Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Með frumvarpi þessu er lagt til að tvær stofnanir, Íbúðalánasjóður og Mannvirkjastofnun verði lagðar niður og nýrri stofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði falið að annast framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála. Fjármálaumsýsla vegna eldri starfsemi Íbúðalánasjóðs verður aðskilin frá nýrri sameinaðri stofnun.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-189/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. ágúst 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. mars 2020)
Lög um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun voru samþykkt á Alþingi í desember 2019
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Guðmundur Gunnarsson
Inspectionem ehf. er skoðunarstofa m.a. á sviði mannvirkjagerðar og byggingarvöru. Inspectionem vill koma á framfæri eftirfarandi ábendingum og tillögum til breytinga á frumvarpinu. 1. Krafa um faggildingu stjórnsýslu og eftirlitsaðila Í frumvarpinu er áframhaldandi krafa um faggildingu stjórnsýslu og eftirlitsaðila og á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun t.a.m. að afla sér faggildingar. Vorið 2018 fjallaði Umhverfis- og samgöngunefnd um kröfu til faggildinga sem fram kemur í Mannvirkjalögum. Niðurstöður umfjöllunarinnar koma fram í Þingskjali 1087 á 148. löggjafarþingi 2017–2018.: Nefndará… Lesa alla
Inspectionem ehf. er skoðunarstofa m.a. á sviði mannvirkjagerðar og byggingarvöru. Inspectionem vill koma á framfæri eftirfarandi ábendingum og tillögum til breytinga á frumvarpinu. 1. Krafa um faggildingu stjórnsýslu og eftirlitsaðila Í frumvarpinu er áframhaldandi krafa um faggildingu stjórnsýslu og eftirlitsaðila og á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun t.a.m. að afla sér faggildingar. Vorið 2018 fjallaði Umhverfis- og samgöngunefnd um kröfu til faggildinga sem fram kemur í Mannvirkjalögum. Niðurstöður umfjöllunarinnar koma fram í Þingskjali 1087 á 148. löggjafarþingi 2017–2018.: Nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum (stjórnsýsla við mannvirkjagerð o.fl.). Helsta niðurstaða Þingskjalsins er sú að Íslendingar gangi miklu lengra í kröfum um faggildingar en aðrar þjóðir án þess að séð verði að af því hljótist einhver ávinningur. Í núverandi lagafrumvarpi til breytinga á þessum lögum gefst gott tækifæri til að breyta útfærslu á kröfum um faggildingu og draga úr henni í samræmi við framangreint nefndarálit. Bráðabirgðaákvæði núgildandi laga um mannvirki veitir aðilum frest til 2020 til að afla sér faggildingar. Þetta á við um byggingarfulltrúa, stofnanir og skoðunarstofur. Nú um mitt ár 2019 er enginn aðili búinn að afla sér faggildingar og stefnir í að staðan verði óbreytt í árslok 2020. Með því að fella niður kröfur um faggildingu en halda kröfum um fagmennsku óháðra skoðunaraðila má gera byggingareftirlit skilvirkara og þannig auka hraða framkvæmda sem jafnframt gerir framkvæmdina ódýrari. Með því að gera byggingareftirlit að þjónustu á markaði kemur það til með að lúta þeim lögmálum sem gilda um slíka þjónustu. Tillaga um breytingar: Inspectionem leggur til að gerðar verði breytingar á lögum um Mannvirki og á 15. grein í lögum um byggingarvörur og felldar verði út kröfur um faggildingu á skoðunarstofum og í stað þeirra komi krafa um óháðan þriðja aðila sem starfi eftir viðeigandi stöðlum þar um. 2. Aðskilnaður stjórnsýslu og eftirlits Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúar og slökkvilið annist sjálf beint eftirlit á vissum sviðum. Ekki er farin sú leið að aðskilja eftirlit og stjórnsýslu eins og gert hefur verið t.d. í bifreiðaskoðun, rafmagnsöryggi og skipaskoðun. Sú leið tryggir enn betur jákvæða nálgun og sanngjarna málsmeðferð. Tillaga um breytingar: Inspectionem leggur til að framkvæmd alls eftirlits sem tilgreint er í lögum nýrrar stofnunar, með mannvirkjum, byggingarvörum, rafmagnsöryggi og slökkviliðum verði fært til skoðunarstofa á markaði og gerð krafa um eftirlit óháðs þriðja aðila á þessum þáttum. Þannig er skilið á milli stjórnsýsluþáttar eftirlitsins og framkvæmdar þess eftirlits sem skoðunarstofur sinna í umboði stofnunarinnar. Á sama hátt er eðlilegt að aðskilja stjórnsýslu og eftirlit á sveitarstjórnarstiginu, þ.e. við leyfisveitingar byggingarfulltrúa og slökkviliðs. Virðingarfyllst f.h. Inspectionem ehf. Guðmundur Gunnarsson, verkfræðingur
- #2Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
- #3Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- #4Neytendastofa
Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu við drög að frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- #5Samtök rafverktaka
Sjá viðhengi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.