Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 393. mál

Losun fjármagnshafta

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði laganna.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2019

Markmiðið

Að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði laganna.

Hvað breytist

Lagt er til að konu verði veitt fullt ákvörðunarvald um það hvort hún elur barn fram að lokum 22. viku þungunar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja konunnar. Lagt er til að ákvæði laga nr. 25/1975 um að fóstureyðing skuli ætíð framkvæmd eins fljótt og auðið er, helst fyrir lok 12. viku þungunar, standi áfram í nýjum lögum til að undirstrika mikilvægi þess að þungunarrof skuli framkvæmt eins snemma og mögulegt er. Eftir lok 22. viku þungunar er lagt til að einungis verði heimilt að framkvæma þungunarrof ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar. Lagt er til að krafa verði gerð um staðfestingu tveggja lækna á því að fóstur teljist ekki lífvænlegt til frambúðar. Gert er ráð fyrir að sérstaklega verði kveðið á um rétt kvenna til fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita í tengslum við þungunarrof og að tryggja skuli aðgang að þungunarrofi í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Einnig er lagt til að þungunarrof með læknisaðgerð skuli framkvæmt á sjúkrahúsi undir handleiðslu sérfræðings á sviði kvenlækninga en einnig skuli heimilt að framkvæma þungunarrof með lyfjagjöf á starfsstöðvum lækna sem landlæknir hefur eftirlit með. Þá er lagt til að gerð verði krafa um fræðslu um áhættu samfara aðgerðinni sem og að konu skuli boðið upp á stuðningsviðtal bæði fyrir og eftir þungunarrof. Enn fremur er gert ráð fyrir að embætti landlæknis haldi ópersónugreinanlega skrá á rafrænu formi yfir öll þungunarrof.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en með gildistöku laganna verða breytingar á lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, nr. 25/1975.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Heildarendurskoðun laga nr. 25/1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Velferðarráðuneytið, nóvember 2016.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af sundhedsloven LBK nr 1286 af 2/11/2018.

Finnland

Lag om avbrytande av havandeskap 24.3.1970/239.

Noregur

Lov om svangerskapsavbrudd [abortloven] LOV-1975-06-13-50.

Svíþjóð

Abortlag (1974:595).

Löggjöf í öðrum löndum

Bretland

Abortion Act 1967.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Halldóra Mogensen

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 24. jan. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
61 aðili
Jón Valur Jensson, Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Ósk Óskarsdóttir, Umboðsmaður barna, Landssamtökin Þroskahjálp o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-127/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2018 – 8. okt. 2018· 30 umsagnir

Frumvarp til laga um þungunarrof

Á haustþingi 2018 hyggst heilbrigðisráðherra leggja fram frumvarp til laga um ný heildarlög um þungunarrof. Drög að frumvarpi eru hér til umsagnar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-127/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 30 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. janúar 2019)

