Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 784. mál

Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald

Stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 13. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að bæta eftirlit með skammtímaleigu og beitingu viðurlaga, auk þess að samræma betur málsmeðferð og ákvörðun sekta milli leyfisskyldrar gististarfsemi og skráningarskyldrar heimagistingar.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 13. jún. 2019 greiddu 52 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
30. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
2 ræður · 15 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. jún. 2019

Markmiðið

Að bæta eftirlit með skammtímaleigu og beitingu viðurlaga, auk þess að samræma betur málsmeðferð og ákvörðun sekta milli leyfisskyldrar gististarfsemi og skráningarskyldrar heimagistingar.

Hvað breytist

Lagðar eru til tvenns konar breytingar sem báðar varða starfssvið sýslumanns. Í fyrsta lagi varðandi samræmingu á málsmeðferð og ákvörðun sekta milli skráningarskyldra og rekstrarleyfisskyldra aðila vegna leyfisskyldrar gististarfsemi annars vegar og skráningarskyldrar heimagistingar hins vegar. Í öðru lagi er lögð til breyting varðandi eftirlit með skilum á nýtingaryfirlitum einstaklinga sem leigja út húsnæði sitt og skrá undir heimagistingu.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ásmundur Friðriksson

Lokaatkvæðagreiðsla
13. jún. 2019
Samþykkt52 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S12–0
  • 239–0
  • M9–0
  • F8–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • V1–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 2. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
15 aðilar
Félag fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Viðskiptaráð Íslands, Flóahreppur, Samtök ferðaþjónustunnar o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
15 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. júní 2019: 52 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

50 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-170/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. okt. 2018 – 24. okt. 2018· 12 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007

Ferðamálaráðherra leggur til breytingar á lagaákvæðum sem varða heimagistingu og eftirlit með henni.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-170/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. apríl 2019)

Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt Stjórnarráðsins þann 17. október 2018 í samræmi við 2. mgr. 9. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar. Alls bárust tólf umsagnir. Umsagnaraðilar voru meðal annars Samband íslenskra sveitarfélaga, Sýslumannafélag Íslands, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á Vestfjörðum og sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra. Einnig bárust umsagnir frá Samtökum fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu og Viðskiptaráði Íslands. Þá funduðu fulltrúar ráðuneytisins með dómsmálaráðuneytinu og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eftir að samráðstíma lauk og við endanlegan frágang frumvarpsins. Almennt voru umsagnir mjög jákvæðar og tillögum um bætt eftirlit og skýrari ramma um gististarfsemi vel tekið. Þó bárust ábendingar frá umsagnaraðilum sem töldu ýmist gengið of langt eða skammt í breytingartillögum frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Skúli Gautason
    Ég tel að það þurfi að hafa ofurlítinn sveigjanleika eða vikmörk við beitingu þessara laga, þar sem þær aðstæður geta komið upp að bókanir breytast eftir að 90 daga hámarki er náð og fari þannig yfir hámarkið. Til samanburðar má minna á að við útdeilingu hraðasekta viðhefur lögreglan það verklag að draga 3% vikmörk frá mældum hraða þannig að á vegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst er ekki sektað fyrir brot þar sem menn eru mældir undir 94 km/klst. Dæmi um hvernig þetta getur komið til: Gestur A bókar gistingu í gegn um AirBnB á tilteknar dagsetningar. Þær gistinætur eru innan 90 daga mar… Lesa alla

