Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 764. mál

Dreifing vátrygginga

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 7. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um dreifingu vátrygginga. Að tryggja netyendavernd og að þjónusta þeirra sem miðla og selja vátryggingar sé með sambærilegum hætti.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 7. jún. 2019 greiddu 55 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
30. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
2 ræður · 9 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 11. jún. 2019

Markmiðið

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um dreifingu vátrygginga. Að tryggja netyendavernd og að þjónusta þeirra sem miðla og selja vátryggingar sé með sambærilegum hætti.

Hvað breytist

Lögð er til ný heildarlöggjöf um miðlun og sölu vátrygginga, byggð á tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga (Insurance Distribution Directive, IDD). Lagt er til að lögin nái einnig til sölu vátrygginga hjá vátryggingafélögum. Kveðið er á um ítarlegar kröfur um hæfi og hæfni þeirra aðila sem miðla og selja vátryggingar og lagt er til að skylt verði að veita viðskiptavinum mun meiri upplýsingar en nú tíðkast.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um miðlun vátrygginga, nr. 32/2005.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 frá 20. janúar 2016 um dreifingu vátrygginga (endurútgefin).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Brynjar Níelsson

Lokaatkvæðagreiðsla
7. jún. 2019
Samþykkt55 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Dreifing vátrygginga“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M8–0
  • F7–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • V3–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 17. apr. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
3 aðilar
Samtök fjármálafyrirtækja, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Fjármálaeftirlitið · allar umsagnir
Umræða í þingsal
9 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 7. júní 2019: 55 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

53 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-1/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 29. jan. 2019· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga ásamt breytingum á lögum um vátryggingarsamninga.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga og breytingar á lögum um vátryggingarsamninga til að innleiða tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-1/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. janúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. maí 2019)

Áform um frumvörpin voru birt 8. janúar 2019 í samráðsgátt stjórnvalda. Veittar voru 2 vikur til umsagnar. Ábending barst frá ráðgjafarnefnd um eftirlit á vegum hins opinbera, samkvæmt lögum 27/1999, sem tekið var tillit til eftir því sem unnt var.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-71/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2019 – 10. mar. 2019· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um dreifingu vátrygginga og frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga.

Með frumvörpunum verða ákvæði tilskipunar um dreifingu vátrygginga nr. 2016/97/ESB sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn leidd í lög á Íslandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-71/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. maí 2019)

