Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 341. mál

Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða

LagafrumvarpSamþykktViðskipti

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. maí 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að innleiða tvær tilskipanir ESB, þ.á.m. tilskipun um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Markmið þeirrar tilskipunar er öðru fremur að samræma regluverk á milli aðildarríkja og tryggja einsleitni á innri markaði EES, svo sem varðandi starfsleyfi, skipulagskröfur og eftirlit með rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, sem aftur á að tryggja fjármálastöðugleika, auka fjárfestavernd og efla traust og eftirlit á starfsemi slíkra sjóða og rekstraraðila þeirra.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. maí 2020 greiddu 51 atkvæði með og 0 á móti, 4 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. nóvember 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
2
Umræða í þingsal
6 ræður · 19 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 14. maí 2020

Markmiðið

Að innleiða tvær tilskipanir ESB, þ.á.m. tilskipun um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Markmið þeirrar tilskipunar er öðru fremur að samræma regluverk á milli aðildarríkja og tryggja einsleitni á innri markaði EES, svo sem varðandi starfsleyfi, skipulagskröfur og eftirlit með rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, sem aftur á að tryggja fjármálastöðugleika, auka fjárfestavernd og efla traust og eftirlit á starfsemi slíkra sjóða og rekstraraðila þeirra.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði ný heildarlöggjöf um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (þ.e. allra annarra sjóða en verðbréfasjóða), sem innleiðir ákvæði tilskipunar ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða í íslenskan rétt. Frumvarpið hefur meðal annars að geyma ákvæði um starfsleyfi rekstraraðila sérhæfðra sjóða, skipulags- og starfsleyfisskilyrði, gagnsæiskröfur, vörsluaðila og markaðssetningu.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á 21 öðrum lögum.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að áhrif á ríkissjóð verði lítil eða engin.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB frá 8. júní 2011 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og um breytingu á tilskipunum 2003/41/EB og

2009/65/EB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 1095/2010.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/14/ESB frá 21. maí 2013 um breytingu á tilskipun 2003/41/EB um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri, tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða að því er varðar oftraust á lánshæfismöt.

Ný heildarlög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða – byggt á AIFMD tilskipun Evrópusambandsins nr. 2011/61. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2015.

Dómur EFTA-dómstólsins í máli nr. E-11/17 Eftirlitsstofnun EFTA gegn Íslandi.

Dómur EFTA-dómstólsins í máli nr. E-16/17 Eftirlitsstofnun EFTA gegn Íslandi.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
11. maí 2020
Samþykkt51 með · 0 á móti · 4 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • 2310–0
  • M4–0
  • F8–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 4 hjá
  • V4–0
  • Flf1–0
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 4. des. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Logos slf, Framís Samtök framtaksfjárfesta, Fjármálaeftirlitið, Lánamál ríkisins · allar umsagnir
Umræða í þingsal
19 mín · 6 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að áhrif á ríkissjóð verði lítil eða engin.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. maí 2020: 51 með, 0 á móti, 4 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

49 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

4 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-182/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 30. ágú. 2019· 7 umsagnir

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. ágúst 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. nóvember 2019)

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 11. júlí 2019. Frestur til að skila umsögnum var til 30. ágúst 2019. Sex umsagnir bárust, þ.e. frá SKR lögfræðiþjónustu slf., Benoit Cheron, Lánamálum ríkisins, Samtökum fjármálafyrirtækja, LOGOS slf. og FRAMÍS, samtaka framtaksfjárfesta.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 12 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 4. desember 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 7 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
389Stjórnarfrumvarp5. nóv. 2019Bjarni BenediktssonLesaPDF
1099Nefndarálit12. mar. 2020Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +4LesaPDF
1100Breytingartillaga12. mar. 2020Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +4LesaPDF
1330Frumvarp eftir 2. umræðu2. jún. 2020—LesaPDF
1332Breytingartillaga6. maí 2020Óli Björn KárasonLesaPDF
1373Lög í heild11. maí 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 2 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. nóvember 2019 kl. 19:23
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd11. nóvember 2019 kl. 19:23
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta6. maí 2020 kl. 16:03
    Breytingartillaga
    1--23
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt6. maí 2020 kl. 16:05
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða“.
    1.--120. gr. og ákv. til brb. I--III, svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur6. maí 2020 kl. 16:06
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta11. maí 2020 kl. 17:20
    Breytingartillaga
    1--6
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. maí 2020 kl. 17:22
    Að samþykkja frumvarpið „Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:4 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

6 ræður · 19 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 12 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur39 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur17 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka23 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. nóv. 2019, frestur 4. des. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Logos slfumsögnOpna PDF
Framís Samtök framtaksfjárfestaumsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
Lánamál ríkisinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.