Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 772. mál

Skráning einstaklinga

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 29. apr. 2019

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 149. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að halda áreiðanlega skrá yfir einstaklinga svo hún skapi grundvöll fyrir tiltekin réttindi og tilteknar skyldur einstaklinga.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
30. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
10 ræður · 30 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2019

Markmiðið

Að halda áreiðanlega skrá yfir einstaklinga svo hún skapi grundvöll fyrir tiltekin réttindi og tilteknar skyldur einstaklinga.

Hvað breytist

Gert er ráð fyrir því að Þjóðskrá Íslands verði heimil vinnsla persónuupplýsinga, þ.á.m. upplýsinga um heilsufar, þjóðerni, trúarbrögð og hjúskaparstöðu og annarra upplýsinga sem hinn skráði leggur í té, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lagt er til að tilgreint sé hvaða upplýsingar eru skráðar í þjóðskrá eftir því sem við á svo það fari ekki á milli mála hvaða upplýsingar eru skráðar. Þá er lagt til að gerð verði sú krafa til einstaklinga, sem hafa verið eða eru búsettir erlendis og skráðir eru í þjóðskrá, að þeir verði ábyrgir fyrir því að upplýsingar um þá í þjóðskrá séu réttar. Enn fremur er gert ráð fyrir að kveðið verði á um að Þjóðskrá Íslands annist útgáfu kennitölu til einstaklinga og að aðeins opinberir aðilar geti haft milligöngu um stofnun kerfiskennitölu handa erlendum ríkisborgurum. Einnig er lagt til að hætta að afhenda þjóðskrá í heild til að hægt sé að uppfylla kröfur nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Loks er gert ráð fyrir að kveðið sé á um skýra heimild fyrir Þjóðskrá Íslands að vernda skráða einstaklinga gegn afhendingu upplýsinga.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, og reglur nr. 112/1958 um útgáfu vottorða og veitingu upplýsinga úr þjóðskránni. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna frumvarpsins verði 69,1 milljónir kr. árið 2019, 85,2 milljónir kr. árið 2020, 84,8 milljónir kr. árið 2021 og 69,2 milljónir kr. árið 2022.

Meira úr samantektinni

Þjóðskrá Íslands

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om Det Centrale Personregister LOV nr 646 af 02/06/2017.

Finnland

Lag om befolkningsdatasystemet och Befolkningsregistercentralens certifikattjänster 21.8.2009/661.

Noregur

Lov om folkeregistering (folkeregisterloven) LOV-2016-12-09-88.

Svíþjóð

Folkbokföringslag (1991:481).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Páll Magnússon

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 14. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
8 aðilar
Persónuvernd, Lúðvík Júlíusson, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Hagstofa Íslands, Þjóðskrá Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
30 mín · 10 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna frumvarpsins verði 69,1 milljónir kr. árið 2019, 85,2 milljónir kr. árið 2020, 84,8 milljónir kr. árið 2021 og 69,2 milljónir kr. árið 2022.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-23/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um skráningu einstaklinga

Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um skráningu einstaklinga sem koma á í stað laga um þjóðskrá og almannaskráningu nr. 54/1962 sem komin eru til ára sinna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-23/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. júlí 2019)

Niðurstaða máls er í stuttu máli að 3 umsagnir bárust um frumvarpstextan. Gerð er grein fyrir viðbrögðum ráðuneytisins við umsögnum í skýrslu um samráð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    10 ræður · 30 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 14. maí 2019
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1229Stjórnarfrumvarp30. mar. 2019Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. apríl 2019 kl. 17:05
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd29. apríl 2019 kl. 17:05
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 30 mín
  • 1. umræða: 10 ræður · 4 ræðumenn · 30 mín

Umsagnir og erindi

8 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 30. apr. 2019, frestur 14. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Lúðvík JúlíussonumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Hagstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins, Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsins.umsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.