Áform um frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga ásamt breytingum á lögum um vátryggingarsamninga.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga og breytingar á lögum um vátryggingarsamninga til að innleiða tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-1/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 29. janúar 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. maí 2019)
Áform um frumvörpin voru birt 8. janúar 2019 í samráðsgátt stjórnvalda. Veittar voru 2 vikur til umsagnar. Ábending barst frá ráðgjafarnefnd um eftirlit á vegum hins opinbera, samkvæmt lögum 27/1999, sem tekið var tillit til eftir því sem unnt var.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Sigurður Örn Guðleifsson
Hjálagðar eru ábendingar ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, sem starfar á grundvelli laga nr. 27/1999. F.h. nefndarinnar, Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.