Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 767. mál

Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að heimila þátttöku Íslands í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. jún. 2019 greiddu 54 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
30. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
3 ræður · 10 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 12. jún. 2019

Markmiðið

Að heimila þátttöku Íslands í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði.

Hvað breytist

Lagt er til að innleidd verði reglugerð ráðsins (EB) nr. 723/2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC) ásamt reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1261/2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 723/2009. Einnig er kveðið á um skráningu, umsóknarferli um stofnun ERIC-samtaka á Íslandi eða þátttöku í ERIC-samtökum staðsettum erlendis og reglugerðarheimild ráðherra.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Möguleg fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð geta verið tvenns konar, annars vegar vegna ERIC-samtaka á Íslandi og hins vegar vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum erlendis. Á næstu árum verður kostnaður ríkissjóðs eingöngu vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum og er áætlað að árlegur kostnaður verði 15-17,5 milljónir kr. en 48-50,5 milljónir kr. annað hvert ár.

Meira úr samantektinni

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 723/2009 frá 25. júní 2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC).

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1261/2013 frá 2. desember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 723/2009 um lagaramma Bandalagsins um samtök um evrópska rannsóknainnviði (ERIC).

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 72/2015 frá 20. mars 2015.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Þórarinn Ingi Pétursson

Lokaatkvæðagreiðsla
11. jún. 2019
Samþykkt54 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S10–0
  • 2310–0
  • M9–0
  • F6–0
  • Sf7–0
  • 436–0
  • V4–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 3. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Veðurstofa Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
10 mín · 3 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Möguleg fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð geta verið tvenns konar, annars vegar vegna ERIC-samtaka á Íslandi og hins vegar vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum erlendis. Á næstu árum verður kostnaður ríkissjóðs eingöngu vegna þátttöku Íslands í erlendum ERIC-samtökum og er áætlað að árlegur kostnaður verði 15-17,5 milljónir kr. en 48-50,5 milljónir kr. annað hvert ár.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. júní 2019: 54 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

52 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-82/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. júl. 2018 – 7. ágú. 2018· 0 umsagnir

Áform um frumvarp um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

Um er að ræða áform um lagasetningu um ný lög þar sem lagt er til að innleidd verði reglugerð ESB nr. 723/2009 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC-samtök, ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknarinnviði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-82/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. október 2018)

Samráði lokið. Engar efnislegar athugasemdir bárust. Frumvarpsgerð er hafin.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-246/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. nóv. 2018 – 14. des. 2018· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

Um er að ræða drög að nýju lagafrumvarpi sem innleiðir reglugerð EB nr. 723/2009 og henni var breytt með reglugerð ESB nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC samtök en ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknainnviði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-246/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. desember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. janúar 2019)

Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið. Tvær í Samráðsgáttina, annars vegar frá Raunvísindastofnun Íslands og hins vegar frá Veðurstofu Íslands og ein umsögn barst eftir að athugasemdafresti lauk en sú umsögn kom sameiginlega frá Félagsvísindastofnun og Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Umsagnaraðilar voru sammála um mikilvægi frumvarpsins. Tveir umsagnaraðilar bentu á nokkur atriði í frumvarpstexta sem mætti skýra betur og var orðalag frumvarpsins breytt lítillega til samræmis við. Þá voru atriði í greinargerð með frumvarpsdrögunum leiðrétt í samræmi við athugasemdir.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Raunvísindastofnun Háskólans
    Umsögn Raunvísindastofnunar Háskólans um mál nr. 246/2018 með frumvarpinu Drög að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) Raunvísindastofnun Háskólans er vettvangur grunnrannsókna á fræðasviðum sínum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Stofnunin er hluti af Raunvísinda- og Jarðvísindadeildum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Raunvísindastofnun fagnar drögum að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) og tekur heils hugar undir orð greinargerðar með frumvarpinu: "Til að hægt sé að stunda framúrskarandi rannsóknir… Lesa alla

