Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Óskað er eftir umsögnum um drög að nýjum heildarlögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ferill í Samráðsgátt
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. maí 2018
- Birt í Samráðsgátt (S-52/2018)
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. apríl 2019)
Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Ein umsögn barst í gegnum gáttina, frá Samtökum atvinnulífsins. Í umsögninni var gerð athugasemd við að í skilgreiningu á raunverulegum eiganda væri miðað við 10% eignarhald í stað 25% líkt og tilskipunin kveður á um sem lágmarkskröfu. Tekið var fullt tillit til umsagnarinnar. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 7. nóvember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=314
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.