Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 266. mál

Lyfjalög og landlæknir og lýðheilsa

Lyfjaávísanir hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra

LagafrumvarpSamþykktFélagsmálHeilbrigðismál

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 13. des. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að stuðla að betra aðgengi kvenna að kynheilbrigðisþjónustu og efla slíka þjónustu. Að nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á sviði kynheilbrigðisþjónustu.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 13. des. 2018 greiddu 54 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
18. október 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
3
Umræða í þingsal
17 ræður · 44 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 14. des. 2018

Markmiðið

Að stuðla að betra aðgengi kvenna að kynheilbrigðisþjónustu og efla slíka þjónustu. Að nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á sviði kynheilbrigðisþjónustu.

Hvað breytist

Lagt er til að hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum verði heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Upplýsingar um áhrif á ríkissjóð liggja ekki fyrir í greinargerð frumvarpsins.

Meira úr samantektinni

Lyfjastefna til ársins 2022, þingsályktun 17/146, 2016–2017.

Heildarendurskoðun laga nr. 25/1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Velferðarráðuneytið, nóvember 2016.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
13. des. 2018
Samþykkt54 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Lyfjalög og landlæknir og lýðheilsa“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S12–0
  • 239–0
  • F8–0
  • M7–0
  • Sf5–0
  • 435–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 23. nóv. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landlæknisembættið, Lyfjafræðingafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
44 mín · 17 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Upplýsingar um áhrif á ríkissjóð liggja ekki fyrir í greinargerð frumvarpsins.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. desember 2018: 54 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með6 tóku til máls

48 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-130/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2018 – 24. sep. 2018· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu (ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra)

Óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu sem heimilar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að ávísa hormónate

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-130/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. september 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. nóvember 2018)

Alls bárust fimm umsagnir um frumvarpið og var tekið tillit til þeirra eftir atvikum eins og greint er frá í frumvarpinu sem er nú í vinnslu á Alþingi: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=266

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Salóme Ásta Arnardóttir
    Er kynheilbrigðisþjónustu kvenna þannig háttað í landinu að það sé nauðsynlegt að leggja út í grundvallar breytingu á lyfsölu lögum og leggja fé í endurmenntun hjúkrunarfræðinga og ljóðmæður í lyfjafræði og lögum um lyfseðilsskyld lyf? Eru hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í landinu ekki störfum hlaðnar nú þegar? Konur á Íslandi hafa greiðan aðgang að heimilislæknum auk þess sem fjöldi skráðra kvensjúkdómalækna í Læknafélagi Íslands eru 85 eða 1 læknir á hverjar 2000 konur í landinu. Allir heimlislæknar auk kvensjúkdómalækna bjóða upp á kynheilbrigðisþjónustu fyrir konur og skrifa út getnaðarva… Lesa alla

    Er kynheilbrigðisþjónustu kvenna þannig háttað í landinu að það sé nauðsynlegt að leggja út í grundvallar breytingu á lyfsölu lögum og leggja fé í endurmenntun hjúkrunarfræðinga og ljóðmæður í lyfjafræði og lögum um lyfseðilsskyld lyf? Eru hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í landinu ekki störfum hlaðnar nú þegar? Konur á Íslandi hafa greiðan aðgang að heimilislæknum auk þess sem fjöldi skráðra kvensjúkdómalækna í Læknafélagi Íslands eru 85 eða 1 læknir á hverjar 2000 konur í landinu. Allir heimlislæknar auk kvensjúkdómalækna bjóða upp á kynheilbrigðisþjónustu fyrir konur og skrifa út getnaðarvarnir. www.heilsuvera.is hefur stólega bætt aðgang að endurnýjunum á lyfseðils skyldum lyfjum. Ísland sker sig ekki út hvað varðar fjölda fóstureyðinga á Norðurlöndum. (https://thl.fi/sv/web/thlfi-sv/statistik/statistik-efter-amne/sexuell-och-reproduktiv-halsa/aborter/aborter-i-norden Á þessari mynd sést að tíðni fóstureyðinga á 1000 fædd börn er hæst í Svíþjóð en þar er löng hefð fyrir að ljósmæður sjái um getnaðarvarnir og skrifa út lyfseðla fyrir pillunni. Því miður er ekki ljóst hvaða þörf er verið að mæta með þessari grundvallar breytingu á lyfseðlaskrifum í landinu. Með kveðju Salome Arnardóttir heimilislæknir