    Umsögn Raunvísindastofnunar Háskólans um mál nr. 246/2018 með frumvarpinu Drög að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) Raunvísindastofnun Háskólans er vettvangur grunnrannsókna á fræðasviðum sínum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Stofnunin er hluti af Raunvísinda- og Jarðvísindadeildum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Raunvísindastofnun fagnar drögum að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) og tekur heils hugar undir orð greinargerðar með frumvarpinu: "Til að hægt sé að stunda framúrskarandi rannsóknir þurfa vísindamenn að hafa aðgang að hágæða rannsóknarinnviðum (t.d. tækjabúnaði, gagnagrunnum og rafrænum innviðum). Oft er um að ræða mjög dýra og/eða umfangsmikla rannsóknarinnviði sem útilokað er að einstakt ríki hafi bolmagn til að koma sér upp. Til að vera samkeppnishæft á alþjóðlegan mælikvarða hefur íslenskt vísindasamfélag hag af því að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknarinnviði. Með aðild að stórum rannsóknarinnviðum fá vísindamenn aðgengi að aðstöðu, tækjabúnaði, mæligögnum, aðferðafræði og ekki síst alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi sem er lífsnauðsynlegt íslensku vísindasamfélagi." Starfsmenn Raunvísindastofnunar taka þátt í fjölbreyttu alþjóðlegu samstarfi. Í þessu samstarfi skapast oft aðgangur að margvíslegum rannsóknainnviðum. Þátttaka í ERIC samtökunum mun vafalítið nýtast rannsóknum í eðlisfræði, efnafræði, efnisvísindum, jarðvísindum og örtækni með bættu aðgengi að samhraðalsstofnunum, hringhröðlum, samstarfi örtæknikjarna, tölvuþyrpingum, stjörnusjónaukum, efnagreiningum, jarðskjálftahermum svo að fátt eitt sé nefnt. Virðingarfyllst f.h. stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans Hafliði Pétur Gíslason, prófessor Formaður stjórnar

  • #2Veðurstofa Íslands
    Veðurstofa Íslands telur mjög mikilvægt að Íslandi sé heimil þátttaka í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) og fagnar því lagafrumvarpsdrögum þessum. Veðurstofan gerir engar athugasemdir við texta frumvarpsins sjálfs en vill bæta við og leiðrétta þrjú atriði í greinargerð með því. Í 2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar, þar sem fjallað er um Veðurstofu Íslands, segir að stofnsetning EPOS-ERIC samtakanna setji aðild Veðurstofunnar í uppnám. Hér mætti koma fram að stofnunin telur mjög mikilvægt að hún geti orðið fullgildur aðili að samtökunum með atkvæðisrétt fyrir Íslands hönd, e… Lesa alla

    Veðurstofa Íslands telur mjög mikilvægt að Íslandi sé heimil þátttaka í samtökum um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) og fagnar því lagafrumvarpsdrögum þessum. Veðurstofan gerir engar athugasemdir við texta frumvarpsins sjálfs en vill bæta við og leiðrétta þrjú atriði í greinargerð með því. Í 2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar, þar sem fjallað er um Veðurstofu Íslands, segir að stofnsetning EPOS-ERIC samtakanna setji aðild Veðurstofunnar í uppnám. Hér mætti koma fram að stofnunin telur mjög mikilvægt að hún geti orðið fullgildur aðili að samtökunum með atkvæðisrétt fyrir Íslands hönd, en vegna stærðar og skipulags þeirra má leiða líkur að því að þau verði einn mikilvægasti samráðsvettvangur fagsviða í jarðvísindum í Evrópu og þ.a.l. um vöktun náttúruvár í álfunni. Í 2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar, þar sem fjallað er um Veðurstofu Íslands, segir að EPOS hafi haft töluverð áhrif á rannsóknarköll í bæði 7. og 8. rammaáætlun ESB. Hér á að standa 7. og H2020 rammaáætlun ESB. Í 5. Mat á áhrifum segir að umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafi greitt árgjald fyrir Veðurstofu Íslands í EPOS um nokkurra ára skeið eða áður en EPOS tók upp ERIC rekstrarformið. Rétt er hinsvegar að ráðuneytið hefur samþykkt að greiða árgjaldið að EPOS-ERIC, sem stofnsett voru formlega í nóvember 2018. Því hefur ekki komið til innheimtu árgjaldsins enn.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 4 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 3. maí 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 5 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  15. Þingskjal
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  17. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1224Stjórnarfrumvarp30. mar. 2019Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF
1527Nál. með brtt.14. maí 2019Páll Magnússon, Hjálmar Bogi Hafliðason +7LesaPDF
1751Frumvarp eftir 2. umræðu11. jún. 2019—LesaPDF
1779Lög (samhlj.)11. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

10 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. apríl 2019 kl. 14:54
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd11. apríl 2019 kl. 14:54
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:18
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:18
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    2.--4. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:19
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    2
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:19
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    5. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:19
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“.
    6. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. júní 2019 kl. 15:19
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. júní 2019 kl. 17:35
    Að samþykkja frumvarpið „Samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 10 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 4 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 12. apr. 2019, frestur 3. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Veðurstofa ÍslandsminnisblaðOpna PDF
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumumsögnOpna PDF
Félagsvísindastofnun Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsvísindasvið Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Hafrannsóknastofnun - rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatnaumsögnOpna PDF
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.