Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 312. mál

Endurskoðendur og endurskoðun

LagafrumvarpSamþykktViðskipti

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 20. jún. 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja að um störf endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja gildi skýrar reglur í því skyni að auka traust á ársreikningum og samstæðureikningsskilum endurskoðaðra eininga.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 20. jún. 2019 greiddu 41 atkvæði með og 7 á móti, 9 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
5. nóvember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
13 ræður · 49 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2019

Markmiðið

Að tryggja að um störf endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja gildi skýrar reglur í því skyni að auka traust á ársreikningum og samstæðureikningsskilum endurskoðaðra eininga.

Hvað breytist

Með samþykkt frumvarpsins yrði tilskipun ESB nr. 2014/56 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðu­reikninga og reglugerð ESB nr. 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endur­skoðun á einingum tengdum almannahagsmunum innleidd í íslensk lög. Lagt er til að ríkari kröfur verði gerðar til endurskoðunarfyrirtækja, veitingar starfsleyfa og innlagnar starfsleyfa. Gert er ráð fyrir að ítarlegri kröfur verði gerðar um óhæði endurskoðenda. Einnig er lagt til að opinbert eftirlit með endurskoðendum og endurskoðunarfyrirtækjum verði eflt og að Fjármálaeftirlitið sinni eftirlitinu. Gert er ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið fái ríkari valdheimildir til að beita viðurlögum til að koma í veg fyrir brot gegn gildandi reglum í tengslum við þjónustu sem endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki veita. Að auki er gert ráð fyrir að ríkari kröfur verði lagðar á endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki sem endurskoða einingar tengdar almannahagsmunum. Lagt er til að úrræði sem eftirlitsstjórnunarvald hefur til að bregðast við brotum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja verði aukin.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um endurskoðendur, nr. 79/2008, en breytingar verða á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, og lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að áhrifin á afkomu ríkissjóðs verði óveruleg. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs aukist um 6,4 milljónir kr. vegna hækkaðra eftirlitsgjalda sem lögð eru á endurskoðendur. Að auki er gert ráð fyrir að Endurskoðendaráð fái árlegt framlag úr ríkissjóði að upphæð 25,5 millj. kr. og færist það framlag til Fjármálaeftirlitsins. Til að mæta auknum kostnaði við árlegt eftirlit með endurskoðendum og breytingar á skipulagi eftirlitsins er gert ráð fyrir að útgjöld hækki um 6,5 milljónir. Gert er ráð fyrir að áhrif á afkomu ríkissjóðs vegna breytinga á almennu eftirliti með endurskoðendum verði óveruleg.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/56/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2006/46/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/43/EB frá 17. maí 2006 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila, um breytingu á tilskipunum ráðsins 78/660/EBE og 83/349/EBE og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 84/253/EBE.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 537/2014 frá 16. apríl 2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum tengdum almannahagsmunum og um niðurfellingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2005/909/EB.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
20. jún. 2019
Samþykkt41 með · 7 á móti · 9 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Endurskoðendur og endurskoðun“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 2311–0
  • M0–7
  • F7–0
  • Sf0–0 · 7 hjá
  • 435–0
  • V4–0
  • Flf0–0 · 2 hjá
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 23. nóv. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
9 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Félag löggiltra endurskoðenda, Endurskoðendaráð, Ríkisendurskoðun, Gunnar Þór Ásgeirsson o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
49 mín · 13 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að áhrifin á afkomu ríkissjóðs verði óveruleg. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs aukist um 6,4 milljónir kr. vegna hækkaðra eftirlitsgjalda sem lögð eru á endurskoðendur. Að auki er gert ráð fyrir að Endurskoðendaráð fái árlegt framlag úr ríkissjóði að upphæð 25,5 millj. kr. og færist það framlag til Fjármálaeftirlitsins. Til að mæta auknum kostnaði við árlegt eftirlit með endurskoðendum og breytingar á skipulagi eftirlitsins er gert ráð fyrir að útgjöld hækki um 6,5 milljónir. Gert er ráð fyrir að áhrif á afkomu ríkissjóðs vegna breytinga á almennu eftirliti með endurskoðendum verði óveruleg.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 20. júní 2019: 41 með, 7 á móti, 9 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

