Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 245. mál

Tollalög o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. des. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að færa tollafgreiðslu og tollgæslu frá tollstjóra til ríkisskattstjóra.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. des. 2019 greiddu 41 atkvæði með og 0 á móti, 12 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
16. október 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
19 ræður · 1 klst. 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 19. des. 2019

Markmiðið

Að færa tollafgreiðslu og tollgæslu frá tollstjóra til ríkisskattstjóra.

Hvað breytist

Lagt er til að verkefni á sviði tollafgreiðslu og tollgæslu, sem embætti tollstjóra annast nú, og þau verkefni sem embætti ríkisskattstjóra sinnir verði sameinuð. Við sameininguna yrði embætti tollstjóra lagt niður. Gert er ráð fyrir að sett verði á laggirnar sérstök eining undir stjórn tollgæslustjóra sem heyrði undir ríkisskattstjóra. Lagt er til að sú stofnun sem ríkisskattstjóri stýrir nefnist Skatturinn.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir því að sá kostnaður sem til fellur við tilfærslu á tollafgreiðslu og tollgæslu frá tollstjóra til ríkisskattstjóra rúmist innan fjárheimildar í málaflokki 05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Brynjar Níelsson

Lokaatkvæðagreiðsla
11. des. 2019
Samþykkt41 með · 0 á móti · 12 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Tollalög o.fl.“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • 238–0
  • M8–0 · 1 hjá
  • F7–0
  • Sf0–0 · 5 hjá
  • 430–0 · 5 hjá
  • V2–0
  • Flf0–0 · 1 hjá
  • U0–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 15. nóv. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Samtök ferðaþjónustunnar og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Ríkisskattstjóri, Samtök atvinnulífsins · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 6 mín · 19 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir því að sá kostnaður sem til fellur við tilfærslu á tollafgreiðslu og tollgæslu frá tollstjóra til ríkisskattstjóra rúmist innan fjárheimildar í málaflokki 05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. desember 2019: 41 með, 0 á móti, 12 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með7 tóku til máls

Sýna 1 í viðbót

34 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

11 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna3 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

4 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-158/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 26. júl. 2019· 0 umsagnir

Áform um breytingu á tollalögum (rafræn skil og greiðslur, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla ofl.)

Áformaskjalið felur í sér áform um ýmsar breytingar á tollalögum nr. 88/2005.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-158/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júní 2020)

Engar athugasemdir voru gerðar við áformin og fór vinnsla frumvarpsins af stað skv. því

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-161/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum.

Áformað er að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-161/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. september 2019)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við áðurnefndum umsögnum. Tekið er undir það að leggja þarf áherslu á vönduð vinnubrögð við sameininguna og að vel verði staðið að breytingastjórnun og kynninga- og upplýsingaflæði til starfsmanna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Tollvarðafélag Íslands
    Reykjavík, 10. júlí 2019 Efni: Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum Tollvarðafélag Íslands (TFÍ) vísar til máls nr. S-161/2019 í Samráðsgátt stjórnvalda þar sem ofangreind áform um lagasetningu eru til umsagnar. Með væntanlegu frumvarpi er áformað að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020. Þessu mótmælir TFÍ harðlega með neðangreindum rökum. TFÍ telur óljóst hvert sé endanlegt markmið frumvarpsins þar sem áformin bera með sér tilfærslu tollafgreiðslu og tollgæslu til ríkisskattstjór… Lesa alla