    Ég tel að það þurfi að hafa ofurlítinn sveigjanleika eða vikmörk við beitingu þessara laga, þar sem þær aðstæður geta komið upp að bókanir breytast eftir að 90 daga hámarki er náð og fari þannig yfir hámarkið. Til samanburðar má minna á að við útdeilingu hraðasekta viðhefur lögreglan það verklag að draga 3% vikmörk frá mældum hraða þannig að á vegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst er ekki sektað fyrir brot þar sem menn eru mældir undir 94 km/klst. Dæmi um hvernig þetta getur komið til: Gestur A bókar gistingu í gegn um AirBnB á tilteknar dagsetningar. Þær gistinætur eru innan 90 daga markanna. Eftir að þær hafa verið samþykktar og greiddar í gegnum AirBnB breytast ferðaplönin og gestur A biður um að dagsetningum sé breytt. Þær dagsetningar sem hann fer fram á rúmast ekki innan 90 daga markanna. Gestgjafinn á þá aðeins um tvennt að velja, að samþykkja breytinguna og fara þar með yfir 90 daga hámarkið eða synja um breytingu, en það er mjög illa séð hjá AirBnB, gestgjafinn er krafinn um skýringar, hann færist neðar á vinsældalistann eða hann jafnvel beittur sektum.

  • #2Guðmundur Árni Ólafsson
    Góðan daginn, Vegna frumvarps um lagabreytingar á heimagistingu þá langar mig til að benda á einn hlut sem ég tel að mismuni leigjendum. Samkvæmt tölum frá hagstofu þá telur leigumarkaðurinn allt að 35.000 heimili og fjölgaði heimilum á leigumarkaði um 71% á árunum 2005 - 2014. Rúmlega 8.500 leigusamningar voru þinglýstir á árinu 2016. Það er löngu vitað að það er almenn óánægja á leigumarkaði og við lok árs 2015 þá sögðust einungist 10.4 % leigjenda vera á leigumarkaði af því að þeir vilja vera þar, samanborið við 18.9% áratug á undan. Ég tel að þessi lagabreyting muni hafa en… Lesa alla

    Góðan daginn, Vegna frumvarps um lagabreytingar á heimagistingu þá langar mig til að benda á einn hlut sem ég tel að mismuni leigjendum. Samkvæmt tölum frá hagstofu þá telur leigumarkaðurinn allt að 35.000 heimili og fjölgaði heimilum á leigumarkaði um 71% á árunum 2005 - 2014. Rúmlega 8.500 leigusamningar voru þinglýstir á árinu 2016. Það er löngu vitað að það er almenn óánægja á leigumarkaði og við lok árs 2015 þá sögðust einungist 10.4 % leigjenda vera á leigumarkaði af því að þeir vilja vera þar, samanborið við 18.9% áratug á undan. Ég tel að þessi lagabreyting muni hafa enn verri áhrif á leigumarkaðinn og að enn færri verði ánægðir með það að vera á leigumarkaði. Það skref að leyfa aðeins þinglýstum eigendum að selja heimagistingu á heimilum sínum er mismunun við þá sem eru á leigumarkaði og hafa í dag fullan rétt á að selja gistingu í heimilum sínum í 90 nætur eða þéna allt að 2 milljónir króna á almanaksári. (svo lengi sem að það brjóti ekki leigusamninga) Ég tel þau rök að sýslumaður hafi séð mörg atvik þar sem einstaklingur A færir lögheimili sitt í fasteign B og sólarhring seinna sé fasteign B skráð í heimagistingu á lögheimili A, ekki forsenda til að mismuna öllum þeim þúsundum heimila sem eru í leiguhúsnæði að vera með heimagistingu á sínum heimilum. virðingafyllst Guðmundur Árni

  • #3Hermann Guðmundsson

    Með breytingunni um að ,,skráning heimagistingar verði bundin við þinglýst eignarhald og lögheimili'' er verið að mismuna fólki á leigumarkaði. Tækifæri fólks á leigumarkaði til þess að afla sér smá aukinna tekna er því ekki til staðar á meðan eigendur fasteigna hafa einir tækifæri til þess. Ég tel að lögin sem eru nú þegar til staðar gæti jafnræðis milli fólks á leigumarkaði og eiganda fasteigna til útleigu í heimagistingu. Yrði þetta frumvarp að lögum er ljóst að um skýra mismunun væri að ræða.

