Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 634. mál

Rafræn auðkenning og traustþjónusta fyrir rafræn viðskipti

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 7. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja að örugg rafræn auðkenning og sannvottun sé möguleg til aðgangs að nettengdri þjónustu yfir landamæri sem aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu bjóða einstaklingum og lögaðilum. Að auka traust í rafrænum viðskiptum með því að kveða á um réttaráhrif og kröfur til rafrænna auðkenningarleiða og traustþjónustu.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 7. jún. 2019 greiddu 54 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
1. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
7
Umræða í þingsal
10 ræður · 48 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 11. jún. 2019

Markmiðið

Að tryggja að örugg rafræn auðkenning og sannvottun sé möguleg til aðgangs að nettengdri þjónustu yfir landamæri sem aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu bjóða einstaklingum og lögaðilum. Að auka traust í rafrænum viðskiptum með því að kveða á um réttaráhrif og kröfur til rafrænna auðkenningarleiða og traustþjónustu.

Hvað breytist

Lagt er til að reglugerð Evrópusambandsins um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti á innri markaðnum verði veitt lagagildi hér á landi. Reglugerðin nær til fleiri tegunda traustþjónustu en áður auk þess að fjalla um rafræna auðkenningu og skjöl og gagnkvæma auðkenningu á rafrænum auðkenningarleiðum yfir landamæri. Lagt er til Neytendastofu sé falið hlutverk eftirlitsstofnunar með nauðsynlegum valdheimildum og fullnægjandi bolmagni til að inna af hendi verkefni sín í samræmi við 17. gr. reglugerðarinnar. Auk þess er gert ráð fyrir að ráðherra fái heimild til að setja reglugerðir til að innleiða framkvæmdargerðir og framseldar gerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem byggja á reglugerðinni og teknar verða upp í EES-samninginn.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, og lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 910/2014 frá 23. júlí 2014 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti á innri markaðnum og um niðurfellingu á tilskipun 1999/93/EB.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2018 frá 9. febrúar 2018.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Lov om supplerende bestemmelser til forordning om elektronisk identifikation og tillidstjenester til brug for elektroniske transaktioner på det indre marked LOV nr 617 af 08/06/2016.

Noregur

Lov om gjennomføring av EUs forordning om elektronisk identifikasjon og tillitstjenester for elektroniske transaksjoner i det indre marked (lov om elektroniske tillitstjenester) LOV-2018-06-15-44.

Svíþjóð

Lag med kompletterande bestämmelser till EU:s förordning om elektronisk identifiering (2016:561).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
7. jún. 2019
Samþykkt54 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Rafræn auðkenning og traustþjónusta fyrir rafræn viðskipti“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M8–0
  • F6–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • V3–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. mar. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Neytendastofa, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands, Persónuvernd · allar umsagnir
Umræða í þingsal
48 mín · 10 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 7. júní 2019: 54 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með6 tóku til máls

48 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-40/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. mar. 2018 – 17. apr. 2018· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu

Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu. Frumvarpið innleiðir reglugerð ESB nr. 910/2014 eða hina svokölluðu eIDAS reglugerð.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-40/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. apríl 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. apríl 2019)

Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgáttinni 27. mars 2018 og frestur til umsagna veittur til 17. apríl 2018. Umsagnir bárust frá Neytendastofu, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Viðskiptaráði Íslands og skiluðu fyrrnefnd samtök ásamt Viðskiptaráði sameiginlegri umsögn. Hinn 23. apríl 2018 fundaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið með Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Viðskiptaráði Íslands um frumvarpsdrögin og umsögn þeirra. Helstu athugasemdir í sameiginlegri umsögn samtakanna lutu að því að greinargerð frumvarpsdraganna væri ekki nógu ítarleg. Í umsögninni kom fram að bæta þyrfti umfjöllun um ákvæði reglugerðarinnar sem fjalla um réttaráhrif traustþjónustu og áhrif ákvæðanna að íslenskum rétti. Þá kom fram að skýra þyrfti betur hlutverk Neytendastofu sem eftirlitsstofnunar og muninn á hlutverki ráðherra og Neytendastofu samkvæmt lögunum. Í umsögninni kom einnig fram að skýra þyrfti betur ákvæði um úrræði Neytendastofu og þagnarskylduákvæði laganna og ákvæði þeirra um heimildir Neytendastofu til að krefjast úttektar samræmismatsstofu á starfsemi traustþjónustuveitanda. Þá þótti brýnt að skýra betur í greinargerð að úrræði Neytendastofu til aðgengis að starfsstöð fæli ekki í sér húsleitarheimild. Jafnframt voru gerðar athugasemdir við að fjárhæð dagsekta væri umtalsvert hærri en almennt tíðkast. Þá voru athugasemdir gerðar við að skammur tími væri fyrir traustþjónustuveitendur að bregðast við nýjum kröfum og aðlaga sig að breyttu starfsumhverfi. Athugasemdir voru einnig gerðar við það að frummat á áhrifum virtist ekki í samræmi við ákvæði frumvarpsdraganna. Enga heimild væri að finna í frumvarpinu til gjaldtöku af traustþjónustuveitendum og misskilnings virtist gæta um fjármögnun eftirlits og kostnað vegna samræmismats traustþjónustuveitenda. Þá lutu nokkrar athugasemdir að orðalagi frumvarpsdraga og samræmi í hugtakanotkun. Athugasemdir Neytendastofu lutu helst að því að í frumvarpsdrögum væri ekki að finna ákvæði sambærilegt 1. mgr. 19. gr. gildandi laga um rafrænar undirskriftir, nr. 28/2001, um eftirlitsgjald og að við mat á áhrifum þyrfti að taka mið af því. Við ritun frumvarps var samráð haft við dómsmálaráðuneytið um möguleg áhrif ákvæða frumvarpsdraganna um réttaráhrif traustþjónustu á löggjöf á sviði réttarfars, fullnustu og skuldaskila. Við ritun frumvarpsins var höfð hliðsjón af athugasemdum sem bárust í samráði. Breytingar voru aðallega gerðar á innihaldi greinargerðar frumvarpsins og samræmingu í orðalagi og hugtakanotkun. Rituð var ítarlegri umfjöllun um réttaráhrif traustþjónustu og áhrif á íslenskan rétt. Þá voru breytingar gerðar á einstökum ákvæðum til að skýra betur hlutverk Neytendastofu og ráðherra. Ítarlegri skýringar voru ritaðar við ákvæði um þagnarskyldu þeirra sem starfa fyrir Neytendastofu og um aðgengi Neytendastofu að starfsstöð. Ákvæði um að Neytendastofu væri heimilt að krefjast úttektar samræmismatsstofu á starfsemi traustþjónustuveitanda og afturkalla fullgilda stöðu voru tekin úr frumvarpinu enda er þegar kveðið á um slíkar heimildir eftirlitsstofnunar með sérstökum hætti í 2. og 3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar. Breytingar voru einnig gerðar á gildistökuákvæði laganna til að veita traustþjónustuveitendum tíma til að laga starfsemi sína að breyttum kröfum laganna. Sjá frumvarp til laga hér: https://www.althingi.is/altext/149/s/1039.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 3 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. mars 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 26 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  15. Þingskjal
  16. Umræða
    3. umræða
    5 ræður · 18 mín
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  18. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1039Stjórnarfrumvarp1. mar. 2019Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
1528Nál. með brtt.14. maí 2019Óli Björn Kárason, Þorsteinn Víglundsson +7LesaPDF
1717Frumvarp eftir 2. umræðu5. jún. 2019—LesaPDF
1743Lög (samhlj.)7. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

10 alls · 7 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 48 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 3 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 4 ræðumenn · 26 mín
  • 3. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 18 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur13 mín
Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirSjálfstæðisflokkur13 mín
Ágúst Ólafur ÁgústssonSamfylkingin24 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka18 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka111 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka419 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 11. mar. 2019, frestur 29. mar. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
NeytendastofaminnisblaðOpna PDF
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.