Þegar frumvarpsdrög voru fullmótuð var haft samráð við hóp fagaðila. Voru þetta eftirtaldir aðilar: heilbrigðisstofnanir í öllum heilbrigðisumdæmum landsins, Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Landssamtökin Þroskahjálp, Félag áhugafólks um Downs-heilkenni, Kvenréttindafélag Íslands, embætti landlæknis og dómsmálaráðuneytið. Einnig voru drögin send á nefndarmenn í nefnd um heildarendurskoðun laganna og þeim gefinn kostur á að gera athugasemdir við drögin. Í framhaldi af samráðinu voru drög að frumvarpi birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins og öllum gefinn kostur á að senda inn athugasemdir eða umsögn. Bárust 11 umsagnir frá stofnunum og félagasamtökum og 40 frá einstaklingum. Þær stofnanir og félagasamtök sem sendu umsögn voru dómsmálaráðuneytið, embætti landlæknis, Femínistafélag Háskóla Íslands, Félag áhugafólks um Downs-heilkenni og Landssamtökin Þroskahjálp (sameiginleg umsögn), Félag íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Félagsráðgjafafélag Íslands, Kaþólska kirkjan, Kvenréttindafélag Íslands, Landspítali, Ljósmæðrafélag Íslands og umboðsmaður barna. Meðal umsagna frá einstaklingum voru umsagnir frá sérfræðingum á sviði kvenlækninga, barnalækninga og heimilislækninga, ljósmæðrum starfandi á sviði fósturgreininga, auk sérfræðinga í kynjafræði og stjórnmálafræði og fleiri aðilum. Í ljósi ítrekaðra athugasemda í umsögnum um drög að frumvarpinu var tekin ákvörðun um að gera breytingar á frumvarpinu þess efnis að í stað þess að heimila þungunarrof fram að lokum 18. viku þungunar og eftir það tímamark einungis ef lífi þungaðrar konu væri stefnt í hættu með áframhaldandi þungun eða ef að fóstur teldist ekki lífvænlegt til frambúðar, yrði þungunarrof heimilt að beiðni konu fram að lokum 22. viku þungunar án takmarkana. Verður hér í framhaldinu fjallað um þær athugasemdir sem fram komu í umsögnum um frumvarpið. Í umsögn dómsmálaráðuneytisins, umboðsmanns barna, Landspítala og Kvenréttindafélags Íslands var lögð áhersla á mikilvægi þess að í lögum kæmi skýrt fram að konu sem er ólögráða fyrir æsku sakir væri heimilt að óska eftir þungunarrofi. Vegna þessara athugasemda er í 5. gr. frumvarpsins lagt til að umræddur réttur verði sérstaklega tiltekinn í lögunum, sbr. nánari umfjöllun í athugasemdum við umrædda grein. Embætti landlæknis fagnaði fram komnu frumvarpi þar sem stigið væri skref í átt til aukins sjálfsforræðis kvenna og þar undir félli ákvörðunarréttur kvenna er snýr að barneignum sem væri mikilvægur til að tryggja öryggi og frelsi kvenna. Vakti embættið athygli á að við samanburð á norrænni tölfræði um þungunarrof væri ekki að sjá að víðari tímarammi hefði haft í för með sér að aðgerðir væru frekar framkvæmdar síðar á meðgöngunni og í því samhengi benti embættið á að árið 2015 hafi hlutfall þungunarrofa sem framkvæmd voru innan 9 vikna verið hærra í Svíþjóð (þar sem rýmri réttur gildir) en annars staðar á Norðurlöndum. Þá hefði hlutfall þungunarrofa sem framkvæmd eru á fyrstu vikum meðgöngu hækkað á Norðurlöndunum undanfarinn áratug og fylgdi umsögninni mynd sem sýndi að yfir 90% þungunarrofa hefðu verið framkvæmd fyrir lok 12. viku þungunar á öllum Norðurlöndunum. Taldi embættið það jákvætt skref í að jafna aðgengi landsmanna að öruggri heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu, að heimila þungunarrof fram að lokum 12. viku þungunar á starfsstöðvum lækna sem falla undir eftirlit landlæknis, þ.m.t. heilsugæslustöðvum. Taldi embættið ákvæði frumvarpsins um að ef læknisfræðilegar ástæður mæltu gegn þungunarrofi skyldi það útskýrt sérstaklega fyrir konunni, sem og hugsanlegar afleiðingar þeirrar ákvörðunar, óljóst og skýra þyrfti hvaða tímabil þungunar átt væri við í því samhengi. Voru þessar athugasemdir teknar til greina og við yfirferð frumvarpsins leitast við að skýra ákvæðið sem og athugasemdir við umrædda grein, þ.e. 8. gr. frumvarpsins. Embætti landlæknis fjallaði einnig um skráningu á þungunarrofs-aðgerðum og hvernig gögnum yrði safnað í umrædda skrá. Taldi embættið rétt að veita ráðherra heimild til að tilgreina í reglugerð nánari ákvæði um rafræna skrá um þungunarrof, svo sem varðandi innihald, skyldu til að skila gögnum, sniðmát fyrir gagnaskil og meðferð upplýsinga í skránni. Þar gæti einnig komið fram að landlæknir gefi fyrirmæli um hvaða atriði skuli skrá við framkvæmd aðgerða og með hvaða hætti þessi gögn eigi að berast í þungunarrofsskrá landlæknis. Embættið taldi ljóst að það hvort skráin væri haldin með persónuauðkennum yrði að ráðast af tilgangi hennar. Ef tilgangur skrárinnar væri eingöngu að fylgjast með tíðni þungunarrofa og talið ásættanlegt að skráin nýtist ekki til vísindarannsókna væri ópersónugreinanleg skrá fullnægjandi. Fjallaði embættið um að síðastliðin ár hefði fóstureyðingaskrá verið haldin án persónuauðkenna og íslenskir vísindamenn hefðu gagnrýnt þá tilhögun þar sem skráin á ópersónugreinanlegu formi væri ónothæf til vísindarannsókna og gagnist eingöngu til tölfræðilegra úttekta. Þá fjallaði embættið um að það fengi reglulega beiðnir frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um tölulegar upplýsingar um mæðradauða vegna alþjóðasamanburðar. Til þess að fá áreiðanlegar tölur um mæðradauða þyrfti að vera hægt að tengja saman persónugreinanleg gögn um dánarmein, fæðingar og þungunarrof. Taldi embættið ljóst að á meðan skrá um þungunarrof væri haldin án persónuauðkenna yrði mjög örðugt um vik að framkvæma slíkan útreikning en mikilvægt væri að leita annarra leiða til þess að geta fylgst með mæðradauða á Íslandi ef þungunarrofsskrá yrði áfram ópersónugreinanleg. Í ljósi athugasemda embættisins var 19. gr. frumvarpsins breytt á þann veg að tekið var fram að skráin skyldi ópersónugreinanleg. Loks benti embættið á að í frumvarpinu kæmi ekki fram hver hefði eftirlit með því að lögunum væri framfylgt. Ekki þótti tilefni til að taka sérstaklega fram að landlæknir hefði eftirlit með framkvæmd þungunarrofa. Í 3. gr. frumvarpsins er tekið fram að konur eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita í tengslum við þungunarrof í samræmi við ákvæði laganna, laga um heilbrigðisþjónustu, laga um réttindi sjúklinga og annarra laga eftir því sem við á. Sambærilegt ákvæði er í 1. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og ljóst er að sömu reglur gilda um heilbrigðisþjónustu vegna þungunarrofs og um aðra heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, er eitt af meginhlutverkum landlæknis að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum og nær það einnig til heilbrigðisþjónustu vegna þungunarrofs. Einnig er tekið fram í 7. gr. frumvarpsins að þungunarrof með læknisaðgerð skuli framkvæmt á sjúkrahúsi eða á heilbrigðisstofnun undir handleiðslu læknis sem er sérfræðingur á sviði kvenlækninga og þá sé heimilt að framkvæma þungunarrof með lyfjagjöf á starfsstöðvum lækna sem landlæknir hefur eftirlit með, sbr. lög um landlækni og lýðheilsu, fram að lokum 12. viku þungunar. Þannig leikur enginn vafi á því að embætti landlæknis er ætlað að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu vegna þungunarrofs á sama hátt og með annarri heilbrigðisþjónustu. Þá segir í viðurlagaákvæði laganna að um brot gegn ákvæðum laganna fari samkvæmt almennum hegningarlögum og lögum um heilbrigðisstarfsmenn eftir því sem við á og verður því að telja nægilega skýrt með hvaða hætti eftirliti með framkvæmd laganna skuli háttað. Í innsendum umsögnum var mikið ákall um að þungunarrof yrði gert heimilt að beiðni konu fram að lokum 22. viku þungunar. Félag íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Landspítali, Ljósmæðrafélag Íslands, Femínistafélag Háskóla Íslands, Kvenréttindafélag Íslands sem og fjöldi sérfræðinga, meðal annars á sviði heilbrigðisvísinda, lögðu það til með ítarlegum rökstuðningi í umsögnum sínum. Félag íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna gagnrýndi þau frumvarpsdrög sem birt voru þar sem lagt var til að þungunarrof yrði heimilt fram að lokum 18. viku þungunar og eftir það tímamark einungis þegar lífi konu væri stefnt í hættu eða þegar fóstur teldist ekki lífvænlegt til frambúðar. Var það afstaða félagsins að slíkt væri ekki til þess að auka rétt kvenna heldur þvert á móti væri lagt til að réttur kvenna til þungunarrofs vegna mjög alvarlegra fósturvandamála þar sem fóstur væri lífvænlegt væri takmarkaður miðað við núgildandi lög. Í því samhengi nefndi félagið fósturvandamál eins og vatnshöfuð, klofinn hrygg, litningafrávik og hjartagalla þar sem börn geti lifað af en væru með mjög alvarlega líkamlega eða andlega fötlun. Taldi félagið að yrði frumvarpið að lögum eins og það birtist myndi það gera erfiða vinnu sérfræðinga sem greina sjúkdóma og meðfædda galla enn erfiðari, sem og að erfitt eða ómögulegt gæti verið að vita nákvæmlega hverjar horfurnar væru fyrir tiltekið fóstur. Þá taldi félagið litlu breyta að færa tímamarkið til loka 18. viku þar sem fátítt væri að sjúkdómar kæmu fram á þessum tveimur vikum. Aftur á móti kæmu gallar fram við 20 vikna fósturskimun og lítill hluti þeirra kvenna velur þungunarrof. Nánar tiltekið voru 62 alvarlegir líffæragallar greindir við skimun á 20. viku árið 2014 og völdu 11 þeirra kvenna þungunarrof (11/50 árið 2015, 9/46 árið 2013, 14/43 árið 2012 og 8/35 árið 2011 – upplýsingar frá landlækni um fósturskimanir árin 2011–2015). Í umsögn Landspítala kom fram að með því að heimila aðeins þungunarrof eftir 18 vikur þegar lífi móður er hætta búin eða fóstur mun ekki geta lifað til frambúðar væri lokað fyrir þann möguleika að konur geti valið að enda meðgöngu t.d. vegna klofins hryggjar, vatnshöfuðs, litningafrávika, hjartagalla og margra fleiri vandamála sem leiddu til fæðingar barna sem lifðu með fötlun, líkamlega eða andlega. Þá sagði í umsögn frá Landspítala að ekki væri hægt að greina mörg þessara frávika fyrr en eftir 18 vikur en allt kapp væri lagt á að greina þau fyrir 22 vikur. Undanfarin 10 ár hafi milli 7 og 10 konur á ári rofið þungun vegna galla sem greindust við 20 vikna fósturgreiningu. Í um það bil helmingi tilvika væri um þannig vandamál að ræða að barninu væri ekki hugað líf