Ýmsar aðgerðir í samræmi við forsendur fjárlaga 2019
Tekjuskattur, persónuafsláttur, barnabætur, vaxtabætur, tryggingagjald
Hvar er málið statt?
Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Í stuttu máli
Að hækka persónuafslátt tímabundið, að hækka tekjumörk í efra þrepi tekjuskatts, að hækka barnabætur og vaxtabætur og að lækka tryggingagjald.
Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 11. september 2018
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 46 ræður · 3 klst. 39 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að hækka persónuafslátt tímabundið, að hækka tekjumörk í efra þrepi tekjuskatts, að hækka barnabætur og vaxtabætur og að lækka tryggingagjald.
Hvað breytist
Lagðar eru til ýmsar breytingar á skattalögum sem eru óaðskiljanlegur hluti af forsendum fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2019. Lögð er til 1% tímabundin viðbótarhækkun á persónuafslætti umfram lögbundna hækkun í samræmi við vísitölu neysluverðs. Einnig er gert ráð fyrir að tekjumörk í efra þrepi tekjuskatts verði tengd vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu og að viðmiðunarfjárhæðir barnabóta og vaxtabóta hækki. Enn fremur er lagt til að almenna tryggingagjaldið lækki í tveimur áföngum, um 0,25% í hvorum áfanga, eða samtals um 0,5%. Miðað er við að fyrri áfanginn komi til framkvæmda í ársbyrjun 2019 og sá síðari í ársbyrjun 2020.
Kostnaður fyrir ríkið
Heildaráhrif tillagnanna á afkomu ríkissjóðs eru neikvæð um 7,9 milljarða kr. árið 2019 og 11,9 milljarða kr. á árinu 2020 að öðru óbreyttu. Gjöld Áætluð áhrif þess að persónuafsláttur hækki um 1% umfram lögboðna hækkun á vísitölu neysluverðs við staðgreiðslu á árinu 2019 og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2020 eru metin kringum 2,2 milljarðar kr. Hækkanir á viðmiðunarfjárhæðum og tekjuviðmiðunarmörkum barnabóta leiða til þess að heildarútgjöld vegna barnabóta verða 1,8 milljörðum kr. hærri árið 2019 en 2018. Breyttar viðmiðanir vaxtabótakerfisins leiða til heildarútgjaldaaukningar upp á 400 milljónir kr. milli áranna 2018 og 2019. Tekjur Talið er að árlegar breytingar á efri fjárhæðarmörkum tekjuskattsstofns í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu leiði til 500 milljóna kr. tekjuauka fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir því að með lækkun almenns tryggingagjalds um 0,25% frá 1. janúar 2019 lækki tekjur ríkissjóðs um 4 milljarða kr. Þegar almennt tryggingagjald lækkar svo um önnur 0,25% frá 1. janúar 2020 þá munu tekjur ríkissjóðs lækka um 4 milljarða kr. til viðbótar eða um alls 8 milljarða kr. á tveimur árum.
Afstaða þingflokkanna
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkurfjármála- og efnahagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 11. okt. 2018
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 8 aðilar
- Hagsmunasamtök heimilanna, Öryrkjabandalag Íslands, Samtök atvinnulífsins, Ríkisskattstjóri, Viðskiptaráð Íslands o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 3 klst. 39 mín · 46 ræður
- 12 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Heildaráhrif tillagnanna á afkomu ríkissjóðs eru neikvæð um 7,9 milljarða kr. árið 2019 og 11,9 milljarða kr. á árinu 2020 að öðru óbreyttu. Gjöld Áætluð áhrif þess að persónuafsláttur hækki um 1% umfram lögboðna hækkun á vísitölu neysluverðs við staðgreiðslu á árinu 2019 og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2020 eru metin kringum 2,2 milljarðar kr. Hækkanir á viðmiðunarfjárhæðum og tekjuviðmiðunarmörkum barnabóta leiða til þess að heildarútgjöld vegna barnabóta verða 1,8 milljörðum kr. hærri árið 2019 en 2018. Breyttar viðmiðanir vaxtabótakerfisins leiða til heildarútgjaldaaukningar upp á 400 milljónir kr. milli áranna 2018 og 2019. Tekjur Talið er að árlegar breytingar á efri fjárhæðarmörkum tekjuskattsstofns í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs í stað launavísitölu leiði til 500 milljóna kr. tekjuauka fyrir ríkissjóð. Gert er ráð fyrir því að með lækkun almenns tryggingagjalds um 0,25% frá 1. janúar 2019 lækki tekjur ríkissjóðs um 4 milljarða kr. Þegar almennt tryggingagjald lækkar svo um önnur 0,25% frá 1. janúar 2020 þá munu tekjur ríkissjóðs lækka um 4 milljarða kr. til viðbótar eða um alls 8 milljarða kr. á tveimur árum.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. desember 2018: 31 með, 0 á móti, 24 sátu hjá.