Drög að frumvörpunum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 26. febrúar 2019. Frestur til umsagna var til 10. mars 2019. Ein umsögn barst, frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF), dags. 8. mars 2019. Athugasemdir við frumvarp um dreifingu vátrygginga voru eftirfarandi: Í umsögninni er gerð athugasemd við að ekki sé nægilega skýrt að átt sé við vátryggingafjárhæð í 2. mgr. 12. gr. þar sem fjallað erum starfsábyrgðartryggingu vátryggingamiðlara. Þá telja samtökin að rétt sé að vátryggingamiðlara sem kjósi að hafa aðra tryggingu en starfsábyrgðartryggingu verði einnig skylt að birta þær upplýsingar á vef sínum, sbr. 4. mgr. 12. gr. Framangreindum ákvæðum var breytt í frumvarpinu til samræmis við tillögur SFF. Í umsögninni er farið yfir hugtakið dreifing vátrygginga og telur SFF mikilvægt að í greinargerð verði umfjöllun um hvar neðri mörk hugtaksins liggja til að koma í veg fyrir að ákvæðið verði túlkað á þann veg að fella aðila undir hugtakið sem ættu ekki eðli málsins samkvæmt að falla undir það. Mikilvægt sé að ekki verði litið svo á að lítil snerting við viðskiptavini, t.d. þjónusturáðgjöf í símaveri eða fyrirtæki sem bendir á tiltekið vátryggingafélag án þess þó að veita ráðgjöf um vátryggingar, falli undir hugtakið. Í almennum athugasemdum við frumvarpið kemur fram að ákvæði tilskipunarinnar eigi ekki að gilda um starfsemi þar sem veitt er tilfallandi ráðgjöf um vátryggingar með annarri þjónustu og sem dæmi um slíka þjónustu sé þjónusta lögmanna og endurskoðenda sem veita ráðgjöf. Þá gildi tilskipunin ekki um almenna upplýsingagjöf um vátryggingar að því gefnu að tilgangur starfseminnar sé hvorki að aðstoða við gerð vátryggingarsamnings né að efna hann. Til skýrleika var bætt við umfjöllun í athugasemdum við 3. gr. hvaða starfsmenn vátryggingafélaga falla undir hugtakið dreifing. Athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á vátryggingarsamninga eru eftirfarandi: Í umsögninni kemur fram að mikilvægt sé að tryggja að löggjöf standi ekki í vegi fyrir þróun í átt að auknum rafrænum viðskiptum á vátryggingamarkaði. Vísað er til 4. mgr. 8. gr. frumvarpsins þar sem fram kemur að heimilt verði að veita upplýsingar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef það er viðeigandi vegna viðskiptanna og vátryggingartaki kýs að fá upplýsingarnar með þeim hætti. SFF tiltekur að unnt sé að skilja málsgreinina á þann hátt að upplýsingar geti aðeins verið afhentar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef fyrir liggur samþykki viðskiptavinar og taka þurfi fram í greinargerð að heimilt sé að veita upplýsingar á rafrænu formi án þess að sérstakt samþykki þurfi að liggja fyrir. Af þessu tilefni er vakin athygli á því að í ákvæðinu kemur fram að heimilt sé að veita upplýsingar á varanlegum miðli öðrum en pappír ef vátryggingartaki kjósi að fá upplýsingar með þeim hætti. Með öðrum orðum verður vátryggingartaki að samþykkja það að fá upplýsingar afhentar á varanlegum miðli. Ákvæðið er í samræmi við b-lið 4. mgr. 23. gr. tilskipunar 2016/97/ESB þar sem það skilyrði er sett að til að unnt sé að afhenda vátryggingartaka upplýsingar á varanlegum miðli skuli hann hafa valið sjálfur að fá upplýsingarnar á því formi. Orðalagi ákvæðisins var breytt til að gera það skýrara ásamt athugasemdum með ákvæðinu. Þá er í umsögninni vísað til 13. gr. vegna ákvæðis um vátryggingarskírteini þar sem SFF telur með vísan til 8. gr. að afhending vátryggingarskírteinis eigi að geta verið á varanlegum miðli án sérstaks samþykkis vátryggingartaka. Miðað við efni tilskipunarinnar um að samþykki vátryggingartaka þurfi til að koma svo unnt sé að veita upplýsingar á varanlegum miðli þótti við samningu frumvarpsins ekki tilefni til að ganga lengra vegna afhendingar á vátryggingarskírteini og gildir því sú meginregla áfram að vátryggingartaki skuli gefa samþykki fyrir slíkum samskiptamáta. Athugasemdum með ákvæði 13. gr. var breytt til að auka skýrleika að þessu leyti. Að lokum kemur fram í umsögn SFF að í frumvörpunum felist umfangsmiklar breytingar sem kalli á undirbúning hjá vátryggingafélögunum, m.a. breytingar á skilmálum. Því sé nauðsynlegt að aðilum sem falla undir frumvarpið verði veittur nægur tími til að laga sig að breyttu lagaumhverfi. SFF leggja til að gildistöku frumvarpsins verði frestað í að minnsta kosti sex mánuði. Tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands sem þýðir að Ísland hefur sex mánaða frest frá töku ákvörðunarinnar til að aflétta fyrirvaranum. Gert er ráð fyrir að honum verði aflétt í september 2019. Í frumvarpinu er lagt til að það taki gildi 1. ágúst 2019 til að koma til móts við aðila á markaði.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 4 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 17. apríl 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 5 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1215Stjórnarfrumvarp30. mar. 2019Bjarni BenediktssonLesaPDF
1604Nefndarálit23. maí 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +6LesaPDF
1605Breytingartillaga23. maí 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +6LesaPDF
1719Frumvarp eftir 2. umræðu11. jún. 2019—LesaPDF
1745Lög (samhlj.)7. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur1. apríl 2019 kl. 21:45
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd1. apríl 2019 kl. 21:45
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt5. júní 2019 kl. 10:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Dreifing vátrygginga“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt5. júní 2019 kl. 10:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Dreifing vátrygginga“.
    2.--21. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt5. júní 2019 kl. 10:48
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Dreifing vátrygginga“.
    1--8
    • SSjálfstæðisflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt5. júní 2019 kl. 10:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Dreifing vátrygginga“.
    22.--58. gr., svo breyttar, og ákv. til brb. I--II
    • SSjálfstæðisflokkur:9 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur5. júní 2019 kl. 10:49
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:04
    Að samþykkja frumvarpið „Dreifing vátrygginga“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 9 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 4 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 5 mín

Umsagnir og erindi

3 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 3. apr. 2019, frestur 17. apr. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.