Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 314. mál

Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 13. des. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með því að skylda aðila sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka til að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi. Að innleiða tilskipanir ESB.

Lagt fram af Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 13. des. 2018 greiddu 54 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. nóvember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
13 ræður · 44 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 3. júl. 2019

Markmiðið

Að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með því að skylda aðila sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka til að þekkja deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi. Að innleiða tilskipanir ESB.

Hvað breytist

Lagt er til að fleiri aðilar falli undir tilkynningarskyldu og að öllum tilkynningarskyldum aðilum verði gert skylt að framkvæma áhættumat á starfsemi sinni og hafa áhættumiðað eftirlit með samningssamböndum sínum og viðskiptum. Gert er ráð fyrir að eingöngu verði heimilt að framkvæma einfaldaða áreiðanleikakönnun í þeim tilvikum sem áhættumat sýnir fram á minni áhættu en almennt er. Lagt er til að tilkynningarskyldum aðilum verði gert skylt að hafa til staðar aðferðir eða kerfi til að greina hvort viðskiptamaður þeirra teljist í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla og ef svo er ber þeim að framkvæma aukna áreiðanleikakönnun í samræmi við ákvæði laganna. Að auki er lagt til ítarlegra ákvæði um raunverulega eigendur og að fjallað verði um hver telst vera raunverulegur eigandi fjárvörslusjóða og sambærilegra aðila. Gert er ráð fyrir að lögfest verði heitið skrifstofa fjármálagerninga lögreglu, sem í daglegu tali hefur verið kölluð peningaþvættisskrifstofa, og að verkefni hennar séu útfærð með ítarlegri hætti og heimildir hennar til að sinna lögbundnum skyldum sínum til að kalla eftir upplýsingum auknar. Enn fremur er lagt til að öllum opinberum aðilum verði gert skylt að tilkynna skrifstofu fjármálagreininga lögreglu um grunsamleg viðskipti. Gert er ráð fyrir að skipun og hlutverk stýrihóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka verði lögfest. Að auki er lagt til að tryggt verði að allir sem falla undir gildissvið 2. gr. frumvarpsins sæti eftirliti. Lagt er til að þvingunarúrræði og viðurlög verði alfarið færð í hendur eftirlitsaðila, með heimildum til að beita dagsektum, stjórnvaldssektum, birtingum viðurlaga og, í alvarlegri tilvikum, brottvikningu æðstu stjórnenda eða afturköllun starfsleyfa.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006. Með gildistöku laganna verða breytingar á lögum um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015, og lögum um endurskoðendur, nr. 79/2008.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir því að bætt verði við stöðugildi hjá dómsmálaráðuneytinu til að halda utan um og sinna málefnum stýrihóps og öðrum verkefnum sem tengjast aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ætla má að efling eftirlits með tilkynningarskyldum aðilum muni í upphafi hafa í för með sér kostnað sem nemur allt að þremur stöðugildum. Gert er ráð fyrir að skoðað verði hvort og þá hvernig hægt verði að leggja eftirlitsgjald á þá aðila sem sæta þessu eftirliti eins og aðrir tilkynningarskyldir aðilar greiða vegna eftirlits Fjármálaeftirlitsins.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 frá 20. maí 2015 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverkastarfsemi, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012, og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/60/EB og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2006/70/EB („fjórða peningaþvættistilskipunin“).

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/843 frá 30. maí 2018 um breytingar á tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverkastarfsemi og tilskipunum 2009/138/EB og 2013/36/ESB („fimmta peningaþvættistilskipunin“).

