Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 232. mál

Landgræðsla

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 14. des. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 14. des. 2018 greiddu 60 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
15. október 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
9 ræður · 1 klst.

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 14. des. 2018

Markmiðið

Að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands.

Hvað breytist

Lagt er til skerpt verði á markmiðum laganna, m.a. með hliðsjón af nýjum áskorunum. Þannig er fjallað um að hverju beri að stefna í vernd og sjálfbærri nýtingu jarðvegs og gróðurs og endurheimt vistkerfa. Gert er ráð fyrir að eigi sjaldnar en á fimm ára fresti gefi ráðherra út landgræðsluáætlanir til tíu ára í senn. Einnig er lagt til að unnar verði svæðisáætlanir sem draga fram sérstöðu og áherslur eftir landshlutum. Til að tryggja sem best sjálfbæra nýtingu lands er gert ráð fyrir að reglulega fari fram mat á ástandi lands og árangri landgræðslustarfs, að sett skuli viðmið um sjálfbæra landnýtingu og að unnin skuli áætlun um úrbætur þar sem landnýting er ekki sjálfbær. Að auki er lagt til ákvæði um að leiði framkvæmdir eða landnýting til umtalsverðs rasks á landvistkerfum eða gróðri og jarðvegi þá skuli bæta fyrir það með endurheimt sambærilegra vistkerfa. Enn fremur er lagt til að kveðið verði á um hlutverk Landgræðslunnar við umsjón lands vegna landgræðslu, annars vegar lands í eigu ríkisins og hins vegar lands í einkaeigu sem ríkið hefur umsjón með samkvæmt samkomulagi við eiganda.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um landgræðslu, nr. 17/1965, og lög um varnir gegn landbroti, nr. 91/2002, en jafnframt verða breytingar á: -Jarðalögum, nr. 81/2004, -Lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, -Búvörulögum, nr. 99/1993, -Lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, -Lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, -Lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, -Efnalögum, nr. 61/2013, -Lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012, -Lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011, -Lögum um Landeyjahöfn, nr. 66/2008.

Kostnaður fyrir ríkið

Ný verkefni Landgræðslunnar vegna frumvarpsins sem hafa kostnaðaráhrif eru einkum ákvæði um svæðisáætlanir sem unnar verða á fimm ára fresti ásamt því að stofnunin skal leggja mat á nýtingu og ástand lands. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna þessara nýju verkefna rúmist innan fjárheimilda. Kostnaðurinn er mismikill eftir árum og líklegast mestur við gerð fyrstu áætlunarinnar og rúmast innan fjárheimilda ráðuneytisins.

Meira úr samantektinni

Tillögur að inntaki nýrra laga um landgræðslu. Greinargerð starfshóps til umhverfisráðherra, júní 2012.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ari Trausti Guðmundsson

Lokaatkvæðagreiðsla
14. des. 2018
Samþykkt60 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Landgræðsla“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S16–0
  • 239–0
  • F8–0
  • M6–0
  • Sf7–0
  • 436–0
  • V4–0
  • Flf2–0
  • U2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 15. nóv. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
13 aðilar
Umhverfisstofnun, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd, Náttúrufræðistofnun Íslands, Landssamtök sauðfjárbænda o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. · 9 ræður
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ný verkefni Landgræðslunnar vegna frumvarpsins sem hafa kostnaðaráhrif eru einkum ákvæði um svæðisáætlanir sem unnar verða á fimm ára fresti ásamt því að stofnunin skal leggja mat á nýtingu og ástand lands. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna þessara nýju verkefna rúmist innan fjárheimilda. Kostnaðurinn er mismikill eftir árum og líklegast mestur við gerð fyrstu áætlunarinnar og rúmast innan fjárheimilda ráðuneytisins.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 14. desember 2018: 60 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með5 tóku til máls

55 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    3 ræður · 31 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 15. nóvember 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    6 ræður · 29 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 60 með, 0 á móti
  14. Þingskjal
  15. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
247Stjórnarfrumvarp15. okt. 2018Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF
745Nefndarálit13. des. 2018Jón Gunnarsson, Ari Trausti Guðmundsson +7LesaPDF
746Breytingartillaga13. des. 2018Jón Gunnarsson, Ari Trausti Guðmundsson +7LesaPDF
774Frumvarp eftir 2. umræðu2. jan. 2019—LesaPDF
783Lög (samhlj.)14. des. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur23. október 2018 kl. 23:23
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd23. október 2018 kl. 23:23
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt14. desember 2018 kl. 15:04
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Landgræðsla“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt14. desember 2018 kl. 15:04
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Landgræðsla“.
    1--14
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt14. desember 2018 kl. 15:04
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Landgræðsla“.
    2.--28. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
  • yfirlýsing forseta/mál gengur14. desember 2018 kl. 15:05
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt14. desember 2018 kl. 16:08
    Að samþykkja frumvarpið „Landgræðsla“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

9 ræður · 1 klst.
  • 1. umræða: 3 ræður · 2 ræðumenn · 31 mín
  • 2. umræða: 6 ræður · 5 ræðumenn · 29 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur111 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn11 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur18 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn11 mín
Jón GunnarssonSjálfstæðisflokkur18 mín
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokka220 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka212 mín

Umsagnir og erindi

14 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 1. nóv. 2018, frestur 15. nóv. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
UmhverfisstofnunviðbótarumsögnOpna PDF
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðlagt fram á fundiOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Landssamtök sauðfjárbændaumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Hjörleifur GuttormssonumsögnOpna PDF
Samtök náttúrustofaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
SkógræktinumsögnOpna PDF
Landgræðsla ríkisinsumsögnOpna PDF
Ólafur Arnalds prófessorumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)