eftir fæðingu en í mörgum tilvikum væru góðar lífslíkur eða jafnvel miklar líkur á lífi með margháttuðum aðgerðum og mikilli aðstoð og skertum lífsgæðum fyrir barnið. Taldi spítalinn hag þessa hóps kvenna og foreldra ekki tryggðan ef heimildir yrðu á þann veg sem kynnt var í drögunum og spítalinn kysi að mörkin yrðu sett við lok 22. viku. Þá taldi spítalinn að ef tilgangur laganna væri að ekki ætti að ganga á rétt fatlaðs fólks með því að lögin innihéldu ákvæði sem leyfðu þungunarrof á grundvelli fötlunar yrði að leggja þetta undir sjálfsákvörðunarrétt konunnar. Taldi spítalinn að með því að þrengja sjálfsákvörðunarréttinn þannig að hann nái einungis til loka 18. viku þungunar yrði þrengdur stakkur þeirra sem ynnu við fósturgreiningu og líklegt væri að því yrði ekki vel tekið meðal þungaðra kvenna og fjölskyldna þeirra. Lagði spítalinn áherslu á að engin kona tæki ákvörðun um að enda meðgöngu á bilinu 18–22 vikur án vandlegrar íhugunar að teknu tilliti til allra aðstæðna og væri henni best treystandi til að taka slíka ákvörðun um eigin framtíð, líf og líkama. Í einni af þeim umsögnum sem bárust frá heilbrigðisstarfsmönnum sem hafa sérþekkingu á umræddu sviði kom fram sú afstaða að þær örfáu konur sem sækja um þungunarrof eftir 18. viku án þess að ástæðan sé vegna sjúkdóms fósturs eða móður séu þær konur sem eru í allra verstu félagslegu aðstæðunum. Taldi viðkomandi þetta vera t.d. konur í fíkniefnaneyslu, sem búa við hótanir um ofbeldi, fórnarlömb mögulegra heiðursglæpa, fórnarlömb mansals, fórnarlömb nauðgana eða fatlaðar konur, auk stúlkna undir 16 ára aldri. Í umsögninni var fjallað um að þetta væru konur sem ekki hefðu sömu getu og félagslega sterkari einstaklingar til að átta sig á að um þungun væri að ræða og hefðu takmarkaða möguleika á að leita hjálpar til að rjúfa þungun vegna sinna félagslegu aðstæðna. Í umsögninni kom fram að það væri fagleg skoðun viðkomandi að þessi hópur væri í mestri þörf á að fá hjálp við öruggt þungunarrof allt að viku 22, óski þær þess, án takmarkana eða leyfis nefndar. Voru umsagnir framangreindra umsagnaraðila sem lögðu til að í frumvarpinu yrði konum veittur réttur til að taka ákvörðun um þungunarrof fram að lokum 22. viku efnislega samhljóma því sem hér hefur verið rakið og því ekki talin ástæða til að tíunda nánar innihald þeirra umsagna. Rökin voru talin þess eðlis að tekin var ákvörðun um að gera breytingar á frumvarpsdrögunum með þau að leiðarljósi. Í umsögn Landspítala og Félagsráðgjafafélags Íslands var vakin athygli á því að í lögunum væri fjallað um konur en í samfélaginu væru einstaklingar með æxlunarfæri kvenna sem upplifðu sig ekki sem konur og því væri vert að huga að orðanotkun í lögunum. Þetta sjónarmið var tekið til mjög ítarlegrar skoðunar við gerð frumvarpsins og ákvörðun tekin um að halda orðanotkun óbreyttri frá lögum nr. 25/1975, þ.e. að fjalla um þungaða konu í stað þess að fjalla um þungaðan einstakling. Í umsögnum Landspítala og Félagsráðgjafafélags Íslands var einnig lögð áhersla á að fræðsla, ráðgjöf og stuðningsviðtöl yrðu konum að kostnaðarlausu og slíkt yrði skýrt tekið fram í löggjöfinni. Var ákvæði 9. gr. frumvarpsins því breytt á þann veg að lagt er til að heilbrigðisþjónusta vegna þungunarrofs skuli vera gjaldfrjáls fyrir allar sjúkratryggðar konur. Í þessu samhengi þykir tilefni til að taka fram að í einni umsögn um frumvarpið var vakin athygli á stöðu hælisleitenda. Hælisleitendur eru ekki allir sjúkratryggðir hér á landi og myndu því ekki allir njóta þeirra réttinda sem lögin fjalla um hvað gjald varðar en ákvörðun um breytingar á réttindum hælisleitenda í tengslum við sjúkratryggingar þykir ekki eiga heima innan þessarar löggjafar. Því var umrædd athugasemd ekki tekin til greina við vinnu frumvarpsins. Í sameiginlegri umsögn Félags áhugafólks um Downs-heilkenni og Landssamtakanna Þroskahjálpar var því fagnað að tekið hefði verið tillit til athugasemda og ábendinga þeirra á fyrri stigum en sérstaklega var áréttað að mikilvægt væri að í inngangi greinargerðar yrði fjallað um nauðsyn breytinga á lögum nr. 25/1975 vegna skuldbindinga sem leiða af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá töldu félögin í ljósi framkvæmdar stjórnvalda við skimanir að fullt tilefni væri til að skoðað yrði hvort ekki ætti að setja í lögin almennt bann við mismunun, t.d. á grundvelli kyns og fötlunar. Við gerð frumvarpsins var því sjónarmiði velt upp hvort leggja ætti til að í lögin yrði sett almennt bann við mismunun á grundvelli kyns og fötlunar. Niðurstaðan var sú að slíkt bann yrði illframkvæmanlegt þar sem lögunum er ætlað að færa sjálfsákvörðunarrétt að fullu til konunnar án þess að í því felist nein krafa um að konan gefi upp þær ástæður sem hún hefur fyrir þeirri ákvörðun sinni að fá þungun sína rofna. Að lokum ber að geta þess að í 16 umsögnum var lögð áhersla á að sett yrði bann við þungunarrofi, fyrst og fremst byggt á sjónarmiðum um réttindi fósturs til lífs. Frumvarpið var í framhaldinu lagt fram á Alþingi. Sjá: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=393