  • #2Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir
    Ég tel að það væri mun heppilegra að nota hér þekkingu og aðgengi að lyfjafræðingum sérstaklega í ljósi þess að þeir eru klárlega sú fagstétt sem óumdeilanlega hefur þessa þekkingu eftir 5 ára háskólanám. Lyfjafræðingar eru mjög vannýttur starfskraftur í ísl heilbrigðiskerfi og það er tímabært að breyta því. Þeir hafa menntunina og vilja axla ábyrgð og taka þátt í að byggja upp gott heilbrigðiskerfi þar sem þeirra fagþekking kemur að notum. Öllum sem að þessum málum koma má vera ljóst að störf þeirra inni á spítölum eru velmetin og hafa sýnt sig í að skila sér í betri og réttari notkun lyfja,… Lesa alla

    Ég tel að það væri mun heppilegra að nota hér þekkingu og aðgengi að lyfjafræðingum sérstaklega í ljósi þess að þeir eru klárlega sú fagstétt sem óumdeilanlega hefur þessa þekkingu eftir 5 ára háskólanám. Lyfjafræðingar eru mjög vannýttur starfskraftur í ísl heilbrigðiskerfi og það er tímabært að breyta því. Þeir hafa menntunina og vilja axla ábyrgð og taka þátt í að byggja upp gott heilbrigðiskerfi þar sem þeirra fagþekking kemur að notum. Öllum sem að þessum málum koma má vera ljóst að störf þeirra inni á spítölum eru velmetin og hafa sýnt sig í að skila sér í betri og réttari notkun lyfja, það sama má hugsa sér að gerðist ef þeirra starfskraftar væru nýttir inni á heilsugæslustöðvum og öðrum hjúkrunar og læknastöðvum. Varðandi heilsugæsluna og aðkomu lyfjafræðinga að henni þá var nýlega unnin doktorsritgerð þar sem sannarlega var sýnt fram á hagkvæmni í að hafa lyfjafræðinga þar inni og almenn ánægja lækna, og annars starfsfólks heilsugæslunnar og það að ávísa getnaðarvarnapillum gæti akkúrat verið fyrsta skrefið í að koma lyfjafræðingum inn á allar heilsugæslustöðvar. Í dag hafa Lyfjafræðingar neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Ég tel að rétt væri að útvíkka þetta þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum.

  • #3Helena Líndal Baldvinsdóttir

    Lyfjafræðingar hafa neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Tel ég að rétt væri að útvíkka þennan neyðarrétt þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum. Lyfjafræðingar eru sérfræðingar um lyf og ætti að nýta þá sérfræði þekkingu betur

  • #4Sóley Sesselja Bender
    Velferðarráðuneytið Skógarhlíð 6 105 Reykjavík Reykjavík, 24. september 2018 Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá hefur í langan tíma verið unnið að þessu mikilvæga máli að heimila hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónagetnaðarvörnum. Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að aðgengi að getnaðarvörnum sé greitt og að hugað sé vel að faglegri ráðgjöf um getnaðarvarnir sem stuðlað getur að kynheilbrigði fólks. Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við breyting… Lesa alla

    Velferðarráðuneytið Skógarhlíð 6 105 Reykjavík Reykjavík, 24. september 2018 Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá hefur í langan tíma verið unnið að þessu mikilvæga máli að heimila hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónagetnaðarvörnum. Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að aðgengi að getnaðarvörnum sé greitt og að hugað sé vel að faglegri ráðgjöf um getnaðarvarnir sem stuðlað getur að kynheilbrigði fólks. Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við breytingar á lyfjalögum 1. Lagt er til að setningin í a. lið verði umorðuð og hljóði svo: Hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir, sem hlotið hefur sérstakt leyfi landlæknis (lyfjaávísun hormónagetnaðarvarna) og starfar þar sem heilsugæslu- , kvenlækninga- eða fæðingarþjónusta er veitt, er heimilt að ávísa hormónagetnaðarvörnum. 2. Í a. lið er fjallað um að ráðherra geti sett reglugerð um skilyrði til leyfisveitingar. Þar kemur fram að viðbótarnám er sett sem skilyrði til leyfis. Við gerð slíkrar reglugerðar er mikilvægt að hafa í huga að hér á landi gætu verið einstaklingar með sérnám á sviði fjölskylduáætlunar sem er mun meira nám en fjallað er um í greinargerð frumvarpsins. Í þeim tilvikum þarf að taka tillit til fyrri starfsreynslu og sérnáms á þessu sérsviði. Þegar slíkt er fyrir hendi ætti ekki að vera þörf á viðbótarnámi. Virðingarfyllst, Sóley S. Bender, prófessor Sérfræðingur í kynheilbrigði Hjúkrunarfræðideild Háskóli Íslands Eirberg Eiríksgata 34 101 Reykjavík s. 525 4980 ssb@hi.is