39 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti2 tóku til máls

5 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

9 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-140/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. sep. 2018 – 9. okt. 2018· 10 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um endurskoðendur og endurskoðun

Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að skýra þær kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja og innleiða breytingar í samræmi við kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda í Evrópu með breytingu á Evróputilskipun endurskoðenda og reglugerð um endurskoðun á eininga tengdum almannahagsmunum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-140/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. nóvember 2018)

Í framhaldi af innsendum umsögnum var farið yfir ábendingarnar og gerðar breytingar á frumvarpsdrögunum. Frumvarpið er nú til meðferðar hjá Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Lilja Brynja Skúladóttir

    Umsögn lítur að ákvæði í 6. grein laga um endurskoðendur þar sem allir endurskoðendur eru skyldaðir til að hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi sama hvort þeir starfi á endurskoðendastofu eða utan stofu. Í umsögn minni vísa ég til ákvæða í 12. grein laga um lögmenn nr. 77/1998 þar sem lögmenn sem starfa hjá opinberri stofnun eða einkaaðila þurfa ekki að vera með gilda starfsábyrgðartryggingu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sjá viðhengt skjal.

  • #2Sigurður Örn Guðleifsson

    Hjálagðar eru ábendingar ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, skv. lögum nr. 27/1999, sbr. 12. gr. í samþykkt ríkisstjórnar frá 10. mars 2017. Fyrir hönd nefndarinnar, Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.

  • #3Bryndís Björk Guðjónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn fyrir hönd PricewaterhouseCoopers ehf.

  • #4Kristín Halldóra Halldórsdóttir

    Athugasemdir við 7. grein í frumvarpi um starfsábyrgðartryggingu endurskoðenda gagnvart endurskoðendum sem ekki starfa á endurskoðunarstofum heldur hjá opinberum stofnunum og einkaaðilum. Tillaga er að setja inn undanþáguákvæði svipað og er að finna í lögum um lögmenn.

  • #5Auður Ósk Þórisdóttir

    Meðfylgandi er umsögn frá KPMG ehf.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 4 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. nóvember 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    11 ræður · 44 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 31 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 30 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 30 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  17. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 41 með, 7 á móti
  18. Þingskjal
  19. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
365Stjórnarfrumvarp5. nóv. 2018Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
1827Nefndarálit13. jún. 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +3LesaPDF
1828Breytingartillaga13. jún. 2019Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +3LesaPDF
1849Frumvarp eftir 2. umræðu16. ágú. 2019—LesaPDF
1912Breytingartillaga19. jún. 2019Óli Björn KárasonLesaPDF
1936Lög í heild20. jún. 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur7. nóvember 2018 kl. 16:13
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd7. nóvember 2018 kl. 16:13
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt14. júní 2019 kl. 16:21
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Endurskoðendur og endurskoðun“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:5 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:1 með · 0 á móti · 4 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:1 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt14. júní 2019 kl. 16:22
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Endurskoðendur og endurskoðun“.
    1--20
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti
  • Samþykkt14. júní 2019 kl. 16:22
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Endurskoðendur og endurskoðun“.
    2.--56. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:10 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur14. júní 2019 kl. 16:22
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd14. júní 2019 kl. 16:22
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt20. júní 2019 kl. 00:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Endurskoðendur og endurskoðun“.
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
  • Samþykkt20. júní 2019 kl. 00:18
    Að samþykkja frumvarpið „Endurskoðendur og endurskoðun“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 7 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 49 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 4 mín
  • 2. umræða: 11 ræður · 4 ræðumenn · 44 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

13 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 9. nóv. 2018, frestur 23. nóv. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Félag löggiltra endurskoðendaathugasemdOpna PDF
EndurskoðendaráðathugasemdOpna PDF
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
RíkisendurskoðunminnisblaðOpna PDF
EndurskoðendaráðumsögnOpna PDF
Félag löggiltra endurskoðendaumsögnOpna PDF
Gunnar Þór ÁsgeirssonumsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
KPMG ehf.umsögnOpna PDF
Guðmundur Óli MagnússonumsögnOpna PDF
Einar S. HálfdánarsonumsögnOpna PDF
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.