Greiddu atkvæði með4 tóku til máls
27 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.
Sátu hjá6 tóku til máls
18 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.
Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða31 ræða · 2 klst. 13 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 11. október 20181 beiðni um umsögn
- Þingskjal
- Þingskjal
- Þingskjal
- Umræða2. umræða15 ræður · 1 klst. 26 mín
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 39 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 40 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 40 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 30 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 31 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 31 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 58 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 58 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 58 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 42 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 39 með, 0 á móti
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 55 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 31 með, 0 á móti
- Þingskjal
- Þingskjal
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
| Þskj. | Tegund | Útbýtt | Flutningsmenn | Skjal |
|---|---|---|---|---|
| 2 | Stjórnarfrumvarp | 11. sep. 2018 | Bjarni Benediktsson | LesaPDF |
| 638 | Nefndarálit | 10. des. 2018 | Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +3 | LesaPDF |
| 639 | Breytingartillaga | 10. des. 2018 | Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +3 | LesaPDF |
| 653 | Nefndarálit | 11. des. 2018 | Oddný G. Harðardóttir | LesaPDF |
| 719 | Frumvarp eftir 2. umræðu | 13. des. 2018 | — | LesaPDF |
| 733 | Lög (samhlj.) | 13. des. 2018 | — | LesaPDF |
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur18. september 2018 kl. 16:28Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd18. september 2018 kl. 16:28Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:16Breytingartillaga1 (1. gr. falli brott)Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:20Breytingartillaga2Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:20Grein / þingskjal2. gr. (verður 1. gr.), svo breytt,Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:21Grein / þingskjal3. gr. (verður 2. gr.)Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:24Breytingartillaga3Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:24Grein / þingskjal4. gr. (verður 3. gr.), svo breytt,Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:25Breytingartillaga4Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:26Grein / þingskjal5. gr. (verður 4. gr.), svo breytt,Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:27Breytingartillaga5 (ný 6. gr., verður 5. gr.)Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:27Breytingartillaga6Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 11:27Grein / þingskjal7. gr. (verður 6. gr.), svo breytt,Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur13. desember 2018 kl. 11:28Frumvarp gengur til 3. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 15:03Afbrigðio.fl.Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt13. desember 2018 kl. 15:03Lokaatkvæðagreiðsla um frumvarpEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 31 ræða · 9 ræðumenn · 2 klst. 13 mín
- 2. umræða: 15 ræður · 7 ræðumenn · 1 klst. 26 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Utan þingflokka | 1 | 1 mín | |
| Utan þingflokka | 4 | 8 mín | |
| Utan þingflokka | 1 | 9 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 12 mín | |
| Flokkur fólksins | 3 | 18 mín | |
| Samfylkingin | 4 | 18 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 6 | 19 mín | |
| Samfylkingin | 3 | 21 mín | |
| Miðflokkurinn | 2 | 25 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 8 | 28 mín | |
| Samfylkingin | 7 | 29 mín | |
| Viðreisn | 6 | 31 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 20. sep. 2018, frestur 11. okt. 2018.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Hagsmunasamtök heimilanna | umsögn | Opna PDF | |
| Öryrkjabandalag Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| Ríkisskattstjóri | umsögn | Opna PDF | |
| Viðskiptaráð Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Félag atvinnurekenda | umsögn | Opna PDF | |
| Seðlabanki Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamband eldri borgara | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Fjárlög 2019skylt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)