Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 416. mál

Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að stuðla að öryggi og viðnámsþrótti net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. jún. 2019 greiddu 47 atkvæði með og 0 á móti, 6 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
3. desember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
10 ræður · 45 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 1. okt. 2019

Markmiðið

Að stuðla að öryggi og viðnámsþrótti net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Hvað breytist

Með samþykkt frumvarpsins yrði tilskipun ESB nr. 2016/1148 varðandi ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu öryggisstigi í net- og upplýsingakerfum í öllu Sambandinu innleidd í íslensk lög. Lagt er til að kveðið verði á um mörkun stefnu um net- og upplýsingaöryggi sem og um skipun og hlutverk netöryggisráðs. Lagt er til að hlutverk netöryggisráðs verði einkum að fylgja eftir framkvæmd stefnu stjórnvalda í net- og upplýsingaöryggismálum og að ráðið leggi mat á stöðu netöryggis á Íslandi á hverjum tíma og verði vettvangur upplýsingamiðlunar og samhæfingar. Lagt er til að mikilvægum innviðum sé gert skylt að skjalfesta með viðeigandi hætti stefnu og ferla um áhættustýringu vegna kerfa sinna. Að auki er lagt til að mikilvægir innviðir skuli hafa viðbragðsáætlun og áætlun um samfelldan og órofinn rekstur og þjónustu til að takmarka tjón ef alvarleg röskun verður á starfsemi þeirra. Gert er ráð fyrir að ólíkum eftirlitsstjórnvöldum verði falið eftirlit með framkvæmd laganna hver á sínu sviði. Skilgreindar eru lágmarkseftirlitsheimildir eftirlitsstjórnvalda gagnvart mikilvægum innviðum, s.s. um aðgang að gögnum og upplýsingum, skýrslugjöf, heimildir til úttekta, prófana og kröfugerðir um úrbætur. Lagt er til að Póst- og fjarskiptastofnun verði falið að gegna ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart eftirlitsstjórnvöldum sem samhæfingarstjórnvald. Enn fremur er lagt til að kveðið sé á um tilkynningarskyldu mikilvægra innviða um alvarleg atvik í net- og upplýsingakerfi þeirra til netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar svo fljótt sem verða má og að netöryggissveitin tryggi að slíkar tilkynningar séu tafarlaust aðgengilegar hlutaðeigandi stjórnvöldum. Gert er ráð fyrir að mikilvægir innviðir geti leitað til netöryggissveitarinnar um aðstoð og leiðbeiningar um sérhæfðar forvarnir í tengslum við öryggi net- og upplýsingakerfa sinna. Að auki er lagt til að opinberum stofnunum verði gert kleift að gera samninga við Póst- og fjarskiptastofnun um þjónustu af þessu tagi gegn endurgjaldi. Hins vegar er lagt til að Stjórnarráð Íslands fái notið þjónustu Póst- og fjarskiptastofnunar á sviði netöryggismála án sérstaks endurgjalds.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003 og lögum um fjarskipti, nr. 81/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er áætlaður kostnaður vegna innleiðingar tilskipunarinnar á árunum 2020–2024 samtals um 2.745 milljónir kr. Á árinu 2020 er áætlaður heildarkostnaður um 488 milljónir kr. en fer hækkandi milli ára og verður kominn í 649 milljónir kr. árið 2024. Ekki hefur verið gert ráð fyrir þessum auknu útgjöldum með sérgreindum hætti á málefnasviði 11 hjá samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneyti, í málaflokki fjarskipta, í gildandi fjármálaáætlun. Gert er ráð fyrir að málið verði tekið upp við vinnslu komandi fjármálaáætlunar 2020–2024 þar sem finna þurfi útgjöldunum stað innan heildarútgjaldarammans.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1148 frá 6. júlí 2016 varðandi ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu öryggisstigi í net- og upplýsingakerfum í öllu Sambandinu (NIS-tilskipunin) (drög að íslenskri þýðingu).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
11. jún. 2019
Samþykkt47 með · 0 á móti · 6 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S10–0
  • 2310–0
  • M8–0
  • F6–0
  • Sf7–0
  • 430–0 · 6 hjá
  • V4–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 14. jan. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Póst- og fjarskiptastofnun, Samtök fjármálafyrirtækja, Landsvirkjun, Persónuvernd o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
45 mín · 10 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er áætlaður kostnaður vegna innleiðingar tilskipunarinnar á árunum 2020–2024 samtals um 2.745 milljónir kr. Á árinu 2020 er áætlaður heildarkostnaður um 488 milljónir kr. en fer hækkandi milli ára og verður kominn í 649 milljónir kr. árið 2024. Ekki hefur verið gert ráð fyrir þessum auknu útgjöldum með sérgreindum hætti á málefnasviði 11 hjá samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneyti, í málaflokki fjarskipta, í gildandi fjármálaáætlun. Gert er ráð fyrir að málið verði tekið upp við vinnslu komandi fjármálaáætlunar 2020–2024 þar sem finna þurfi útgjöldunum stað innan heildarútgjaldarammans.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. júní 2019: 47 með, 0 á móti, 6 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með1 tók til máls