Anti-money laundering and counter-terrorist financing measures: Iceland. Mutual Evaluation Report. FATF, apríl 2018.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Brynjar Níelsson

Lokaatkvæðagreiðsla
13. des. 2018
Samþykkt54 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S12–0
  • 239–0
  • F8–0
  • M7–0
  • Sf5–0
  • 435–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 23. nóv. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
12 aðilar
Dómsmálaráðuneytið, Þjóðskrá Íslands, Samtök iðnaðarins og Félag íslenskra gullsmiða, Skattrannsóknarstjóri ríkisins, Rafmyntaráð o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
44 mín · 13 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir því að bætt verði við stöðugildi hjá dómsmálaráðuneytinu til að halda utan um og sinna málefnum stýrihóps og öðrum verkefnum sem tengjast aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ætla má að efling eftirlits með tilkynningarskyldum aðilum muni í upphafi hafa í för með sér kostnað sem nemur allt að þremur stöðugildum. Gert er ráð fyrir að skoðað verði hvort og þá hvernig hægt verði að leggja eftirlitsgjald á þá aðila sem sæta þessu eftirliti eins og aðrir tilkynningarskyldir aðilar greiða vegna eftirlits Fjármálaeftirlitsins.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. desember 2018: 54 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

51 annar þingmaður greiddi atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna3 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-52/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. maí 2018 – 23. maí 2018· 1 umsögn

Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Óskað er eftir umsögnum um drög að nýjum heildarlögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 23. maí 2018
  2. Birt í Samráðsgátt (S-52/2018)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. apríl 2019)

Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Ein umsögn barst í gegnum gáttina, frá Samtökum atvinnulífsins. Í umsögninni var gerð athugasemd við að í skilgreiningu á raunverulegum eiganda væri miðað við 10% eignarhald í stað 25% líkt og tilskipunin kveður á um sem lágmarkskröfu. Tekið var fullt tillit til umsagnarinnar. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 7. nóvember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=314

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-98/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. júl. 2018 – 14. ágú. 2018· 3 umsagnir

Frumvarp til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Frumvarpið er innleiðing á fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins 2015/849/EB.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-98/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. apríl 2019)

Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Þrjár umsagnir bárust í gegnum gáttina, frá Neytendastofu, Samtökum iðnaðarins og Félagi íslenskra gullsmiða og Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF). Í umsögn Neytendastofu komu m.a. fram tillögur um breytingar á orðalagi á viðskiptum með reiðufé sem teknar voru til greina auk þess sem lagt var til að fjölga skráningarskyldum aðilum. Ekki þótti tilefni til að ganga lengra varðandi kröfu um skráningu en frumvarpið kveður á um að sinni. Í umsögn Samtaka iðnaðarins og Félags íslenskra gullsmiða voru gerðar athugasemdir við skráningarskyldu gullsmiða. Var það mat umsagnaraðila að kröfurnar væru of íþyngjandi og gætu takmarkað atvinnufrelsi gullsmiða. Komið var til móts við umsögnina með því að draga úr skilyrðum skráningar og samræma þær að mestu leyti við kröfur laga um einkahlutafélög. SFF taldi í umsögn sinni að með heimildum eftirlitsaðila til að leggja á stjórnvaldssektir væri gengið mun lengra en gerð er krafa um samkvæmt tilskipuninni. Ákvæði tilskipunarinnar hvað varðar viðurlög kveður á um þann lágmarksramma sem þarf að taka upp í landslög og aðildarríkjum falið að sjá um nánari útfærslu í takt við lagahefðir í hverju ríki fyrir sig. Við athugun á útfærslu viðurlagaákvæði í nokkrum aðildarríkjum kom í ljós að viðurlagakafli frumvarpsins hefur ekki verið innleiddur með samræmdum hætti. Stjórnvaldssektaákvæði frumvarpsins er í samræmi við sambærileg viðurlagaákvæði á fjármálamarkaði og ekki talið tilefni til að víkja frá því fyrirkomulagi í þessu frumvarpi. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 7. nóvember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=314

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Neytendastofa

    Meðfylgjandi er að finna umsögn Neytendastofu um drög að frumvarpi til laga um peningaþvætti.