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (30)
  • #1Steindór Sigursteinsson
    Hver er réttur ófæddra barna í móðurkviði? Réttur ófæddra barna í móðurkviði er að heilsu þeirra sé gætt og að þau fái rétt til þess að fá að lifa. Íslensk lög standa ekki vörð um líf og heilsu allra ófæddra barna. Heilbrigðisstarfsfólki er ekki aðeins ætlað að standa vörð um líf fólks og ófæddra barna. Heldur er það svo að ef vissar félagslegar aðstæður eru fyrir hendi þá eru félagsráðgjöfum heimilt að ráðleggja móður eða foreldrum að "láta eyða fóstri". Og fólki innan heilbrigðisþjónustunnar er þá heimilt með undangengnu samþykki móður/foreldra að deyða viðkomandi barn í móðurkviði. Þetta… Lesa alla

    Hver er réttur ófæddra barna í móðurkviði? Réttur ófæddra barna í móðurkviði er að heilsu þeirra sé gætt og að þau fái rétt til þess að fá að lifa. Íslensk lög standa ekki vörð um líf og heilsu allra ófæddra barna. Heilbrigðisstarfsfólki er ekki aðeins ætlað að standa vörð um líf fólks og ófæddra barna. Heldur er það svo að ef vissar félagslegar aðstæður eru fyrir hendi þá eru félagsráðgjöfum heimilt að ráðleggja móður eða foreldrum að "láta eyða fóstri". Og fólki innan heilbrigðisþjónustunnar er þá heimilt með undangengnu samþykki móður/foreldra að deyða viðkomandi barn í móðurkviði. Þetta á líka við um ef barn í móðurkviði er greint með einhverskonar fósturgallar eða Downs heilkenni. Þetta er mikill smánarblettur á Íslensku heilbrigðiskerfi og á löggjöf Íslands. Lögin leyfa þetta, jafnvel þótt að smávægilegar ástæður liggi þarna að baki. Í yfir­lýs­ingu SÞ um rétt­indi barns­ins segir: "Vegna líkam­legs og and­legs þroska­leysis þarfn­ast barnið sérstakrar verndar og umhyggju, þar með talið viðeigandi réttarverndar, fyrir fæðingu jafnt sem eftir hana." (Úr inngangi þessarar samþykktar Sam­ein­uðu þjóð­anna 1959; leturbr. Einnig er þar að finna 4. frumregluna sem hljóðar svo: "Barnið skal hafa rétt til heilbrigðs vaxtar og þroska. Í þeim tilgangi skal veita bæði barni og móður sérstaka umhyggju og vernd, þar með talið umönnun bæði fyrir og eftir fæðingu." Þær fréttir hafa borist að Svandís Svavarsdóttir heil­brigðis­ráðherra Vinstri grænum vilji umturna núgildandi lög­gjöf um fóst­ur­eyð­ing­ar. Hefur hún lagt fram frumvarp um ný heildarlög um svonefnt þungunarrof þar sem fóst­ur­eyðing verður heim­il fram að lok­um 18. viku meðgöngu. En hefur hingað til veið fram að lok­um 16. viku. Hefur orðinu fóstureyðing þarna verið breytt í þungunarrof sem er í raun fegrunaryrði. Í drög­un­um að frumvarpinu verður einnig heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof eftir 18 viku meðgöngu ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áfram­hald­andi þung­un eða ef fóst­ur telst ekki líf­væn­legt til fram­búðar eins og sagt er. Sagði heil­brigðisráðherra í færslu á Face­book-síðu sinni að frum­varpið tryggi með skýr­um hætti sjálfs­ákvörðun­ar­rétt kvenna til þung­un­ar­rofs. Með öðrum orðum þurfa mæður því ekki að gefa neina sérstaka ástæðu fyrir fósturvíginu nema að þær VILJI það! Að vilji og hentisemi konu sé nóg til þess að heimila slíka "aðgerð" er að mínu mati fullkomin lítilsvirðing fyrir lífi því sem Guð gefur foreldrum þegar barn er getið í móðurkviði. Þarna er verið að brjóta boðorð Guðs. "þú skalt ekki morð fremja" Það er ekki umhyggja fyrir þeim ófæddu að taka frá þeim lífsréttinn og vega að honum í sjálfum helgustu véum lífsins!  Læknarnir sjálfir eru í raun ekki vanmáttugir að verja ófædd börn – því þeir geta neitað að taka þátt í þessu. Þeim ber raunverulega skylda til að skoða hug sinn í hverju læknisverki. En þeim hefur lærst að líta á sig sem þögult verkfæri löggjafans og hafa vanist því. Því miður. Hér er vert að benda á aðalatriðið sem að læknum snýr: Þeim ber ekki skylda til deyða fóstur því fóstureyðing er ekki læknisaðgerð í neinum venjulegum skilningi þess orðs og læknar sem stunda þær ættu að hugleiða alvarlega hvort þeir séu að brjóta læknaeiðinn. Neitun þarf að virða og taka vandræðalaust. Að síðustu eru hérna nokkrar vísindalega sannaðar staðreyndir um mannsfóstur. Eftir 18 daga slær hjartað.  Eftir 21 dag er kominn vísir að blóðrás.  Eftir 4 vikur hefur barnið hrygg, eyru, augu, hendur og fætur.  Eftir 8 vikur sýgur barnið fingur sína og bregst við hreyfingum móður. Mættu stjórnvöld og þingmenn á Alþingi fá hugarfarsbreytingu í málum ófæddra barna og banna fóstureyðingar á Íslandi. Kær kveðja Steindór Sigursteinsson Nýbýlavegi 28 860 Hvolsvelli