  • #4Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, með síðari breytingum. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler lögmaður

  • #5Kristófer Oliversson
    FHG - Fyrirtæki í hótel og gistiþjónustu Reykjavík, 22. október 2018 Varðar: Frv. til brt. á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 Samtök fyrirtæka í hótel- og gistiþjónustu (FHG) fagna tækifærinu til að fá að gera athugasemdir við frumvarpið á samráðsgáttinni. FHG telja þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu mikilvægt skref í rétta átt, en telja ástæðu til að ganga lengra varðandi suma þætti þess til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Tillögur frumvarpsins Meginefni frumvarpsins lúta annars vegar að því að skerpa á skráningu he… Lesa alla

    FHG - Fyrirtæki í hótel og gistiþjónustu Reykjavík, 22. október 2018 Varðar: Frv. til brt. á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 Samtök fyrirtæka í hótel- og gistiþjónustu (FHG) fagna tækifærinu til að fá að gera athugasemdir við frumvarpið á samráðsgáttinni. FHG telja þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu mikilvægt skref í rétta átt, en telja ástæðu til að ganga lengra varðandi suma þætti þess til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Tillögur frumvarpsins Meginefni frumvarpsins lúta annars vegar að því að skerpa á skráningu heimagistingar og eftirliti sýslumanns með skilum á nýtingarhlutföllum í tengslum við heimagistingu og hins vegar að samræmdri málsmeðferð einstaklinga og fyrirtækja gagnvart brotum á lögunum sem varða sektum. A. Heimagisting i) Skráning Tillaga um breytingu á 3. gr. frumvarpsins gengur út á að tryggja að hvort sem verið sé að leigja þá eign sem lögheimili er skráð á eða "hina" fasteign viðkomandi sé þinglýst eignarhald beggja skilyrði fyrir skráningu leyfis. Eftir slíka breytingu mundu viðkomandi málsliðir 3. gr. laganna hljóða svo: “Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota. Þinglýst eignarhald er jafnframt skilyrði skráningar heimagistingar.” Í greinargerð frumvarpsdraganna kemur fram að markmið ákvæðisins sé að koma í veg fyrir "gervilögheimilisskráningar" til að fullnægja skilyrðum til útleigu í heimagistingu. FHG fagna þessari tillögu, sem miðar að því að færa framkvæmd heimagistingar meira í samræmi við anda lagabreytingarinnar frá 2016. FHG telja þó ástæðu til að ganga lengra. Þannig telja samtökin að reglan um 2 fasteignir og reglan um 90 daga útleigutíma vinna gegn megintilgangi laganna, að styðja deilihagkerfið með því að veita hinum almenna borgara kost á að leigja út eign sína til skemmri tíma. Þannig hefur reglan um heimild til að leigja út aðra fasteign dregið verulega úr framboði á eignum í útleigu til lengri tíma og hækkað leiguverð þar sem framboð hefur ekki mætt eftirspurn. Sums staðar á landsbyggðinni hefur þetta nánast snúist uppí öndverðu sína, þar sem allt laust húsnæði er frátekið fyrir skammtímaleigu, húsnæði sem annars gæti nýst aðkomufólki sem leitar starfa í bæjarfélaginu. Þá var m.a. bent á í greinargerð frumvarpsins sem varð að lögum nr. 67/2016 að með tveggja eigna reglunni sé m.a. verið að koma til móts við þá sem eiga sumarhús samhliða eigin húsnæði. Þar er horft fram hjá því að víða í frístundabyggðum er slík starfsemi að verða vaxandi vandamál. Loks er ástæða til að nefna það ónæði sem nágrannar verða fyrir, ekki síst að næturlagi vegna komu og brottfarar leigjenda í heimagistingu. Slíkt er fyrst og fremst vandamál í þeim eignum sem eru mikilli útleigu þar sem um aðra fasteign er að ræða. Að mati FHG er eðlilegt að afmarka skráningu heimagistingar samkvæmt lögunum við eina fasteign og að hámarks leigutímabil á ári miði við einn mánuð, sem er hefðbundið orlofstímabil vinnandi fólks. FHG leggja því til að 1. gr. frumvarpsins orðist svo: 2. og 3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings sem hann hefur til persónulegra nota og er í þinglýstri eigu hans. Fjöldi útleigðra daga í heimagistingu skal ekki fara yfir 30 daga á hverju almanaksári eða samanlagðar tekjur af leigu eignarinnar skulu ekki nema hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. ii) Eftirlit Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir sérstakri heimild til að leggja stjórnvaldssektir á þá aðila sem ekki skila upplýsingum um leigða daga og leigutekjur í heimagistingu á sínum vegum yfir árið. FHG