Beint í efni
Alviti
Þingmál148. þing · 492. mál

Íslandsstofa

Rekstrarform o.fl.

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 12. jún. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við markaðsstarf á erlendum mörkuðum, auka samþættingu og samstarf þeirra aðila sem að því koma. Að nýta fjármuni með markvissari hætti. Að skýra stjórnsýslulega stöðu Íslandsstofu með því að marka henni stöðu sjálfseignarstofnunar.

Lagt fram af Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 12. jún. 2018 greiddu 52 atkvæði með og 0 á móti, 5 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
6. apríl 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
57 ræður · 2 klst. 24 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. jún. 2018

Markmiðið

Að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við markaðsstarf á erlendum mörkuðum, auka samþættingu og samstarf þeirra aðila sem að því koma. Að nýta fjármuni með markvissari hætti. Að skýra stjórnsýslulega stöðu Íslandsstofu með því að marka henni stöðu sjálfseignarstofnunar.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði á fót útflutnings- og markaðsráð sem gegni lykilhlutverki varðandi mótun langtímastefnu og eftirfylgni hennar. Hnykkt er á stöðu Íslandsstofu sem þungamiðju í samstarfi atvinnulífs og stjórnvalda í markaðsstarfi á erlendri grundu, m.a. með því að mæla fyrir um skýrt hlutverk hennar í mótun langtímastefnu og framkvæmd hennar. Lagt er til að rekstrarformi Íslandsstofu verði breytt til að skýrt sé að Íslandsstofa sé rekin sem sjálfseignarstofnun á einkaréttarlegum grunni í samstarfi atvinnulífs og stjórnvalda. Gert er ráð fyrir að með ítarlegum hætti verði mælt fyrir um skyldur Íslandsstofu gagnvart stjórnvöldum í sérstökum þjónustusamningi. Lagt er til að mælanlegum markmiðum og mælikvörðum sé beitt í markmiðssetningu og áætlanagerð sem stjórn Íslandsstofu fylgist með og bregst við eftir atvikum.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Áfram Ísland. Endurskoðun á stefnumörkun og skipulagi útflutningsþjónustu og markaðsstarfs. Starfshópur utanríkisráðherra um útflutningsaðstoð og markaðssetningu á vöru og þjónustu frá Íslandi, janúar 2015.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
12. jún. 2018
Samþykkt52 með · 0 á móti · 5 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Íslandsstofa“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 2311–0
  • F7–0
  • M7–0
  • Sf6–0
  • 430–0 · 5 hjá
  • Flf3–0
  • V3–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Utanríkismálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 23. apr. 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
4 aðilar
Samtök atvinnulífsins, Ferðamálastofa, Samkeppniseftirlitið, Utanríkisráðuneytið · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 24 mín · 57 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 12. júní 2018: 52 með, 0 á móti, 5 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með14 tóku til máls

Sýna 8 í viðbót

38 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá1 tók til máls

4 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-25/2018· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2018 – 13. mar. 2018· 2 umsagnir

Breyting á lögum um Íslandsstofu nr. 38/201

Meginmarkmiðið með frumvarpinu er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við markaðsstarf á erlendum mörkuðum, auka samþættingu og samstarf þeirra aðila sem að koma, nýta fjármuni með markvissari hætti og gera breytingar á rekstrarformi Íslandsstofu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-25/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. mars 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. júní 2018)

Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Tvær umsagnir bárust í gegnum gáttina, frá Bandalagi íslenskra listamanna og sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins (SA), Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka ferða­þjónustunnar (SAF), Samorku, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). Í umsögn Bandalags íslenskra listamanna segir að bandalagið hafi áhyggjur af því að með því að leggja niður faghópa Íslandsstofu sé hætta á að ákvarðanataka á grunni faglegrar umræðu listamanna og sú þekking sem kynningarmiðstöðvarnar búa yfir verði ekki nýtt og að frumvarpið tryggi ekki aðkomu fagfólks að útflutnings- og markaðsráði. Frumvarpið gerir ráð fyrir að útflutnings- og markaðsráð geti skipað starfshópa úr ráðinu um afmörkuð verkefni og þeir taki við hlutverki fagráða samkvæmt gildandi lögum. Telja verður að þessu sjónarmiði sé mætt í frumvarpinu. Að því er varðar hina ábendingu bandalagsins má benda á að gert er ráð fyrir að mennta- og menningarmálaráðherra tilnefni þrjá fulltrúa til setu í útflutnings- og markaðsráði og ætti því að vera unnt að gæta þess að fulltrúi listamanna sé í þeim hópi. Í umsögn SA, SI, SAF, Samorku, SFS og SVÞ er því lýst að samtökin fagni drögum að frumvarpinu og styðji eindregið að það nái fram að ganga. Drögin séu byggð á niðurstöðu starfshóps um fyrirkomulag markaðssetningar á Íslandi og íslenskum vörum og þjónustu erlendis frá 2015, en þar hafi verið lögð rík áhersla á að útflutningsþjónusta og markaðsstarf fyrir Ísland væri byggt á langtímastefnumótun sem mörkuð er í breiðri samvinnu. Þá segir að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda um að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins eigi sér langa sögu og hafi það samstarf verið mikilvægur þáttur til að auka verðmætasköpun íslensks þjóðfélags. Íslandsstofa sé kjölfestuaðili í því samstarfi og nauðsynlegt sé að útrýma þeirri óvissu sem ríkt hafi um stjórnsýslulega stöðu Íslandsstofu. Í frumvarpinu sé staðfest að starf­semi Íslandsstofu byggist á samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs (e. public-private partnership) þar sem styrkleiki beggja aðila nýtist sem best og jafnræði þeirra sé jafnframt tryggt. Framangreindar umsagnir kalla ekki á sérstakar breytingar á frumvarpsdrögunum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Erling Jóhannesson

    Þetta er umsögn frá bandalagi íslenskra listamanna, sjá viðhengi.

  • #2Halldór Benjamín Þorbergsson

    Umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og Samorku, samtök orku- og veitufyrirtækja.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    33 ræður · 1 klst. 37 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. apríl 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Umræða
    2. umræða
    24 ræður · 47 mín
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 0 á móti
  14. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 57 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  17. Þingskjal
  18. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
702Stjórnarfrumvarp6. apr. 2018Guðlaugur Þór ÞórðarsonLesaPDF
1153Nefndarálit11. jún. 2018Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir +6LesaPDF
1154Breytingartillaga11. jún. 2018Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir +6LesaPDF
1208Nefndarálit11. jún. 2018Gunnar Bragi SveinssonLesaPDF
1270Frumvarp eftir 2. umræðu27. jún. 2018—LesaPDF
1285Lög (samhlj.)12. jún. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur10. apríl 2018 kl. 22:59
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ utanríkismálanefnd10. apríl 2018 kl. 22:59
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 16:35
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Íslandsstofa“.
    1
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 16:37
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Íslandsstofa“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 16:39
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Íslandsstofa“.
    2--6
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 16:40
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Íslandsstofa“.
    2.--10. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • VViðreisn:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. júní 2018 kl. 16:40
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 20:41
    Að veita afbrigði frá þingsköpum í málinu „Íslandsstofa“.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
  • Samþykkt12. júní 2018 kl. 20:43
    Að samþykkja frumvarpið „Íslandsstofa“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:3 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

57 ræður · 2 klst. 24 mín
  • 1. umræða: 33 ræður · 7 ræðumenn · 1 klst. 37 mín
  • 2. umræða: 24 ræður · 11 ræðumenn · 47 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn11 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn826 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka22 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn44 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur36 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn24 mín
Inga SælandFlokkur fólksins11 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn38 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn1230 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur1242 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur211 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn33 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur11 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka11 mín
Albertína Friðbjörg ElíasdóttirSamfylkingin24 mín

Umsagnir og erindi

4 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Utanríkismálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 12. apr. 2018, frestur 23. apr. 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
FerðamálastofaumsögnOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
UtanríkisráðuneytiðumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.