Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011
Í frumvarpsdrögunum er annars vegar lagt til að gildistími laga um svæðisbundna flutningsjöfnun verði framlengdur til ársloka 2025 og hins vegar að skilyrði flutningsjöfnunarstyrkja verði rýmkuð til að fjölga þeim framleiðendum á landsbyggðinni sem notið geta slíkra styrkja.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-105/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 30. ágúst 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. október 2018)
Ein umsögn barst, frá Bændasamtökum Íslands og Sambandi garðyrkjubænda, þar sem fagnað var þeim breytingum sem frumvarpið felur í sér. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi, sjá: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=158
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Katrín María Andrésdóttir
Meðfylgjandi er umsögn frá Bændasamtökum Íslands og Sambandi garðyrkjubænda, dags. 29. ágúst 2018.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.