  • #2Arna Arnardóttir
    Góðan dag, Ég sendi hér inn fyrirspurn fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða. Við vorum fyrst að frétta af þessu furmvarpi núna í fréttum í morgun. Við höfum því miður ekki náð að kynna okkur þetta furmvarp. Lögfræðingur okkar er í fríi fram í miðjan ágúst. Er möguleiki að við getum fengið að koma með athugasemdir þegar lögfræðingur okkar er búinn að lesa þetta yfir, þeas ef einhverjar eru? Okkar félagmenn versla mikið með gull og eðalmálma. Við viljum gjarna kynna okkur hvaða áhrif þetta frumvarp hefur á okkar starfsemi. Með von um skjót svör. Fyrir hönd Félags íslenskra gull… Lesa alla

    Góðan dag, Ég sendi hér inn fyrirspurn fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða. Við vorum fyrst að frétta af þessu furmvarpi núna í fréttum í morgun. Við höfum því miður ekki náð að kynna okkur þetta furmvarp. Lögfræðingur okkar er í fríi fram í miðjan ágúst. Er möguleiki að við getum fengið að koma með athugasemdir þegar lögfræðingur okkar er búinn að lesa þetta yfir, þeas ef einhverjar eru? Okkar félagmenn versla mikið með gull og eðalmálma. Við viljum gjarna kynna okkur hvaða áhrif þetta frumvarp hefur á okkar starfsemi. Með von um skjót svör. Fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða, Arna Arnardóttir formaður

  • #3Jóna Björk Guðnadóttir
    Fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) þakka ég fyrir tækifærið til að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið að nýju. SFF sendu ráðuneytinu umsögn um frumvarpið dags. 25. maí síðastliðinn og hefur verið tekið tillit til hluta þeirra athugasemda sem þá voru settar fram. SFF vilja nota þetta tækifæri og ítreka athugasemd við 46. gr. frumvarpsins sem fjallar um stjórnvaldssektir. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. geta eftirlitsaðilar lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðum laganna. SFF telja að ákvæðið sé of almennt orðað og þar sé gengið lengra en gert er í tilkipun ESB þ… Lesa alla

    Fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) þakka ég fyrir tækifærið til að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið að nýju. SFF sendu ráðuneytinu umsögn um frumvarpið dags. 25. maí síðastliðinn og hefur verið tekið tillit til hluta þeirra athugasemda sem þá voru settar fram. SFF vilja nota þetta tækifæri og ítreka athugasemd við 46. gr. frumvarpsins sem fjallar um stjórnvaldssektir. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. geta eftirlitsaðilar lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðum laganna. SFF telja að ákvæðið sé of almennt orðað og þar sé gengið lengra en gert er í tilkipun ESB þar sem viðurlagaheimildir eru afmarkaðar við brot sem eru alvarleg, ítrekuð og kerfisbundin. Mikilvægt er að við innleiðingu á EES-gerðum sé samræmis gætt við EES-réttinn og ekki verði settar séríslenskar íþyngjandi reglur nema brýna nauðsyn beri til.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    9 ræður · 25 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. nóvember 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    4 ræður · 19 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
367Stjórnarfrumvarp5. nóv. 2018Sigríður Á. AndersenLesaPDF
684Nefndarálit12. des. 2018Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +7LesaPDF
685Breytingartillaga12. des. 2018Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +7LesaPDF
732Frumvarp eftir 2. umræðu2. jan. 2019—LesaPDF
738Lög (samhlj.)13. des. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. nóvember 2018 kl. 16:40
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd7. nóvember 2018 kl. 16:40
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 14:59
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 14:59
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 14:59
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“.
    2--23
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 15:00
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“.
    1.--59. gr. og ákv til brb I--V, svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. desember 2018 kl. 15:00
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 15:07
    Að samþykkja frumvarpið „Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 44 mín
  • 1. umræða: 9 ræður · 3 ræðumenn · 25 mín
  • 2. umræða: 4 ræður · 3 ræðumenn · 19 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Smári McCarthyUtan þingflokka24 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka11 mín
Sigríður Á. AndersenSjálfstæðisflokkur518 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur217 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin24 mín
Albertína Friðbjörg ElíasdóttirSamfylkingin11 mín

Umsagnir og erindi

12 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 9. nóv. 2018, frestur 23. nóv. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins og Félag íslenskra gullsmiðaumsögnOpna PDF
Skattrannsóknarstjóri ríkisinsumsögnOpna PDF
RafmyntaráðumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF
Monerium EMI ehf.umsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
TollstjóriumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.