  • #2Sigurður Ragnarsson
    Umsögn um frumvarp til laga um þungunarrof. Dagsetning 1. október 2018 Sendandi: Sigurður Ragnarsson, Vesturgötu 38, 230 KEFLAVÍK Fóstureyðingum í þróuð­um lönd­um hef­ur fækk­að veru­lega síð­ustu ára­tugi. Á Ís­landi eru ekki mik­il sára­fá­tækt eða al­menn bág­indi, svo að gefi til­efni til að breyta regl­um og gera fóst­ur­eyð­ing­ar auð­veld­ari. Barna­fjöldi er síður en svo að sliga op­in­bera þjón­ustu. Op­in­ber­ir aðil­ar gætu, án þess að ganga nærri sér, auk­ið stuðn­ing við fá­tæk eða van­burða heim­ili með börn, eft­ir því sem þörf þætti vera á. Sömu­leið­is mætti rýmka re… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um þungunarrof. Dagsetning 1. október 2018 Sendandi: Sigurður Ragnarsson, Vesturgötu 38, 230 KEFLAVÍK Fóstureyðingum í þróuð­um lönd­um hef­ur fækk­að veru­lega síð­ustu ára­tugi. Á Ís­landi eru ekki mik­il sára­fá­tækt eða al­menn bág­indi, svo að gefi til­efni til að breyta regl­um og gera fóst­ur­eyð­ing­ar auð­veld­ari. Barna­fjöldi er síður en svo að sliga op­in­bera þjón­ustu. Op­in­ber­ir aðil­ar gætu, án þess að ganga nærri sér, auk­ið stuðn­ing við fá­tæk eða van­burða heim­ili með börn, eft­ir því sem þörf þætti vera á. Sömu­leið­is mætti rýmka regl­ur um ætt­leið­ingu og upp­fóst­ur hjá vanda­mönn­um, ef það hefði gagn­leg áhrif. Ekk­ert af þessu er nefnt í hinu nýja frum­varpi um þung­un­ar­rof eða grein­ar­gerð með því. Með árunum hefur smám saman kom­ið æ bet­ur í ljós, að þroski ófæddra barna byrj­ar snemma og er veru­leg­ur. Þau eru ekki til­finn­inga­laus frumu­klasi. Þau geta engst af sárs­auka. Þau eru ekki sama líf­vera og móð­ir þeirra. Þess vegna fer víða fram mál­efna­leg um­ræða um rétt­indi ófæddra barna. Henn­ar sér á eng­an hátt stað í hinu nýja frum­varpi eða grein­ar­gerð með því. Þörf gæti ver­ið á því að stofna embætti um­boðs­manns ófæddra barna. Í greinargerðinni er kafli, sem heit­ir Sam­an­burð­ur við önn­ur lönd. Það eru hin­ar Norð­ur­landa­þjóð­irn­ar, Bret­ar, Hollend­ing­ar, Belg­ar, Frakk­ar og Kan­ada­menn. Þjóð­verj­ar eru fjöl­menn­asta þjóð inn­an Evrópu­sam­bands­ins. Hvers vegna kom­ast þeir ekki á blað? Er það vegna þess, að þar eru dá­lít­ið meiri höml­ur á fóst­ur­eyð­ing­um en til dæm­is í Frakk­landi eða nýja frum­varp­inu um þung­un­ar­rof? Skipt­ir þá ekki máli að fræð­ast um til­hög­un í Þýzkalandi og hvort reynsla Þjóð­verja er góð eða ekki? Ítal­ir, Spán­verj­ar og Pól­verj­ar eru fjöl­menn­ari en Hollend­ing­ar og Belg­ar. Hvers vegna kom­ast þeir ekki á blað? Í Kanada eiga heima 37 milljón­ir manna en í Banda­ríkj­un­um 326 milljón­ir. Banda­ríkja­mönn­um er sleppt í grein­ar­gerð­inni. Er það vegna þess, að þeir hafa á allra síð­ustu ár­um not­að reynslu sína til að þrengja dá­lít­ið að fóst­ur­eyð­ing­um? Sem sér kann­ski ekki fyr­ir endann á. Hið sama á við all­víða í Evrópu, að heim­ild­ir til fóst­ur­eyð­inga hafa ver­ið þrengd­ar. Sú þró­un gæti átt eft­ir að halda áfram. Ekki er vikið að því í grein­ar­gerð­inni. Og ekki að reynsl­unni af þessu. Og þá ekki held­ur að óvæntri stefnu­breyt­ingu, sem virð­ist vera að ger­ast í Kína, til að fækka fóst­ur­eyð­ingum. Ástæða er til að draga í efa, að fræðsla um auka­verk­an­ir af fóst­ur­eyð­ing­um hafi und­an­farna ára­tugi ver­ið full­nægj­andi. Of lít­ið hef­ur ver­ið gert úr sum­um áhættu­þátt­um, til dæm­is ófrjó­semi. Hin siðferðilega hlið er lít­ið breytt frá ár­inu 1975. Ef til vill má þó segja, að tals­vert fleiri lands­menn eigi nú upp­runa á meðal þjóða, sem eru að veru­legu leyti and­snún­ar fóst­ur­eyð­ing­um. Taka ætti til­lit til þess. Hafna verður þeirri skoðun, að nú sé ástæða til að gera fóst­ur­eyð­ing­ar auðveldari. Sakna má þess, að ekki kemur fram, hvað undirbúningur málsins hefur fram að þessu kostað eða hvað breytingar samkvæmt frumvarpinu verði dýrar. Frestur til að skila umsögnum er of skammur. Sömuleiðis er óhentugt og ónauðsynleg takmörkun, að eingöngu geti sent umsagnir það fólk, sem er skráð á vefinn Ísland.is.

