Beint í efni
Alviti
Þingmál145. þing · 458. mál

Félagsþjónusta sveitarfélaga

Skilyrði fjárhagsaðstoðar

LagafrumvarpDagaði uppiFélagsmálSveitarstjórnarmál

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 16. feb. 2016

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 145. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að skýra ákvæði sem snúa að reglum sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð og eyða óvissu. Að virkja atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til óvinnufærni.

Lagt fram af Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
20. janúar 2016
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
128 ræður · 7 klst. 25 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. okt. 2016

Markmiðið

Að skýra ákvæði sem snúa að reglum sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð og eyða óvissu. Að virkja atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði til óvinnufærni.

Hvað breytist

Lagt er til að ráðherra gefi árlega út leiðbeinandi reglur til sveitarfélaga um framkvæmd fjárhagsaðstoðar þar sem meðal annars sé kveðið á um viðmiðunarfjárhæðir og að sveitarfélögin fái skýrari heimildir til að skilyrða fjárhagsaðstoð félagsþjónustu.

Lagt er til að heimilt verði að kveða á um skerðingu mánaðarlegrar grunnfjárhagsaðstoðar í tvo mánuði í senn. Þá er lagt til að ekki verði heimilt að skerða mánaðarlega grunnfjárhagsaðstoð um meira en helming.

Gerðar hafa verið breytingar á 2. gr. frumvarpsins frá því það var flutt á 144. löggjafarþingi. Snúa þær breytingar meðal annars að því að tilgreind eru skilyrði sem hægt er að setja svo að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit.

Lög sem breytast

Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Sjá einnig 129. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er reiknað með auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ásmundur Friðriksson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 2. mar. 2016
Sendu inn umsögn eða erindi
15 aðilar
Lára Björnsdóttir, Alþýðusamband Íslands, Reykjavíkurborg, velferðarsvið, Hafnarfjarðarbær, fjölskylduráð, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 klst. 25 mín · 128 ræður
18 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er reiknað með auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 12 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    128 ræður · 7 klst. 25 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. mars 2016
    2 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
732Stjórnarfrumvarp20. jan. 2016Eygló HarðardóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur16. febrúar 2016 kl. 16:08
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd16. febrúar 2016 kl. 16:08
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

128 ræður · 7 klst. 25 mín
  • 1. umræða: 128 ræður · 18 ræðumenn · 7 klst. 25 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka201 klst.
Sigríður Ingibjörg IngadóttirSamfylkingin1856 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka1327 mín
Eygló HarðardóttirFramsóknarflokkur1126 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka1038 mín
Páll Valur BjörnssonUtan þingflokka722 mín
Steingrímur J. SigfússonUtan þingflokka630 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka629 mín
Elsa Lára ArnardóttirFramsóknarflokkur521 mín
Ásmundur FriðrikssonSjálfstæðisflokkur519 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin517 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur48 mín
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka320 mín
Valgerður BjarnadóttirSamfylkingin318 mín
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokka318 mín
Ragnheiður RíkharðsdóttirSjálfstæðisflokkur318 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka312 mín
Brynhildur PétursdóttirUtan þingflokka38 mín

Umsagnir og erindi

15 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 17. feb. 2016, frestur 2. mar. 2016.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Lára BjörnsdóttirumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Reykjavíkurborg, velferðarsviðumsögnOpna PDF
Hafnarfjarðarbær, fjölskylduráðumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samtök sunnlenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Félagsvísindasvið Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
HrunamannahreppurumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF

Tengd mál

  • 416. mál (144. þing, ekki í Alviti enn)tengt

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.