  • #5Margrét R Kristjánsdóttir
    Verð að segja að maður verður fyrir mikilum vonbrygðum að sjá svona tillögu þar sem heilli stétt er úthýst þrátt fyrir 5 ára háskólanám ásmat starfsnámi er sleppt og hefur sennilega mun meiri þekkingu en umræddar heilbrigðisstéttir af lyfjum. Hvar eru lyfjafræðingar innan heilbrigðiskerfisins ? Þetta er sú stétt sem eisaklingar eiga sennilega auðveldast með að ná til og auðvelt fyrir þá að koma upplýsingum um ávísun til heimilislækni einstaklings í gegnum gáttir. Fer þess á leit að þessu verði breytt svo hljóðandi eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi: Lyfjaávísun lyfja… Lesa alla

    Verð að segja að maður verður fyrir mikilum vonbrygðum að sjá svona tillögu þar sem heilli stétt er úthýst þrátt fyrir 5 ára háskólanám ásmat starfsnámi er sleppt og hefur sennilega mun meiri þekkingu en umræddar heilbrigðisstéttir af lyfjum. Hvar eru lyfjafræðingar innan heilbrigðiskerfisins ? Þetta er sú stétt sem eisaklingar eiga sennilega auðveldast með að ná til og auðvelt fyrir þá að koma upplýsingum um ávísun til heimilislækni einstaklings í gegnum gáttir. Fer þess á leit að þessu verði breytt svo hljóðandi eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi: Lyfjaávísun lyfjafræðings,sem hlotið hefur sérstakt leyfi landlæknis til lyfjaávísunar hormónatengdra getnaðarvarna og starfar í apóteki. Lyfjafræðingar hafa nú þegar neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Teljum við að rétt væri að útvíkka þennan neyðarrétt þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum. Einnig mætti bæta þjónustu á heilsugæslu með því að útvíkka starfsvið lyfjafræðings og setja þá inn á heilsugæslustöðvar. Líklegast væri hægt að spara dágóðan pening í heilbrigðiskerfinu með því að hafa lyfjafræðinga inn á heilsugæslustöðvum sem færu yfir lyfjaávísanir og notkun lyfja hjá viðkomandi einstaklingum á heilsugæslustöðvum. Með von um að þeirri stétt sem hefur hvað lengsta háskólanámið er varðar þekkingu um lyf og milliverkanir þeirra sé ekki úthýst í reglugerð sem þessari.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    7 ræður · 19 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. nóvember 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    10 ræður · 25 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  12. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
288Stjórnarfrumvarp18. okt. 2018Svandís SvavarsdóttirLesaPDF
687Nefndarálit12. des. 2018Halldóra Mogensen, Halla Signý Kristjánsdóttir +5LesaPDF
737Lög (samhlj.)13. des. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

6 alls · 3 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur25. október 2018 kl. 16:26
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd25. október 2018 kl. 16:26
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 14:55
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög og landlæknir og lýðheilsa“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 14:55
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Lyfjalög og landlæknir og lýðheilsa“.
    2.--4. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. desember 2018 kl. 14:55
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. desember 2018 kl. 15:06
    Að samþykkja frumvarpið „Lyfjalög og landlæknir og lýðheilsa“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

17 ræður · 44 mín
  • 1. umræða: 7 ræður · 3 ræðumenn · 19 mín
  • 2. umræða: 10 ræður · 5 ræðumenn · 25 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Halldóra MogensenUtan þingflokka11 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin23 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka24 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka512 mín
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur212 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur513 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 2. nóv. 2018, frestur 23. nóv. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Hjúkrunarfræðideild Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Ljósmæðrafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisinsumsögnOpna PDF
LandlæknisembættiðumsögnOpna PDF
Lyfjafræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalæknaumsögnOpna PDF
Háskólinn á AkureyriumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag íslenskra hjúkrunarfræðingaumsögnOpna PDF
Tanja Þorsteinsson kvensjúkdómalæknirumsögnOpna PDF

Tengd mál

  • 652. mál (140. þing, ekki í Alviti enn)tengt

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.