bregðast ekki við ábendingum Lyfjastofnunar um úrbætur er varða öryggisþætti á umbúðum lyfja.

  • #4Margrét Vilhelmsdóttir
    Akureyri, 31. maí 2019 Efni: Athugasemdir við drög að frumvarpi til lyfjalaga Lyfjanefnd Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur borist drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Lyfjanefnd SAk hefur fjallað um drögin að frumvarpi og vill koma eftirfarandi á framfæri: 1. Athugasemd við III. Kafla Lyfjaskrár, 9. gr. Lyfjaskrár Lyfjastofnunar : • Hér mætti bæta við að strikamerki skuli aðgengileg fyrirtækjum og stofnunum í stoðskrá lyfja. Strikamerki eru mikilvæg viðbót til að tryggja öryggi við afgreiðslu og skömmtun lyfja. • Stoðskrá lyfja þarf einnig að innihalda upplýsingar um íkomu… Lesa alla

    Akureyri, 31. maí 2019 Efni: Athugasemdir við drög að frumvarpi til lyfjalaga Lyfjanefnd Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur borist drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Lyfjanefnd SAk hefur fjallað um drögin að frumvarpi og vill koma eftirfarandi á framfæri: 1. Athugasemd við III. Kafla Lyfjaskrár, 9. gr. Lyfjaskrár Lyfjastofnunar : • Hér mætti bæta við að strikamerki skuli aðgengileg fyrirtækjum og stofnunum í stoðskrá lyfja. Strikamerki eru mikilvæg viðbót til að tryggja öryggi við afgreiðslu og skömmtun lyfja. • Stoðskrá lyfja þarf einnig að innihalda upplýsingar um íkomuleiðir. 2. Athugasemd við X.Kafla Umsýsla lyfja á heilbrigðisstofnunum, 44.gr. Lyfjanefnd Landspítala : • Eiga önnur opinber sjúkrahús ekki að hafa lyfjanefnd ? • Skýra þarf hlutverk lyfjanefnda annarra opinberra sjúkrahúsa ef þær eiga að vera til. Ef þær eiga ekki að vera til þarf að skýra samráðsskyldu lyfjanefndar Landspítala við önnur opinber sjúkrahús. 3. Athugasemd við X.Kafla Umsýsla lyfja á heilbrigðisstofnunum, 46.gr. Reglugerðir : • Ráðherra skal setja reglugerð um hlutverk og starfsemi lyfjanefndar Landspítala og lyfjanefndar heilsugæslunnar. • Hvað með lyfjanefndir annarra opinberra sjúkrahúsa ? Fyrir hönd lyfjanefndar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), Margrét Vilhelmsdóttir, formaður

  • #5Jóhanna María Sigmundsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Landssambands kúabænda

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    12 ræður · 53 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 13. janúar 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Þingskjal
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  11. Þingskjal
  12. Umræða
    2. umræða
    27 ræður · 1 klst. 37 mín
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 19 með, 33 á móti
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  19. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  20. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  21. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  22. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  23. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 11 með, 33 á móti
  24. Atkvæðagreiðsla
    Kom ekki til atkvæðagreiðslu
  25. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  26. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  27. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  28. Atkvæðagreiðsla
    Fellt · 12 með, 33 á móti
  29. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  30. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  31. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  32. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 33 með, 0 á móti
  33. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  34. Þingskjal
  35. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  36. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 29 með, 0 á móti
  37. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 30 með, 0 á móti
  38. Þingskjal
  39. Þingskjal

Þingskjöl

9 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
523Stjórnarfrumvarp21. nóv. 2019Svandís SvavarsdóttirLesaPDF
1721Nefndarálit16. jún. 2020Helga Vala Helgadóttir, Ólafur Þór Gunnarsson +6LesaPDF
1722Breytingartillaga16. jún. 2020Helga Vala Helgadóttir, Ólafur Þór Gunnarsson +6LesaPDF
1733Breytingartillaga16. jún. 2020Hanna Katrín FriðrikssonLesaPDF
1750Breytingartillaga20. jún. 2020Anna Kolbrún ÁrnadóttirLesaPDF
1856Frhnál. með brtt.25. jún. 2020Helga Vala Helgadóttir, Ólafur Þór Gunnarsson +4LesaPDF
1909Frumvarp eftir 2. umræðu17. ágú. 2020—LesaPDF
1922Breytingartillaga29. jún. 2020Ólafur Þór GunnarssonLesaPDF
1947Lög í heild29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

26 alls · 22 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur28. nóvember 2019 kl. 12:01
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd28. nóvember 2019 kl. 12:01
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt20. júní 2020 kl. 11:01
    Að veita afbrigði frá þingsköpum í málinu „Lyfjalög“.
    • SSjálfstæðisflokkur:5 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    2. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:49
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    1--5

    3.--32. gr., svo breyttar,

  • Fellt29. júní 2020 kl. 10:51
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 10 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 8 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:52
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    6
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:52
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    33. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:52
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    34.--35. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:53
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    7--11

    36.--43. gr., svo breyttar,

  • Fellt29. júní 2020 kl. 10:53
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 10 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 8 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Kom ekki til atkvæðagreiðslu29. júní 2020 kl. 10:54
    Breytingartillaga
    b-liður,
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:54
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    a-liður,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:54
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    12

  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:55
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    44. gr., svo breytt,

  • Fellt29. júní 2020 kl. 10:55
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:0 með · 15 á móti
    • 23Þingflokkur 23:0 með · 10 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:0 með · 8 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:55
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    45.--54. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:56
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    13--24

    55.--108. gr. (verða 55.--112. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 10:56
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög“.
    Ákv. til brb. I--II
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 8 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 10:57
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:33
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Lyfjalög“.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:33
    Að samþykkja frumvarpið „Lyfjalög“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá

Hverjir tóku til máls

40 ræður · 2 klst. 31 mín
  • 1. umræða: 12 ræður · 4 ræðumenn · 53 mín
  • 2. umræða: 27 ræður · 9 ræðumenn · 1 klst. 37 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka1054 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka624 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins615 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin526 mín
Anna Kolbrún ÁrnadóttirMiðflokkurinn49 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn315 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin23 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn22 mín
Halldóra MogensenUtan þingflokka11 mín
Vilhjálmur ÁrnasonSjálfstæðisflokkur11 mín

Umsagnir og erindi

27 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 4. des. 2019, frestur 13. jan. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Pharmarctica ehf.umsögnOpna PDF
Læknafélag ÍslandsálitOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
LyfjastofnunumsögnOpna PDF
Lyfsöluhópur SVÞumsögnOpna PDF
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Lyfjahópur Félags atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Sjúkratryggingar ÍslandsumsögnOpna PDF
Stjórn SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Frumtök - samtök framleiðenda frumlyfjaumsögnOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
Vistor hf.umsögnOpna PDF
TollstjóriumsögnOpna PDF
Florealis ehf.umsögnOpna PDF
Félag læknanemaumsögnOpna PDF
Félag íslenskra öldrunarlæknaumsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF
Lyfjafræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Dýralæknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Lausasölulyfjahópur SVÞumsögnOpna PDF
Pharmarctica ehf.umsögnOpna PDF
Guðmundur Heiðar FrímannssonumsögnOpna PDF
Sjúkrahúsið á AkureyriumsögnOpna PDF
LandspítalinnumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.