    Reykjavík, 10. júlí 2019 Efni: Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum Tollvarðafélag Íslands (TFÍ) vísar til máls nr. S-161/2019 í Samráðsgátt stjórnvalda þar sem ofangreind áform um lagasetningu eru til umsagnar. Með væntanlegu frumvarpi er áformað að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020. Þessu mótmælir TFÍ harðlega með neðangreindum rökum. TFÍ telur óljóst hvert sé endanlegt markmið frumvarpsins þar sem áformin bera með sér tilfærslu tollafgreiðslu og tollgæslu til ríkisskattstjóra, en á öðrum stað er fjallað um sameiningu verkefna. Þar segir enn fremur að mikil tækifæri felist í breytingunni og að árangur við vettvangseftirlit eigi að aukast vegna hennar. Þessi fullyrðing er órökstudd og óskar TFÍ eftir frekari upplýsingum um það á hvaða gögnum hún byggir. Hefur farið fram greiningarvinna af hálfu stjórnvalda og það verið metið sérstaklega hvernig breytingin muni koma út og hver var niðurstaðan? Við fyrstu sýn virðist umrædd breyting vera umtalsverð fyrir þá ríkisstarfsmenn sem starfa á tollasviði, en hafa verður í huga að tollverðir eru embættismenn, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Af þeim sökum furðar TFÍ sig á því að breytingin sé ekki rökstudd betur og ítarlegar. Það skortir alla umfjöllun um stöðu tollvarða í nýju skipulagi, sér í lagi fyrir yfirmenn deilda, tollverði á landsbyggðinni, tollverði í tollafgreiðslu og við tollendurskoðun. Í þessu sambandi má benda á ályktun síðasta aðalfundar TFÍ sem samþykkt var einróma þar sem áformum um sameiningu embættis tollstjóra og ríkisskattstjóra var mótmælt. Í ályktuninni var skortur á samráði jafnframt gagnrýndur. Þá gerir TFÍ athugasemdir við skipan nefndarinnar þegar fjallað var um þá breytingu sem er til umsagnar hér. Þar skorti verulega á að fá fram sjónarmið fulltrúa á tollasviði embættisins. Í nefndinni var tollstjóri og forstöðumaður innheimtusviðs embættisins en ekki forstöðumaður tollasviðsins. TFÍ gerði athugasemdir við þessa tilhögun á fundi með nefndinni en ekki var tekið tillit til þess. Þá er einnig gerð athugasemd við framkvæmd breytinganna hingað til, enda var málið sett inn í samráðsgátt stjórnvalda án þess að starfsmönnum væri tilkynnt um það eins og lofað hafði verið. Í kynningu á breytingunum segir að með sameiningu ríkisskattstjóra og tollstjóra verði til ein öflug og leiðandi upplýsingastofnun. TFÍ óskar eftir upplýsingum um hvað átt sé við með hugtakinu upplýsingastofnun og hvar tolleftirlit rúmast innan hennar? Mikil áhersla virðist vera lögð á skatta og gjöld en minna fer fyrir eftirliti með ólöglegri og leyfisskyldri vöru, t.d. fíkniefnum, vopnum og fölsuðum varningi (m.a. matvæli og lyf), sem er stór hluti af viðfangsefnum tollvarða. TFÍ telur farsælast að embætti tollstjóra verði áfram sjálfstæð stofnun undir heiti Tollstjóra, sem er og hefur verið tákn tollgæslu hér á landi. Þær breytingar sem eru áformaðar og um ræðir hér virðast vera illa ígrundaðar og órökstuddar að mati félagsins. Af þeim sökum er farið fram á að fallið verði frá þeim.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum.

  • #3Benedikt Sveinbj. Benediktsson

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn SAF og SVÞ um áformin.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-216/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2019 – 19. sep. 2019· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum (fyrirkomulag tollafgreiðslu og tollgæslu).

Verði frumvarpið að lögum mun tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, færast til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-216/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. september 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. september 2019)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við áðurnefndum umsögnum. Tekið er undir það að leggja þarf áherslu á vönduð vinnubrögð við sameininguna og að vel verði staðið að breytingastjórnun og kynninga- og upplýsingaflæði til starfsmanna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarpið. Virðingarfyllst, f.h. SA Heiðrún Björk Gísladóttir

  • #2Tollvarðafélag Íslands

    Sæl, Meðfylgjandi er umsögn Tollvarðafélags Íslands um frumvarpið. Virðingarfyllst, f.h. TFÍ Birna Friðfinnsdóttir Formaður TFÍ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-264/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2019 – 5. nóv. 2019· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-264/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júní 2020)

Engar umsagnir bárust og var frumvarpið unnið áfram með það til hliðsjónar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    8 ræður · 53 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 15. nóvember 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    9 ræður · 11 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 38 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 39 með, 0 á móti
  15. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  16. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  17. Umræða
    3. umræða
    2 ræður · 2 mín
  18. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 41 með, 0 á móti
  19. Þingskjal
  20. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
266Stjórnarfrumvarp16. okt. 2019Bjarni BenediktssonLesaPDF
587Nefndarálit28. nóv. 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +4LesaPDF
588Breytingartillaga28. nóv. 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +4LesaPDF
620Frumvarp eftir 2. umræðu17. des. 2019—LesaPDF
694Lög (samhlj.)11. des. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

11 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur22. október 2019 kl. 18:36
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd22. október 2019 kl. 18:36
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:30
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Tollalög o.fl.“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:30
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Tollalög o.fl.“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:30
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Tollalög o.fl.“.
    2.--7. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:31
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Tollalög o.fl.“.
    2--18
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:31
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Tollalög o.fl.“.
    8.--71. gr. (verða 7.--68. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • Samþykkt3. desember 2019 kl. 14:31
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Tollalög o.fl.“.
    72.--91. gr. (verða 69.--88. gr.) og ákv. til brb.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur3. desember 2019 kl. 14:31
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd3. desember 2019 kl. 14:32
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. desember 2019 kl. 15:56
    Að samþykkja frumvarpið „Tollalög o.fl.“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

19 ræður · 1 klst. 6 mín
  • 1. umræða: 8 ræður · 4 ræðumenn · 53 mín
  • 2. umræða: 9 ræður · 8 ræðumenn · 11 mín
  • 3. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 2 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka11 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin11 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Jón Þór ÓlafssonUtan þingflokka11 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn11 mín
Þorsteinn VíglundssonViðreisn11 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur24 mín
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur39 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka110 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn215 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn521 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 25. okt. 2019, frestur 15. nóv. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök ferðaþjónustunnar og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.