46 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

5 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-79/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jún. 2018 – 23. ágú. 2018· 10 umsagnir

Frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða þar sem m.a. er lagt til að innleidd verði tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1148/2016/ESB um ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu öryggisstigi í net- og upplýsingakerfum innan EES, oft skammstöfuð NIS tilskipuni

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-79/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. desember 2018)

Niðurstaða máls er í stuttu máli sú að 14 umsagnir bárust samanlagt um frumvarpið 10 í gegnum samráðsgátt og 4 beint til ráðuneytisins. Gerð er grein fyrir viðbrögðum við umsögnum í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Sigrún H Kristjánsdóttir

    Sjá umsögn Samgöngustofu í viðhengi.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins um frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

  • #3Grímur Kjartansson

    Ekki er viturlegt að þýða „security breaches“ sem öryggisbrot skárra er að þýða það sem öryggisbrest í samræmi nýju lögin um persónuvernd "Öryggisbrestur við vinnslu persónuupplýsinga: Brestur á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða þess að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur verði veittur að þeim í leyfisleysi."

  • #4Grímur Kjartansson

    Viðbót við fyrri umsögn varðandi þýðingu á security breach sem öryggisbrot Við þýðinguna á ISO27001 notuðum við öryggisrof fyrir security breach öryggisbrot gefur til kynna að reglur hafi verið brotnar sbr. lögbrot, en svo þarf ekki að vera Varðandi rekstarsamfellu - Business continuity management systems — Requirements þá leggja staðlanir þar mikla áherslu á mikilvægi fjármagnsflæðis í Business impact analysis sem er eðlilegt varðandi venjuleg fyrirtæki því annars verða þau bara gjaldþrota og hverfa af sjónarsviðinu - en er það nokkuð raunhæft fyrir þessi fyrirtæki?

  • #5Árni Steingrímur Sigurðsson

    Núverandi 8. gr. veitir ráðherra óásættanlega eftirlitsheimild. Þarna verður að afmarka mjög skýrt að eingöngu megi vakta heilbrigði netumferðar en ekki innihald.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 8 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 14. janúar 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 32 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Umræða
    3. umræða
    5 ræður · 5 mín
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 47 með, 0 á móti
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
557Stjórnarfrumvarp3. des. 2018Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF
1699Nefndarálit5. jún. 2019Jón Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir +6LesaPDF
1700Breytingartillaga5. jún. 2019Jón Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir +6LesaPDF
1763Frumvarp eftir 2. umræðu16. ágú. 2019—LesaPDF
1770Breytingartillaga11. jún. 2019Líneik Anna SævarsdóttirLesaPDF
1789Lög í heild11. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. desember 2018 kl. 22:54
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd11. desember 2018 kl. 22:54
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 15:59
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 16:00
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“.
    1--14
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 16:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“.
    2.--27. gr. (verða 2.--30. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt7. júní 2019 kl. 16:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“.
    Ákv. til brb.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:4 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. júní 2019 kl. 16:01
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. júní 2019 kl. 17:51
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“.
    1--4
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt11. júní 2019 kl. 17:51
    Að samþykkja frumvarpið „Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:10 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 45 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 8 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 32 mín
  • 3. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín

Umsagnir og erindi

18 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. des. 2018, frestur 14. jan. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Póst- og fjarskiptastofnunviðbótarumsögnOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
SamgöngustofaumsögnOpna PDF
Póst- og fjarskiptastofnunumsögnOpna PDF
Isavia ohf.umsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
Internet á Íslandi hf - ISNICumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Axel TómassonumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Hafnasamband ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.