  • #3Sunna Kristín Símonardóttir
    Ég fagna sjálfstæðum rétti kvenna til þungunarrofs en lýsi yfir gríðarmiklum efasemdum um eftirfarandi breytingar á löggjöfinni: „Einungis er heimilt er að framkvæma þungunarrof eftir lok 18. viku þungunar ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar. Staðfesting tveggja lækna skal liggja fyrir þess efnis að fóstur teljist ekki lífvænlegt til frambúðar.“ Hér er verið að skerða rétt kvenna til þess að ákveða hvort þær treysti sér til þess að ganga með barn sem greint hefur verið með alvarlega litningagalla eða önnur frávi… Lesa alla

    Ég fagna sjálfstæðum rétti kvenna til þungunarrofs en lýsi yfir gríðarmiklum efasemdum um eftirfarandi breytingar á löggjöfinni: „Einungis er heimilt er að framkvæma þungunarrof eftir lok 18. viku þungunar ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar. Staðfesting tveggja lækna skal liggja fyrir þess efnis að fóstur teljist ekki lífvænlegt til frambúðar.“ Hér er verið að skerða rétt kvenna til þess að ákveða hvort þær treysti sér til þess að ganga með barn sem greint hefur verið með alvarlega litningagalla eða önnur frávik sem greinast í 20 vikna sónar. Þetta er gert án þess að nokkur umræða hafi farið fram í samfélaginu, eða að reynt hafi verið að komast að því hvort að konur vilji hafa þennan möguleika. Ég vil að sjálfsákvörðunarréttur konunnar verði virtur til fulls, upp að 22 vikum, og er það í samræmi við löggjöf landanna sem við berum okkur saman við. Ef þrengja á réttinn niður í 18 vikur þá má ekki gera það án samráðs eða umræðu. Flokkur sem kennir sig við kvenfrelsi getur ekki staðið svona að málum.

  • #4Steinunn Þórðardóttir
    Ég vil gera athugasemd við eftirfarandi: " Eftir lok 18. viku þungunar er lagt til að einungis verði heimilt að framkvæma þungunarrof ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar." Eins og flestir vita er skimað fyrir alvarlegum fósturgöllum í 20 vikna sónar og koma þeir því yfirleitt í ljós fyrst þá. Þetta þurfa ekki að vera gallar sem valda því að fóstur sé ekki lífvænlegt, hins vegar getur verið um að ræða galla sem munu valda einstaklingum miklum þjáningum og sjúkdómsbyrði. Mér finnst eðlilegt að verðandi foreldrar fái… Lesa alla

