Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-255/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. október 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. janúar 2021)
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks var lagt fram á Alþingi á 150. lgþ. Í samráðskafla frumvarpsins kemur fram afstaða ráðuneytisins til umsagna sem bárust.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Bílgreinasambandsins (BGS) og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) með athugasemdum við þau áform um málefni bifreiðasala sem fram koma í frumvarpsdrögunum.
- #2Guðmundur H Þórarinsson
Breytingin á iðnaðarlögum er vanhugsuð þar sem ekkert er hugað að skilgreiningum og orðskýringum. Í skýringum með þessum breytingum, kafla 3.2. frumvarpsins, segir að lagðar er til breytingar á iðnaðarlögum þess efnis að iðnaðarleyfi er lagt af og lögin munu framvegis aðeins gilda um löggiltar handiðngreinar. Þá vaknar spurning um hvað eru löggildar handiðngreinar. Reglugerð nr. 940/1999 er um löggiltar iðngreinar. Í fyrstu grein núgildandi laga segir að þau taki til rekstrar hvers konar iðnaðar í atvinnuskyni. Til iðnaðar telst bæði handiðnaður og verksmiðjuiðnaður, hvaða efni eða orka, vél… Lesa alla
Breytingin á iðnaðarlögum er vanhugsuð þar sem ekkert er hugað að skilgreiningum og orðskýringum. Í skýringum með þessum breytingum, kafla 3.2. frumvarpsins, segir að lagðar er til breytingar á iðnaðarlögum þess efnis að iðnaðarleyfi er lagt af og lögin munu framvegis aðeins gilda um löggiltar handiðngreinar. Þá vaknar spurning um hvað eru löggildar handiðngreinar. Reglugerð nr. 940/1999 er um löggiltar iðngreinar. Í fyrstu grein núgildandi laga segir að þau taki til rekstrar hvers konar iðnaðar í atvinnuskyni. Til iðnaðar telst bæði handiðnaður og verksmiðjuiðnaður, hvaða efni eða orka, vélar eða önnur tæki sem notuð eru og hvaða vörur eða efni sem framleidd eru. Heimilisiðnaður skal undanskilinn ákvæðum laganna. Samkvæmt breytingartillögunni á greinin að verða ,,Lög þessi taka til rekstrar handiðnaðar í atvinnuskyni. Heimilisiðnaður skal undanþeginn ákvæðum laganna‘‘. Ef ætlunin er að undanskilja verksmiðjurekstur lögunum, þarf mun betri skilgreiningar á hugtökum varðandi þann rekstur sem lögin eiga að ná til. Í núgildandi iðnaðarlögum er lítið um skilgreiningar og kannski ekki vanþörf á að bæta þar úr. T.d. segir m.a., í þriðju grein laganna, að hver maður getur fengið leyfi til að reka iðnað, handiðnað og verksmiðjuiðnað, ef hann fullnægir eftirgreindum skilyrðum. Þarna eru t.d. notuð þrjú óskilgreind hugtök (iðnaður, handiðnaður og verksmiðjuiðnaður). f.h. VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna Guðmundur Helgi Þórarinsson
- #3Neytendasamtökin
Meðfylgjandi er umsögn Neytendasamtakanna.
- #4Pálmi Finnbogason
(Sjá meðfylgjandi viðhengi.) Vísað er til frumvarps í vinnslu sem felur í sér breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks. Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á lögum um verslunaratvinnu, iðnaðarlögum og lögum um samvinnufélögum, auk þess sem lagt er til að fjölmörg lög falli( úr gildi. Samiðn hefur ekki haft tök á yfirgripsmikilli yfirferð á umræddu frumvarpi en ljóst er að þar eru tilgreindar ýmsar breytingar sem hafa áhrif á starfsemi ýmissa starfsstétta, m.a. iðnaðarmanna og þeirrra sem stunda viðskipta með bifreiðar. Samiðn vill árétta að mikilvægt er að vanda þarf v… Lesa alla
(Sjá meðfylgjandi viðhengi.) Vísað er til frumvarps í vinnslu sem felur í sér breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks. Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á lögum um verslunaratvinnu, iðnaðarlögum og lögum um samvinnufélögum, auk þess sem lagt er til að fjölmörg lög falli( úr gildi. Samiðn hefur ekki haft tök á yfirgripsmikilli yfirferð á umræddu frumvarpi en ljóst er að þar eru tilgreindar ýmsar breytingar sem hafa áhrif á starfsemi ýmissa starfsstétta, m.a. iðnaðarmanna og þeirrra sem stunda viðskipta með bifreiðar. Samiðn vill árétta að mikilvægt er að vanda þarf verulega til verka þegar slíkar breytingar eru lagðar til og áskilur sér rétt að koma að efnislegum athugasemdum þegar og ef umrætt frumvarp verður lagt fram af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra á Alþingi. Loks vill Samiðn taka fram að félagið er reiðbúið til umræðna varðandi allar þær breytingar sem varða þá félagsmenn sem Samiðn er málsvari fyrir, hvort sem þær eru tilgreindar í umræddum frumvarpi sem er í vinnslu eða aðrar. Fyrir hönd Samiðnar Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri
- #5Benedikt Sveinbj. Benediktsson
Meðfylgjandi er umsögn SAF - Samtaka ferðaþjónustunnar um frumvarpsdrögin.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.