telja það mikilvæga breytingu og til þess fallna að upplýsingar um heimagistingu skili sér betur en verið hefur. B. Samræmd málsmeðferð Frumvarpsdrögin gera tillögu um að málsmeðferð í tengslum við beitingu sekta vegna heimagistingar og annarra rekstrarleyfa til gistingar verði samræmd. Þannig verði í báðum tilvikum heimild til stjórnvaldssekta. FHG fagna því, enda einfalt og skilvirkt úrræði. Horft til framtíðar FHG telja skráningu og úthlutun leyfa vegna gistiþjónustu betur komna hjá Ferðamálastofu en sýslumönnum. Samkvæmt lögum um skipan ferðamála nr. 73/2005 þá er hlutverk Ferðamálastofu m.a. útgáfa leyfa og skráning á starfsemi á sviði ferðaþjónustu. Þannig er þegar komin sérhæfing við leyfisveitingar vegna ferðaþjónustu hjá stofnuninni og liggur best við að gistiþjónustan falli þar einnig undir. Í tengslum við slíka yfirfærslu yrði þá einnig tryggt að einfaldara verði en nú er að fletta upp aðilum innan ólíkra flokka gististaða. Einnig þyrfti að tryggja betur en nú er að birt séu úthlutuð númer leyfis, en í opinberri skrá á vefnum syslumenn.is er í dag hvergi að finna slík leyfisnúmer. Þá er æskilegt að huga að því að eftirliti með leyfisskyldri starfsemi verði breytt. FHG teldu skynsamlegt að fara sambærilega leið og gildir um t.d. ökutæki, þ.e. einkaaðilum væri falið að halda utanum slíkt eftirlit. Til að undirbyggja það mætti t.d. skylda leyfisaðila til að taka upp vottað gæðakerfi sem eftirlitsaðila bæri að fyljast með hvort væri til staðar. Einnig mætti sjá slíkt fyrirkomulag svipað og í tilviki Samgöngustofu, sem gefur út skoðunarhandbók ökutækja. Þannig gæfi Ferðamálastofa (ef leyfisveitingar færu þangað) út skoðunarhandbók gististaða. Loks velta FHG því upp hvort ástæða gæti verið til að skilja lögin í sundur, þ.e. hafa sérlög um gistiþjónustu, enda hún orðin stór atvinnugrein á Íslandi. Virðingarfyllst, Kristófer Oliversson formaður FHG

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 8 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. maí 2019
    2 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 7 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 46 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1244Stjórnarfrumvarp30. mar. 2019Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
1733Nál. með brtt.6. jún. 2019Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson +4LesaPDF
1800Frumvarp eftir 2. umræðu16. ágú. 2019—LesaPDF
1819Lög (samhlj.)13. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur10. apríl 2019 kl. 20:49
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd10. apríl 2019 kl. 20:49
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2019 kl. 11:25
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2019 kl. 11:26
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:4 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2019 kl. 11:26
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“.
    2. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2019 kl. 11:26
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“.
    3. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:3 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. júní 2019 kl. 11:26
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. júní 2019 kl. 10:39
    Að samþykkja frumvarpið „Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:1 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 15 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 8 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 7 mín

Umsagnir og erindi

17 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 12. apr. 2019, frestur 2. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Félag fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð ÍslandsviðbótarumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinuviðbótarumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
FlóahreppurumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarviðbótarumsögnOpna PDF
HrunamannahreppurumsögnOpna PDF
Félag fyrirtækja í hótel og gistiþjónustuumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystraumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á SuðurlandiumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
FljótsdalshéraðumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
BláskógabyggðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.