    Ég vil gera athugasemd við eftirfarandi: " Eftir lok 18. viku þungunar er lagt til að einungis verði heimilt að framkvæma þungunarrof ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar." Eins og flestir vita er skimað fyrir alvarlegum fósturgöllum í 20 vikna sónar og koma þeir því yfirleitt í ljós fyrst þá. Þetta þurfa ekki að vera gallar sem valda því að fóstur sé ekki lífvænlegt, hins vegar getur verið um að ræða galla sem munu valda einstaklingum miklum þjáningum og sjúkdómsbyrði. Mér finnst eðlilegt að verðandi foreldrar fái áfram að ákveða hvort þeir vilji enda þungunina við þessar aðstæður og fái til þess ráðgjöf og stuðning fagaðila. Ég veit til þess að þessi drög hafa komið mjög illa við verðandi foreldra sem hafa staðið í þessum sporum og þurft að taka þá gríðarlega sársaukafullu ákvörðun að enda þungun vegna alvarlegra fósturgalla. Með þessu frumvarpi er verið að nudda salt í sár þeirra, en hér á að banna það sem svo mörgum hefur fundist þeir tilneyddir til að gera að mjög vel ígrunduðu máli. Þetta sendir mjög erfið og þungbær skilaboð til þess hóps. Mér finnst einnig einkennilegt að leyfa þungunarrof af hvaða ástæðu sem er fram að lokum 18. viku (heilbrigð fóstur jafnt sem önnur), en að tveimur vikum síðar megi ekki einu sinni framkvæma þungunarrof vegna mjög alvarlegra fósturgalla. Ég kalla eftir því að árið 2018 séum við ekki að þrengja rétt kvenna til þungunarrofs!

  • #5Áslaug Íris Valsdóttir Petty

    Umsögn um nýtt frumvarp um þungunarrof

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 24. janúar 2019
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

62 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. des. 2018, frestur 24. jan. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Jón Valur JenssonundirskriftalistiOpna PDF
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar VesturlandsumsögnOpna PDF
Ósk ÓskarsdóttirumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpathugasemdOpna PDF
HeilbrigðisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Siðfræðistofnun Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Jórunn I KjartansdóttirumsögnOpna PDF
Jón Valur JenssonumsögnOpna PDF
Arnrún Sveina KevinsdóttirumsögnOpna PDF
Ívar HalldórssonumsögnOpna PDF
Rósa AðalsteinsdóttirumsögnOpna PDF
Árný Björg BlandonumsögnOpna PDF
FrelsisflokkurinnumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag Íslands o.fl.umsögnOpna PDF
Biskup ÍslandsumsögnOpna PDF
Herdís Helga SchopkaumsögnOpna PDF
María MagnúsdóttirumsögnOpna PDF
Gyða Margrét Pétursdóttir og Katrín Anna GuðmundsdóttirumsögnOpna PDF
Femínistafélag Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
LandlæknisembættiðumsögnOpna PDF
Málefnahópur kristinna stjórnmálasamtakaumsögnOpna PDF
Loftstofan BaptistakirkjaumsögnOpna PDF
Guðni Þór ÞrándarsonathugasemdOpna PDF
Marie Jannie Madeleine LegateloisathugasemdOpna PDF
Hvítasunnukirkjan í KeflavíkumsögnOpna PDF
Landssamtökin Þroskahjálp og Félag áhugafólks um Downs-heilkenniumsögnOpna PDF
Rótin - félag um málefni kvennaumsögnOpna PDF
Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalæknaumsögnOpna PDF
Sigurður SigurbjörnssonumsögnOpna PDF
April McKnight FriggeumsögnOpna PDF
Þóra Kristín ÞórsdóttirumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Sigfús Bergmann SvavarssonathugasemdOpna PDF
DíaMat - félag um díalektíska efnishyggjuumsögnOpna PDF
Jóhanna LongumsögnOpna PDF
Siðmennt, félag siðrænna húmanistaumsögnOpna PDF
Magnús Ingi SigmundssonumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF
Skurðlæknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Guðrún Sæmundsdóttir og Kjartan BirgissonumsögnOpna PDF
Ólína Kjerúlf ÞorvarðardóttirumsögnOpna PDF
Daníel E. ArnarssonathugasemdOpna PDF
Andlegt þjóðarráð Bahá´íA á ÍslandiumsögnOpna PDF
Hvítasunnukirkjan FíladelfíaumsögnOpna PDF
Denis O'LearyumsögnOpna PDF
Silja Bára Ómarsdóttir og Steinunn RögnvaldsdóttirumsögnOpna PDF
María JónsdóttirumsögnOpna PDF
Guðmundur PálssonumsögnOpna PDF
Katrín Auðbjörg AðalsteinsdóttirumsögnOpna PDF
Hjálpræðisherinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
Kaþólska kirkjan á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samfélag trúaðraumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Steindór SigursteinssonumsögnOpna PDF
Sveinbjörn GizurarsonumsögnOpna PDF
Sigurður RagnarssonumsögnOpna PDF
Jónas SenumsögnOpna PDF
Ólafur ÞórissonumsögnOpna PDF
Ólafur Magnús ÓlafssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.