Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 331. mál

Framlagning stjórnarmála

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að uppfylla í íslenskum rétti kröfur reglugerðar ESB nr. 2017/2394 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja snurðulausa starfsemi innri markaðarins og efla vernd fjárhagslegra hagsmuna neytenda.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
13 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. mar. 2020

Markmiðið

Að uppfylla í íslenskum rétti kröfur reglugerðar ESB nr. 2017/2394 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja snurðulausa starfsemi innri markaðarins og efla vernd fjárhagslegra hagsmuna neytenda.

Hvað breytist

Með samþykkt frumvarpsins yrði reglugerð ESB nr. 2017/2394 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004 innleidd í íslensk lög. Í reglugerðinni er lögð aukin áhersla á rannsókn og framfylgd brota í hinu stafræna umhverfi. Einnig öðlast lögbær yfirvöld skilvirkari úrræði en áður til að bregðast við brotastarfsemi í hinu stafræna umhverfi. Líkt og gildandi reglugerð nær hin nýja reglugerð til brota sem skaða eða eru líkleg til að skaða heildarhagsmuni neytenda. Hin nýja reglugerð nær auk þess til brota sem hafa skaðað heildarhagsmuni neytenda, þ.e. brot sem eru yfirstaðin. Með reglugerðinni eru settar ítarlegri reglur um samvinnu milli yfirvalda yfir landamæri. Það ræðst af því hvernig brot er um að ræða (brot innan Sambandsins, víðtækt brot og víðtækt brot á Sambandsvísu) hvaða reglur gilda um samvinnuna hverju sinni og hvaða kröfur eru gerðar til lögbæru yfirvaldanna. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gegnir stærra hlutverki vegna samvinnunnar en áður. Þannig getur framkvæmdastjórnin tekið að sér hlutverk samræmingaraðila þegar um er að ræða víðtækt brot á Sambandsvísu og ekki næst samkomulag um tilnefningu lögbærs yfirvalds. Þá getur framkvæmdastjórnin jafnframt gefið út leiðbeiningar og veitt aðildarríkjunum ráðgjöf til að tryggja að gagnkvæma aðstoðarkerfið virki með skilvirkum og árangursríkum hætti.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 56/2007.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir neinum fjárhagsáhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Páll Magnússon

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 2. des. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Neytendastofa, Fjármálaeftirlitið · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 13 ræður
8 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir neinum fjárhagsáhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 2 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-249/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 3 umsagnir

Drög að frumvörpum til laga vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.

Með frumvörpunum er lagt til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-249/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. ágúst 2020)

Frumvörpin voru lögð fram á 150. löggjafarþingi Alþingis þann 1. nóvember 2019, sbr. þskj. 375 (331. mál) og þskj. 374 (330. mál). Frumvörpin voru samþykkt með breytingum allsherjar og menntamálanefndar sem lög frá Alþingi þann 5. mars 2020. Lög nr. 20/2020 og lög nr. 21/2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. desember 2019
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    13 ræður · 15 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 15 mín
  • Umræða: 13 ræður · 8 ræðumenn · 15 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 11. nóv. 2019, frestur 2. des. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsóknOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.